Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 88
88
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
„AfSAk.i& hcraz. m’ipn, mxttl ég b'i<5ja. ybuf
0& qcas. ybar þa& ómak ak rc-fcta mfer"
saltið ? "
I
... að láta sig dreyma um
kossa hans.
TM Rea. U.S. Pat. Oft.—all rights reserved
°1984 Los Angeles Times Syndicate
Halló kona góð, þú misstir neitt hér, aðeins flutt hús-
eitthvað! gögnin á milli...
Viðgerðir
Kona hringdi og spurðist fyrir
hvar væri hægt að fá gert við
postulínsgripi og eins hvort ein-
hver tæki að sér að gera við
brúður.
Gleraugu
Drapplituð unglingagleraugu
fundust fyrir skömmu við Hring-
braut í grend við Umferðamið-
stöðina. Eigandi þeirra getur
hringt í síma 26191.
Plastpoki með
fötum
Plastpoki með tvennum barna-,
hlífðarbuxum, bláum og rauðum,
tapaðist fyrir nokkru. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 672414
Þessir hringdu . .
••
Okumenn virði
rétt gangandi
vegfarenda
Jóhanna hringdi:
„Oðagotið í umferðinni hefur
alveg farið úr böndunum núna á
mesta annatíma ársins. Það kem-
ur varla fyrir lengur að bílar stöðvi
við gangbrautir þó ökumennirnir
sjái að fólk bíði færis að komast
yfir. Það er lágmarkskrafa að
ökumenn virði rétt gangandi
vegfarenda á gangbrautum. Þá
vil ég hvetja ökumenn til að aka
aðeins hægar og lát sér ekki liggja
þessi reiðinar ósköp á. Það er eins
og fólkið gefi sér ekki neinn tíma
til að hugsa í umferðinni og þess
vegna skapast oft mikil slysa-
hætta.“
Hver koparhúðar
barnaskó?
Spurst var fyrir um hvar væri
hægt að láta koparhúða barnaskó.
Hvítt BMX hjól
Hvítt BMX hjól fannst við
Jaðarsel fyrir skömmu. Eigandi
þess getur hringt í síma 75971.
Víkverji skrifar
að er ekki ýkja langt síðan
verzlun og þjónusta bjuggu
við ströng verðlagshöft. í baráttu
samtaka verzlunarinnar gegn
þeim voru nefnd fjölmörg dæmi
um það, að innkaup yrðu hagstæð-
ari, ef verðlagning yrði gefin
fijáls. I þeim umræðum komu
fram efasemdir hjá öðrum um, að
hægt væri að treysta verzlunar-
stéttinni fyrir frjálsri álagningu.
Nú er nokkur tími liðinn frá
því, að álagning var gefin fijáls.
Það voru mikil tímamót í sögu
fijálsrar verzlunar á íslandi.
Áreiðanlega sýnist sitt hveijum
um, hvernig til hefur tekizt. Engin
spurning er um það, að samkeppni
í matvöruverzlun hefur aukizt
mjög. Neytendur taka líka meira
eftir verði en áður. Víkveiji hefur
það fyrir satt, að verzlun hafi dot-
tið niður í þeim matvöruverzlun-
um, sem verst komu út úr síðustu
verðkönnun Verðlagsstjóra ogtek-
ið við sér á ný um leið og þessar
verzlanir lækkuðu verð á vörum
sínum.
Því er hins vegar ekki að neita,
að Vikveiji hrökk við, þegar hann
af tilviljun horfði á verðmiða á
tveimur dósum af Grandoskaffi
en dósirnar eru grænar að lit.
Önnur dósin, sem sennilega var
keypt fyrir u.þ.b. viku hafði kostað
386 krónur. Þar sem ekki er hægt
að segja til um með öruggri vissu
hvar hún var keypt, skulu engar
getgátur hafðar uppi um það. Hin
dósin kostaði kr. 318.60 og var
keypt í Kron. Þessi mismunur
nemur kr. 67.40 og er svo mikill,
að hann verður tæpast skýrður
nema með ótrúlegum mun á álagn-
ingu.
xxx
ótt dæmi af þessu tagi séu
sjálfsagt ekki mörg í mat-
vöruverzlun vegna þeirrar hörðu
samkeppni, sem ríkir þar, er hins
vegar ljóst, að hið sama á ekki
við um ýmsar aðrar verzlunar-
greinar eins og t.d. tízkuvöruverzl-
anir. Verðlag í sumum þessara
verzlana er með ólíkindum , þegar
það er borið saman við verð í dýr-
um fataverzlunum í Evrópu eða
Bandaríkjunum. Þetta er þó ákaf-
lega mismunandi. Sumar fata-
verzlanir, og þá ekki sízt
karlmannafatabúðir, bjóða fatnað
á afar hagstæðu verði. í Róm er
fræg verzlunargata, sem heitir Via
Condotti. Þar er verðlag svo hátt,
að jafnvel efnaðir Islendingar
hljóta að teljast fátæklingar, þegar
þangað er komið. Samt er það
svo, að hér í Reykjavík eru tízku-
vöruverzlanir, sem eru samkeppn-
isfærar við búðirnar á Via Condotti
um verð! Hitt skal dregið í efa,
að þær séu samkeppnisfærar við
hinar ítölsku um gæði. En það er
ekki að ástæðulausu, að þjóðin
flykkist til Glasgow í innkaupa-
ferðir, þótt bæði stjórnmálamenn
og kaupmenn býsnist yfir því.
xxx
Eftir að stöðugleiki hóf innreið
sína í íslenzkt efnahagslíf fyr-
ir Qórum árum og daglegt gengis-
sig heyrði sögunni til hefur
verðskyn neytenda eflzt mjög. Nú
geta verzlanir ekki lengur borið
fyrir sig gengissigið. Þær geta
hins vegar enn borið fyrir sig tolla
og vörugjöld. Á næsta ári dugar
sú röksemd ekki lengur. Þess
vegna má búast við, að sú mikla
samkeppni, sem ríkir í matvöru-
verzlun um verðlag nái til annarra
verzlunargreina einnig. Hún má
að skaðlausu einnig ná til þjónustu
af margvislegu tagi. Hækkanir á
þjónustu á þessu ári eru víða ótrú-
legar. Einn viðmælandi Víkverja,
sem ferðast mikið vegna starfs
síns, hafði orð á því á dögunum,
að fatahreinsun væri dýrari hér á
íslandi en jafnvel á dýrustu hótel-
um í Evrópu!