Morgunblaðið - 15.12.1987, Qupperneq 93
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
93
KNATTSPYRNA / HM-KEPPNIN
„Við munum setja
markið hátt“
- segir Ellert B. Schram, formaður KSf. „Takmarkið
er að ná öðru sæti og tryggja okkurfarseðilinn til Ítalíu."
„Við hoppuðum ekki hæð okkar
af ánægju þegar við drógumst
í riðil með Sovétmönnum og
A-Þjóðverjum, ásamt Tyrkjum
og Austurríkismönnum," sagði
Ellert B. Schram, formaður
Knattspyrnusambands ís-
lands, þegar hann var spurður
um mótherja íslendinga í und-
ankeppni HM í knattspyrnu.
Ellert var viðstaddur HM-drátt-
inn, ásamt Sigurði Hannessyni,
framkvæmdastjóra KSÍ og Sigi
HM-drátturinn
Allir þeir sem voru viðstadd-
ir dráttinn í heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu -
voru sammála um að fimmti rið-
ilinn væri sá sterkasti í Evrópu.
í honum leika Frakkland, Skot-
land, Júgóslavía, Noregur og
Kýpur.
Riðlaskiptingin í Evrópu er
þannig:
1. RIÐILL: Danmörk, Buigarta,
Rúmenía og Grikkland.
2. RIÐILL: England, Pólland,
Svíþjóð og Albanía.
3. RIÐILL: Rússland, A-Þýska-
land, Austurríki, Island og
Tyrkland.
4. RIÐILL: V-Þýskaland, Holl-
and, Wales og Finnland.
5. RIÐILL: Frakkland, Skot-
land, Júgóslavla, Noregur og
Kýpur.
6. RIÐILL: Spánn, Ungverj'a-
land, N-írland, Irland ogMalta.
7. RIÐILL: Belgía, Portugal,
Tékkóslóvakía, Sviss og Luxem-
borg.
Tvær þjóðir komast til Ítalíu úr
þeim riðlum sem fimm þjóðir eru
í. Sigurvegaramir úr fjögurra
þjóða riðlunum komast áfram
og tvær þjóðir sem ná bestum
árangri í öðru sæti ( riðlunum
þremur. Ítalía er fjórtánda Evr-
ópuþjóðin sem keppir I loka-
keppninni 1990.
Argentínumenn komast frá S-
Ameríku, sem heimsmeistarar.
Þrjár aðrur þjóðir eíga mögu-
leika á að komast áfram. Leikið
er í þremur riðlum (S-Ameríku.
1. RIÐILL: Uruguay, Perú og
Bolivía.
2. RIÐILL: Paraguay, Kolumbla
og Ecuador.
3. RIÐILL: BrasiKa, Chile og
Venezuela.
Sigurvegararnir úr 1. og 3. ríðli
komast beint til Italíu. Sigurveg-
arinn í öðrum riðli leikur um
sæti - við sigurvegarar í Eyja-
álfuriðli.
Tvær þjóðir frá Afríku, Asíu og
Mið- og Norður-Ameríku kom-
ast til Italíu.
Nýr samningur
vid Adidas
Ellert B. Schram, formaður KSÍ
og Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri sambandsins, áttu
viðræður við menn frá Adidas, þeg-
ar þeir voru í Zíirich um helgina.
Adidas hefur boðið KSÍ nýjan samn-
ing sem knattspyrnusambandið
mun að öllum líkindum taka. Lands-
lið íslands í knattspyrnu hafa
undanfarna áratugi leikið í búning-
um frá Adidas.
Held, landsliðsþjálfara Islands,
þegar dregið var í Zúrich í Sviss
sl. laugardag.
ákveða leikdaga í HM-riðlunum,“
sagði Ellert B. Schram.
Reuter
Knattspyrnusnllllngurlnn Pele frá Brasilfu, lék stórt hlutverk þegar dreg-
ið var í HM-keppninni í Zurich.
Við munum setja markið hátt
og takmarkið er að ná öðru
sæti í riðlinum og tryggja okkur
þar með farseðilinn til HM á Ítalíu
1990. Rússar eru með öflugt lands-
lið, en hinar þjóðirnar eru ekki
óviðráðanlegar. Þátttaka okkar í
HM mun kosta okkur mikla pen-
inga. Það eru margar erfiðar ferðir
framundan," sagði Ellert.
Ellert sagði að landsliðið hafi áður
leikið gegn A-Þjóðveijum og Tyrkj-
um. „Við vitum vel hvernig þeir
leika og þeir eiga ekki að geta kom-
ið okkur á óvart. Austurríkismenn
eru ( öldudal um þessar mundir,
þannig að þeir eiga að vera viðráð-
anlegir. Allir leikirnir í riðlinum
verða þó erfiðir, enda HM-leikir."
Leikdagar ákveðnir í Vín
„Við munum hefja undirbúning
okkar á fullum krafti eftir að búið
verður að ákveða leikdaga. Það
verður gert í Vín í Austurríki 10.
janúar. Eftir Vínarfundinn getum
við fara að leita eftir vináttuland-
sleikjum - bæði heima og að
heiman. Það er ekki hægt að fara
að semja um landsleiki fyrr en allar
Evrópuþjóðimar eru búnir að
Pétur Pétursson sést hér sækja að marki Rússa í Evrópukeppni landsiiða. íslendingar og Rússar gerðu jafntefli, 1:1,
á Laugardalsvellinum.
OL-liðið í keppnis-
ferð um Persaflóa
Fljótlega mun stjóm Knatt-
spyrnusambands íslands
koma saman og ræða um og
skipuleggja verkefni landsliðsins
í knattspymu. Olympíulandsiiðið
á eftir að leika fjóra leiki í undan-
keppni OL - gegn A-Þjóðveijum
og Hollendingum úti og gegn
Portugölum og ítölum heima.
Leikimir verða í apríl og maí.
Liður í undirbúningi landsliðsins
verður tíu daga keppnisferð til
landanna við Persaflóa. „Það
verða leiknir Qórir leikir ( ferð-
inni,“ sagði Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri KSI. Það er
enn ekki vitað við hvaða þjóðir
verður leikið, en að öllum líkindum
verður leikið gegn Egyptum og
Kuwait-mönnum í ferðinni.
Þessi ferð verður einnig undirbún-
ingsferð fyrir undankeppni HM,
þvf að flestir þeir leikmenn' sem
eru í Olympíulandsliðinu, hafa
einnig leikið með a-landsliðinu og
verða án efa í landsliðshópi Sigi
Held fyrir HM-slaginn.
Held er ekki óhress
með HM-dráttinn
Vildi þó vera laus við að mæta Rússum og A-Þjóðverjum aftur
„ÞETTA var ekki draumadrátt-
urinn fyrir ísland. Við hefðum
vilja vera lausir við að mæta
Rússum og A-Þjóðverjum aft-
ur, þar sem við vorum í sama
riðli og þeir f Evrópukeppni
landsliðs," sagði Sigi Heid,
landsliðsþjálfari íslands f
knattspyrnu, eftir að búið var
að draga f riðla f HM. Held var
þó ekki óánægöur. „íslending-
ar eiga jafn mikla möguleika á
að komast áfram - eins og hin-
ar þjóðirnar f riðlinum. Það
kemur okkur til góða, að þekkja
vel til landsliða Rússlands og
A-Þýskalands.“
að var lán í óláni að íslending-
ar höfnuðu í fimm þjóða riðli.
Tvær þjóðir komast áfram úr hvetj-
um riðli sem fimm þjóðir leika í.
Átta þjóðir komast úr riðlunum fjór-
um og síðan komast sigurvegararn-
ir úr hinum riðlunum þremur áfram.
Einnig þær tvær þjóðir sem ná best-
um árangri í öðru sæti í riðli eitt,
tvö og (jögur. Þrettán þjóðir frá
Evrópu komast í úrslitakeppnina á
Ítalíu. Gestgjafamir, Ítalía, verður
fjórtánda Evrópuþjóðin.
„Draumariðillinn var sá sjötti. Ef
við hefðum hafnað í honum, væru
móthetjar okkar Belgíumenn, Port-
ugalar, Tékkar og Luxemborgar-
menn,“ sagði Sigurður hannesson,
framkvæmdastjóri KSÍ.
„Við munum fljótlega setjast niður
og fara að hugsa um undirbúning-
inn fyrir HM. Við þurfum að tryggja
okkur nokkra vináttuleiki og eru
Hollendingar mjög jákvæðir í sam-
bandi við að leika gegn okkur,“
sagði Sigurður.
Sigurður sagði að þegar leikdagar.
yrðu ákveðnir, yrði stefnt að því
að leika fyrri leikinn gegn Rússum
í Rússlandi.
Það er óvíst hvort að ísland leiki (
vor fyrstu leikina í HM. „Olympíu-
landsliðið leikur flóra leiki í apríl
og maí, þannig að erfitt verður að
koma fyrir leikjum á þeim tíma.
Við munum vanda mjög vel til leik-
daga, þannig að við eigum ekki í
erfíðleikum með að fá atvinnu-
mennina okkar lausa í HM-leikina,“
sagði Sigurður.
Slgfrid H«ld
Sigi Held
áframmeð
landsliðið
Sigfrid Held, landsliðsþjálf-
ari íslands ( knattspyrnugi
verður að öllum Kkindum áfram
með landsliðið og stjómar því (
HM-keppninni. Ellert B.
Schram, formaður KSÍ og Sig-
urður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri sambandsins,
ræddu við Sigfrid Held í Zurich
á laugardaginn. „Held sagði að
hann væri tilbúinn að vera
áfram með landsíiðið. Það er
einnig áhugi hjá okkur að hann
verði áfram. Held hefur unnið
gott starf fyrir okkur,“ sagði
Ellert B. Schram.
Ellert sagði að það verði rætt
um endurráðningu Helds á fundi
hjá KSÍ í vikunni. „Ég reikna
fastlega með því að þá verði
gengið frá ráðningu Helds. Við
höfum náð samkomulagi við
Held, sem kynnt verður á fund-
inum,“ sagði Ellert.