Morgunblaðið - 15.12.1987, Page 95
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987
95
GETRAUNIR
Fengu rúmlega fimm milljónir
króna á opinn kerfissedil
Röð með þremurföstum leikjum og níu tvítryggðum gaf fjórum félögum hæsta vinning í sögu Getrauna
„VIÐ höfum ekkert verið með
í vetur, en þessi stóri pottur
heiliaði og við slógum til. Við
sjáum ekki eftir því núna og
höldum örugglega áfram með
sama eða svipað kerfi,“ sagði
Geirarður Geirarðsson, sem
ásamt þremur vinnufélögum
sínum hjá Almennum Trygg-
ingum, datt heldur betur i
lukkupottinn hjá Getraunum
um helgina.
Geirarður og Viðar Birgisson
sáu um útfyllinguna, en auk
þeirra voru með í kerfinu bræðurn-
ir Birgir Lúðvíksson, faðir Viðars
og formaður knattspymufélagsins
Fram, og Þorgeir Lúðvíksson. Fé-
lagamir voru einir með 12 rétta
Ieiki um helgina og einnig voru
þeir með níu raðir með 11 leikjum
réttum. Samtals fengu þeir f sinn
hlut 5.016.576 krónur, sem er hæsti
vinningur í sögu Islenskra Get-
rauna.
„Við höfum tekið þátt í getraunun-
um í mörg ár og reyndar voram
við lengi vel 10 héma í fyrirtækinu,
sem vorum saman með kerfi. En
þegar salan minnkaði dofnaði áhug-
inn og þó við höfúm af og til fengið
vinning, vantaði neistann í haust,"
sagði Viðar.
Þrír fastir og níu hálftryggðlr
Félagamir voru með opmn seðil og
þeir voru sammála um að slíkur
seðill værri hentugasta formið og
sérstaklega gott fyrir alla hópa.
Eftir að hafa skoðað leikina á seðl-
inum ákváðu þeir að vera með roð
með þremur föstum leikjum og níu
tvítryggðum, röð sem kostar 5.120
krónur. „Við tókum í raun ekki
mikla áhættu og þegar úrslitin lágu
fyrir var ég viss um að tólfurnar
væra yfír 30,“ sagði Viðar og hinir
tóku undir orð hans. „Spennan jókst
hins vegar þegar búið var að fara
yfír 60% seðlanna og við enn einir
með 12 rétta, en skömmu fyrir
miðnætti á laugardaginn var Ijóst
að við höfðum hirt pottinn og gieð-
in var að vonum rnikil," sagði
Geirarður.
„Umræddur seðiil kostar ekkert
fyrr en honum er skilað útfylltum.
A bakhlið hans era skráð 49 kerfí,
sem hver og einn getur valið og
þarf aðeins að fylla út eina röð.
Við vorum lengi að hugsa um röð
með fimm föstum, fjórum
tvítryggðum og þremur þrítryggð-
um, en eftir á að hyggja fannst
okkur ekki ástæða til að þritryggja
neinn leik að þessu sinni,“ bætti
Geirarður við.
39 raðir komu fram með 11 réttum
oggafhver 24.469 krónur í vinning.
Morgunblaðia/Bjarní
Þelr fengu rúmlega fímm milljónir í getraununum um helgina. Birgir
Lúðvíksson situr með vinningsröðina, en fyrir aftan standa frá vinstri Geir-
arður Geirarðsson, Þorgeir Lúðvíksson og Viðar Birgisson.
HANDBOLTI
Wanne Eickel gerði jaf ntef li
við Val og sigraði Fram
VESTUR-ÞÝSKA 2. deildarliðið
Wanne Eickel, sem Bjarni Guð-
mundsson leikur með, gerði
23:23 jafntefli við Val á laugar-
daginn og vann Fram í gær-
kvöldi, 21:17(10:9), en leikur
gegn FH á morgun.
Viðureignin í gærkvöldi var lítt
spennandL Þegar 10 mínútur
voru til leiksloka var staðan jöfn,
15:15. Þá skoraðu Þjóðveijarnir
þrjú mörk í röð og úrslitin ráðin.
Framarar voru slakir, Bjami lék
lítið með Wanne Eickel, en Stauten-
berg var bestur.
Mörk FVam: Birgir Sigurðuon 5, Atli Hilmarsaon 5/2, Egill
Jóhannesaon 5/3 og Júlfus Gunnarsaon 2.
Mörk Wanne Eickel: Stautenberg 6. Keyaere 6, Bjami
Guðmundsson 3, Rauin 3, Mazur 2, Lohrman 1 og Springel 1.
Leikurinn gegn Val var nokkuð
köflóttur, en Valsmenn höfðu fram-
kvæðið þar til staðan var 20:17.
Þá kom Bjami, sem var aðeins með
fyrstu minútumar, aftur inná og lið
hans náði að jafna með skoti beint
úr aukakasti þegar leiktíminn var
úti, 23:23.
Landsliðsmaðurinn Thomas Spring-
el var bestur í liði Wanne Eickel
ásamt Bjama sem lék þó full lítið
með. Júlíus og Geir voru þeir einu
sem spiluðu af fullri getu hjá Val.
Mörk Vals: Júliua Jónasson 8/1, Jakob Sigurösson 4, Valdi-
mar Grímsson 4/1, J6n Krátjánsson 3, Geir Sveinsson 2,
Theódór Guðfinnsson og Gísli öskareson eitt mark hvor.
Mðrk Wanne Eickel: Springel 8/1, SUutenberg 5, Bjami
Guðmundsson 4/2, Keysere 2, Dirk Rauin 2, FVank Mazur
2 og Hinkelmann 1.
M orgunblaöiö/Bja rn i
Júlfus Gunnarsson og Egill Jóhannesson skoruðu samtals sjö mörk í gær-
kvöldi, en hér eru þeir of seinir til vamar.
KORFUBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Æsispennandi í lokin í gær
IS sigraði ÍBK í 1. deild kvenna
í körfubolta í gærkvöldi í íþrótta-
húsi Hagaskóla. Leikurinn var
æsispennandi í lokin, en þegar þijár
mín. voru eftir var
Skúli staðan 56:42 fyrir
Unnar ÍS! Stúdínum tókst
Sinsson því aðeins að skora
sknfar ejna körfu á loka-
kaflanum gegn 15 stigum Keflvík-
inga. Er flautað var til leiksloka
skildi aðeins eitt stig — úrslitin
urðu 58:57 — en Anna María
Sveinsdóttir, ÍBK, fékk bónusskot
er 4 sekúndur voru eftir. Hún gat
því jafnað en nýtti skotið ekki.
Anna Maria var vítadrottning Is-
landsmótsins í fyrra, en það dugði
ekki nú. Kolbrún Leifsdóttir var
stigahæst hjá ÍS með 12 stig,
Hafdís Helgadóttir skoraði 11 og
þær Anna Björk Bjarnadóttir og
Helga Friðriksdóttir 10 stig hvor.
Hjá ÍBK var Anna María stigahæst
með 16 stig, Björg Hafsteinsdóttir
gerði 12 og Auður Raftisdóttir 10.
Um helgina sigruðu KR-stúlkumar
Grindvíkinga 51:42 og ÍR vann
Njarðvík 39:33. Báðir fóru leikimir
fram á suðumesjunum. ÍR hefur
nú 14 stig eftir _8 leiki, ÍS 10 stig
eftir 8 leiki og ÍBK 8 stig eftir 7
leiki.
■ MORTON, sem er í neðsta
Sæti skosku úrvalsdeildarinnar í
knattspymu með níu stig í 24 leikj-
um, hefur fengið á sig 57 mörk og
er það met. Til að bæta vamarleik-
inn og forðast fall hefur liðið gert
samning við þijá Dani, Thomas
Jacobsen frá B1903, Lars Christ-
iansen og Carsten Margaard, sem
báðir leika með Odense. Jacobsen
leikur að öllum líkindum með gegn
Dundee á morgun, en hinir hafa
enn ekki fengið tilskilin leyfí.
■ GUNILLA Axen, miðheiji
sænska kvennalandsliðsins í knatt-
spymu og knattspyjmukona
Svíþjóðar í fyrra, er fljótari og
sterkari en nokkra sinni fyrr að
eigin sögn. Ástæðan? Jú, hún fór í
bijóstaaðgerð og lét fjarlægja um
1.3 kg. „Bijóstin vora einfaldlega
of stór. Þegar ég hljóp í eina átt
var sem þau væra á leiðinni í aðra,“
er haft eftir henni í Aftonbladet.
■ GIOVANNI Evangelisti
heldur bronsverðlaununum, sem
hann hlaut í langstökki á HM á
Ítalíu í byijun september. í síðasta
mánuði var því haldið fram að stökk
BLAK
hans, 8,38 m, hefði vísvitandi verið
mælt 58 sm of langt og því ætti
Bandaríkjamaðurmn Larry
Myricks, sem stökk 8,33 m, að fá
bronsið. Alþjóðafíjálsíþróttasam-
bandið ákvað hins vegar í gær að
rétt hefði verið að málum staðið í
Róm og því stæðu úrslitin.
■ DIEGO Maradona hefur loks
gert upp hug sinn og um helgina
framlengdi hann samninginn við
Napólí til ársins 1993. Því virðist
hann vera hættur að hugsa um að
leika með öðrum liðum í Evrópu,
en Maradona, sem er 27 ára, hefur
sagt að hann vilji ljúka ferlinum
þar sem hann hófst — hjá Bot^
Juniors í Argentínu.
■ STEFAN Reuter skoraði fyrir
vestur-þýska landsliðið í knatt-
spymu gegn Brasilíumönnum,
þegar ein mínúta var til leiksloka
og tryggði liði sínu 1:1 jafntefli í
vináttuleik þjóðanna, sem fram fór
í Brasilíu á laugardaginn. Batista
skoraði mark heimamanna á 67.
mínútu, en þrátt fyrir nær látlausa
sókn, tókst þeim ekki að skora
fleiri mörk.
Þróttur lá'
á Akureyri
MEISTARAR Þróttar töpuðu
fyrir KA á Akureyri í blaki á
laugardaginn og virðast stúd-
entar því hafa gófta stöðu
þegar farift er í jólafrí. ÍS hefur
fjórum stigum meira en Þróttur
og allt útlit fyrir aft þeim takist
að hnekkja áralangri einokun
Þróttar.
róttarar byijuðu þó vel og unnu
fyrstu hrinuna 15:12 en heima-
menn svöruðu af öryggi með 15:7
sigri. Þróttur vann þá þriðju 15:10
og í þeirri ijórðu vora þeir 13:11
yfír en KA tókst að sigra 15:13.
Lokahrinuna vann síðan KA 17:15
eftir að Þróttur hafði 14:12 yfír.
Þróttarstúlkur unnu KA örugglega
15:5, 15:5, 15:2 og á Neskaupstað
unnu Blikastúlkur 15:2, 15:5 oe
15:2.
Víkíngur vann Þrótt á Neskaupstað
einnigöragglega, 15:11,15:5,15:8U—-