Morgunblaðið - 03.01.1988, Page 1

Morgunblaðið - 03.01.1988, Page 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 1. tbl. 76. árg. ______________________SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins E Áramótaávörp Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjov: Ahersla lögð á nýja samn- inga um afvopnunarmál Washington, Moskvu. Reuter. Windscale: Annað mesta kjarn- orku- slysið? London. Reuter. ÍRSK stjórnvöld og breska stjórn- arandstadan hafa gagnrýnt harðlega þá ákvörðun breskra stjómvalda frá árinu 1957 að þagga niður kjamorkuslysið, sem varð í Windscale-kjarnorkuverinu i Norðvestur-Englandi það ár. í leyniskjölum, sem gerð voru opinber á föstudag, 30 árum eftir slysið, kemur fram, að Harold Macmillan, þáverandi forsætisráð- herra, skipaði svo fyrir, að málið skyldi þaggað niður. Á föstudag ítrekaði írska stjómin kröfu sína um lokun verksmiðjunn- ar, sem nú er vinnslustöð fyrir lqamorkuúrgang og heitir Sellafield. Verksmiðjan losar sig við geislavirkt vatn í írlandshaf. Michael Spicer aðstoðarorkumála- ráðherra sagði í viðtalsþætti í breska ríkisútvarpinu, BBC, að bresk stjóm- völd fylgdu nú þeirri stefhu að leyna engu í þessum málum — sem væri einsdæmi. Tony Benn, fyrrum orkumálaráð- herra Verkamannaflokksins, sagði hins vegar í sama útvarpsþætti, að svipuðum atvikum hefði verið haldið leyndum. „Ef öll skjöl síðustu þriggja áratuga væru nú gerð opinber, mundu tugir svipaðra atvika koma fram í dagsljósið," sagði hann. Engin dauðaslys urðu, þegar kviknaði í kjamakljúfnum í Winds- cale. Þar fór fram plútóníumfram- leiðsla fyrir herinn. Eldurinn logaði i 16 klukkustundir og olli mikilli loftmengun. Er talið, að þama hafi orðið annað mesta kjamorkuslysið í heiminum — hið næsta á eftir Chemobyl-slysinu í Sovétríkjunum í apríl 1986. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, lögðu áherslu á afvopnunarmál í ára- mótaávörpum sínum en þeim var báðum sjónvarpað í hvoru- tveggja ríkinu. Kváðust þeir vona, að unnt reyndist að semja um fækkun langdrægra kjarn- orkuvopna á fyrirhuguðum fundi þeirra í Moskvu á þessu ári. Ávarp Reagans var sýnt óstytt í Sovétríkjunum og svo var einnig með ávarp Gorbatsjovs á þremur bandarískum sjónvarpsstöðvum en aðrar létu sér nægja útdrátt úr því. Reagan sagði, að með sam- komulaginu um meðaldrægu flaug- amar hefði verið brotið í blað en það væri þó „aðeins byijunin". „Samningamenn ríkjanna í Genf eru nú að vinna að samningi um helmingsfækkun langdrægra kjam- orkuvopna og verið getur, að hann verði tilbúinn til undirritunar á vori komanda," sagði Reagan og bætti því við, að allt mannkyn vænti þess að árangur næðist. Noregnr: J. • ' -' ' • • ....” ' ' ■ / Rolf Presthus látinn Ósló. NTB. ROLF Presthus, formaður Hægriflokksins norska, lést í fyrra- kvöld aðeins 51 árs að aldri. Var hann maður vinsæll og vel látinn jafnt af andstæðingum sínum sem samheijum og er talið, að sæti hans verði vandfyllt fyrir norska hægrimenn. Presthus var lögfræðingur að mennt, fæddur 27. júlí árið 1936, og hóf snemma afskipti af stjóm- málum. Átti hann sæti í borgar- stjóm Óslóar áður en hann var kjörinn á þing en þegar hann féll frá hafði hann verið þingmaður í samtals 20 ár. Þegar Káre Willoch myndaði stjóm borgaraflokkanna árið 1981 varð Presthus fjármála- ráðherra og ávann sér miklar vinsældir í því erfíða embætti. Gegndi hann því fram til 1986 en þá var hann kjörinn formaður Hægriflokksins og skipti jafn- framt um ráðuneyti, var land- vamaráðherra I stuttan tíma eða þar til Verkamannaflokkurinn tók við völdunum í maí það ár. Eftir ósigur hægri manna í sveitar- stjómarkosningunum sl. haust tilkynnti hann, að hann myndi hætta flokksformennsku. Prest- hus lést á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló og var banameinið heilablæð- ing. Rolf Presthus Gorbatsjov tók í svipaðan streng í sínu máli en ljóst er af orðum beggja leiðtoganna, að enn er mik- ill ágreiningur með þeim, ekki sist um geimvamaáætlunina banda- rísku. Þá veik Reagan einnig að mannréttindamálum og stríðinu í Afganistan þótt hann nefndi það raunar ekki berum orðum. í ávarpi sínu á gamlársdag bað Jóhannes Páll páfí fyrir kristnum mönnum í Rússlandi og öðrum Austur-Evrópuríkjum en þar verður þess víða minnst á árinu, að 1.000 ár em liðin frá kristnitöku. Vitnaði hann í Helsinki-sáttmálann, sem Sovétstjómin og aðrar ríkisstjórnir í Austur-Evrópu hafa undirritað, og lagði áherslu á, að trúfrelsi væri virt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.