Morgunblaðið - 03.01.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
IJE I I IHI rVirMyNDANNA
Bandaríkin:
Babenco og
„Ironweed"
Það var ekki nóg með að hann
fengi tvær vinsælustu stjörnurnar
í Hollywood til að leika fyrir sig
heldur fékk hann uppí hendurnar
eitthvert eftirsóttasta kvikmynda-
efni sem slegist hefur verið um
vestur í Bandaríkjunum á þessum
áratug. Ekki siæmt fyrir argentín-
skan leikstjóra sem ekki hefur áður
gert mynd í Bandaríkjunum. Hect-
or Babenco má vel við una.
Stjörnurnar eru Meryi Streep
og Jack Nicholson en viðfangsef-
nið er „Ironweed", Pulitzer-bók
rithöfundarins Williams Kennedy
frá 1983, sem segir frá rónum í
Albany í kreppunni á fjórða ára-
tugnum. Handrit myndarinnar
gerði Kennedy sjálfur, en með hlut-
verk fara Carroll Baker, Fred
Gwynne, Michael O’Keefe, Diane
Venora og söngvarinn Tom Waits.
Babenco tókst með miklum lát-
um á sínum tíma að skrapa saman
þrjár milljónir dollara til að gera
„Koss kóngulóarkonunnar", mynd-
ina sem vakti athygli á honum í
Hollywood, en því var öðruvísi far-
ið með nýju myndina hans. Hún
kostaði litlar 23 milljónir sem Bab-
enco þurfti engar áhyggjur að hafa
af og það er risaveríð Trí-Star sem
sér um dreifingu á henni og auglýs-
ingar. Stórstjörnurnar létu ekki sitt
eftir liggja og það er þegar farið
að tala um nokkrar óskarsverð-
launastyttur.
„Ironweed" var frumsýnd fyrir
skömmu í Bandaríkjunum en Bab-
enco, sem er 41 árs og hefur búið
í Brasilíu frá 1971, flúði frá Holly-
wood áður en það gerðist, þreyttur
að eigin sögn, með heimþrá og
fullur óánægju og leiða vegna þess
hvernig myndir eru gerðar í Banda-
ríkjunum.
„Ég á ekki heima í þessu sam-
félagi,” sagði hann í viðtali. „Það
sem „kvikmynd" merkir í þessu
landi er ekki það sama og „kvik-
mynd“ merkir í mínum huga.
Hvernig myndir eru séðar, gagn-
rýndar, framleiddar og fjármagn-
aðar hér í þessu landi er ekki í
neinum tengslum við mína mennt-
un. Hér hef ég því ekkert að gera."
Ekki svo að skilja að gerð „Iron-
weed“, sem tekin var í Albany fyrr
á árinu, hafi verið léiðinleg reynsla
fyrir Babenco. „Þessu fleytti frið-
samlega fram," sagði Babenco og
stjörnurnar hans tvær stóðu sig
frábærlega, sérstaklega Nichol-
son, sem leikstjórinn kallar „ótrú-
legan leikara" og nefnir sem einn
af aðeins þremur vinum í Holly-
wood.
„Mér líöur eins og dinósaur,
eins og ég sé í útrýmingarhættu.
Það eru ennþá aðeins nokkrir
menn, tveir eða þrír hér og þar,
eftir sem enn trúum sterklega,
rómantískt á vald kvikmyndarinn-
ar, hvernig hún getur tekið sér
bólfestu í fólki og fengið það til
að hugsa. Þetta er eins og örvænt-
ingarfullt kapphlaup, að verða
einstakur í heimi hins viðtekna."
Eitt af mörgum vandamálum
sem steðja að bandarískri kvik-
myndagerð að mati Babencos er
ofuráhersla iðnaðarins á áætlun-
um og skrifræði. „í Brasilíu gerir
þú kreditlistann svona: Þú sest
niður með fólkinu og segir, allt í
lagi, hverjir voru með okkur í
þessu? Hvað hét bílstjórinn okkar,
Pétur eða Páll? í Bandaríkjunum
er sérstakur lögfræðingur í því að
fara í gegnum starfssamninga og
skipuleggja listann. Og ef eitt nafn
dettur út er það eins og martröð;
þú átt ekkert betra skilið en raf-
magnsstólinn."
Babenco heldur áfram: „Ég held
að fólkið sem vinnur við banda-.
ríska kvikmyndaiðnaðinn skipu-
leggi allt of mikið og sköpunin
glatast einhvers staðar í samræð-
unum. Það kostar auðvitað mikið
skipulag að gera mynd; ég veit það
vel, En fólk tapar sér í blaðabunk-
um. Eftir smá tíma hætti ég að
lesa þessi 25 minnisblöð, sem ég
fékk send á hverjum degi, og fór
að skilja að eina sambandið sem
Hector Babenco með Meryl Streep við gerð myndarinnar „Ironweed".
Streep, Nicholson og Tom Waits í bakgrunni; rónalíf í Albany.
ég þurfti að hafa var við fólkið á
upptökustaðnum, kvikmyndatöku-
manninn og leikarana."
En hvað var það sem dró suður-
amerískan kvikmyndagerðarmann
að sögu Kennedys um írskt-
amerískt utangarösfólk í Albany
árið 1938 — sagan segir frá Franc-
is Phelan (Nicholson) drykkjúsjúk-
um, fyrrum hornaboitaleikara en
núverandi róna með manndráp á
samviskunni og Helen (Streep)
sem er vinkona hans í eymdinni.
Eins og draugar fortíöarinnar elta
Francis í sögunni eltist Babenco
við „Ironweed" og William
Kennedy eftir að hafa keypt bókina
í bókabúð í Hollywood og lesið
ásamt hinum bókunum tveimur í
„Albany“-tríológíu Kennedys.
Sameiginlegur vinur kynnti hann
fyrir höfundinum og Babenco vann
Matthau, Donna Dixon og Aykroyd f gamanmyndinni, „Kæri sáli“.
Verður sýnd á næstunni í Háskólabíói:
Sálarflækjur
i'Beverly Hills
Dr. George Mitlin (Charles Grod-
in) er háttskrifaður sálfræöingur í
Beverly Hills. Biöstofan hans er
full af þurfandi sjúklingum og þús-
undir.áhugasamra hlustenda fylgj-
ast með útvarpsþaettinum hans, en
í honum gefst hlustendum kostur á
að hringja og leita ráða. Allt er
sumsé í miklum blóma. Nema Ma-
itlin er við það aö fá taugaáfall.
Hann þarfnast sannarlega lækn-
is, en lögfraeðingur hans og eigin-
kona eru ekki að hugsa um neinn
sem læknað getur sálfræðinginn
heldur einhvern sem geturtekið við
störfum hans á meðan hann er að
komast yfir veikindin. Þau finna
rétta manninn, sem er yfirmaður á
stóru geðsjúkrahúsi, en fyrir mistök
hreppir John Burns (Dan Aykroyd),
einn vistmaður sjúkrahússins,
starfið í stað geðlæknisins.
Þannig hefst nýjasta gaman-
mynd Michaei Ritchie, „Kæri sáli“
(„The Couch Trip"), sem átti að
vera jólamynd Háskólabíós í ár, en
varð að fresta. Hún verður sýnd á
næstunni. Með hlutverk í myndinni
auk Aykroyds og Grodins fara
Donna Dixon og Walter Matthau.
Það sem fékk Ritchie („The Golden
Child") til að leikstýra gaman-
myndinni var tækifærið sem hún
veitti honum til að gera góölátlegt
grín að sálfræðiþáttum í Ijósvaka-
fjölmiðlum. „Sálfræðiþættir í út-
varpi eru svo vinsælir og svo stór
partur af lífi manna," segir hann
og bætir því við að handritinu takist
að fjalla um alvarlegt efni á gaman-
saman hátt. í myndinni tekur
Aykroyd, í hlutverki vistmannsins,
f