Morgunblaðið - 03.01.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
35
Ljósmynd/BS
Björk GuAmundsdóttir, söngkona Sykurmolanna á sviöi í Lundúnum.
Velgengni Sykurmolanna ytra er eitt þaö besta sem gerðist á árinu.
Bleiku bastanna. Bastarnir leika
einfalt og hratt rokk sem vísar aft-
ur til sjöunda áratugarins og
framávið um leið. Önnur tveggja
efnilegustu hljómsveita ársins
1987.
Hin efnilegasta hljómsveit árs-
ins er Sogblettir sem einnig sendi
frá sér tólftommu um miðjan des-
ember, fjórðu bestu tólftommuna.
Sogblettir voru iðnir við tónleika-
hald á árinu og tónleikar með
sveitinni voru eftirminnilegir í
meira lagi. Tónlistin er hrá og kraft-
mikil og textarnir eru ágengir.
Platan hefði farið í fyrsta sæti ef
á henni hefði verið lagið Helvítis
djöfull.
Fimmtu bestu tólftommunni
skiptu Bubbi Morthens og Sykur-
molarnir með sér. Bubbalagið,
Skyttan, er á meðal hans bestu
og framlag Sykurmolanna vísaði í
átt að því sem kom síðar á árinu.
1978 til 1988
Kannski var það besta við árið
1987 að meira bar á lifandi tónlist
en oftast áður. Þó tónleikastöðum
hafi fækkað á árinu bættist við
einn, Duus, sem bílskúrshljóm-
sveitir hafa átt auðvelt með að fá
undir tónleika og átt auðvelt með
að fylla. Það er því von til þess að
það sé að verða álfka rokktónlistar-
vakning og fyrir tíu árum, en á
þeirri tónlistarvakningu lifir íslenski
rokkheimurinn í dag.
Árni Matthfasson
Doobie Brothers og Santana
austur fyrir járntjald og léku þar á
„friðarhátíð".
Michael Jackson gaf út nýtt lag
eftir fimm ára hlé, „I Just Can’t
Stop Loving You“.
Def Leppard gaf út plötuna
Hysteria eftir nokkra þögn, sem
stafaði af bílslysi, sem trumbuleik-
ari sveitarinnar lenti í. Á tónleika-
ferð lamdi hann þó húðirnar eins
og ekkert hafi í skorist — með
aðeins einn handlegg.
Ágúst
Who’s That Girl, kvikmynd Ma-
donnu kolféll svo, að menn spurðu
sig í raun og sann þeirrar spurning-
ar hver stúlkan væri eiginlega.
R.E.M. komst loks inn á vin-
sældalista með plötunni Docu-
ment eftir að hafa frá upphafi verið
neðanjarðarband.
The Smiths fór veg allrar verald-
ar eftir að rifrildi söngvarans
Morrissey og gítarleikarans
Johnny Marr höfðu gert sveitina
óstarfhæfa. Marr kom aftur fram
á sjónarsviðið í Kaliforníu þar sem
hann lék á tónleikum með The
Pretenders.
Michael Jackson gaf út stóra
plötu: Bad, en hún náði engan
veginn því risi, sem vænst hafði
verið.
September
Meðlimir Pink Floyd fyrr og nú
rifust um hver ætti róttinn á nafn-
inu. Roger Waters sagði að sveitin
væri öll og því hafi enginn rétt á
því, en hinir eru ekki á sama máli
og fá að halda því eftir nokkurt
þjark.
Grateful Dead gáfu út plötu eft-
ir sjö ára hlé, en hún náði platínu-
sölu vestra.
Lynyrd Skynyrd hófust handa á
ný þar sem frá var horfið.
Október
Robbie Robertson, gamli foring-
inn úr The Band gaf loksins út
plötu, sem fékk einróma lof gagn-
rýnenda.
Kvikmyndin Hail! Hail! Rock'n'-
Roll, sem gerð var í tilefni sextugs-
afmæli afarokksins, Chuck Berry,
varfrumsýnd með pompi og pragt.
Nóvember
Sýningar hófust á tónleikamynd
Prince, Sign O'The Times og vakti
mikla hrifningu.
Bítillinn George Harrison gaf
út plötuna Cloud Nine með aðstoð
foringja eins og Eric Clapton, Jeff
Lynne og Ringo Starr. Með henni
gerði hann skurk á vinsældalistum
- bæði yfir plötur og lög.
Desember
Nokkrir rokkarar lögðu til efni á
jólaplötuna A Very Special
Christmas, en þar fluttu kappar á
borð við Sting, Bruce Spring-
steen, Eurythmics, Run-D.M.C.,
John Cougar Mellencamp, Bob
Seger, U2, Madonnu, Bon Jovi,
Stevie Nicks, Pointer Sisters,
Whitney Houston, Bryan Adams,
Alison Moyet og Pretenders gam-
alkunn jólalög.
Andrós Magnússon
Kjörbókin
brást ekki lesendum sínum
frekar en fyrri daginn:
Ávöxtun í hæsta þrepi 1987
jafngilti
verðtryggðum reikningi
með 6,1% ársvöxtum
Áriö 1987 var hagstætt ár fyrir þá sem áttu sparifé sitt á
Kjörbók í Landsbankanum Þaö kom reyndar ekki á óvart
því Kjörbókin ber háa grunnvexti, sem hækka í tveimur
afturvirkum þrepum eftir 16 og 24 mánuði, auk þess sem
ávöxtunin er reglulega borin saman viö ávöxtun verötryggðra
reikninga. Reynist ávöxtun verðtryggöu reikninganna
hærri er greidd uppbót sem því nemur.
Eftir uppbót á fjórða ársfjórðung var grunnávöxtun
á Kjörbók 1987 26,6%, 16 mánaða þrepið gaf 28,0% og
hæsta þrepið 28,6%, sem jafngilti verötryggöum reikningi
meö 6,1% ársvöxtum. Rrátt fyrir þessa háu ávöxtun er r
innstæða Kjörbókar algjörlega óbundin.
Retta var Kjörbókarsagan á síðasta ári. Núgildandi grunnvextir
eru 33,0%, 34,4% eftir 16 mánuöi og 35,0% eftir 24 mánuöi.
í maí n.k. hefst svo nýr og spennandi kafli þegar
fyrsta vaxtaþrepiö kemur til útreiknings.
Þá munu Kjörbókareigendur kætast.
Tryggöu þér eintak sem fyrst.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna