Morgunblaðið - 03.01.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1988
47
Minning:
Þórhildur Frímannsdóttir
*
frá Litla-Arskógssandi
Fædd 1. nóvember 1912
Dáin 24. desember 1987
Þótt allir viti um gestinn sterka,
og flestum óvelkomna, dauðann, sem
gengur um mannheim og grisjar
gróður lífsins, þá eru fáir viðbúnir
komu hans, þegar hann kemur til
hvers og eins, og heimtir hann með
sér til hinstu farar yfir móðuna miklu
sem aðskilur frumlíf og framlíf.
Ýmsum er hann þó aufúsugestur,
þegar lífið er orðið illbærilegt og
hylla fer undir framtíðarlandið
bjarta, sem allra bíður að ævilokum,
og þar sem vinir bíða fagnandi og
bjóða velkominn hvem þann sem
gengið hefur á enda gönguna
ströngu.
Og nú er enn ein slík æviganga
á enda runnin, þar sem um er að
ræða Þórhildi Frímannsdóttur sem
kvaddi þessa jarðlífstilveru á að-
fangadag jola, einmitt í þann mund,
er allir voru að búa sig undir að
fagna komu jólanna, með friði þeim
og blessun, sem þeirri hátíð fylgir
og fylgja ber. En alveg er víst, að
ekki hefur sá fögnuður verið minni,
sem hún nú gekk inn í, heldur ósegj-
anlega miklu meiri, en við menn
eigum nokkum kost á að njóta,
meðan hér er dvalist, þótt annars
megi margt gott um okkar jarðvist
segja, þrátt fyrir allt.
Foreldrar Þórhildar vom þau
hjónin Sigríður Finnbjamardóttir og
Frímann Þorvaldsson og bjuggu þau
í Ytri-Vík í Árskógsstrandarhreppi.
Þau eignuðust sex böm, tvær dætur
og fjóra syni, er öll komust á fullorð-
insaldur nema einn drengur er lést
17 ára.
Þórhildur lifði öll systkini sín, þau
vom öll horfin héðan á undan henni.
Þórhildur giftist Guðmundi Bene-
diktssyni þann 13. nóvember 1937
°g bjuggu þau í Ytri-Vík uns þau
fluttu á Litla-Árskógssand árið
1948, og áttu þar heima upp frá
því. Hefur sjómennska og útgerð
verið aðalstarf hans ávallt síðan.
Þau hjónin Þórhildur og Guð-
mundur eignuðust þtjá syni og hafa
þeir allir ílenst og sest að á Ár-
skógssandi er þeir stofnuðu eigin
heimili.
Hermann er þeirra elstur, fæddur
1940, skipstjóri, giftur Margréti
Amþórsdóttur frá Akureyri. Þau
eiga fjögur börn; Svafar fæddur
1941, skipstjóri.giftur Kolbrúnu
Hilmisdóttur frá Akureyri. Þau eign-
uðust sex böm. Það sorglega slys
bar að höndum, að Svafar fórst þann
31. mars 1987 á skipi sínu, er það
sökk í óveðri skammt frá landi á
Árskógssandi; Ingvar fæddur 1947,
skipstjóri, giftur Sigríði Ólafsdóttur
frá Akureyri. Þau eiga þijú böm.
Samvinna milli Guðmundar og
sonanna þriggja mun ávallt hafa
verið með mikum ágætum og ómet-
anlegt að eiga heima allir í sama
plássinu. Sama hafa þeir unnið að
sjósókn, útgerð og fiskverkun, og
mun þessi starfsemi, sem þeir hafa
stundað og rekið sameiginlega hafa
dafnað og farið vaxandi með árun-
um.
Áður en ég held lengra áfram
þessum orðum mínum langar mig
til að minnast á þau ættarbönd, sem
tengja mig eftirlifandi eiginmanni
Þórhildar, Guðmundi Benediktssyni.
Við erum náfrændur, systkina-
synir (fæddir 1914). Hann ólst upp
á Hrauni í Ámeshreppi í Stranda-
sýslu hjá foreldrum sínum Hallfríði
Jónsdóttur (f. 1887 — d. 1946) frá
stóru-Ávík og Benedikt Sæmunds-
syni, (f. 1882 - d. 1956) frá
Ófeigsfirði. Þau áttu 5 börn, sem
öll komust til fullorðinsára. Við Guð-
mundur vorum jafnaldrar og ferm-
ingarbræður. Á bernsku- og
æskuárum vomm við góðir vinir og
lékum okkur saman, er svo bar við
að fundum okkar bæri saman, en
það var fremur sjaldan, því nokkuð
langt var á milli heimila okkar þótt
innan sömu sveitar væri.
Þau Hallfríður og Benedikt flutt-
ust svo úr sveitinni, ásamt börnum
sínum árið 1932, og settust fyrst
að á Bimunesi við Eyjafjörð en
færðu sig um set áður en á löngu
leið, og fluttu sig að Litla- Árskógss-
andi, og áttu þar heima meðan bæði
lifðu.
Eg minnist fyrstu kynna okkar
hjóna, Aðalheiðar Tómasdóttur og
Þórhildar Frímannsdóttur. Það mun
hafa verið sumarið 1955 í júlímán-
uði. Við höfðum farið um Norðurland
í sumarleyfi á eigin bíl ásamt Sig-
urði, syni okkar, sem þá var 12 ára.
Einnig voru með okkur Pálína mág-
kona mín og Jóna, vinkona hennar
og starfssystir. Við höfðum verið að
skoða okkur um í Þingeyjarsýslu og
tjaldað á ýmsum stöðum. Þetta var
í fyrsta sinn, sem við fómm svo langt
norður í land. Við vomm nú komin
á heimleið og höfðum gist í tjaldi
okkar í Vaglaskógi. Meðan við vor-
Sigmjón S. Thoraren-
sen - Kveðjuorð
Fæddyr 29. sept. 1956
Dáinn 23. desember 1987
„Þeir sem guðimir elskar deyja
ungir." Þessi setning var það fyrsta
sem kom mér í hug þegar mér barst
sú fregn að elskulegur frændi minn,
Siguijón S. Thorarensen, hefði lát-
ist eftir hrakninga nú um jólin.
Siguijón Sigurður fæddist 29.
september 1956 í Reykjavík fyrsta
bam systur minnar Katrínar Thor-
arensen og eiginmanns hennar
Skúla Thorarensen fyrmm lög-
regluvarðstjóra, en hann lést 1976.
Þegar litið er yfir farinn veg á
þessum tímamótum vakna hugljúf-
ar minningar um lítinn rauðhærðan
dreng sem ég passaði á mínum
unglingsámm. Siguijón var ein-
staklega bamgóður, enda sakna
hans nú sárt systurböm hans, Skúli
og Katrín Ágústa, því hann var
þeim einstaklega hjartfólginn þegar
hann dvaldi hér syðra.
Siguijón var sjómaður að atvinnu
og hafði verið á ýmsum skipum og
bátum, nú síðast á skipi frá Bíldu-
dal.
Fráfall Sigurjóns frænda er mik-
ið áfall fyrir fjölskyldu okkar. Við
spyijum okkur. Af hveiju hann,
svona fljótt á þessum viðkvæma
árstíma um jólahátíðina? Við vitum
ekki svar við þessu. Minnumst því
orða mömmu okkar þegar hún
sagði: „Ekki gráta látna, þeim líður
dásamlega, biðjið fyrir þeirn."
Elsku systir, almáttugur guð
styrki þig og þína á þessum sorg-
artíma. Eg votta þér og fjölskyld-
unni mína innilegustu samúð.
Góður engill guðs oss leiðir
gegnum jarðneskt böl og stríð,
léttir byrðar, angist eyðir,
engill sá er vonin blíð.
(H. Hálfd.)
Gulla
um þar breytti skyndilega um veður
og gerði kalsa og úrhellisrigningu.
Blotnuðu föt okkar og flest okkar
hafurtask, og leist okkur heldur illa
á að tjalda næstu nótt, því rigning
hélt áfram. Ætluðum við þó að láta
okkur hafa það og tjalda einhvers-
staðar utan vi Dalvík.
Við höfðum ætlað okkur að heim-
sækja Guðmund, frænda minn á
Árskógssandi, og þeirri áætlun héld-
um við. Komum þar um kvöld.
Guðmundur var ekki heima, hann
var á sjó, ásamt tveim eldri sonum
sínum og var hans ekki von fyrr en
um nóttina.
En Þórhildur, þessi blessaða, góða
kona, tók okkur með allri sinni miklu
alúð og gestrisni, er hún heyrði að
ég væri náfrændi Guðmundar. Voru
móttökur hennar raunar slíkar, að
okkur fannst eins og við værum að
koma heim til bestu móður. Ekki tók
hún í mál að sleppa okkur lengra,
kvað ófært að tjalda í svona bleytu.
Vorum við sannarlega þakklát.
Fengum við hjá henni ríkulega
máltíð og bjó hún vel um okkur öll
í stofunni sinni, þótt húsakynni væru
ekki stór þá. Sváfum við vel um
nóttina og nutum þessarar dásam-
legu umönnunar, sem hún lét okkur
í té.
Sjálf mun hún hafa vakað mest
alla nóttina við að þurrka plögg
okkar, sem flest höfðu blotnað nótt-
ina áður, í illa útbúnu tjaldi okkar.
Slík fómfysi verður aldrei að fullu
þökkuð eða metin sem skyldi.
Um morguninn hittum við svo
Guðmund, sem komið hafði heim um
nóttina. Hann hafði ekki látið sér
bregða, þótt húsið væri orðið undir-
lagt af gestum. Þau hjón munu
ávallt hafa verið mjög samhent,
m.a. í öllu, er þau máttu gera öðrum
til góðs.
Þessi fyrsta koma okkar á heim-
ili þeirra Þórhildar og Guðmundar,
er okkur ávallt minnisstæð. Gestrisni
hennar og ósérplægni við að hlúa
sem best að okkur, mun ávallt bera
yfir flest hið góða, sem okkur hefur
hlotnast á langri ævi.
Síðan þetta gerðist höfum við
hjónin átt allmargar ánægjulegar
stundir með þeim Þórhildi og Guð-
mundi. Ávallt höfum við komið til
þeirra, er við höfum farið norður í
land og notið indælla stunda á heim-
ili þeiira, og eins hafa þau komið
til okkar, þá sjaldan þau hafa komið
Blómastofa
Fnófinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöid
til kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
suður til funda við bræður Guð-
mundar, sem heima eiga í Keflavík.
Eg minnist sérstaklega einnar
slíkrar stundar, Þórhildur kom heim
til okkar í Kópavoginn, og var hjá
okkur eina kvöldstund. Þetta var um
hásumar og nóttin albjört. Við ókum
með hana suður í Keflavík og lögðum
af stað þangað upp úr miðnætti. Er
við komum suður á Vatnsleysu-
strandarheiði var sólin að rísa úr
hafi framan við Snæfellsjökul. Við
fórum út úr bílnum og stönsuðum
til að geta notið þessarar dásamlegu
stundar. Sólin varpaði rauðum geisl-
um hátt á himin. Norðvesturloftið
glóði allt í gullnum ljóma. Heilluð
stóðum við öll andspænis þessari
dýrðarsýn, sem fyllti sálir okkar friði
og æðri gleði. Þórhildur hafði við-
kvæma sál og kunni að njóta þess,
sem náttúran hefur fegurst að bjóða,
á stundum eins og þeirri sem hér
gafst.
Mjög var Þórhildur listelsk í eðli
sínu, og sáum við á heimili hennar
marga hluti er báru því fagurt vitni.
Hún var mikil hannyrðakona, og
liggja eftir hana hinar fegurstu út-
saumsmyndir og önnur verk í
svipuðum stíl. Allt sýnir það listrænt
handbragð, og ber þess merki hve
sýnt henni var að hefja þessi vcrk
sín upp yfir hversdagsleikann.
Þórhildur var mikill unnandi nátt-
úrufegurðar og þá ekki síst gróðurs
og blóma. Undir suðurenda á húsi
sínu komu þau hjón sér upp afgirtum
reit, þar sem þau gátu ræktað bæði
matjurtir og ýmis útiblóm. Og þama
reistu þau lítinn blómaskála. Mun
Þórhildur hafa átt marga ánægju-
stund á þessum stað, enda bar
umhirða sem og blómin sjálf þes^,
glögg vitni, að hér hafí verið farið
um hlýjum höndum. Blóm eru við-
kvæmar verur og bera þess jafnan
merki, með hvaða hugarfari er um
þau hugsað.
Nú er jarðnesk vist Þórhildar á
enda mnnin, en minningin um hana
mun lifa ófölskvuð í hugum allra
þeirra er hana þekktu best.
Við hjónin söknum þessarar
hjartahlýju og fómfúsu konu, er
ávallt sýndi okkur tryggð og sanna
vináttu.
Við vitum að síðustu ár ævi sinnar
átti hún við vanheilsu að stríða, og-
hefur hún því að vissu leyti orðið
hvíldinni fegin. Við getum því sam-
fagnað henni að vera nú komin
þangað sem engin mein þjá framar,
og þar sem hennar bíður birta og
farsæld meiri en okkur jarðarbúa
getur rennt gmn í.
Við hjónin vottum eftirlifandi
manni hennar einlægá samúð, sem
og öllum nánum aðstandendum.
Ingvar Agnarsson
Þóra Jónsdóttir — Kveðja
Fædd 20. október 1902
Dáin 20. desember 1987
Frú Þóra Jónsdóttir er látin. Ég
var svo lánsöm að vera bamabarn
hennar og langar mig að minnast
hennar í örfáum orðum.
Amma var ein af þeim sem maður
vill svo gjaman líkjast og taka til
fyrirmyndar. Hún var alla tíð heil-
steypt og sönn gagnvart sjálfri sér
og samferðafólki sínu. Heimili sitt
annaðist hún ætíð af festu og kost-
gæfni hvort sem um stórt húshald
eða lítið var að ræða. Alltaf var
gott að koma í heimsókn til ömmu
Þóm, öllum tók hún opnum örmum,
hlustaði, sýndi skilning, ráðlagði og
síðast en ekki síst, • gaf ómælda
hjartahlýju og elsku.
Að vera vandur að virðingu sinni
finnst mér lýsa best hvemig amma
var, og gerði sér far um að kenna
okkur. Á það við um svo margt og
má nefna; umhverfi sitt og eigið
útlit, fara vel með það sem gefið er
án óþarfa íburðar og prjáls; málfar
og samræður, segja heldur minna
og vanda orð og umtal; samskipti
við. náungann, velja góðan félags-
skap og sýna sanngimi. Hennar
leiðarljós var kristin trú og mann-
kærleiki.
Það er erfitt að sjá á bak ömmu
Þóru en efst í huga er þakklæti fyr-
ir að hafa þekkt hana og notið
hennar. Minningar hennar lifír með
mörgum. Guð blessi ömmu mína.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HALLDÓRA PÉTURSDÓTTIR
frá Höfðakoti á Skagaströnd,
verður jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skagaströnd þriðjudaginn
5. janúar kl. 14.00.
Steingrímur Jónsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir, t
RAGNHILDUR HELGADÓTTIR,
sem andaðist 26. desember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
mánudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Selma Samúelsdóttir, Ketill Jensson,
Lára Samúelsdóttir, Stefán Þórarinsson,
Friðgerður Samúelsdóttir Einar Ó. Gíslason,
Samúel J. Samúelsson, Brynjólfur Samúelsson. Þórhalla Gísladóttir,
Faðir okkar, tengdafaðir, t afi og langafi,
GÍSLI V. SIGURÐSSON,
fyrrv. póstfulltrúi,
Fálkagötu 13,
verður jarðsunginn frá 13.30. Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. janúar kl.
Sigrún Gísladóttir, Gunnar Kristinsson,
Guðrún Gísladóttir, Arnar Gunnarsson,
Anna Sigriður Gisladóttir Neville, William V. Neville, Aðalheiður Erna Gisladóttir, Oddur Gústafsson,
Garðar V. Gíslason, Lára Gíslason,
börn og barnabörn.