Morgunblaðið - 03.01.1988, Side 56
VJterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
PykkiwaýM
Þar vex sem vel er sáð!
SUNNUDAGUR 3. JANUAR 1988
VERÐ f LAUSASÖLU 55 KR.
„Fleiri og alvar-
legri slys en áður“
- segir Guðmundur Viggósson augnlæknir
*®^SEX menn liggja nú á augnlækningadeild Landakotsspítala
með augnskaða af völdum flugelda. Að sögn Guðmundar Vig-
góssonar augnlæknis munu þrir þessara manna missa sjón og
einn þeirra auga. í öllum þessum tilfellum er um fullorðna
menn á aldrinum 26-65 ára að ræða og urðu slysin þegar
verið var að kveikja á svokölluðum tívolíbombum.
„Ég var í aðgerðum á skurðstofu son. „Púðurmagnið í hverri þeirra
frá klukkan 9.30 á gamlárskvöld
til klukkan 6 á nýársdagsmorgun.
Þetta eru fleiri og alvarlegri slys
en hingað hafa komið árum sam-
an,“ sagði Guðmundur Viggósson.
Hann sagði að alvarlegustu slysin
mætti rekja til tívolíbomba, þær
virtust mun hættulegri en aðrir
flugeldar. „Við sem hér störfum
^rum ákveðið þeirrar skoðunar að
ekki eigi að leyfa þessar tívolíbomb-
ur, tollurinn sem þær taka er allt
of hár,“ sagði Guðmundur Viggós-
samsvarar mörgum haglabyssu-
skotum og tíminn sem það tekur
kveikinn að fuðra upp virðist vera
mjög mismunandi. Sum slysanna
urðu vegna þess að menn héldu að
bombumar væru gallaðar og
mundu ekki springa." Guðmundur
sagði að krafturinn í sprengjunum
væri svo gífurlegur að mennimir
þrír sem alvarlegast slösuðust hefðu
ekki einungis skaddast á auga held-
ur væm bein í andlitum þeirra
einnig brotin.
Pólarprjón á Blönduósi tekið til
gjaídþrotaskipta:
Gjaldþrotið nemur um
10 milljónum króna
Málaferli í Bandaríkjumim fyrirtækinu ofviða
STJÓRN Pólarpijóns hf. á Blönduósi hefur óskað eftir því að fyrir-
tækið verði tekið til gjaldþrotaskipta og segir stjómarformaður
Pólarpijóns að skuldir umfram eignir nemi um 10 milljónum króna.
Aðalástæða gjaldþrotsins er, að sögn stjórnar fyrirtækisins, mála-
ferli sem Pólarpijón hefur átt í síðan 1984 við Dorette Egilsson
og fyrirtækið Icelander Inc. í Bandaríkjunum til innheimtu 7-8
milljóna króna skuldar. Þessi málaferli hafi orðið mjög kostnaðar-
söm og standi fyrirtækið ekki lengur undir þeim.
Upphafleg málshöfðun Pólar- þokkalega síðan. Sveitarfélög, fyr-
pijóns var vegna innheimtu á skuld
en málið var tengt málaferlum ann-
arra íslenskra fyrirtækja við
Dorette Egilsson sem voru vegna
Dneintra ólögmætra viðskiptahátta
Icelander Inc. og meintrar hringa-
myndunar íslenskra fyrirtækja í
ullariðnaði. Auk Pólarpijóns á Hilda
hf. í þessum málaferlum nú. Ing-
jaldur Hannibalsson stjómarfor-
maður Pólarpijóns hf. sagði við
Morgunblaðið að þessi málaferli
hafi dregist mjög á langinn og nú
viti enginn hve langan tíma þau
geti tekið. Ingjaldur sagðist ekki
hafa handbærar tölur um kostnað
Pólarpijóns hf. vegna þessa en hann
væri mikill og gæti fyrirtækið ekki
staðið undir honum lengur.
Rekstur Pólarpijóns var endur-
skipulagður árið 1986 og sagði
ppjngjaldur að hann hefði gengið
irtæki og einstaklingar í Húnaþingi
vinna nú að undirbúningi nýs félags
sem yfirtaki reksturinn og sagðist
Ingjaldur vonast til að hægt væri
að heija starfsemi að nýju strax
eftir helgina. 27 ársverk eru hjá
Pólarpijóni en auk þess hafa önnur
fyrirtæki í héraðinu starfað í tengsl-
um við Pólarpijón, m.a. saumað úr
voðum svo alls vinna um 50 manns
í tengslum við fyrirtækið.
Beiðni um gjaldþrotaskipti barst
að kvöldi 30. desember til Jóns ís-
berg sýslumanns í Húnavatnssýslu.
Jón sagðist í samtali við Morgun-
blaðið hafa úrskurðað sig úr málinu
þar sem hann væri hluthafí í Pólar-
pijóni og hefði hann óskað eftir því
við dómsmálaráðuneytið að skipað-
ur yrði setuskiptaráðandi sem fyrst
vegna möguleika á áframhaldandi
rekstri.
Arið kvatt í Kópavogi
Morgunblaðið/RAX
HANN Egill Fjalar Jensson, sem sést hér fremst á myndinni, var einn af hinum fjölmörgu sem
lagði leið síiía á áramótabrennuna á Kársnesi í Kópavogi á gamlárskvöld.
Tafir á gildistöku nýrra söluskattslaga:
Söluskattur 1% lægri
og engar undanþágur
SOLU SKATTUR lækkaði nú um
áramótin úr 25% í 24% vegna
þess dráttar sem varð á Alþingi
á setningu laga um söluskatt, auk
þess sem nú eru engar undan-
þáguheimildir frá greiðslu
söluskatts í gildi.
Fyrstabam
ársins
FYRSTA bam ársins
1988 fæddist kl. 5.48 á
nýársnótt í Sjúkrahúsi
Keflavfkur og var það
17 marka stúlka, dóttir
Þóru Bragadóttur og
Hafsteins Olafssonar úr
Vogunum. Litla stúlkan
er þriðja bam þeirra
hjóna sem eiga tvær
stúlkur fyrir. Síðasta
bam ársins 1987 var
drengur sem fæddist kl.
22.32 á gamlársdag á
fæðingardeild Landspít-
alans.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Að sögn Indriða H. Þorláksson-
ar, skrifstofustjóra í fjármálaráðu-
neytinu, eru áhrif þess að frumvarp
ríkisstjómarinnar um söluskatt tók
ekki gildi um áramótin, margvísleg.
í fyrsta lagi fellur niður heimild til
innheimtu 1% söluskatts, en sérstök
lög voru sett fyrir nokkrum árum
þess efnis til íjármögnunar vegna
húsnæðismála. Sú heimild hefur
síðan verið framlengd árlega und-
anfarin ár. Vegna þessa lækkar
söluskattur i 24%.
í öðru lagi tefst gildistaka ýmissa
undanþáguheimilda frá söluskatti.
Undanþágur frá greiðslu hans hafa
fram að þessu verið í fjárlögum.
Þessum undanþágum er nokkuð
fækkað og heimild til þeirra færð
yfir í lögin um söluskatt. Ailar und-
anþáguheimildir féllu niður um
áramótin og nýjar heimildir öðlast
ekki gildi fyrr en með nýjum sölu-
skattslögum. Fá menn vörur sínar
tollafgreiddar með söluskatti fyrir
gildistöku nýju laganna eða selji
vöru fyrir þennan tíma, binda menn
hendur sínar að þessu leyti og geta
því ekki átt von á því að fá endur-
greiddan söluskatt.
í þriðja lagi tefjast ýmsar aðgerð-
ir ríkisstjómarinnar sem hugsaðar
voru til mótvægis breytinga á sölu-
skattskerfínu, en þar voru helstar
niðurgreiðslur á ýmsum matvælum.
Þær frestast fram að gildistöku
nýju laganna.
í fjórða lagi frestast hækkun á
lægra þrepi söluskatts. í sumar var
settur 10% söluskattur á ýmsa þjón-
ustu. Fyrirhugað var samkvæmt
söluskattslögum ríkisstjómarinnar
að hækka þennan skatt í 12%.
Að sögn Indriða H. Þorlákssonar
eiga þessar tafir ekki að þýða veru-
legan tekjumissi fyrir ríkissjóð,
nema þær tefjist þeim mun lengur.
Þetta eina prósentustig þýðir rúm-
lega eins milljarðs tekjur fyrir
ríkissjóð á ársgrundvelli. „Það er
ekkert því til fyrirstöðu að sölu-
skattsbreytingar geti tekið gildi þó
janúarmánuður sé hafmn, en að
sjálfsögðu hefur það nokkur óþæg-
indi í för með sér,“ sagði Indriði
og kvað ráðuneytið myndu hafa
skjótar hendur við að hrinda breyt-
ingum á söluskatti í framkvæmd,
þegar Alþingi væri búið að sam-
þykkja breytingamar.