Morgunblaðið - 30.01.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1988
RÁÐHÚSRÁÐ
Skráð fyrir önd og fyrir hönd okkar hinna
Hvers vegna var tjarnarhomið ljótt? Var gamla húsið Ijótt, sem stóð
þama um daginn? Hvort viljum við heldur: Sólríkan tjamarbakka
með bekkjum og blómum frá Iðnó og yfir, eða flennistórt tvihús í
hróplegu ósamræmi við umhverfið, en samt of lítið fyrir stofnanir
borgarinnar?
eftírJón
Kristjánsson
1.
í síðustu alþingiskosningum fór
fylgi Sjálfstæðisflokksins niður fyrir
30 prósent. Er það kappsmál for-
ystumanna flokksins í Reykjavík að
slá metið í næstu borgarstjómar-
kosningum?
Margt bendir til þess að meiri-
hluti Reykvíkinga vilji ekki að
ráðhús verði byggt í norðvesturhomi
tjamarinnar, en manni skilst að
meirihlutann skorti skilning og feg-
urðarskyn og hann skipti þess vegna
ekki máli.
Húsið skal upp hvað sem hver
segir, og niður í tjömina hvað sem
það kostar.
Það hefur verið sagt um okkur
mótmælendur að við séum á móti
framförum. Það hefur verið sagt,
að við ættum að kynna okkur málið
betur, og við munum „fagna fegurð-
araukanum" þegar húsið sé risið.
Sagt er, að við séum hópur, sem
mótmæli hverju sem er, og pólitískir
andstæðingar hafí æst okkur upp.
Yfirlýsingar ráðamanna um mis-
skilning borgarbúa eru ískyggilega
hrokafullar. Við erum agndofa, ótal
mörg, sem höfum dáðst að ykkur
fyrir dugnað. Voruð þið svona þegar
við greiddum ykkur atkvæði, eða
hafíð þið fyllst ofmetnaði og þverúð
vegna þess að vel hefur gengið hing-
að til?
Það er svo sannarlega ekki að
bera í bakkafullan lækinn að bæta
í greinasafn ráðhússins. Ef orð fá
ekki stöðvað ofríki í okkar samfélagi
þá er voðinn vís.
2.
Það má væntanlega mæla fyrir
munn okkar mótmælenda yfirleitt,
að við viljum ekki að hús sé byggt
ofan í tjömina, ekki einu sinni ráð-
hús, ekki einu sinni þó að besti
arkitekt í heimi fengist til að teikna
það. Þetta ættu stjómendur borgar-
innar að vita nú orðið. Það er of
þröngt um ráðhús Reykjavíkur í
tjamarkrikanum. Tjömin er ekki
byggingarlóð.
Það þýðir ekkert að segja, að við
höfum ekki vit á málinu. Það þýðir
ekkert að segja, að þetta sé misskiln-
ingur hjá okkur.
Kæm fulltrúar okkar í borgar-
stjóm. Af hveiju fannst ykkur
tjamarhomið ljótt? Verður það fal-
eftirRagnar
Ingimarsson
í desembermánuði sl. kannaði ég
verð á frystum kalkúnum í mat-
vöruverslunum Reykjavíkur og
nágrennis. Mér þótti verðið með
ólíkindum hátt. Hvert kflógramm
var selt á 650—700 kr.
Mér lék forvitni á að vita hvem-
ig verði á kalkúnum væri háttað í
öðrum löndum ög hringdi í kunn-
ingja mína í fjórum löndum. Ég bað
þessa aðila að kanna verð á kjúkl-
ingum, eggjum og kalkúnum út úr
búð í þessum löndum. Löndin voru:
Noregur (Bergen), Danmörk
(Kaupmannahöfn), Skotland (Edin-
borg) og Bandaríkin (Chicago,
Seattle).
Umbeðnar upplýsingar fékk ég á
næstu dögum og eru þær birtar hér
á eftir. Verðin eru að sjálfsögðu í
legt við það að taka eitt hús í burtu
og setja tvö í staðinn, miklu stærri?
3.
Vonandi leyfíst manni að velta
vöngum yfír því, hvers vegna borg-
arstjóm hefur valið svona fáráðlegan
stað fyrir ráðhús.
Borgarstjórinn segir í viðtali við
Morgunblaðið 22. nóvember síðast-
liðinn: „Ég hef ekkert á móti
skoðanakönnunum. Þær geta verið
fróðlegar. En það er hlutverk borg-
arstjómar að taka ákvarðanir í
málum sem þessum. Borgarfulltrúar
em til þess kjömir af borgarbúum
og óframkvæmanlegt er að hafa
slíkar kannanir um öll þau mál, sem
ágreiningur kann að vera um.“
Getur verið að kjami málsins fe-
list í þessum orðum, eða leynist milli
lína? Getur það verið, að stjómendur
Reykjavíkur, þeir sem valdið hafa,
þurfí að sýna mátt sinn og megin,
einu sinni enn, á þennan furðulega
hátt, að ætla sér að reisa ráðhús þar
sem enginn annar fengi leyfi til að
byggja, og skyggja örlítið á alþingis-
reitinn norðan við um leið? Er það
ekki út í hött að staðarval ráði stærð-
inni? Er ekki nær að velja ráðhúsi
Reykjavíkur stað þar sem fleiri
stofnanir borgarinnar komast fyrir?
Eða emð þið að hugsa um ykkur
sjálf, huggulega kontora og fundar-
sali og bflastæði í Iq'allaranum? Á
að slá út krakkana hinum megin í
sandkassanum, sem héldu að hægt
væri að gera hvað sem er við pening-
ana okkar, og gerðu það?
Og enn má spyrja: Höfum við
veitt ykkur vald til að ákveða hvað
sem er?
4.
Ekki verður hjá því komist að
minnast lítillega á skringilegar skoð-
anir og fullyrðingar fylgjendanna.
Sumir hlakka til að gefa öndum
brauð að bíta í undir ráðhúsvegg,
og einnig af löngu brúnni. Aðrir,
einkum borgarstarfsmenn, telja okk-
ur trú um, að tjömin verði forarpytt-
ur til eilífðamóns, ef ekki verði af
framkvæmdum. Enn aðrir gefa hæ-
versklega í skyn að þeir hafí vit á
arkitektúr. Þeir reyna að útskýra
fyrir okkur, vitleysingunum, fegurð
ráðhússins. Hvemig það muni, ægi-
fagurt með súlnaröð á einni hlið,
rísa upp úr tjöminni og speglast í
henni, stórt að innan en lítið að ut-
an. Það minni á bámr tjamarinnar
og flugvélar himinsins, og lífríkið
muni renna upp og aftur niður.
íslenskum krónum (miðað við kg),
en í svigum er gefíð upp hvert verð-
ið var í samanburði við meðalverð
afurðanna í verslunum Reykjavíkur
(uppgefíð í %). Gengi sem notað var
við útreikninga var N. kr. = 5,80
kr., D. kr. = 5,75 kr., Sterlings-
pund = 66 kr. og dollari = 38 kr.
Kalkúnar Kjúklingar Egg
Noregur 232-261 145-174 140
(34-38%) (43-51%) (70%)
DanmSrk 200-280 160-185 120-140
(29-41%) (47-54%) (60-70%)
Skotland 76-86 78-102 66-99
(11-13%) (21-30%) (33-60%)
Bandarfkin 50-96 92 30-10
Igland (7-14%) (27%) (15-20%)
680 340 200
(100%) (100%) (100%)
Ath. lægri verðin á fuglakjötinu
voru fyrir frysta fugla en hin hærri
fyrir nýslátrað.
Ekki ætla ég mér að halda því
fram að í ofangreindum tölum felist
tæmandi verðupplýsingar. Eitt þyk-
ir mér þó einsýnt, og það er að
ekki sé vitglóra í því að framleiða
Auðvitað fínnst mörgum húsið
fallegt, en sumum fínnst það ljótt
þrátt fyrir greinargóðar útskýringar.
Hvemig er það annars, er ráð-
húsið á heimsmælikvarða, eins og
sumir segja? Stenst það samanburð
við Norræna húsið eða Safnahúsið
við Hverfísgötu, tvö nærtæk dæmi
um byggingarlist að margra dómi.
5.
Eigum við ekki að hætta að rífast?
Við héldum nýlega upp á 200 ára
afmæli borgarinnar með glæsibrag.
Okkur langar í ráðhús, ef við höfum
ráð á því, en hvers vegna að troða
því í tjömina, ef það veldur úlfúð
og deilum.
Er ekki rétt að staldra við og líta
snöggvast á skipulag gamla bæjar-
ins?
Af reynslu má ráða, að skipulag
miðbæjarins sé eitthvað sem gert sé
við og við og enginn fari eftir. Þess
vegna fara hér á eftir fáeinar hug-
leiðingar og tillögur. Um flest geta
allir verið sammála.
Hvers vegna eru sumar borgir
skemmtilegar og sumar leiðinlegar?
Hvers vegna er borg höfuðborg?
Gefst nokkum tfma betra tækifæri
til að taka frá og afmarka land-
svæði f Reykjavík fyrir helstu
stofnanir og embætti þjóðarinnar?
Komandi kynslóðir munu verða okk-
ur ævinlega þakklátar ef við gemm
það sem fyrst og vel tekst til. Verð-
um við ekki líka að gera okkur grein
fyrir því, hvar við viljum að ekki
verði byggt, og hvar gömul hús fái
að standa í friði? Það er t.d. fásinna
að saga í sundur húsið á homi Lækj-
argötu og Austurstrætis, og reisa
nýtt hús upp úr mæninum. Annað-
hvort fær það að standa eða ekki.
Hver leyfði hveijum hvers vegna að
byggja norðan við Lælq'artorg?
Hér fer á eftir upptalning á tillög-
um til vinsamlegrar athugunar.
Skrifstofa forseta íslands verði
í stjómarráðshúsinu gamla, þar sem
hún hefur verið síðustu árin. Reitur
Stjórnarráðs íslands og annarra
ríkisstofnana verði á milli Lindar-
götu og Skúlagötu, Ingólfsstrætis
og Klapparstfgs. Hæstiréttur fái
Safnahúsið við Hverfísgötu, þegar
söfnin flyija í annað húsnæði, þ.e.
þegar við höfum manndóm í okkur
til að taka við eigin gjöf frá af-
mælinu 1974. Dómstólar
Reykjavíkur verði austan við stjóm-
arráðsreitinn, eða hvar eiga þeir
annars staðar að vera? Alþingisreit-
urinn verði á milli Vonarstrætis og
Dr. Ragnar Ingimarsson
„Eitt þykir mér þó ein-
sýnt, og það er að ekki
sé vitglóra í því að
framleiða kalkúna hér
á landi miðað við að
uppsett verð þurfi að
fá fyrir þá.“
„Eigum við ekki að
hætta að rífast? Við
héldum nýlega upp á
200 ára afmæli borgar-
innar með glæsibrag.
Okkur langar í ráðhús,
ef við höfum ráð á þvi,
en hvers vegna að troða
því í tjörnina, ef það
veldur úlfúð og deil-
um.“
Kirkjustrætis, Templarasunds og
Tjamargötu. Aldrei verði framar
byggt fyrir sunnan' Vonarstræti,
heldur verði þar útivistarsvæði á
vænni uppfyllingu. Þarf þá ekki að
hugsa meir um vandræðalega fram-
lengingu alþingishússins sem nú er
í bígerð? Stórhuga Oddfellowar
kippa sér örugglega ekki upp við
það, þó að manni detti í hug, að hús
þeirra verði einhvem tíma eitt af
alþingishúsunum.
Er þá komið að ráðhúsinu, eða
landsvæði fyrir stofnanir borgar-
innar. Auðvitað koma ótal staðir til
greina. Margir, ef ekki flestir, sem
lagt hafa til málanna hafa bent á
ákjósanlegan stað austan við gömlu
höfnina, þ.e. allt svæðið sem af-
markast af Kalkofnsvegi, Tryggva-
götu og sjónum. Þar er landrými
fyrir stofnanir borgarinnar langt
fram í tímann. Er nokkur mót-
fallinn þessum stað? Að vísu hefur
borgarstjórinn sagt, að lóðin sé ekki
laus vegna gatnakerfís og ráðhús
þar muni verða á eyðieyju. Það er
kalkúna hér á landi miðað við að
uppsett verð þurfí að fá fyrir þá.
Það liggur beint við að flytja
þetta lostæti frá Bretlandi eða
Bandaríkjunum, jafnvel þó svo að
við þyrftum að fá fuglana forsoðna
til að ekki flyttust með þeim sjúk-
dómar.
Það væri hinsvegar mjög fróðlegt
ef einhver gæti birt samanburð á
verðgrundvelli umræddrar fram-
leiðslu t.d. samanburð milli fslands
og Danmerkur. Ég reikna með að
í slíkum samanburði kæmi t.d. fram
hver launakostnaður (helst með
kl.st. flölda) er vegna hverrar fram-
leiðslueiningar (kg.), fóðurverð
(grunnverð og gjöld), flármagns-
kostnaður (þ.e. raunvextir af
flármagni) o.s.frv.
Eftir að hafa heyrt skítkast for-
svarsmanns alifuglaframleiðenda í
garð dr. Jónasar Bjamasonar, efna-
verkfræðings, og sérstaka árett-
ingu um að efnafræðingur eigi sko
ekki að skipta sér af verðlagsmálum
vil ég eindregið hvetja neytendur
til að láta í sér heyra um verðlags-
mál, óháð því hvaða starfsheiti þeir
bera.
Höfundur er byggingarverkfræð-
ingur og prófessor við verkfræði-
deild Háskóla íslands.
kannski ekki svo galin hugmynd.
Goðum lík borgarstjóm í ráðríkis-
húsi á eyðieyju og bflamir þjóta
„hring í kringum allt, sem er. Og
utan þessa hrings er veröld" okkar
hinna, en sleppum öllu gamni. Þetta
átti að vera alvöruþrungin grein.
Minnug orða borgarstjórans í áður-
nefndu viðtali Morgunblaðsins leyf-
ist okkur náðarsamlegast að spyija:
Er ekki hjarta borgarinnar líka niðri
við höfn? Er ekki Ingólfur líka á
næstu grösum við Amarhól? Það
hlýtur að vera heillandi verkefni fyr-
ir verkfræðinga borgarinnar og
arkitektana ungu, sem unnu til verð-
launa, að ráða þrautimar sem þama
eru framundan, og kóróna allt sam-
an með glæsilegu ráðhúsi. Fisk-
markaðurínn hlýtur að flytjast, fyrr
eða síðar, út á Granda eða út í Or-
firisey, til síns heima. Faxaskáli er
eitt af stærstu og sterkustu húsum
landsmanna. Hann hlýtur að öðlast
nýtt og verðugt hlutskipti, ef vel er
á teiknipennunum haldið. Ef um-
ferðaröngþveiti er þymir í augum,
skulum við gefa ímyndunaraflinu
lausan tauminn. Ráðhúsið tengist
Amarhól með ráðhústorgi. Torgið
er steypt á stólpum í sömu hæð og
kolaportið nýja. Umferðin streymir
fram og aftur og út á hlið undir
torginu. Sætúnið nýja, eða hvað hún
nú heitir nýja gatan, tengist þar
götum gamla bæjarins og fer síðan
sína leið eftir hafnarbakkanum vest-
ur í bæ. Nýja gatan getur líka
smeygt sér á milli ráðhúss og Faxa-
skála, eða fylgt bakkanum utan við
skálann. Bflageymslur verða grafnar
inn í hólinn og verða nánast alls
staðar neðanjarðar og sums staðar
á götuhæð. Ifyrirhuguð súlnaröð yfír
hólinn gæti jafnvel sameinast súlum
ráðhússins. Útiskemmtanir og hátí-
ðarhöld verða framvegis á torginu
og á hólnum óháðar umferðinni, en
mál er að linni hugmyndarausinu.
Er nokkuð sem mælir á móti
þessum stað? Verður ekki gamla
höfnin smám saman eitt af skemmti-
legustu svæðum borgarinar með
farþegaskipum, feiju og smábátum?
Verður ekki ráðhúsið enn þá
glæsilegra við höfnina heldur en við
tjömina, þar sem það stingur í stúf
í tjamarkrikanum, og sker sig úr
umhverfinu?
6.
Það em ekki pólitískir andstæð-
ingar, sem hafa raskað ró okkar,
þvert á móti. Meira að segja rólynd-
iskarl, eins og undirritaður, ryðst
fram á ritvöllinn og stingur niður
penna.
Leyfíst manni að nota orðbragð
hins háæmverðuga borgarstjóra.
„Verður það ekki dapurlegur endir
á strögglinu," fylgishmn Sjálfstæð-
isfíokksins í Reykjavík þegar síst
skyldi? Hver leyfir sér að taka áhætt-
una?
Það er ekki of seint að bæta ráð-
húsráð sitt. Það er ekki skömm að
fara að óskum okkar hinna.
Auk þess legg ég til að Áburðar-
verksmiðjan verði flutt strax.
Höfundur er verslunarmaður I
Reykjavik.
Kjúklingar, egg
og kalkúnar