Morgunblaðið - 30.01.1988, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1988
i
I
I
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ólafsvík
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið í Ólafsvík.
Einnig vantar blaðbera.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
93-61243 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í
síma 91-83033.
JUis»ir0itíiiilífeí>lí>
Vopnafjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Vopnafirði.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
97-31268 og 96-23905.
JWií>r0itíinMal>lí)>
Hellissandur
Blaðbera vantar á Hellissand.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
93-66626.
Gullsmíðanemi
Gullsmíðanemi óskast á traust verkstæði.
Æskilegur aldur 18 ára eða eldri.
Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „H - 4463".
Fóstrur
Staða forstöðumanns við dagvistarheimilið
Tjarnarsel, Keflavík, er laus til umsóknar.
Áskilið er að umsækjandi hafi fóstrumennt-
un. Staðan veitist frá 1. apríl 1988.
Upplýsingar um stöðuna eru veittar hjá fé-
lagsmálastjóra, Hafnargötu 32, í síma
92-11555 frá kl. 9-12 alla virka daga. Skrif-
legar umsóknir þurfa að berast félagsmála-
stjóra fyrir 10. febrúar nk.
Félagsmálaráð Keflavíkurbæjar.
Stýrimaður
og vélstjóri
Stýrimann vantar á mb. Skarf, sem er á línu
rneð beitningavél, og vélstjóra vantar á mb.
Ólaf, sem er á línu en fer svo á fiskitroll.
Upplýsingar í síma 92-68181.
Fiskanes hf,
Grindavík.
Vélavörður
Vélavörð vantar á mb. Hrafn Sveinbjarnarson
2. GK-10, sem er á netaveiðum frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 92-68593 hjá skipstjóra qg
um borð í bátnum í síma 985-22003.
Þorbjörn hf.,
Grindavík.
Þýskar bréfaskriftir
Umboðs- og heildverslun staðsett í mið-
bænum óskar að ráða ritara hálfan daginn
frá 1. apríl nk.
Starfið felst m.a. í þýskum bréfaskriftum eft-
ir diktafóni, telexþjónustu og almennum
skrifstofustörfum.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
8. feb. merktar: „Þýskar bréfaskriftir - 3549“.
Hrafnista, Reykjavík
Starfsfólk
óskast til starfa í eldhúsi. Einnig vantar fólk
til starfa á vistheimilið í 100% störf. Barna-
heimili á staðnum.
Upplýsingar í síma 689323
Hjúkrunarfræðingur
Skólahjúkrunarfræðingur óskast í Verzlunar-
skóla Islands.
Upplýsingar veitir Sveinn Magnússon læknir
í síma 656066.
Umsóknir sendist skólastjóra.
I/erzlunarskóli Islands.
Launaútreikningur
- bókhald
Byggingafyrirtæki óskar eftir starfskrafti til
að sjá um launaútreikning, bókhald og al-
menn skrifstofustörf. Tölvureynsla æskileg.
Áhugasamir vinsamlegast leggi nafn sitt og
símanúmer inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir
3. febrúar merkt: „Bókhald - 6305“.
Keflavík
Óskum eftir að ráða afgreiðslumann á bensín-
afgreiðslu okkar.
Upplýsingar í síma 92-12070.
OLIUVERZLUN ÍSLANDS HF.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarheimilið Sólvangur, Hafnarfirði
auglýsir laust starf hjúkrunarfræðings á
kvöldvöktum. Um hlutastarf er að ræða.
Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 50281.
Hrafnista, Hafnarfirði
Eldhús
Vantar starfskraft í eldhús.
Upplýsingar gefur matreiðslumaður í síma
54290.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
til sölu
Útgerðarmenn
Hef til sölu stóra og litla netadreka.
Upplýsingar í síma 611314, heimasími 671671.
Eyjastál,
Hafnarbraut 2, Kópavogi.
Til sölu bílkrani
og Toyota Hilux
Til sölu 35 tonna grindarbómukrani og
Toyota Hilux, lengri gerð, árgerð 1981.
Upplýsingar í símum 96-41230 og 96-41674
á kvöldin.
Vörubifreiðir til sölu
Tilboð óskast í eftirtaldar vörubifreiðir:
Volvo F 86 árgerð1972
Volvo F 85 S árgerð 1978
VolvoF616 árgerð1981
Bifreiðarnar eru í góðu lagi og verða seldar
skoðaðar 1988. Þær verða til sýnis á vinnu-
tíma á stöð okkar á Laugalæk 2A.
Uppl. gefur BarðiTheódórsson, sími 32676.
Tilboðum, er tilgreini verð og greiðslukjör,
sé skilað til skrifstofu okkar eigi síðar en 10.
febrúar nk.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Kirkjusandur hf.
Nauðungaruppboð
á Sætúni 12, Suðureyri, 1. hæð t.v., nr. 8, þingl. eign Suöureyrar-
hrepps fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni
sjálfri föstudaginn 5. febrúar 1988 kl. 14.00. Þríðja og síðasta sala.
Sýslumaðurínn i ísafjarðarsýslu.
Gamlir bókaskápar
Vil kaupa gamla bókaskápa úr dökkum viði
við vægu.verði. Allar stærðir koma til greina.
Upplýsingar í símum 621029, 621045 og
623034.