Morgunblaðið - 20.02.1988, Blaðsíða 59
MORGUN’BLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988
59
Nagladekkin
eru nauðsynleg
Til Velvakanda
Ég vil taka undir með þeim sem
bent hafa á að nagladekkin eru al-
veg nauðsynleg að vetrinum hér á
landi. Einhver R.S. skrifaði í Vel-
vakanda fyrir nokkru og virtist líta
svo á að nagladekkin séu aðeins til
þess að bflar komast áfram. R.S.
skilur ekki eða virðist ekki skilja
að nagladekkin eru fyrst og fremst
til að auka öryggið í umferðinni,
til þess að ökumaður geti stöðvað
bifreiðina og missi ekki stjóm á
henni í hálku. Við slíkar aðstæður
tel ég að nagladekk séu nauðsynleg.
G.M.
Mótmælum kennitölu
Kærí Velvakandi.
Landsmenn hafa nú rétt fengið
smjörþefinn af notkun kennitölu í
stað nafnnúmers. Enn sem komið er
notar einungis hið opinbera og fáein
fyrirtæki kennitölu, en hugmyndin
er, að kennitala ryðji nafnnúmeri
víðast hvar úr vegi innan skamms.
Einhvem veginn grunar mig, að fleir-
um en mér sé nú farið að finnast
það heldur lítið tilhlökkunarefni að
þurfa si og æ að segja til um aldur
sinn. Við höfum einungis fengið for-
smekkinn af því sem koma skal.
Mörgu fólki, ekki síst konum, að ég
hygg, mun þykja þetta hvimleitt, upp
í það að vera óþolandi, og ef ekki í
byrjun, þá síðar á ævinni.
Þegar hið opinbera kynnti kenni-
töluna fyrir um það bil tveim árum,
varð nokkur umræða um nauðsyn
þessarar kerfísbreytingar. Sem tölv-
unarfræðingur fylgdist ég nokkuð
með umræðunni, án þess að hafa
persónulega sérstakar áhyggjur af
ofangreindum galla kennitölunnar,
og raunar var þessi galli ekki mjög
tií umræðu, heldur fremur aðrir
þættir. Núna geri ég mér grein fyrir
því, að út af fyrir sig fyndist mér
heldur hvimleitt að þurfa gefa upp
aldur minn, sérstaklega í þeim tilvik-
um, þegar hann skiptir engu máli,
en svo er einmitt oftast í sambandi
við notkun nafnnúmers/kennitölu.
En mér fínnst ekki einungis hvim-
leitt, heldur óþolandi að nota kenni-
tölu í ljósi þess, að hið opinbera skuli
ætla að leggja þessa kvöð á lands-
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
þvi ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski naftileyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér i
dálkunum.
menn, þó að yfirhöfuð enga knýjandi
nauðsyn beri til. Nú man ég ekki öll
rök með og á móti kennitölu úr
umræðunni forðum, en það er alveg
ljóst að þessi kerfisbreyting er ekk-
ert nauðsynjamál, og þar að auki
stórkostlega kostnaðarsöm. Hin ein-
falda lausn þess máls er, eins og
bent hefur verið á, að nota áfram
nafnnúmer, að því slepptu að ekki
er lengur untit að úthluta nafnnúm-
erum þannig að þau fylgi nöfnum í
stafrófsröð. Þessi eiginleiki skiptir í
fæstum tilfellum nokkru máli, og
hann er nú ekki dýrmætari en svo,
að kennitalan hefur hann ekki.
Notkun kennitölu er enn mjög lítil
og enn er lag að stöðva þessa ós-
vinnu. Ég veit að margir aðrir en
ég hafa nú fyret áttað sig á, hvað
þeir eru að fá yfir sig. Ég skora á
fólk að mótmæla. Hér er um visst
feimnismál að ræða, einkum hjá
þeim, sem eru viðkvæmastir fyrir
þessu.
Hið opinbera er frumkvöðull þess-
arar ógeðfelldu kerfisbreytingar.
Þama virðist ráða einhver blind
skráningareýki hjá stóra bróður.
Til Velvakanda.
Hvereu skal fara, til að verða að-
njótandi lifsambanda við lengra
komna lifendur annarra hnatta?
Hvereu má bæta móttöku lífork-
unnar, sem hingað er beint?
Ég hygg, að fyreta skrefið í þeirri
viðleitni sé, að hver einn leggi sig
fram um að bæta eigið hugarfar og
eigið lífemi. Ég hygg, að væm gerð
samtök nokkure hóps manna um
slíkar hugarfars- og lífemisbætur,
þá mætti vænta merkjanlegs árang-
urs áður e’n langt um liði.
Slfk hugræktun kæmi ekki að
gagni nema fullur áhugi og einlægni
væri til staðar hjá hveijum einum
og skilningur á sambandinu og hvert
þess er að leita.
Hver einn yrði að reyna að upp-
ræta óæskilegar hvatir úr eigin hug-
skoti. Morðfysn, veiðilöngun, eigin-
gimi og óvild em meðal þeirra hvata.
í heimi, þar sem svo mikið er um
Aðrir aðilar eiga að fylgja eftir, og
mér hefur ekki tekist að finna neinn
sem sér hag í breytingunni. Ég hvet
einkaaðila til að skoða ábyrgð sína,
áhrifamátt og hagsmuni í þessu
máli, en láta ekki teyma sig út í vit-
leysuna. Ég vil benda á, að ef hið
opinbera þumbast við þrátt fyrir
mótmæli, þá geta einkaaðilar samt
firrt landsmenn þessu óláni að miklu
leyti. Hið opinbera hyggst hætta að
gefa út nafnnúmer í árelok. Fari
svo, geta t.d. einhver samtök í einka-
geiranum séð um slfka útgáfu. Mörg
fyrirtæki mundu spara sér vemlegan
kostnað við kerfísbreytinguna. Um
einhvem aukakostnað gæti að vísu
orðið um að ræða í sumum þeim til-
vikum, þegar einkaaðilinn þarf að
skipta við hið opinbera, en ég vil þá
benda á, að fyrirtæki gætu tapað
af viðskiptum við fólk, sem vill ekki
nota kennitölu. Og hér er ef til vill
komið sterkasta vopn fólksins gegn
kennitölunni: Hótun um að forðast
viðskipti við þá aðila, sem nota kenni-
tölu. Slíkur þrýstingur gæti skilað
sér alla leið að hjarta stóra bróður.
Litli bróðir
ofbeldisverk, þar fer ekki hjá því að
sterk óvild skapist milli hinna
stríðandi afla, þjóða, flokka og ein-
staklinga. Þannig komast björgunar-
málin í einskonar sjálfheldu. Þar sem
svo hagar til vilja allir gera öllum
öðmm illt. Hatur myndast og erfitt
reynist að uppræta það.
En beiting góðvildarinnar er að-
ferð hinna lengra komnu íbúa stjam-
anna. Ekkert annað en góðvildin,
algjör kærleikur til allra, jafnvel til
hinna verstu illmenna, getur dugað,
ef koma skal fram breytingum til
bóta. Og það er takmark hinna
lengra komnu.
Samtök manna, sem hefði hugar-
fare- og lífemisbætur meðlimanna
að aðalmarkmiði, ásamt sambands-
viðleitni við lengra komna lifendur
annarra hnatta, væri áreiðanlega
spor í rétta átt.
Ingvar Agnarsson
HUGRÆKTUN
Stöð 2:
Of mikið
Kæri Velvakandi
Mig langar að lýsa vonbrigðum
mínum í sambandi við Stöð 2 vegna
endursýninga á myndum sem eru
sýndar síðast á dagskrá. Það er
búið að vera mikið um endursýning-
ar og auk þess er sýnt mikið af
myndum sem hægt hefur verið að
fá á mjmdbandaleigum undanfarin
ár. Það sem svo sem f lagi að endur-’
sýna en það á að gera á öðrum tíma
um endursýningar
og taka fram að myndin sé endur-
sýnd. Það vanta alveg að taka fram
f dagskrá Stöðvar 2 að mjmdir séu
endureýndar.
Það er orðið nokkuð vont þegar
maður þarf að vera kvöld eftir kvöld
á myndbandaleigum, ég bjóst ekki
við því þegar ég fékk mér afruglara.
Afruglaramir ættu að vera í eigu
Stöðvar 2 og vera til leigu, þá
gæti fólk skilað þeim og fengið þá
aftur þegar því líkaði dagskráin
betur. Þeir sem hafa keypt
afruglara síðan Stöð tvö byijaði
eiga tvo kosti - að vona að dagskrá-
in lagist eða selja afruglarana á
hálfvirði. Leiga á afruglurum væri
lausnin.
Fyrir utan endursýningamar er
dagskrá Stöðvar 2 góð. Þessu þurfa
forráðamenn þar að kippa í lag.
G.L.A.
Til sölu
Eftirgreindar fasteignir eru tii sölu:
Reykjamörk 1, Hveragerði, (efri hæð og hluti neðri hæðar).
Húsið Árbær við Árnes, Gnúpverjahreppi.
Miðengi 8, Selfossi.
Tryggvagata 14, neðri hæð, Selfossi.
Húsið Mikligarður, Eyrarbakka.
Nánari upplýsingar eru gefnar í útibúi
Landsbankans, Selfossi, sími 99-1400.
Landsbanki íslands, útibúið Selfossi.
ÞAKLEKAVANDAMÁL
Leysum öll lekavandamál, svo ,
sem þakleka á flötum þökum,
svalir fyrir ofan íbúðir,
samskeyti milli húsa.
Fillcoat á bárujárn svo ekki
leki með nöglum og
samskeytum. Sprunguvið-
gerðirogsílanúðun.
Fillcoat
Þétting hf.
gúmmíteygjanleg samfelld húð
fyrir málmþök og pappaþök.
kvöldsími: 54410
dagsími: 651710.
Félag járniðnaðar-
manna
Aðalfundur
Félags járniðnaðarmanna verður haldinn
laugardaginn 27. febrúar 1988 kl. 14.00
á Suðurlandsbraut 30,4. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Ath. Reikningar félagsins liggja frammi á
skrifstofunni 23. og 24. febrúar
kl. 16.00-19.00 báða dagana.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Borgarfjörður - Nærsveitir
Sýnum hjá
Bílasölu Vesturlands Borgarnesi
NISSAN PRAIRIE 4 WD
frábæran fjölskyldubíl og jeppa
iH INGVAR HELGASON HF.