Morgunblaðið - 20.02.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988
7
Kaupmannahöfn:
Kjarvalsmálverk selt
á 900 þúsund krónur
KJARVALSMÁLVERK blaati við ust augu uppboðsgesta mjög að
sjónum þegar komið var inn i þvi þar til það loks var boðið upp
uppboðssal Bruun-Rasmússen í og var selt á 160.000 danskar
Bredgade á miðvikudag. Beind- krónur eða rúmlega 900.000
Norræna húsið
Sýningin Hið græna
gull Norðurlanda
í DAG, laugardaginn 20. febrúar kl. 16.00, verður opnuð sýning i
sýningarsölum Norræna hússins undir nafninu Hið græna gull Norð-
urlanda. Þetta er farandsýning, sem skógmipjasöfnin á Norðurlönd-
tun standa að, en Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag íslands og
Þjóðmiqjasafnið hafa haft veg og vanda af henni af íslands hálfu,
ásamt Norræna húsinu.
A sýningunni í Norræna húsinu
má sjá, hvemig brugðist hefur ver-
ið við eyðingu skóganna og vöm
breytt í sókn. Sú saga er sögð í
myndum og máli, en auk þess getur
að líta ýmsa muni úr tré, meðal
annars gripi, sem hafa verið fengn-
ir að láni úr Þjóðminjasafni íslands.
Markmið sýningarinnar er að öðm
leyti að varpa ljósi á, hvemig vinnu-
staður skógurinn er, hversu vel
hann hentar til útivistar og hvemig
listamenn hafa túlkað hann.
Vibeke Koch, fræðslustjóri
danska skógminjasafnsins, stjóm-
aði undirbúningi sýningarinnar og
tók hann þijú ár. Uppsetningu ann-
aðist arkitektastofan Tögem og
Ebert, en Ráðherranefnd Norður-
landa og Norræni menningarsjóður-
inn veittu styrk til þess að koma
sýningunni á laggimar.
Sýningin var fyrst opnuð í Veiði-
og skógminjasaftiinu f Hörsholm í
Danmörku í febrúar 1987 og síðan
hefur hún farið milli Norðurland-
anna. Vibeke Koch er hingað komin
og verður, ásamt fulltrúum frá
norrænu skógminjasöfnunum, við-
stödd þegar Jón Helgason, land-
búnaðarráðherra, opnar sýninguna
á laugardaginn. Hún verður síðan
opin daglega kl. 14—19 til 13. mars.
íslenskar krónur.
Alls vom 6 fslensk málverk í
boði eftir jafn marga listamenn og
hækkaði söluverð þeirra mjög frá
verði í sýningarskrá.
Fyrstur í stafrófsröð íslendinganna
var Gunnlaugur Blöndal. Var þar
um vatnslitamynd að ræða af
bóndabæ undir háu flalli og var hún
slegin á tæplega 30.000 íslenskar
krónur. Næst var mynd Jóns Engil-
berts sem nefnist Hugarflug karl-
mannsins, gerð með tússi og vatns-
litum og var seld á 45.000 ísl. kr.
Þá kom Pétur Friðrik og var mál-
verk hans frá ÞingvöUum málað
1951. Var það lfklega eina fslenska
málverkið sem ekki var slegið á
fslenskar hendur og fengust um
40.000 ísl. kr. fyrir það. Olíumál-
verk eftir Jón Hróbjartsson var þá
boðið upp og slegið á um 40.000
ísl. kr., en Jón Hróbjartsson var
Vestfírðingur fæddur 1877 og er
málverkið, sem er úr Súgandafirði
með útsýni yfir Suðureyri, mjög
sérstætt og fallegt.
Loks kom röðin að Kjarvalsmál-
verkinu frá Þingvöllum en það var
málað 1931. í sýningarská voru
gefnar upp 500.000 til 700.000 ísl.
kr. en eins og áður sagði var hátt
boðið í málverkið og það selt á
900.000 krónur. Síðast var lítil
„gouache“-mynd Þorvalds Skúla-
sonar af tveimur stúikum sem hann
gerði 1940 hækkaði það mest frá
uppgefnu verði eða úr 14.000 í
63.000 krónur.
Bassasöngvarinn Paata Burcþjuladze á æfingu í Háskólabíói í gær
með Sinfóníuhyómsveit íslands.
Syngur á tónleikum í dag
í DAG, laugardag, syngur rúss-
neski stórsöngvarinn Paata
Burcþjuladze, á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands f Há-
skólabíío kl. 14.30.
Tónleikana átti upphaflega að
halda á fimmtudag f sfðustu viku,
en þeir féllu þá niður vegna veik-
inda söngvarans. Hann kaus að
aflýsa tónleikahaldi í París í þess-
ari viku til að geta sungið á tvenn-
um tónleikum hér, sem hann hafði
ætlað að halda. Fyrri tónleikamir
voru svo haldnir á miðvikudaginn
á vegum Tónlistarfélagsins við frá-
bærar undirtektir áheyrenda. Paata
Burchjuladze hreif áhorfendur svo,
að margir þeirra hafa orðið sér út
um miða á tónleikana í dag.
Paata Burchjuladze er Pavarotti
bassasöngvaranna og hefur á und-
anfömum ámm sungið sig inn í
hjörtu áheyrenda helstu ópemhúsa
í Evrópu. Stjómandi á tónleikunum
verður Páll P. Pálsson.
Vegna lækkunar á dollar að
undanförnu hefur verðið á
Chevrolet Monza SL/E og
Monza Classic lækkað
verulega.
Komið og kynnist ríkulega
búnum Monza bílunum með því
að fara í reynsluakstur og
kynnast frábærum
aksturseiginleikum og mýkt.
Verðfrá kr. 529.000.-.
BILVAMGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300