Morgunblaðið - 25.02.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
17
Tónlístartvíeykið Andreas Schmidt barítónsöngvari (t.v.) og píanó-
leikarinn Thomas Palm slær á léttu strengina______
aðeins til sögunnar á tónleikum.
Tíminn á sviðinu vinnur því með
þeim.
Fyrir söngvaranum horfír þetta
þannig við „að, þegar er farið á
svið bæði með verk og píanóleik-
ara, sem söngvarinn þekkir lítt,
þá er nauðsynlegt að halda sig
við fyrirfram lagðan ramma, sem
báðir eru öruggir með. Þegar
söngvarinn þekkir orðið píanóleik-
arann og verkið, þá hefur hann
miklu meira svigrúm til að breyta
hér og bæta þar eftir því sem
andinn blæs honum í bijóst, án
þess að þurfa að óttast að allt
hrynji og þeir missi hvor af öðr-
um, því hann veit að píanóleikar-
inn getur fylgt honum eftir.
Ramminn er orðinn þeim svo tam-
ur.
Þegar svo er komið, tekur líka
skemmri tíma að ná nýju verki
og komast á það stig að geta far-
ið að skoða sig um í því, komast
út úr skorðunum. En þá eru það
helst ný verk, sem fela í sér eitt-
hvað æsilegt til að æfa. Verk, sem
maður gjörþekkir, er helst ekki
gaman að flytja nema á tónleik-
um, því aðeins þar er nægileg
spenna til að opna augun fyrir
nýjum og áður óþekktum hliðum
verksins."
Palm bætir við að nú sé líka
svo komið að honum sýnist þeir
hafí eytt meiri tíma saman á tón-
leik, um heldur en til æfínga ...
Söngæfin dugir sjaldnast
til að bæta upp slaka
tónlistarundirstöðu
En það eru alls ekki allir píanó-
leikarar, sem - kæra sig um að
starfa með söngvurum. Vissulega
spuming um smekk og áhuga á
viðfangsefnum, en kannski líka
um fleira. Andstætt við aðra tón-
listarmenn byija söngvarar oft
seint á sínu námi og hafa oft ekki
neina tónlistarmenntun til að
standa á. Skaði, sem þeim dugir
oft ekki æfín til að bæta úr.
Schmidt er ekki í vafa um að
þetta er oft ástæða fyrir tregðu
píanóleikara til að vinna með
söngvurum. „Tæpast að undra,
þótt píanóleikari fyllist örvænt-
ingu, þegar söngvari uppsker allt
hólið fyrir flutninginn, sem píanó-
leikarinn veit að hann á dijúgt í,
því hann veit svo miklu meira um
tónlist en söngvarinn.
Þessi þekkingarskortur dylst
oft í óperuvinnu, því þar eiga
söngvarar kost á að vinna með
„repetitörum“, fólki, sem bókstaf-
lega kennir og leiðir söngvara í
gegnum hlutverk sín í einkatím-
um. Það em fjölmargir söngvarar,
sem aldrei fara á svið án þess að
hafa fyrst unnið með þessu fólki.
En það er ekki hægt að ganga
að neinum slíkum vísum til að
kenna sér einstök ljóð eða ljóða-
flokka. Skýrir kannski að hluta,
af hveiju tiltölulega fáir söngvar-
ar leggja fyrir sig ljóðasöng."
„Þetta orð „undirleikari" er líka
fremur hvimleitt. Helst fallið til
að draga úr að píanóleikarinn
hefur kannski kennt söngvaranum
það, sem fleytir honum áfram í
ljóðasöngnum," segir Palm. Ligg-
ur í augum uppi að í ljóðasöng
eins og annars staðar er samvinna
sjaldan ánægjuleg, nema milli
jafnoka. Hvimleitt þegar allar
hugmyndimar streyma aðeins úr
einni átt.
Ljóðaflokkar Schuberts
og rúgbrauð
Þeir söngvarar, sem fást við
ijóðasöng á annáð borð, staðnæm-
ast flestir fyrr eða seinna við Ijóð
Schuberts. „Það verður enginn
ljóðasöngvari á því að taka fyrir
nokkur Strauss-ljóð,“ segir
Schmidt. „Pyrir karlraddir, þá eru
ljóðaflokkar Schuberts prófsteinn
á getuna á þessu sviði. En þessir
Ijóðaflokkar eru söngvurum líka
eins og rúgbrauð, sem er hægt
að borða á hveijum degi án þess
að fá leið á því.“ Hér talar greini-
lega sá, sem er alinn upp í mið-
evrópskri brauðmenningu ...
„Það er ekki aðeins að tónlistin
sé heillandi. í textanum er líka
alltaf hægt að fínna það sem
hæfir hverri stund og hveiju geði.
Aðrir rómantískir ljóðaflokkar
spanna tæplega sömu víddir."
Palm hefur orð á að líklega
hafí þessir ljóðaflokkar aldrei ver-
ið fluttir með svo stuttu millibili
í seinni tíð, þó það megi vel
ímynda sér að á tíma Schuberts
hafi það gerst. Eins og fari nú
annars vel á þessu, því með þessu
móti verða flokkamir að einum,
sem spanni lífshlaup Schuberts.
Og Schmidt er á því að með
þessu móti verði ljóðaflokkamir
jafnvel enn áhugaverðari fyrir
flytjenduma, en vonandi líka fýrir
áheyrendur. „Það er spennandi
og heillandi að rýna í þessa birt-
ingarmynd af lífí tónskáldsins.
Rekja hvemig malarasveinninn
áhyggjulausi verður að þeim sem
ráfar um án þess að eiga nokkurs
staðar höfði sínu að halla, þar til
hann að lokum .lítur um öxl og
getur ekki annað.
Blærinn í ljóðunum segir líka
mikið um hugsvið Schuberts á
þessum árum. Svanasöngur hans,
síðasti flokkurinn sem hann samdi
er líka enn eitt dæmið um hvemig
tónskáld í skugga dauðans semja
oft tónlist, sem eins og bara
sprettur fram, án erfíðis. Svo
greinilegt í ljóði eins og Vorþrá.
Sama má segja um Falstaff Ver-
dis og Þjóðvísur Bráhms. í þessu
felst líka hughreysting, lífsbarát-
tunni lokið og eftir er hvorki geta
né vilji til að beijast. Þá líður
þessi tónlist áreynslulaust
fram ...“
TEXTI: Sigrún Davíðsdóttir
MYND: Börkur
MOBLER
REYKJAVIK
Dallas hernin og Dallas sófasettin eru með háu baki og mjúkri
bólstrun sem gerir þau svo þægileg að sitja í og liggja út af í
OG EKKIFÆLIR VERÐIÐ FRÁ
LEÐUR: 6 sæta horn (sjá mynd) 97.860,- útb. 25.000,- og ca. 6-7.000 á mán.
5 sæta horn 92.880,- útb. 23.000,- og ca. 6-7.000 á mán.
3+1 +1 sófasett (sjá mynd) 92.880,- útb. 23.000,- og ca.6-7.000 á mán.
3+2+1 sófasett 99.860,- útb. 25.000,- og ca. 6-7.000 á mán.
ÁKLÆÐI' 6sætahorn^amynd)"76.280,-útb.20.000,-ca.5-6.000ámán.
5 sæta horn 72.960,- útb. 20.000,- ca. 5-6.000 á mán.
3+1 +1 sófasett (sjá mynd) 72.960,- útb. 20.000. ca. 5-6.000 á mán.
3+2+1 sófasett 79.590,- útb. 20.000. ca * 5-6.000 á mán.
Og auðvitað borgarðu útborgunina eða
, þá allt saman með Visa og Euro.
húsgagna>höllin
homogsófesett
eru bólstruð í mjúkan övamp sem þakinn er Dacronló og klætt
með krómsútuðu, anilíngegnumlituðu nautaleðri (eins og yfir
leðrið á skónum þínum) á slitflötum með gerfileðri á grind utan-
verðri þar sem ekkert reynir á í sliti.
SEM SAGT ÚRVALSVARA Á GÓÐU VERÐI
rlOtt sett
Flott verð
T