Morgunblaðið - 25.02.1988, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.02.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 19 Námskeið fyr- irforeldra fatlaðra barna Foreldrar fatlaðra barna eiga nú kost á, að sækja ferns konar námskeið, varðandi fötlun barna þeirra. Að þessum nám- skeiðum standa hagsmunafélög fatlaðra í samvinnu við Grein- ingar- og ráðgjafarstöð rikisins. Námskeið af þessu tagi var fyrst haldið árið 1984, svokallað grunnnámskeið. Það þótti ta- kast vel og var haldið viða um land. Nú hefur námskeiðið verið þróað frekar og skipt upp í fjóra þætti eftir aldri hinna föt- luðu barna. Félögin sem standa að þessum námskeiðum eru Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Styrktarfélag vangefínna og Sjálfsbjörg landssamband fatl- aðra. Síðan haustið 1984 hafa þessi félög staðið fyrir námskeiðs- haldi fyrir aðstandendur fatlaðra barna. Aðdragandi þess var, að á þingi Sjálfsbjargar 1984 var sam- þykkt ályktun þess efnis, að Sjálfs- björg skyldi beita sér fyrir for- eldrafræðslu í samstarfí við önnur hagsmunafélög fatlaðra. Það var síðan fyrir tilstuðlan Sjálfsbjargar, að fyrsta námskeiðið var haldið í Olfusborgum haustið 1984 og með því hófst samstarf félaganna að þessu málefni. Frá þessum tíma hafa verið haldin 15 slík námskeið, flest í Reykjavík, en einnig á Akureyri, Vestfjörðum og víðar um landið. Alls hafa tekið þátt í þeim um 250 aðstandendur fatlaðra bama. Þetta eru svokölluð grannnám- skeið og hefur þar verið fjallað um m.a. tryggingamál, þjónustu, sálfræði- og læknisfræðilega hlið mála s.s. greiningu og kreppu- kenningar, einnig hefur verið fjall- að um þjálfun og hjálpartæki. Grannnámskeiðið var mjög stórt í sniðum, með sex fyrirlesur- um og foreldrafulltrúa, auk þess sem boðið var upp á bamagæslu í umsjá sérmenntaðs starfsfólks. Námskeiðin þóttu takast mjög vel og sýndi sérstakt námskeiðsmat í lok hvers þeirra afar jákvæðar niðurstöður. Skipulagning og framkvæmd námskeiðanna hefur verið í hönd- um sérstaks bakhóps, sem mynd- aður er með fulltrúum frá hveiju félagi og foreldrafulltrúum auk framkvæmdastjóra námskeið- anna. Að fenginni reynslu þótti tími til kominn, að þróa þessi námskeið frekar og s.l. sumar skilaði sér- stakur vinnuhópur um málið niður- stöðu. Þar var lagt til, að nám- skeið fyrir foreldra fatlaðra bama yrðu framvegis fjögur: 1. Grannnámskeið. 2. Forskólaaldurinn. 3. Unglingsárin. 4. Fullorðinsárin. Þá varð að ráði, að Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins tæki við framkvæmd grannnámskeiðsins, þar sem sú stofnun hefur mest tengsl við foreldra yngri bama auk þess að hafa yfírsýn yfír aliar nýfatlanir hjá bömum. Þessi nám- skeið munu heíjast í mars n.k. Þegar hafa verið haldin tvö framantalinna námskeiða s.l. TJöfóar til jn fólks í öllum starfsgreinum! haust, þau vora um forskólaaidur- inn og unglingsárin. Þessi nám- skeið era minni í sniðum en hið fyrsta. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 og ekki verður gert ráð fyr- ir bamagæslu. Þau verða síðan haldin aftur á næstunni. Nám- skeiðið um böm á forskólaaldri dagana 19. og 20. mars og aftur 23. og 24. apríl. Námskeiðið um unglingsárin dagana 16. og 17. apríl og aftur 7. og 8. maí. Síðartöldu námskeiðin, um for- skólaaldurinn og unglingsárin, era helgamámskeið og era foreldrar utan af landi, sem vilja sækja þau, styrktir til fararinnar. Öll nám- skeiðin era haldin í Reykjadal í Mosfellssveit, þar sem Styrktarfé- lag lamaðra og fatlaðra hefur lán- að aðstöðu. Leiðbeinendur á námskeiðinu um böm á forskólaaldri era Stefán Hreiðarsson læknir, Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur, María Björk Ingvadóttir félagsráðgjafí og Guðiaug Sveinbjömsdóttir for- eldri. Á námskeiðinu um unglingsárin era leiðbeinendur Sveinn Már Gunnarsson læknir, Tryggvi Sig- urðsson sálfræðingur, Lára Bjömsdóttir félagsráðgjafi og Ásta B Þorsteinsdóttir foreldri. . Framkvæíndastjóri námskeið- anna er Kristín Jónsdóttir þroska- þjálfí og veitir hún allar upplýsing- ar um þau. Morgunblaðið/Sverrir Um sjö þúsund manns á ferðakynningu Útsýnar MIKILL ferðahugur er í landsmönnum þessa dagana ef marka má aðsóknina á ferðakynningu Útsýnar í Broadway síðastliðinn sunnudag. Um sjö sjö þúsund manns komu á kynninguna að sögn Helga Magnússonar forstjóra Útsýnar og virtist mikill áhugi ríkjandi meðal fólks um að kynna sér sumaráætlunina. Helgi sagði að áhersla hefði verið lögð á kynningu á þremur áfanga- stöðum Útsýnar, það er Spáni, Kýpur og Portúgal, og 10 ferða- málafrömuðir frá þessum stöðum hefðu verið i Broadway til að gefa upplýsingar um viðkomandi staði. „Þessi kynning tókst með miklum ágætum, sem sést best á þeim fjölda sem hana sótti,“ sagði Helgi. r ^ VÉLALEGUR AMC A Mercedes Benz Audi Mitsubishi BMW Nissan Buick Oldsmobile Chevrolet Opei Sfy Chrysler Perkins Citroen Peugot Daihatsu Renault Datsun Range Rover Dodge Saab Fiat Scania Ford Subaru Honda Suzuki International Toyota Isuzu _ VoJkswagen Lada Volvo ? Landrover WHIys M. Ferguson Mazda " . 2etor Þ. JÓNSSON & CO SKEIFAN 17 S. 84515 -84516 Á SIEMENS Rómgóður frysti- skápur frá Siemens • Getur fryst 18 kg á sólarhring; • Nýtanlegt rými 207 litrar. • Aðeinsl46smáhæð. Smith & Norland Nóatúnl 4 — S. 28300 ARLEG MENNINGARFERÐ FARANDA Viö heimsækjum vöggu vestrænnar menningar og skoðum m.a. Aþenu og þar með Akrópólis, véfréttina í Delfí, Ólympíu og eyjarnar Krít, , Santorini og Kios. Frá Kios verður farið í eins dags ferð til Efesus á vesturströnd Tyrklands. Brottför er 3. júní og fararstjórn höndum Dr. Þórs Jakobssonar veðurfræðings. Verð í tvíbýli Kr. 89.700.- SKEMMTISIGLING UM EYJAHAF Erum með söluumboð í sumar fyrir skemmtiferðaskip sem leggja af stað frá hafnarborginni Pireus og sigla um Eyjahaf, Miðjarðarhaf og Svartahaf. Fjölmörg lönd verða heimsótt. 3ja til 21 dags siglingar. Brottfarir hvenær sem er í allt sumar. ðaiandi Vesíurgötu 5. Reykjavik simi 622420 í £
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.