Morgunblaðið - 25.02.1988, Page 20

Morgunblaðið - 25.02.1988, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 Utanríkisráðherra: Blomberq Vestur-þýskt gæðamerki í heimilistækjum. KS145 143 Iftra með eða án frystihólfs. Mál: H 85xB 50xD 54. Verð kr. 18.600,- kr. 17.670 stgr. KS190 169lrtrakælir, 16 Irtra frystir. Fæst einnig án frystihólfs. Mál: H 109xB 50xD 54. Verð kr. 22.800,- kr.21.660stgr. KS 220 220 lítra kælir. Fæst einnig með frysti- hólfi. Mál: H 123,5xB 55xD 54. Verð kr. 24.990,- kr. 23.740 stgr. KF 280 225 lítra kælir, 55 lítra frystir. Sjálfvirk afhríming. Lítil straumnotkun. Mál: H 156,7xB 55xD 54. Verð kr. 28.900,- kr. 27.450 stgr. FS120 113 lítra djúpfrystir. Frystir 14 kg á sólarhring. Lítil straumnotkun. Mál: H 85xB 55xD 54. Verð kr. 26.500,- kr. 25.200 stgr. Misstu ekki af þessu hagstæða verði. Útborgun aðeins kr. 6.000,- VISA - EURO, 6 mánaða kjör. Einar Farestveit&Co.hf. BORO-ARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OC 622900 - NÆO BÍLASTÆÐI Þurfum að aðlagast hin- um innra markaði Evrópu f SKÝRSLU sinni til Alþingis, sem lögð var fram í vikunni, ræðir Steingrímur Hermanns- son, utanríkisráðherra, m.a. mál- efni Evrópubandalagsins og EFTA. Hann segist telja að ekki verði um að ræða samninga við EB fyrr en eftir 1992 en þá er áætlað að bóið verði að koma á innri markaði bandalagsríkj- anna. Utanríkisráðherra segir nauðsynlegt að stefna að aðlögun að þessum markaði og því nauð- synlegt að fylgjast vel með því sem sé að gerast hjá EB og EFTA. Full aðild íslendinga að EB komi þó ekki til greina að hans mati. Eftir fund sinn 8. desember sl. með Willy de Clercq, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn EB, og Antonio Cardoso e Cunha, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjóminni, gerði ut- anríkisráðherra ríkisstjóminni og utanríkismálanefnd grein fyrir eft- irfarandi atriðum: Einn sameiginlegnr markaður 1992 „Fullyrt er að takast megi að koma á einum sameiginlegum markaði Evrópubandalagslandanna á næstu ij'órum árum. Hafín er samræming á lögum, reglum, stöðl- um, sköttum, gjöldum og fleim sem varðar framleiðslu og markaðsmál. Öðrum þjóðum í Vestur-Evrópu er boðið að taka þátt í þessu samræm- ingarstarfi ef þær óska. í þessu skyni hafa verið settar á fót flöl- margar nefndir og samstarfshópar. Tal heims- meistari í hraðskák MÍKHAÍL Tal varð á laugardag- inn heimsmeistari í hraðskák i St. John i Kanada, en hann vann landa sinn, Sovétmanninn Rafael Vaganjan í úrslitaeinviginu með 3,5 vinningum gegn 0,5. Tal varð þar með 50 þósund kanadadölum ríkari eða tæpri einni og hálfri milljón króna. Sigur Tals kom ekki á óvart því hann hefur gegnum árin verið talinn einn besti hraðskákmaður heims. Þó var frekar búist við að Gary Kasparov myndi hreppa sigurlaunin en hann varð að lúta í lægra haldi strax í 3. umferð, fyrir Búlgaranum Kiril Georgiev, þeim sama og sló Helga Ólafsson út úr mótinu. Jafnir í 3.-4. sæti voru Georgiev og sovéski stórmeistarinn Tsjemin. Terra hf. gjaldþrota STJÓRN ferðaskrifstofunnar Terru hf. hefur óskað eftir því við skiptaráðanda í Reykjavík að fyrirtækið verði tekið til gjald- þrotaskipta. Síðastliðið haust var skrifstofan seld, en kaupin gengu til baka stuttu síðar. Eigendur hafa síðan kannað hvort grundvöllur væri fyrir áframhaldandi rekstri, en á hlut- hafafundi fyrir skömmu var ákveð- ið að óska eftir gjaldþrotaskiptum. í frétt frá ferðaskrifstofunni segir, að ljóst hafi verið að fyrirtækið gæti ekki staðið við ijárhagslegar skuldbindingar sínar og tilraunir til nauðasamninga hafí ekki borið þann árangur að viðunandi rekstr- argrundvöllur næðist með þeim hætti. Má þar t.d. nefna CEN og CEN- ELEC (þar sem m.a. er unnið að því að staðla rafbúnað), sem við Islendingar höfum ákveðið að taka þátt í. Til lengri tíma litið er stefnt að því að innan ríkja Evrópubanda- lagsins verði fullt frelsi í vöruvið- skiptum, frelsi í þjónustuviðskipt- um, frelsi í fjármagnsflutningum og frelsi í fólksflutningum (vinnu- afl). Þýðingarlaust mun reynast að leita eftir breytingum á samningum við EB meðan á mótun hins innra markaðar stendur. Hins vegar er ekkert því til fyrirstöðu að taka upp viðræður. Þá mun ekki hjá því kom- ist að ræða einnig um fískveiðirétt- indi þótt EB eigi að að vera ljóst að slíkra réttinda er ekki að vænta. Fallist var á að viðræður um físk- veiðiréttindi yrðu óháðar viðræðum um viðskiptamál. Talið er að ein- hver þeirra ríkja, sem nú eru utan bandalagsins, sæki um fulla aðild eftir 1992. Jafnframt er gert ráð fyrir og talið eðlilegt að einhver lönd kjósi fremur að ganga til samn- inga við bandalagið um náin sam- skipti án fullrar aðildar. Mikilvægt er, að þau lönd fylgist vel með þró- un mála innan bandalagsins og aðlagist þeim breytingum, sem þar verða.“ Aðild að EB kemur ekki til greina Steingrímur Hermannsson segist ekki hafa farið dult með þá skoðun sína að full aðild að Evrópubanda- laginu komi ekki til greina en að stefni beri að aðlögun og samning- um. Dagana 14.-15. desember sat utanríkisráðherra ráðherrafund EFTA sem haldinn var í Genf. Seg- ir hann að greinilega hafi komið fram á fundinum að miklar breyt- ingar séu framundan innan Frí- verslunarbandalagsins. Utanríkisráðherra segir að gert sé ráð fyrir að EFTA-ríkin samræmi reglur, staðla, tæknilegar kröfur og prófanir, innkaup o.s.frv. Gert sé ráð fyrir sameiginlegu tilkynn- ingarkerfi f þessu skyni. Þótt EFTA-löndin vinni sameiginlega að því að aðlagast breytingum innan EB vinna flest löndin einnig ötul- lega að því á eigin vegum. Sömu- leiðis eru skoðanir mjög skiptar um þau Ijijgur svJð frelsis sem að fram- an eru nefnd. Fríverslun með f isk Þrátt fyrir meðmæli þingmanna- nefndar EFTA eru Svíar tregir til Steingrímur Hermannsson, ut- anríkisráðherra. þess að samþykkja fulla fríverslun með fisk og fískafurðir innan EFTA. Önnur aðildarríki virðast þessu hlynnt. Samkomulag varð þó um að ræða málið á ný á næsta ráðherrafundi sem verður 14.-15. júní í Finnlandi. Helstu niðurstöður sínar eftir þessa fundi segir utanríkisráðherra vera að ekki verði um að ræða samninga við EB fyrir 1992. Stefna beri að aðlögun að þeim innra mark- aði sem í mótun sé í Vestur-Evr- ópu. í því skyni sé nauðsynlegt að fylgjast með því, sem gerist hjá EB og EFTA og taka þátt í því starfí eins og okkur er frekast kleift. Leggja beri áherslu á að taka þátt í þeirri sameiginlegu aðlögun sem fram fer innan EFTA. Auka beri samstarf ráðuneyta um þessi mál og gæta þess að reglur og reglu- gerðir séu eins og kostur er í sam- ræmi við reglur hjá EB- og EFTA- ríkjum. Vinna beri að því að fá fullt viðskiptafrelsi fyrir físk og fiskafurðir innan EFTA. í því skyni sé mikilvægt að yfirvinna andstöðu Svía. Innan Norðurlandaráðs sé nauðsynlegt að leggja áherslu á þetta f tengslum við „Norðurlöndin sem heimamarkað". Árið 1989 taka íslendingar við formennsku í EFTA. Sendiherrar okkar í Genf og Brussel munu þá jafnframt verða formenn í embætt- ismannanefndum EFTA sem á þeim stöðum starfa. „Þetta verður mikið starf, sem krefst mikils undirbún- ings og vafalaust meira starfsliðs en nú er,“ segir utanríkisráðherra. Tvö ný frímerki gefin út í dag Póst- og símamálastofnun- in gefur út tvö ný frímerki í dag. Þau eru i flokknum „Merkir lslendingar“ og bera myndir af skáldunum Steini Steinarr og Davíð Stefáns- syni. Verðgildi merkjanna er annars vegar 16 krónur, hins vegar 21 króna. Tryggvi T. Tryggvason teiknaði merkin, þau eru prentuð í Sviss með sólprentunar/rasta- djúpþrykks aðferð (héliograv- ure). Fyrstadagsumslög verða stimpluð á öllum pósthúsum í dag. I kynningarbæklingi sem Póst- og símamálastofnunin gef- ur út um þessi frímerki, er að fínna æviágrip skáldanna og eru þau á dönsku, ensku, þýsku og frönsku, auk íslensku. 16P0 Eg gcng [ hring f kringum allt, sgiti c Og utan þossa hrings er YfrðW mín. . ($***+#'t Úr bltói ra/nujíkriífl&ity raln bc?.lu áitnrljtö á vapngina |)lna svórtu. I vctrornóttin h|j6ö, 1695*1904 S Nýju frímerkin, sem gefin eru ót í dag. Á 16 króna merkinu er mynd af Steini Steinarr og á 21 krónu merkinu er mynd af Davíð Stefánssyni frá Fagra- skógi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.