Morgunblaðið - 25.02.1988, Page 22

Morgunblaðið - 25.02.1988, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRUAR 1988 HVAÐ Fræðsla um al- næmí er enn öfl- SÝNIR ugasta vörnin dts gegnir nefnilega tvöföldu hlutverki, hann þjónar sem venjulegur búðarkassi (greiðslureiknir) og birgða- vörður. Tvær flugur í einu höggi. Svo er lauflétt að fylgjast með sölunni og lagernum, því dts segir nákvæmlega hver staðan er. Pessi splunkunýi dts tölvukassi (og fleiri af hans bræðrum) eru til sýnis í verslun okkar að Laugavegi 178 og við ráðleggjum forsjálum stjórnendum að hringja í okkur til skrafs og ráðagerða. Samtímis panta sýnikennslu hjá sérfræðingum okkar til þess að sjá með eigin augum þjónustugleði dts. Viltu vita hver staðan er ? . . . Pá borgar sig að slá á þráðinn í síma 31312. Ath. dts tengist flestum íslenskum birgðaforritum. HANS ÁRNASON UMBOÐ & ÞJÓNUSTA Laugavegi 178 • Sími 31312 P.S. Við „klæðskerasaumum" greiðsluskilmálana. þessi mynd! splunkunýja tölvutengjanlega búðarkassann frá dts. Pessum nýja dts tölvukassa er komið fyrir ofan á umbúðum sem innihalda vörur. Og af hverju skyldi ljósmyndarinn hafa stillt þessu svona upp . . . Jú, til að sýna hæfni dts. - Eigandi varanna getur strax skráð vöruna inná dts tölvukassann. JBI IX UÓSRITUNARVÉLAR ÞAÐ VAR samdóma álit framsögumanna á fræðslufundi um alnæmi, sem borgarlæknirinn í Reykjavík boðaði til fyrir nokkru, að alnæmi er vaxandi vandamál, sem bregðast þarf við af fullri alvöru ef það á ekki að verða alvarlegt þjóð- félagsmein. Enn er engin lækning til við þessum sjúkdómi, þess vegna er fræðsla og forvarnarstarf enn öflugasta vörn- in gegn þessum vágesti. A fundinum voru forstöðumenn ýmissa stofnana, sem líklegar eru til að eiga í framtíðinni samskipti við fólk, smitað af alnæmi. Allir framsögumenn lögðu á það áherslu, að alnæmi er félagslegt og fjárhagslegt vandamál, ekki síður en heilsuf ræðilegt. Þess vegna er mikil- vægt að víðtækt samstarf allra aðila, sem málið varðar, ta- kist um viðbrögð. Skúli G. Johnsen borgarlæknir setti fundinn og stýrði honum. Það kóm fram í inngangsorðum hans, að í lok þessa mánaðar verður tek- in í notkun ný rannsóknarstöð í veirufræðum, þar sem m.a. verða allar rannsóknir á alnæmi. Sex framsöguerindi voru flutt á fundinum og að þeim loknum voru umræður og fyrirspumir til frum- mælenda. Afleiðingarnar snerta alla Ólafur Ólafsson landlæknir flutti erindi um aðgerðir heilbrigðisyfir- valda. Hann rakti sögu sjúkdóms- ins, en hún er ekki þekkt nema um 15 ár aftur í tímann, og sagði frá fyrstu kynnum íslendinga af hon- um. Alnæmi hefði komið okkur á óvart, en fljótt var brugðið við og íslendingar voru meðal fyrstu þjóða til að hefja skipulagt fræðslu- og forvamarstarf gegn alnæmi. Ólafur sagði það vera ljóst, að við munum verða fyrir áföllum vegna þessa sjúkdóms og ekki einungis í læknis- fræðilegu tilliti. Félagsleg og §ár- hagsleg vandamál verða ekki minni. Einn mesti vandinn í glímunni við alnæmi, sagði Ólafur að væri hinn langi meðgöngutími sjúkdómsins, frá því að sjúklingur smitast, þar til hann verður sjúkur, eða allt að átta ámm. Þess vegna væri fræðslu um alnæmi beint af miklum þunga til unglinga, sem lifa hættulegasta kynlífínu, eru að leita fyrir sér að maka. Þeir sem nú smitast úr þeirra hópi, koma e.t.v. ekki fram sem sjúklingar fyrr en 1997. Þá greindi landlæknir frá því, að hann hefði lagt til við heilbrigðisráðherra, að sett verði á stofn landsnefnd um varnir gegn alnæmi. í nefndinni verði fulltrúar fleiri hópa en heil- brigðisstéttanna, þar sem afleiðing- ar sjúkdómsins eru mjög víðtækar og snerta þjóðfélagið í heild. Allir þurfa fræðslu Vilborg Ingólfsdóttir deildarstjóri sagði í sínu erindi frá könnunum, þar sem athuguð var þekking ís- lendinga á sjúkdóminum. Fram kom, að fólk þekkir vel smitleiðim- ar, en einnig að nokkurs misskiln- ings gætir varðandi leiðir, sem smita ekki, t.d. kossa, almennings- salemi o.þ.h. Vilborg sagði frá fræðslu um alnæmi og að áhersla yrði lögð á, að „hver og einn beri ábyrgð á sjálfum sér“ um hegðun, t.d. í kynlífi. Þá vék hún að félags- lega þættinum: „Að því kemur, að hver og einn þekkir einhvem, sem er sýktur og þess vegna þurfa allir að fá fræðslu. Við þurfum að læra að lifa við sjúkdóminn," sagði Vil- borg Ingólfsdóttir. Alnæmi er metið til örorku Ingimar Sigurðsson lögfræðing- ur ræddi um þau lög, sem stuðst er við í baráttunni við alnæmi og vandamál við beitingu þeirra. Hann sagði enn að miklu leyti stuðst við farsóttar- og sóttvamarlög ásamt lögum um kynsjúkdóma frá fyrri hluta aldarinnar. Núgildandi lög em frá 1978 með breytingum frá 1986. Hann sagði það samdóma álit manna, að grípa þyrfti til ráðstaf- ana og nauðsynlegt í því skyni að endurskoða lagasetningu um smit- sjúkdóma. Eitt mikilvægasta atriði gildandi laga og jafnframt nýrra laga sagði Ingimar vera ákvæði um trúnað og leynd gagnvart sjúkling- um, það væri forsenda þess, að lög- in virkuðu, að til sjúklinganna næðist. Nú er unnið að samningu nýrra laga um þessi mál á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Þá tók Ingimar það sérstaklega fram, að ákvæði laga um farsóttaraðgerðir beinast gagn sóttum, ekki gegn einstaklingum. Ingimar greindi frá félagslegum tryggingarákvæðum laga, sem taka til alnæmis og sagði, að í öllum tilvikum sé alnæmi met- ið tii örorku, t.d. ef sjúklingur miss- ir atvinnu vegna sjúkdómsins. Fyrst og fremst félagslegt vandamál Sigurður Guðmundsson læknir ræddi nýjungar á sviði alnæmis- rannsókna og um félagsleg áhrif sjúkdómsins. „Þótt læknisfræðileg áhrif sjúkdómsins séu skelfileg fyr- ir einstaklinginn, er alnæmi fyrst og fremst félagsfræðilegt vanda- mál,“ sagði hann. Hann rakti síðan uppruna sjúkdómsins oggerði grein fyrir. hegðan veirunnar, sem veldur honum. Hún ræðst fyrst og fremst á frumur ónæmiskerfis líkamans og miðtaugakerfisins. Veiran þrengir sér inn í frumumar og ruglar starfsemi kjamasýra frum- anna, sem að líkindum veldur hinum langa meðgöngutíma alnæmis (um sjö ár). Við það hrynur ónæmis- kerfi líkamans. Sjúkdómurinn hefur þijú stig, forstig með vægum ein- kennum, dvala sem er einkennalaus og loks lokastig. „Það kann að fara svo, ef svo heldur fram sem horfir, að B-álma Borgarspítalans verði ekki fyrir gamalt fólk eins og upphaflega var áætlað, heldur fyrir ungt fólk,“ sagði Sigurður Guðmundsson lækn- ir. Hann sagði fyrsta tilfelli hafa fundist hér 1983, nær öll þekkt til- felli væru frá 1986 og þau hafa fundist vegna þess, að fólkið hefur haft sjúkdómseinkenni. Þeir sem koma í mótefnamælingu, eru aðal- lega þeir, sem ekki hafa ástæðu til ótta. Sigurður sagði meðferð við al- næmi vera í sjónmáli, en ekki vera til enn. Til er lyf, sem lofar góðu um meðferð, þó læknar það ekki, drepur ekki veiruna. Félagslegu vandamálin sagði Sigurður einkum vera af þrennum toga. í fyrsta lagi * atvinnumissir, sem þegar er fyrir hendi hér á landi. í öðru lagi bregð- ast stuðningshópar, fjölskyldur og vinir, gagnstætt því sem gerist t.d. með krabbameinssjúklinga. í þriðja lagi er mikil hætta á að sjúklingar einangrist algerlega. Sigurður lagði áherslu á, að allt væri þetta óþarft,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.