Morgunblaðið - 25.02.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
27
Húsavík:
Björgunarsveitin Garð-
ár æfir sjóbjörgun
Húsavík.
Björgunarsveitin Garðar á Húsavík starfar vel og mætir kjarni
hennar til æfinga hvert fimmtudagskvöld og hafa meiri háttar æfing-
ar þess á milli.
Nokkrir félagar í Kiwanisldúbbnum Kötlu ásamt Stefáni Skafta-
syni, yfirlækni, Sigurði Stefánssyni, lækni og Kristjáni Ingvarssyni,
verkfræðingi.
Kiwanisklúbburinn
Katla afhendir Borg-
arspítalanum gjafir
NÝLEGA afhenti Kiwanisklúbburinn Katla Háls-, nef- og eymadeiid
Borgarspítalans veglegar gjafir. Var þar um að ræða tölvu og snún-
ingsstól, sem notuð eru til jafnvægisrannsókna, tæki til að deyfa
hljóðhimnu og tækni, sem mælir virkni andlitstaugar.
Nýlega æfði sveitin sjóbjörgun
með línubyssu og björgunarstól.
Skotið var frá bryggjunni við
Naustafjöru og yfir í skipið Sigþór,
sem lá við Hafnarbryggjuna. Björg-
unarlínan fór í fyrsta skoti yfir brú
skipsins og var síðan unnið að
„björgun" manna úr Sigþóri og í
land. Voru mennimir dregnir hver
eftir annan á milli og voru þeir í
flotgöllum og vissu lítið af kulda
þó frost væri mikið og þeir dregnir
hluta leiðarinnar í sjó.
Æfingin tókst vel og hafa björg-
unarsveitarmenn hug á að hafa
næstu æfingu úti á Tjömesi og við
erfiðari aðstæður.
Það er mikið starf, sem þessir
áhugamenn leggja á sig í sjálf-
boðavinnu við æfingar og svo við
raunveruleg björgunarstörf, þá með
þarf, og verður það aldrei nógsam-
lega metið og þakkað.
Háls-, nef- og eymadeild Borg-
arspítalans er hin eina sinnar teg-
undar hér á landi. Árlega em lagð-
ir 1.100—1.200 sjúklingar inn á
deiidina og á göngudeild háls-, nef-
og eymadeildar koma árlega
14.000—15.000 manns. Yfirlæknir
háls-, nef- og eymadeildar er
dr.med. Stefán Skaftason.
Gjafir sem þessar eru Borg-
arspítalanum mikils virði og em
t.d. flest lækningatæki á háls-, nef-
og eymadeild gefin af ýmsum félög-
um og einstaklingum. Við afhend-
ingu gjafanna lýsti starfsfólk háls-,
nef- og eymadeildar notkunargildi
tækjanna. Jafnframt þakkaði yfir-
læknir deildarinnar gefendum fyrir
höfðinglegar gjafir.
(Fréttatilkynning)
MO TT
ÁFERÐ
mcð
Kópal
Dýrótóni
ÞvctiUetdui
co sivildciUt
l hámarkt.
Veldu Kópal .
með gljáa við hæfi.
— Fréttaritari
Sigurður P. Bjömsson
Frá æfingu björgunarsveitarinnar í Húsavíkurhöfn þegar æfð var
sjóbjörgun með línubyssu og björgunarstól.
Æ
HinEinuSönnu
FkÖNSKUSMÁBRAUÐ
Hin einu sönnu Frönsku smábrauð eru frá Myllunni.
Þú finnur þau í frystiborðum verslananna í bláum,
hvítmn og rauðum pokum. Frönsku smábrauðin frá
Myllunni eru einstaklega ljúffeng og setja skemmti-
legan svip á hvaða máltíð sem er. Þú ættir endilega að bragða
á þeim við fyrsta tækifæri því betri brauð eru vandfundin.
Frönsk smábrauð fást bæði gróf og fín og eru auðvitað
sykurlaus.