Morgunblaðið - 25.02.1988, Síða 29

Morgunblaðið - 25.02.1988, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988 * Reuter Sjúklingar úr sjúkrahúsi sem eyðilagðist í flóðunum liggja nú í einni kirkju Ríó de Janeiro. Flóðin í Brasilíu: Borgaryfirvöld þurfa milljóna dala aðstoð Ríó de Janeiro, Reuter. YFIRVOLD þeirra borga sem verst urðu úti vegna aurskriða og flóða um helgina hafa beðið um aðstoð til að bæta tjónið, sem nemur milljónum dala. Talið er að minnst 80 manns hafi farist í Ríó de Janeiro um helgina og embættismenn segja að algjör eyði- legging blasi við borginni Ríó Branco. I Ríó de Janeiro-fylki einu hafa 275 látist, 735 slasast og 9.939 misst heimili sín í kjölfar þriggja vikna rigninga, samkvæmt opin- berum tölum. Margir þeirra sem komust af reika svangir um Ríó Branco, þar sem ríkisstarfsmenn reyna eftir mætti að hjúkra og færa þeim matvæli. Margir sigldu í örvæntingu sinni um götur borg- arinnar í smábátum í leit að hjálp og fljótabátar voru notaðir til að flytja fólk af hættusvæðunum. Stjóm almannavama telur að enn sé hætta á skriðuföllum. Flaviano Melo, ríkisstóri, sagði að um 40.000 manns hefðu misst heimili sín í Amazon-ríki. „Ef okk- ur berst ekki hjálp gæti höfuð- borgin okkar (Ríó Branco) orðið algjörri eyðileggingu að bráð,“ sagði Melo meðal annars í sjón- varpsviðtali. Roberto Satumino Braga, borgarstjóri Ríó de Janeiro bað forseta Brasilíu, Jose Samey, um 100 milljóna dala aðstoð vegna eyðileggingarinnar. Samey hafði áður veitt borginni 20 milljónir dala, sem fóm að mestu í vamir gegn frekari skriðföllum. Frá aðaltorginu í Jerevan, höfuðborg Armeníu. Þrátt fyrir hvatningu þessa tók Demírtsjíjan fram, að endursamein- ing héraðsins væri einfaldlega ekki til umræðu. Nagamo-Karabakh var gert að hluta Azerbajdzhan eftir borgara- styrjöldina 1918-1920, sem sigldi í kjölfar byltingarinnar. Astæðu þess má aðallega rekja til þess að bolsé- vikkar buðu út her í Azerbajdzhan til þess að bijóta á bak aftur þjóð- emissinnaðar ríkisstjómir í Arm- eníu og Georgíu. Nakarno-Karabakh er þó ekki eitt á báti, því hið sama er upp á teningnum hvað héraðið Nakhí- tsjervan varðar, sem telst til Az- erbajdzhan en er þó lukt af Arm- eníu og Tyrklandi og snertir hvergi Azerbajdzhan. íbúar þess em nær allir Armenar. Kremlarbændur ótt- ast nú mjög að sömu þjóðernisólgu taki að gæta þar, en enn sem kom- ið er, er allt þar með kyrmm kjör- um. Öllum þeim mörgu, sem glöddu mig á áttrœÖis- afmceli mínu, þann 14. febr. sl. með heimsökn- um, símhringingum, heillaskeytum og gjöfum, sendi ég mínar innilegustu þakkir. Sigríður Pálsdóttir, Hvanneyrarbraut 58, Siglufirði. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða tii viðtals íValhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardög- um frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa. Laugardaginn 27. febrúar verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnumálanefndar, í stjórn bygginganefndar aldraðra og SVR, og Sólveig Pétursdóttir, formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkur og í stjórn Félags- málaráðs. NY SENDING NAUTALEÐUR Verðið er 68.650 — þetta er ekki prentvilla 5000.- á mánuði 18.650. -útborgun (med Visa eða Euro) msútað leður á slitflötum Bergen 6 sæta hornsófi. í púðum er polyester og dacronló. Klætt með krómsút- uðu anilín gegnum lituðii nauta- leðri á öllum slitflötum og með leðurlíki á grind utanverðri. StærðirB 210 x L265. 2ja ára ábyrgð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.