Morgunblaðið - 25.02.1988, Síða 62
-~62
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
FOLK
■ MICHAEL Redl frá Rúmeníu
missti í gær þjálfarastöðu sína hjá
Schwabing í vestur-þýsku úrvals-
deildinni í handknattleik. Liðið er í
alvarlegri fallhættu og eins og oft,
þegar illa gengur, er þjálfaranum
kennt um. Wolfgang Sommer-
feldt var ráðinn í hans stað.
■ INNANHÚSSMÓTI í fijáls-
um íþróttum, sem fara átti fram í
Lievin í Frakklandi, hefur verið
■ frestað. Mótið átti að vera á sama
tíma og tólf þjóða keppni í Vittel,
en skipuleggjendur höfðu kvartað
undan því að mótin væru á sama
tíma. Það varð því að fresta öðru
mótinu. Keppnin í Vittel var á al-
manaki fijálsíþróttamanna, en ekki
mótið í Lievin og því var því fre-
stað. Ben Johnson, heimsmethaf-
inn í 100 metra hlaupi var á lista
keppenda í Lievin og hann mun
því slaka á um helgina, eftir að
hafa verið á fullri ferð síðustu vikur.
■ AÐALFUNDUR fijáls-
íþróttadeildar Breiðabliks verður
haldinn sunnudaginn 28. febrúar
klukkan 20.
■ FIRMA- OG FÉLAGS-
HÓPAKEPPNI KR í knattspymu
innanhúss hefst 5. mars. Sem fyrr
er þátttaka takmörkuð, en skráning
stendur yfir hjá knattspymudeild-
inni í félagsheimilinu við Frosta-
skjól.
Gullit í bann!
Ruud Qulllt, knattspymumaður
Evrópu, var í gær dæmdur í eins
leiks bann með AC Mflan, fyrir
útafrekstur í leik liðsins gegn As-
coli 14. febrúar. Gullit missir af
leiknum gegn Sampdoria á sunnu-
daginn.
KNATTSPYRNA / U-KEPPNI ÓL
ítalir taplausir
Portúgal og Ítalía gerðu marka-
laust jafntefli í B-riðli undan-
keppni ólympíuleikanna í knatt-
spymu í Lissabon í gær. En þessi
lið em í sama riðli og íslendingar,
ásamt Austur-Þjóðveijum og Hol-
lendingum.
ítalir eru í efsta sæti ásamt Aust-
ur-Þjóðvetjum með 7 stig. íslend-
ingar mæta Hollendingum og Aust-
ur-Þjóðveijum í sömu keppni í apríl.
Staðan í riðlinum er þessi:
ítalia 5 2 3 0 4:1 7
A-Þýskaland 6 2 3 1 6:5 7
Portúgal 5 1 3 1 3:3 5
ísland 4 1 1 2 5:6 3
Holland 4 0 2 2 5:8 2
FOTBOLTI
Jóhann Torfason
GOLF
Púttmót í Kringlunni
Kylfíngar fá gott tækifæri til
að munda kylfur sínar á
sunnudaginn. Þá verður haldið
púttmót í Kringlunni - „Kringlu-
pútt.“ Leiknar verða 36 holur í
karla og kvennaflokki, með og án
forgjöf.
Magnús Thorvaldsson, blikksmiður,
hefur búið til átján gervigrasbraut-
ir, sem keppt verður á. „Það er
mjög líkt að pútta á brautunum og
á venjulegu grasi. Brautimar átján,
sem eru um par 70, eru frá íjórum
upp í tólf metra langar, með sand-
og vatnshindrunum. Tvær brautir
eru par fímm,“ sagði Magnús.
Golfklúbburinn Ness sér um fram-
kvæmd mótsins, en öll verðlaun
verða gefín af verslunum í Kringl-
unni. Sex verðlaun verða veitt í
hvorum flokki. Aukaverðlaun verða
veitt þeim sem fer flestar holur í
einu höggi og þeim sem fer flestar
holur á pari eða betur.
Þeir kylfíngar sem hafa hug á að
taka þátt í púttmótinu, em hvattir
til að mæta snyrtilega klæddir -
með pútter og kúlu. Tekið verður
við þátttökutilkynningum eftir kl.
20 á föstudagskvöldið í golfskála
Nessklúbbsins, í síma 61 19 30.
Mótið hefst kl. 10 á sunnudag.
Jóhann
þjálfar
Jóhann Torfason hefur verið
ráðinn þjálfari ísfirðinga sem
leika í 3. deild íslandsmótsins í
knattspymu. ísfírðingar féllu úr
2. deild í fyrra og leggja nú alla
áherslu á að komast upp aftur.
Liðið leikur í A-riðli 3. deildar.
Þá hefur Ömólfur Oddsson verið
ráðinn til að þjálfa 1. deildarlið
kvenna hjá IBÍ og einnig 3.
flokk.
- fimafeitur og á leidinni yfir fjórar milljónir!
Á síðustu tveimur vikum hefur engin röð komið fram með tólf réttum.
Spáðu því vandlega í liðin og spilaðu með af þreföldum krafti,
- núna getur þekkingin fært þér milljónir!
ná ÍSLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturínn þar sem þekking
margfaldarvinningslíkur.
Hægt er að spá í leikina símleiðis og
greiða fyrir með kreditkorti.
Þessi þjónusta er veitt alla
föstudaga frá kl. 9:00-17:00
og laugardagafrákl. 9:00-13:30.
Síminner 688 322
Upplýsingar um úrslit í síma 84590.