Morgunblaðið - 27.02.1988, Page 14

Morgunblaðið - 27.02.1988, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988 Eining Vesturlanda eykur friðarlíkur eftir Matthías A. Mathiesen Menn hljóta ávallt að veita at- hygli skýrslu nýs utanríkisráðherra, þar sem fram kemur hvaða mál hann hyggst setja á oddinn og hvaða áherslu hann muni leggja á hin ýmsu atriði er snerta samskipti okkar ís- lendinga við aðrar þjóðir. Vitaskuld hiýtur skýrslán að mótast af yfír- lýstri stefnu ríkisstjómar Þorsteins Pálssonar og það er skemmst frá því að segja, að fyrsta skýrsla Steingríms Hermannssonar, utanrík- isráðherra, er í hefðbundnum stíl, þar sem annars vegar er lögð áhersla á efnahagslegt samstarf vestrænna ríkja og hins vegar á samstöðu þeirra í öryggis- og vamarmálum. Öryggis- og varnarmál í skýrslunni er boðað að haldið verði áfram þeirri vinnu sem hafin var í tíð síðustu ríkisstjómar og mið- aðist við eflingu þessara meginstoða íslenskrar utanríkisstefnu. Raunar má segja að þetta starf hafí að nokkru byijað í ráðherratíð Ólafs Jóhannessonar í utanríkisráðuneyt- inu, þegar endumýjun hófst á mikil- vægum búnaði vamarliðsins, en Geir Hallgrímsson markaði síðan sem ut- anríkisráðherra þá stefhu um aukið frumkvæði okkar sjáifra í vömum landsins, sem fylgt hefur verið æ síðan. í hans tfð var það starf ut- anríkisþjónustunnar, 'er lýtur að vömum landsins, vamarviðbúnaði og mati á vamarþörf, stóreflt, og í kjöl- farið hafa fylgt áætlanir og síðan framkvæmdir t.d. við ratsjárstöðvar á Vestfjörðum og Norð-Austurlandi, endumýjun flugskýla og annarra mannvirkja og tækja og svo einnig aukið samstarf við ýmis Evrópuríki í vamarmálum, svo ekki sé minnst á samstarfið við hemaðaryfírvöld Atlantshafsbandalagsins. Ráðnir vom innlendir sérfræðingar á þessu sviði til ráðgjafar við framkvæmd vamarstefnunnar, en fram til þess tíma má segja að við íslendingar höfum kosið okkur hlutskipti áhorf- andans. Frá þessari stefnu verður ekki hvikað eins og fram kemur í skýrslu utanríkisráðherra, enda hefur hún treyst öryggi okkar gagnvart sívax- andi flotastyrk Sovétmanna á haf- svæðunum norður og austur af landinu. Samskiptin við EB Þá kemur það skýrt fram í skýrsl- unni að áfram verður efldur sá þátt- ur utanríkistefnunnar og utanríkis7.. þjónustunnar er lýtur að májefnum Evrópubandalagsins (EB). í fyrri skýrslu minni um utanríkismál 1986 gat ég þess að alþjóðaefnahagsmál hefðu mtt sér til rúms sem mikilvæg- ur þáttur alþjóðamála og að sú þróun hefði áhrif á alþjóðleg öryggismál með margvíslegum hætti. Utanríkisviðskipti væm snar þátt- ur þessarar framvindu og mikilvægur hluti starfs okkar íslendinga á næstu ámm hlyti að mótast nokkuð af þess- um nýju viðhorfum. Við sjáum td. þá breytingu sem efnahagslegar staðre}mdir hafa haft á samskipti austurs og vesturs á allra síðustu ámm. Það var á gmndvelli þessara við- horfa sem ég hafði forgöngu um að starf utanríkisþjónustunnar hvað varðar samskiptin við EB yrði stór- eflt og stofnuð var, að mínu frum- kvæði, sérstök skrifstofa í Bmssel til að annast þau samskipti, fylgjast með og koma upplýsingum á fram- færi við stjómvöld og svo einnig að koma sjónarmiðum okkar og við- horfum á framfæri Jjar, hvenær sem þess gerðist þörf. Eg hygg að þetta spor hafí verið skynsamlegt og muni skila miklu þegar viðræður u’m framtíðarstöðu okkar gagnvart EB heljast á næstu ámm. Þessi skrif- stofa tók til starfa hinn 10. desemb- er 1986. Það er ástæða til að ætla að starfí þessu verði haldið áfram, enda er í inngangi skýrslunnar tekið undir þau orð mín, frá fyrri skýrslu, að stærstu verkefni utanríkisþjón- ustunnar í náinni framtíð hljóti að v,era utanríkisviðskipti og útflutn- ingsmál. Aðild að EB er ekki á dagskrá í þeirri umræðu sem nú fer fram um samslúptin við Evrópubandalagið finnst mér skorta nokkuð á nauðsyn- lega yfírvegun manna og ýmsir hafa verið með heldur glannalegar yfirlýs- ingar um það efni að undanfömu. Þá hafa sumir dregið upp heldur dökkar myndir og af máli þeirra er það helst að skilja að okkar bíði dap- urleg örlög nýlenduþjóðar ef ekki verði gengið til samninga um toll- frelsi þegar í stað og jafnvel hafa verið viðraðar hugmyndir um ein- hvers konar viðskipti með vamarað- stöðu. Við slíkar raddir vil ég segja eftir- farandi: Hyggilegast á þessari stundu er að halda áfram að vinna sjónarmiðum íslendinga brautar- gengi með rökum en láta slagorðin eiga sig. Við höfum hagstæðan samning við EB og markmiðið hlýtur að vera að útvíkka þennan samning á næstu misserum, eða þegar EB er reiðubúið að ganga til slíkrar samn- ingagerðar. Eg tek undir þau orð utanríkisráðherra, í skýrslunni, að heldur ólíklegt sé að til slíkra samn- inga komi fyrir 1992. Það þarf tvo til að semja og forsvarsmenn EB hafa marglýst því yfir að fram- kvæmd stefnunnar um „innri mark- að“ hafí forgang nú um stundir í málum EB. Við eigum á hinn bóginn að nota tímann þangað til viðræður geta hafist og marka okkur sameiginlega stefnu gagnvart þessu samstarfí EB, sem tryggir okkar hagsmuni í við- skiptum og okkar stöðu almennt í samfélagi vestrænna ríkja. Mikil- vægt er í því sambandi -að slá engu „Við eigum á hinn bóginn að nota tímann þangað til viðræður geta haf ist og marka okkur sameigin- lega stefnu gagnvart þessu samstarfi EB, sem tryggir okkar hagsmuni í viðskiptum og okkar stöðu almennt í samfélagi vestrænna ríkja. Mikil- vægt er í því sambandi að slá engu frá sér sem óhugsanlegu, heldur nálgast viðfangsefnið af raunsæi og fumleysi og gæta vel að því að full- veldi okkar, t.d. hvað varðar auðlindir, verði treyst i Evrópusamstarf i framtíðarinnar. Aðild að EB er ekki á dagskrá nú, en f ramvinda þeirra mála ræðst af sérstöðu okkar sem fiskveiðiþjóðar.“ Matthías Á. Mathiesen frá sér sem óhugsanlegu, heldur nálgast viðfangsefnið af raunsæi og fumleysi og gæta vel að því að full- veldi okkar, t.d. h hvað varðar auð- lindir, verði treyst í Evrópusamstarfi framtíðarinnar. Aðild að EB er ekki á dagskrá nú, en framvinda þeirra mála ræðst af sérstöðu okkar sem fiskveiðiþjóðar. Ég legg áherslu á að menn varist innantómar yfirlýsingar og hræðslu- óp í þessu sambandi, hvort sem það kemur úr röðum stjómmálamanna eða frá fulltrúum hagsmunahópa. Við verðum að fá aðrar þjóðir, þá á ég einkum 'við EFTA-ríkin, til að virða sjónarmið okkar og afstöðu og fá þær til stuðnings við íslenskan málstað. Mikilvægt í því sambandi er, eins og fram kemur í skýrslu utanríkisráðherra, að fá fullt við- skiptafrelsi fyrir físk og fískafurðir innan EFTA og yfírvinna andstöðu Svía við það mál. Árangurí afvopnunarmálum Ég gat þess hér að framan að hin nýju viðhorf í alþjóðamálum ættu sér efnahagslega undirtóna. Það er t.d. deginum ljósara að erfíð efnahagsleg kjör eru hreyfiafl þeirrar áherslu Sovétmanna að dregið skuli úr vígbúnaði. Þáttaskilin í vígbúnaðar- kapphlaupinu eru staðreynd og hæst ber þar samninginn um útrýmingu meðaldrægu og skammdrægU kjamaflauganna úr Evrópu. Eins og réttilega kemur fram í skýrslu ut- anríkisráðherra hefur sá árangur náðst fyrir eindrægni í vömum Evr- ópu. Sovétmenn standa frammi fyrir því að ríki Atlantshafsbandalagsins hafa þrek til að vega upp yfírburði þeirra á mikilvægum sviðum og Sov- étmenn hafa fundið sig knúna frammi fyrir þeirri staðreynd til að draga úr vígbúnaðarkapphlaupinu. Atlantshafsbandalagið hefur nýtt styrk sinn til að auka friðarlíkur og draga úr vígbúnaði. Stefna þess er að skila árangri. Það er mikilvægt að vestræn ríki haldi áfram að treysta samstöðu sína og við íslendingar eigum að taka þátt í því að haldið verði áfram að semja um fækkun kjamaflauga. Vonandi ná leiðtogar risaveldanna samkomulagi á fundi sínum í Moskvu í maí eða júní í vor um fækkun lang- drægra (strategískra) kjamaflauga. Fyrir Atlantshafsbandalaginu liggur á hinn bóginn það verkefni að undirbúa viðræður um fækkun hefðbundins vígbúnaðar og efna- vopna eins og samþykkt var á fundi utanríkisráðherra Atlantshafs- bandalagsins hér í Reykjavík hinn 12. júní í sumar. Nausynlegt er fyrir vamir Evrópu að samið verði um niðurskurð þess- ara vopnategunda áður en t.d. verður rætt um hin svokölluðu vígvallar- vopn. Markmiðið er, eins og margoft hefur komið fram í málflutningi Atl- antshafsbandalagsins, að tryggja friðinn og árangur næst ekki nema með festu og sveigjanleika í samn- ingum eins og vestrænu ríkin hafa borið gæfu til að gera allt frá stríðslokum. Breytt afstaða — rökstuðning skorti Ég vil vfkja nokkuð að þeirri áherslubreytingu sem orðið hefur í atkvæðagreiðslum á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna. í skýrslunni kemur fram að breytt hafí verið um at- kvæði til 10 tillagna frá því sem at- kvæði féllu áður. Engin tilraun er gerð til að rökstyðja þessa stefnubreytingu í skýrslunni nema með afar ónákvæm- um og óljósum tilvísunum í þingsá- lyktunina frá 23. maí 1985 um stefnu Islendinga í afvopnunarmálum. Það hefði mátt koma fram nánari skýring af. hálfu' utanríkisráðherra á því hvemig á því stendur að tveir forver- ar hans gátu fylgt þeirri sömu álykt- un en greitt þó atkvæði með öðrum hætti en hann gerir, en ekki er gerð tilraun til slíks rökstuðnings í skýrsl- unni. í einu tilviki var um að ræða til- lögu sem oft hefur verið rædd hér á Alþingi, en það er sænsk/mexík- anska „frystingartillagan". Afstaða til þeirrar tillögu var raunar mótuð í tíð Ólafs Jóhannessonar, en í skýrslu Ólafs um utanríkismál frá 1983 segir um þessa tillögu, að ís- lendingar hefðu tekið þátt í þeirri ákvörðun Atlantshafsbandalagsins að koma upp meðaldrægum kjama- flaugum í Évrópu á árinu 1979 til að vega upp yfirburði Sovétmanna á því sviði. Að greiða atkvæði um „frystingu" á sama tíma jafngilti því að verið væri að koma í bakið á bandamönnum okkar, sagði Ólafur Jóhannesson. Tillagan var með öðmm orðum sett fram í upphafi þessa áratugs og háfði þann tilgang að „frysta“ yfirburði Sovétmanna; það hefði að minnsta kosti verið afleiðingin ef hún hefði náð fram þegar hún var sett fram. Það er á hinn bóginn staðfest í skýrslu utanríkisráðherra, eins og ég gat um hér að framan, að það var einurð vestrænna ríkja, þ.e. upp- setning meðaldrægu flauganna, sem gerði þann árangur mögulegan, að samið var um útrýmingu þessara 'flauga með INF-samningnum, sem undirritaður var í Washington hinn 8. desember sl. Mín afstaða til þessarar tillögu mótaðist ekki aðeins af þessum sjón- armiðum heldur komu fram í tillög- unni fullyrðingar um jöfnuð f vígbún- aði og var þannig horft framhjá yfír- burðum Sovétmanna á sviði hefð- bundins vígbúnaðar. Þá var það af- staða mín að í tillögunni fælist að semja ætti um frystingu á sama tíma og samningar stæðu yfír um hreinan niðurskurð kjamavopna. Ekkert hef- ur komið fram sem gefur tilefni til stefnubreytingar að þessu leyti af hálfu okkar íslendinga enda var til- lagan tímaskekkja þegar leiðtogar risaveldanna sátu og sömdu um nið- urskurð kjamavopna. Ég vil því nota tækifærið og hvetja menn til þess að gæta várfæmi varðandi afstöðu til tillagna á þingum Sameinuðu þjóð- anna, sem oftar en ekki, því miður, em settar fram í áróðursskyni. Það er til að mynda afar undar- legt áð samþykkja tillögu, sem var flutt af Úkraínu og Tékkóslóvakiu og ýmis þróunarríki stóðu einnig að, um „samræmda framkvæmd álykt- ana allsherjarþingsins á sviði af- vopnunar". íslendingar vom eina vestræna þjóðin sem greiddi þessari tillögu atkvæði. Þessi afstaða var afar vafasöm þótt ekki væri nema vegna þess að við höfum ýmist setið hjá eða verið á móti samþykkt margra áróðurstillagna um þennan málaflokk, t.d. „frystingartillöguna" margnefndu, sem þó hafa verið sam- þykktar af allsherjarþinginu. í þessari afstöðu felst mótsögn og ég vil leggja áherslu á að í ályktun Alþingis um afvopnunarmál, þar sem segir „að fagna beri hverju því frum- kvæði sem fram kemur og stuðlað getur að því að rjúfa vítahring vígbúnaðarkapphlaupsins", felast ekki fyrirmæli um að samþykkja hverja þá áróðurstillögu sem fram kemur á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna um þennan málafiokk gagnrýn- islaust. Mál þessi eru flóknari, og mikilvægi samstöðu vestrænna rílq'a er meira virði en svo, að þar megi lítt grundaðar ákvarðanir ráða ferð- inni. Höfundur er aamgönguráðherra. Varaþingmaður á villigötum eftir Geir H. Haarde Margir, sem hafa lengri reynslu af pólitík en ég, hafa sagt að fljót- lega hafi þeir gefíst upp við að leið- rétta allt það sem rangfært hafí ver- ið um skoðanir þeirra eða ummæli. Ég verð að viðurkenna að ég skil þá vel, enda hafa menn oftast sitt- hvað betra við tímann að gera en elta ólar við ómerkilega útúrsnún- inga pólitískra andstæðinga. Mér finnst mér þó skylt að leið- rétta tiltekin ummæli, sem einn af varaþingmönnum kvennalistans sá ástæðu til að leggja mér í munn í jómfrúræðu sinni á Alþingi nýlega. Ég vakti að vísu athygli viðkomandi á rangfærslu sinni eftir að hún hafði lokið ræðu sinni og tekið við blómum frá stallsystrum sínum fyrir vikið. En fyrst ræðan er birt með þessari misfærslu í Mbl. sl. laugardag, (Jóm- ftúrræða Sigríðar Lillýjar Baldurs- dóttur: „Lögmálið er ekkert lögmál", Mbl. 20. febrúar sl.) vil ég koma eftirfarandi athugasemdum á fram- færi. í ræðunni segir svo m.a: „Hvemig hefur hæstvirt ríkisstjóm hugsað sér að bregðast við tilmælum sem þess- um og hver eru skilaboð háttvirtra stjómarþingmanna til láglaunafólks- ins í landinu? Einn þeirra, háttvirtur 17. þingmaður Reykvíkinga, Geir Haarde, sá sérstaka ástæðu til þess að nota tækifærið f sjónvarpsþætti á dögunum. Hann benti viðstöddum og sjónvarpsáhorfendum á að gera sér grein fyrir því að ekki væri hægt að hækka laun hinna lægst launuðu nema til komi auknar tekjur þjóðar- innar og við því væri ekki að búast næstu misserin." Umræddum sjónvarpsþætti var sjónvarpað beint úr Múlakaffi 26. janúar sl. I síðustu málsgrein tilvitn- unarinnar eru mér ranglega lögð orð í munn. Ummæli mín um þetta efni í þættinum voru eftirfarandi skv. útskrift: „Hins vegar er það auðvitað þannig, að auðvitað vildum við gjam- an sjálfsagt öll, að hér hefðu menn hærra kaup almennt, en það byggist á því auðvitað að hér séu sköpuð meiri verðmæti og að þjóðin fram- leiði meira. Þannig verða verðmætin tii. Og það er það sem við verðum að laga okkur að. Við getum ekki eytt meira heldur en við búum til hér f landinu öðmvísi þá en að taka lán í útlöndum, sem þessi ríkisstjóm er nú að reyna að binda enda á. Og þessar stíaðreyndir verðum við að Geir H. Haarde horfast í augu við alveg eins og allar aðrar þjóðir. Við getum ekki skipt meiru heldur en við öflum sem þjóð, ekkert frekar en hvert einstakt heim- ili getur leyft sér að eyða um efíií fram til langframa." Allir hljóta að sjá að í jómfrúræðu varaþingmannsins er mjög hallað réttu máli um innihald orða minna. Þess má geta að í þættinum var far- ið vítt og breitt um svið efnahags- og kjaramála. Tilvitnuð ummæli mín (ég hef undirstrikað orðið almennt) bera það með sér að þar er verið að ijalla um þann alkunna sannleik, að bætt lífskjör í landinu almennt byggj- ast á því að þjóðartekjur aukist. Þar er ekki vikið einu orði að skiptingu þjóðartekna eða því hvort núverandi skipting þeirra sé réttlát eða ekki. Er vandséð hvað fyrir ræðuhöfundi vakir með rangtúlkun sinni. Lesend- ur eru jafnvel í stakk búnir og ég til að geta sér til um það. Höfundur er einn afalþingis- mönnum Sjálfstteðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.