Morgunblaðið - 27.02.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
17
Líf á lands-
byggðinni
eftir Jóhönnu A.
Steingrímsdóttur
Nú er þorri liðinn, hann hefur kveðið
kalt við glugga að þessu sinni hér norð-
anlands, hlaðið snjó að húsum og á
vegi, lagt svell yfir vötn og þeytt snjó-
drift fram af brúnum hnúka og fjalla
svo að fyrir hefur komið að hver gnýpa
greiði haddinn, gráan og kaldan í löng-
um strokum í annars björtu veðri. En
þegar snjórinn jafnar holt og móa,
hlíðar og lautir og hjamið sindrar við
sól, eða birtu mána á stjömubjörtum
kvöldum og norðurljósin bregða á leik
yfír himinhvolfíð, þá er fallegt hér norð-
anlands.
Þorri er aðal samkvæmistíminn á
landsbyggðinni, þorrablót eru haldin í
hverri sveit og vinir og ættingjar eru
boðnir úr næstu sveitum og jafnvel
öðrum landshlutum til að gleðjast með
heimamönnum á þessum þjóðlegu sam-
komum þar sem fólk safnast saman
eftir því sem húsrúm leyfír á hvezjum
stað.
Flest em blótin með sama fyrirkomu-
lagi og liggur mikil vinna að baki hverr-
ar samkomu. Þorrablótsnefnd er skipuð
í hverri sveit og engum er fært að sker-
ast þar úr leik sem til er kvaddur.
Nefndin sér um allan undirbúning blóts-
ins, svo sem útvegun húsnæðis og
hljómsveitar sem í flestum tilfellum er
fremur auðveldur hlutur.
Erfíðara og tímafrekara er að nefnd-
in verður einnig að sjá um skemmti-
atriði á meðan á borðhaldi stendur, og
í lang flestum tilfellum gerir nefndin
það sjálf.
Menn yrkja bragi og vísur, setja sam-
an smá leikþætti og leika, oft er þá
klipið í nágrannana og haft í flimtingum
ýmislegt sem fyrir hefur komið, enginn
telur sér sæma að reiðast af slíku, enda
ekki gengið nærri heiðri manna eða
viðkvæmum tilfínningum neins.
Nefndin raðar borðum og stólum í
samkomusalinn, skrifar spjald á hvert
borð þar sem heimili eru merkt með
tölu þátttakenda og við hvert sæti ligg-
ur söngskrá, ljósrituð með þeim ljóðum
og vísum sem tilheyra almennum söng.
Oft er söngskráin skreytt með teikn-
ingum sem gefa til kynna að nú á að
sletta ærlega úr klaufunum.
Blótin hefjast kl. 21 og frá því kl.
20 drífur fólk að. Allir heimilisfeður
ganga í samkomusalinn með stór trog
í fanginu vafín hvítum dúkum. Konur
bera stórar bögglatöskur, úr þeim eru
Jóhanna Á. Steingrímsdóttir
„Þorri er aðal samkvæm-
istíminn á landsbyggðinni,
þorrablót eru haldin í hverri
sveit og vinir og ættingjar
eru boðnir úr næstu sveitum
og jafnvel öðrum landshlut-
um til að gleðjast með
heimamönnum á þessum
þjóðlegu samkomum þar
sem fólk safnast saman eftir
því sem húsrúm leyfir á
hverjum stað.“
teknir upp dúkar og hafðar hraðar
hendur við að breiða á borð svo að
bóndi geti lagt frá sér trogið. Þegar
svift er af því dúknum getur að líta
Úölbreyttar kræsingar af gömlum og
góðum þorramat og flest af því er úr
eldhúsi heimilisins.
Upp úr töskunum eru dregin matará-
höld og drykkjarföng, flöskur sem inni-
halda þann vökva sem hver kýs sér til
drykkjar, getur þar að líta mörg
gæðavín, enda ekki annað að leita en
í bögglatöskumar og kóksölu hússins
til að svala þorsta sínum, enginn er
barinn og enginn saknar þess.
Þorrablótsnefnd stjómar borðhaldinu
og í flestum tilfellum kitlar hún hlátur-
taugar manna, enda þorrablótin ætluð
sem gleðisamkomur og gott að láta
hugann hverfa frá óhóflegu vinnuálagi
dreifbýlisins.
Á þorrablótum fylgja menn þessari
formúlu svikalaust: — Etið, drekkið og
verið glaðir — en til undantekninga
heyrir ef dmkkið er svo að til leiðinda
sé fyrir viðkomandi eða aðra samkomu-
gesti.
Eftir borðhald, sem vanalega er lokið
um kl. 24, dunar dansinn í orðsins
fyllstu merkingu til kl. 3 eða jafnvel
lengur.
Þá er haldið héim.
Að morgni verða bændur svo að fara
til gripahúsa sinna eins og vant er því
ekki dugir að svelta búfénað eða sleppa
að mjalta kýr. Bændur geta hvorki sof-
ið út á sunnudögum né laugardögum
og áður en þeir búa sig til mannfagnað-
ar að kvöldi, hvort sem er leikhús, böll,
konsertar eða þorrablót, verða þeir að
hirða um gripi og mjalta kýr. Enginn
heyrist kvarta yfír svo sjálfsögðum hlut.
Höfundur býr í Ámesi íAðaldal og mun
skrifa reglulega greinar í Morgunblaðið
um lífið á landsbyggðinni.
„Special
Editíon"
„Special Edition" af 5-línunni er hlað-
in öllum þeim aukabúnaði til öryggis og
þæginda sem völ er á. Við getum ekki
stillt okkur um að telja upp eitthvað af
Deim aukabúnaði sem þú færð með
Dessum bíl - vitandi að slík upptalning
cætir huga þinn.
Metalic lakk, leðursportstýri, leður-
skiptihnúður, BMW sportfelgur (læstar),
miðstýrðar læsingar á hurðum, faranq-
ursgeymslu og bensínloki. Samlitir stuð-
arar og spegilhús, litað gler, sóllúga, raf-
stýrðar rúðuvindur, höfuðpúðar aftan,
þokuluktir, netavasar á framsætum og
fleira.
Verðið á 5-línunni er
frá kr. 842.350.- stgr.
Special Edition
kr. 965.000.- stgr.
Útborgun 25%. Eftir-
stöðvar: Lán í allt að 2V* ár
* Gengi 22.1415
Aðeinsflug
erbetra
.1r,-J •*— í r -
■ * . . 5. '• 1 ! r '■■ r
... -4 . 'V':. >j