Morgunblaðið - 27.02.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
29
Belgrad, Reuter.
SAMKOMULAG náðist um reglulegar viðræður Balkanríkja um aukna
samvinnu á fyrsta fundi utanríkisráðherra Balkanríkjanna sex, sem
lauk í gær. í lokaniðurstöðu fundarins, sem kynnt var í gær, var hins
vegar ekki minnst á annan annan fund utanrikisráðherra Balkanríkja.
Talið er að fundurinn hafi verið
persónulegur sigur fyrir utanríkis-
ráðherra Albaníu, Reiz Malile, sem
lét mikið að sér kveða á fundinum.
Sendimenn segja að í opnunarræðu
sinni á miðvikudag hafi Malile sýnt
mikinn skilning á vandamálum Balk-
anríkja. Þá þurftu júgóslavneskir
öryggisverðir að kalla á liðsauka
þegar lífverðir Maliles réðu ekki við
fréttamannaskarann sem þyrptist
um hann í þinghúsinu í Belgrad, og
lögreglan var með sérstakan við-
búnað þegar hann yfirgaf þinghúsið.
Fréttamenn hafa skýrt frá því að
albanski ráðherrann hafi ekki viljað
að haldinn yrði annar slíkur fundur
ráðherra Balkanrikjanna. Hann hafí
frekar viljað að vandamálin yrðu
fyrst leyst með viðræðum einstakra
Balkanríkja.
Sendimenn segja að nokkur ár-
angur hafi náðst í viðræðum ein-
stakra ríkja á fundinum og þátttaka
Albaníu hafi verið mjög mikilvæg
eftir áralanga einangrun landsins.
Til að mynda samþykktu utanríkis-
ráðherra Búlgaríu, Petar Mladenny,
og utanríkisráðherra Tyrklands,
Mesut Yilmaz, að hefja viðræður um
„mannúðarmál" t maí. Sendimenn
segja að þá verði fjallað um tyrk-
neska minnihlutann í Búlgaríu, sem
beittur er miklu misrétti að sögn
stjómvalda í Tyrklandi. Þá sam-
þykktu Vilmaz, utanríkisráðherra
Tyrklands, og Karolos Papoulias,
utanríkisráðherra Grikklands, að
ræða afvopnunarmál áður en
NATO-fundurinn hefst í byijun
næsta mánaðar.
Rúmenar lögðu á fundinum tillögu
um að annar fundur ráðherra Balk-
anríkja yrði haldinn í Búkarest í des-
ember. Sendimenn segja að það sé
mikið áfall fyrir forseta Rúmeníu,
Nicolae Ceausescu, að ekki skuli
hafa náðst samkomulag um þennan
fund, því hann sé mikið gefinn fyrir
tilstand og hátíðlegar athafnir.
Reuter
Námumenn berjast við lögreglumenn
Námumenn í Lorraine í Frakklandi börðust við óeirðalögreglumenn
fyrir framan aðalstöðvar námufyrirtælds í gærmorgun. Námumenn-
imir voru að mótmæla ráðstöfunimum fyrirtækisins gegn verkfalls-
mönnum.
Arsþing Mannréttindanefndar SÞ í Genf:
Valladares sýnir ör eftir
pyntingar á blaðamannafundi
Fundur utanríkisráðherra Balkanríkja:
Samkomulag náðist ekki
um annan ráðherrafund
Genf, Reuter.
ARMANDO Valladares, sendiherra Bandaríkjanna hjá Mannréttinda-
nefnd Sameinuðu þjóðanna, hélt í gær blaðamannafund til þess að
kynna tillögu stjómar sinnar um ályktun nefndarinnar um Kúbu. A
fundinum sýndi hann blaðamönnum margvísleg ör sem hann fékk
á meðan 22 ára fangavist hans á Kúbu stóð. Kúbustjórn hafði vísað
á bug frásögnum hans um skipulegar pyntingar á pólitískum föngum
þar og hélt Valladares fundinn til þess að sanna að hann færi með
rétt mál. Sýndi hann fréttamönnum ör eftir rottubit á fingrum sínum
og leyfði mönnum að finna djúp
„Ég hef þekkingu á pyntingum
og mannréttindabrotum," sagði
Valladares á fundinum. „Ég er sér-
fræðingur í að þola þau.“
Blaðamannafundinn boðaði hann
til þess að hrekja fullyrðingar
kommúnistastjómarinnar á Kúbu
um að þar í landi hefði aldrei verið
farið illa með neina fanga. Aðstoð-
arutanríkisráðherra Kúbu, Raul
Rao Kouri hélt klukkustundarlang-
an blaðamannafund á miðvikudag
þar sem hann réðist harkalega gegn
Valladares. Sagði hann meðal ann-
ars að menntaskólaferill Valladares
væri í vafasamara lagi og hamraði
ör á höfuðleðri sínu.
á því að á Kúbu hefðu fangar aldr-
ei fengið annað en bestu meðferð.
Valladares fæddist á Kúbu og
var handtekinn árið 1960, þá 23
ára gamall. Hann var ekki látinn
laus fyrr en 22 árum síðar eftir að
Kúbustjóm hafði verið beitt miklum
þiýstingi til þess að láta hann
lausann. Eftir að Valladares komst
til Vesturlanda árið 1982 gagnrýndi
hann Mannréttindanefndina harð-
lega fyrir að hafa tekið á Kúbu-
stjóm með silkihönskum og aldrei
rannsakað alvarlegar ásakanir um
mannréttindabrot í hennar garð,
þrátt fyrir að þær væru studdar
Reuter
Armando Valladeres á blaða-
mannafundinum í gær.
áreiðanlegum sönnunum og vitnis-
burði. í fyrra skipaði Ronald Reag-
an, Bandaríkjaforseti, hann sendi-
herra sinn hjá nefndinni.
Valladares sagði að tillaga
Bandaríkjanna væri ekki jafnharð-
orð og verið hefði; í stað þess að
fordæma Kúbu væri þess einungis
farið á leit við Mannréttindanefiid-
ina að hún rannsakaði ásakanir um
gróf mannréttindabrot stjómar
Kastrós og færi fram á útskýringar
Kúbustjómar.
„Ef Kúbustjóm brýtur ekki nein
mannréttindi, eins og fulltrúar
hennar halda fram, hvers vegna
óttast hún þá rannsókn?" spurði
Valladares.
Tillagan verður tekin til at-
kvæðagreiðslu í þamæstu viku, en
þá lýkur hinu sex vikna langa árs-
þingi neftidarinnar. Telja sumir að
erfítt kunni að reynast að afla til-
Iögunni fylgis, þar sem hinir átta
fulltrúar rómönsku Ameríku hiki
við að leggjast gegn stjóminni í
Havana. Aðrir benda þó á að aðeins
hafi munað einu atkvæði í fyrra að
mun harðorðari tillaga í fyrra yrði
samþykkt.
Risaveldunuir
lýstur saman
Bandaríska vamarmálaráðuney-
tið hefur nú sent frá sér myndir,
sem teknar voru, þegar banda-
ríska tundurspillinum Caron og
sovéskri freigátu af gerðinni
Mirka II laust saman á Svarta-
hafi fyrr í þessum mánuði.
Bandaríkjamenn halda fram, að
freigátunni hafi verið siglt á
tundurspillinn af ásetningi. Sov-
étmenn neita því, en segja, að
bandaríska skipið hafi farið inn
fyrir 12 mflna mörkin, sem þeir
miða lögsögu sfna við á Svarta-
hafi. Bandaríkjamenn segja hins
vegar, að tundurspillirinn hafi
verið á alþjóðlegri siglingaleið.
Hvorugur málsaðila hefur viljað
láta þennan atburð verða til þess,
að sambandið milli ríkjanna
versnaði.
Krefjast rannsóknar á ódæð-
um dauðasveita í Honduras
Amnesty International:
DAUÐASVEITIR, sem tengjast leyniþjónustu og her í Honduras,
virðast hafa verið endurvaktar og hefur það gert illt ástand í
mannréttindamálum landsins enn verra, að því er talsmenn mann-
réttindasamtakanna Amnesty International sögðu á miðvikudag.
Talsmennimir sögðu, að sam-
tökirí hefðu krafist þess, að stjóm-
völd í Honduras létu rannsaka
fregnir um, að dauðasveitimar
hefðu myrt þijá menn í sfðasta
mánuði. Eitt fómarlambanna,
sem er stjómarmaður í mannrétt-
indasamtökunum CODEH í Hond-
uras, hafði borið vitni fyrir Mann-
réttindadómstóli Ameríku í Costa
Rica f máli gegn Honduras-stjóm,
þar sem við sögu komu „manns-
hvörf". Annað fómarlambanna
hafði boðist til að bera vitni fyrir
sama rétti. Talsmenn AI sögðu
enn fremur, að eitt vitni til við-
bótar, dr. Ramon Custodio Lopez,
forseti CODEH, hefði fengið
morðhótanir.
Talmennimir sögðu, að fjöldi
stjómmálaandstæðinga Hondur-
as-stjómar hefði á undanfömum
tveimur árum mátt sæta heiftar-
legum ofsóknum af hálfu aðila,
sem tengdust heimullegri herdeild
leyniþjónustunnar, Sveit 3-16,
sem talin hefur verið bera ábyrgð
á morðum dauðasveitanna, svo
og „mannshvörfum", snemma á
þessum áratug.
Ný skýrsla
í nýrri skýrslu Amnesty Inter-
national um Honduras koma fram
ásakanir á hendur fyrmefndri
deild. Þar segir m.a., að gróf
mannréttindabrot, svo sem geð-
þóttahandtökur, pyntingar og
misþyrmingar, séu algeng í Hond-
uras og þess sjáist engin merki,
að lát verði þar á.
Talsmennimir segja, að sam-
tökunum berist stöðugt frásagnir
af fólki, sem tekið hafi verið til
fanga og haldið í einangrun fram
yfir þann tíma, sem lög leyfi, og
margir fanganna beri síðan, að
þeir hafí verið pjmtaðir.
í vitnisburði sínum segjast fyrr-
verandi fangar hafa sætt barsmíð-
um, raflostum og kynferðislegri
misneytingu.
Meðal fómarlambanna er fólk
úr flestum stéttum þjóðfélagsins,
þar á meðal verkalýðsforingjar,
námsmenn, bændur og félagar í
mannréttindahreyfingum. Mörg
brotanna hafa átt sér stað í
tengslum við verkföll, deilur um
ræktarland eða aðgerðir hersins
gegn skæraliðum.
Flest era mannréttindabrotin
rakin til lögreglunnar, en herinn
liggur einnig undir sök, m.a. fyrir
geðþóttahandtökur.
í skýrslu Amnesty Intematio-
nal era tilfærð einstök mannrétt-
indabrot Sveitar 3-16, sem sögð
er hafa stjómað dauðasveitunum
í Honduras á áranum 1981-84
með þátttöku Kontranna í Nic-
aragua, sem hafa bækistöðvar í
Honduras. Honduras-stjóm hefur
vísað þessu á bug.
í skýrslunni er að fínna vitnis-
burð fyrram félaga í Sveit 3-16.
Hann segir, að hann og aðrir fé-
lagar sveitarinnar hafi verið þjálf-
aðir með leynd í Bandaríkjunum
árið 1981. Bandarískir þjálfarar
hafí latt þá til að beita líkamlegum
pyntingum, vegna lítils árangurs
þeirra, en þjálfað sveitina í sál-
fræðilegum þvingunaraðgerðum.
Skýrsla Amnesty Intemational
var samin eftir tvær eftirlitsferðir
fulltrúa samtakanna til Honduras
á síðasta ári (í janúar og febrúar
og í september). í báðum þessum
ferðum ræddu fulltrúarnir við
háttsetta embættismenn stjómar
og hers, auk fjölda annarra heim-
ildarmanna.