Morgunblaðið - 27.02.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
31
Getur norsk-
ur hljóðtálmi
stöðvað hávaða?
HLJÓÐTALMINN okkar, sem er 1—3 sentimetrar í þvermál, get-
ur byrgt úti hávaða í loftrúmi, sem er 20x20 sentimetrar, segir
norski verkfræðingurinn Knut Banke hjá fyrirtækinu Sondec í
Ósló i viðtali við Aftenposten. Bonke hefur nú fengið einkaleyfi
á þessari uppfinningu í Noregi. Hann vill ekki kynna hana opin-
berlega fyrr en i sumar vegna vandkvæða á að fá einkaleyfi í
öðrum heimshlutum.
Hljóðtálmann má t.d. nota til
að koma í veg fyrir, að umferðar-
hávaði berist í gegnum glugga á
íbúðarhúsum. Samkvæmt því, sem
Bonke segir, nægir að setja þessi
fyrirferðarlitlu tæki á samskeytin,
þar sem gluggapóstamir skerast,
til þess að byrgja hávaðann úti.
„Einnig er mögulegt að stilla
tíðnina á tálmanum, svo að hann
hleypi þægilegum hljóðum eins og
fulgasöng í gegnum „hljóðmúr-
inn“. Þá getur maður opnað
glugga og hleypt inn fersku lofti
án þess að hávaðinn fyrir utan
sleppi inn,“ segir Bonke í viðtalinu
við blaðið.
Milljarða króna virði?
Markaðsráðgjafarfyrirtækið
Stanford Research Institute í
Bandaríkjunum metur markaðs-
möguleika hljóðtálmans á tugi
milljarða norskra króna. Bonke
gerir sér engar vonir um slíkar
upphæðir, en reiknar þó með að
fá umbun fyrir 29 ára vinnu.
Fulltrúar Sondec ræddu við 50
íbúa í kringum Fornebu-flugvöll
'við Ósló vegna bráðabirgða-mark-
aðsrannsóknar fyrirtækisins í Nor-
egi. í ljós kom, að þeir voru fúsir
til að borga allt að 10.000 norskar
krónur fyrir að fá hljóðtálma setta
upp hjá sér til þess að losna við
hávaðann frá flugumferðinni.
Hugmyndina að hljóðtálmanum
fékk Bonke, þegar hann vann að
lokaverkefni sínu við Norges Tekn-
iske Hagskole árið 1959. Hann
hefur síðan unnið á skyldu tækni-
sviði og verið verkefnisstjóri við
Kværner Brugs-sjávarfallaorkuve-
rið. Vegna starfs síns þar fékk
Bonke SINTEF-verðlaunin árið
1984 fyrir framlag sitt til vísindar-
annsókna.
Dr. Arne Reitan, prófessor við
Den Almenvitenskapelige Hog-
skole í Þrándheimi, hefur unnið
með Bonke við sjávarfallaorkuver-
ið og er einn þeirra, sem stutt
hafa uppfínningamanninn. í fyrra-
sumar var hann viðstaddur kynn-
ingu á hljóðtálmanum og stað-
festir að tækið hafí verkað eins
og til var ætlast.
„Það var stór stund, þegar mér
hlotnaðist að verða vitni að því,
að stærðfræðilegir útreikningar
mínir í sambandi við þetta verk-
efni komu heim og saman við raun-
veruleikann," segir Reitan í viðtali
við Aftenposten.
Reuter
Fjölkunnugur
kvennamaður
Síðastliðinn fimmtudag gekkst hinn 84 ára
gamli töfralæknir Awang Said að eiga áttu-
gustu (80.) eiginkonu sína, en hún heitir Mar-
iam Bahaman. Með á myndinni er eitt fjöl-
margra barnabarna Awangs, átta ára hnokki
að nafni Mazlan, en Awang mun fyrir löngu
vera búinn að missa sjónar af fjölmörgum af- _
komendum sínum. Flest hjónabönd hans hafa
endað mneð skilnaði, en sumar þeirra munu
þó hafa látist. Awang var spurður hveiju hann
þakkaði kvenhylli sína og kynsæld og sagði
hann ást og hjónabönd vera alfarið í höndum
guðs og bætti þvi við að hann væri „einnar
konu maður"..
Reagan heldur tíl
Moskvu í lok maí
Moskvu, Reuter.
RONALD Reagan Bandarikjaforseti mun halda til fundar við Míkhail
S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga í siðustu viku maímánuðar, að því er ónafn-
greindur sovéskur embættismaður skýrði frá í gær. Gagnstætt því sem
gerðist er Gorbatsjov kom til Bandaríkjanna i desember á síðasta ári
hyggst Reagan skoða sig um utan Moskvuborgar.
Heimildarmaðurinn, sem sagður
er háttsettur sovéskur embættismað-
ur, sagði á blaðamannafundi á
fimmtudag að Sovétmenn væru
„sannfærðir" um að leiðtogamir
myndu undirrita sáttmála um fækk-
un langdrægra kjamorkuvopna og
bætti hann við að algjör umskipti
hefðu orðið á samskiptum risaveld-
anna.
Embættismaðurinn sagði að Reag-
an forseti myndi dvelja í viku í Sov-
étríkjunum og væri gert ráð fyrir að
forsetinn fengi tækifæri til að kynna
sér líf almennings utan Moskvu líkt
og Richard Nixon gerði er hann sótti
Kremlveija heim árið 1972 og 1974..
Gæti forsetinn sjálfur tilgreint hvaða
staði hann vildi skoða.
Er Gorbatsjov kom til þriggja daga
fundar við Reagan í Washington
gafst honum ekki tími til að skoða
sig um í borginni og vom ferðalög
hans einskorðuð við Hvíta húsið og
sovéska sendiráðið sem er þar
skammt frá. Fyrir fundinn hafði
Reagan sagt að hann vildi gjaman
að Gorbatsjov gæfist tækifæri til að
kynnast Bandaríkjunum. Forsetan-
um varð ekki að ósk sinni en hins
vegar gat Gorbatsjov þess í kveðjuá-
varpi sínu í Hvíta húsinu að hann
vonaðist til að geta komið aftur til
Bandaríkjanna til að kynnast landi
og þjóð. Ólíklegt er þó talið að það
gerist í forsetatíð Reagans sem lætur
af embætti um næstu áramót.
BÍLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Vegna lækkunar á dollar að
undanförnu hefur verðið á
Chevrolet Monza SL/E og
Monza Classic lækkað
verulega.
Komið og kynnist ríkulega
búnum Monza bílunum með því
að fara í reynsluakstur og
kynnast frábærum
aksturseiginleikum og mýkt.
Verð frá kr. 529.000.-.