Morgunblaðið - 27.02.1988, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988
34
•«
VIÐBRÖGÐ VIÐ NÝGERÐUM KJARASAMNINGUM
Albert Guðmundsson,
formaður Borgara-
flokksins:
Veit ekki til
hvers þessi
skollaleikur
er
„ÉG HEF ekki séð samninginn
og get aðeins dæmt hann út frá
því sem ég hef séð í fjölmiðlum,“
sagði Albert Guðmundsson form-
aður Borgaraflokksins. „Ef það
er rétt að heildarhækkunin sé
rúm 13% á einu ári þá verð ég
að segja að ég veit ekki til hvers
þessi skollaleikur er, menn eru
búnir að leggja á sig 30 tíma
fund fyrir þessa niðurstöðu.“
„Þetta eru furðuleg vinnubrögð
og einkennileg niðurstaða. Það er
ljóst að í kjölfar samningsins mun
ríkisstjómin leggja á ýmis ný gjöld
og skatta og gengið verður fellt um
að minnsta kosti 6-8%. Með þeim
hækkunum sem fylgja verður tekið
meira af fólki en samningamir færa
því og í kjölfarið fylgir aukin verð-
bólga og eftir stendur að launþegar
fá minna en ekkert í sinn hlut,“
sagði Albert Guðmundsson.
Kristín Halldórsdótt-
ir, þingkona Kvenna-
lista:
Sé ekki
ástæðu til
fagnaðarláta
„HVAR eru leiðréttingarnar fyr-
ir þá lægstlaunuðu?“ sagði
Kristín Halldórsdóttir, þingmað-
ur Kvennalistans, er leitað var
álits hennar á samningunum. „Er
ekki útkoman enn og aftur sú
að menn eru niðurnjörvaðir i ein-
hvern ramma, sem þeir hafa
hvorki kjark né getu til að bijót-
ast út úr.“
„Ég sé ekki ástæðu til neinna
fagnaðarláta, ef niðurstaðan er sú,
sem höfð er eftir framkvæmda-
stjóra Vinnuveitendasambandsins í
DV í dag, þar sem hann segir:
„Kaupmáttur láglaunafólks mun
minnka minna en annarra stétta.“
Var það markmiðið sem keppt var
að?“ sagði Kristín. „Mér þykja
verkalýðsforingjamir lítilþægir fyr-
ir hönd þessa hóps. Það er meira
en lítill fúi í innviðum samfélags
okkar, að hér skuli viðgangast sex-
tánfaldur launamunur, sem er auð-
vitað ekki í neinu samræmi við verð-
gildi vinnunnar, sem verið er að
lau.na,“ sagði Kristín Halldórsdóttir.
„Það er löngu kominn tími til að
setja lög um lágmarkslaun, sem
miðast við það að atvinnurekendum
sé óheimilt að kaupa fulla vinnu
fyrir lægri upphæð en dugir til
framfærslu," sagði Kristín Hall-
dórsdóttir þingmaður Kvennalist-
ans.
Ólafur ísleifsson,
efnahagsráðunautur
ríkisstjórnarinnar:
Samningarnir
skynsam-
legir miðað
við aðstæður
„ÞAÐ ER Ijóst að það hefur ver-
'ið erfitt fyrir báða aðila að ná
Austfirðingar, Vestmanneyingar og Akurnesingar:
Sátu hjá við afgreiðslu samninga
þessum samningum en að því er
séð verður virðast þeir vera það
skynsamlegasta sem menn gátu
gert við þessar aðstæður,“ sagði
Olafur ísleifsson, efnahagsráðu-
nautur ríkisstjórnarinnar, þegar
Morgunblaðið leitaði álits hans á
nýju samningunum.
„Þessir kjarasamningar eru gerð-
ir í ljósi þess að hagur útflutnings-
greinanna hefur versnað mjög á
undanfömum vikum og mánuðum
og afli er að dragast saman. Þeir
eru gerðir á þeim tíma sem hinum
mikla uppgangi í þjóðarbúskapnum
er að ljúka.
Framhaldið veltur á ýmsu, þar á
meðal á ráðstöfunum ríkisstjómar-
innar, sem hún hyggst ganga frá
á allra næstu dögum, en þeim ráð-
stöfunum er ætlað að bregðast ann-
ars vegar við rekstrarvanda útflutn-
ingsgreinanna og hins vegar að
sporna gegn verðbólgo og við-
skiptahalla, og stuðla jafnframt að
því að þessir kjarasamningar verði
ekki sprengdir upp með launa-
skriði."
FULLTRÚAR Austfirðinga,
Vestmanneyinga og Akurnes-
inga sátu hjá við atkvæða-
greiðslu samninganefndar
Verkamannasambandsins um
kjarasamninginn við Vinnuveit-
endasambandið aðfaranótt
föstudags, og skrifuðu ekki
undir samninginn.
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja
sagði við Morgunblaðið að ástæða
þess að hann sat hjá væri aðallega
sú að Verkakvennafélagið Snót í
Vestmannaeyjum hefði ákveðið
að efna til verkfalls og það væri
erfítt fyrir sig að koma heim með
samning á borð við þennan undir
þeim kringumstæðum og hvetja
til þess að hann yrði samþykktur.
Einnig væri ljóst að þessi samn-
ingur væri viðurkenning á kjara-
skerðingu þegar efnahagsaðgerð-
ir ríkisstjómarinnar væru komnar
fram.
Bjöm Grétar Sveinsson form-
aður verkalýðsfélagsins Jökuls á
Höfn sagði að Austfirðingar hefðu
gert grein fyrir þeirra sjónarmið-
um við atkvæðagreiðsluna. Þeir
teldu sig ekki hafa umboð til að
undirrita samninginn með þeim
starfsaldurshækkunum sem þar
em. Bjöm Grétar sagði að samn-
ingurinn yrði þó að sjálfsögðu
borinn upp fyrir austan en það
væri félaganna að taka ákvörðun
um framhaldið.
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ sagði að Aust-
firðingum væri alveg ljóst að fisk-
vinnsla á Austurlandi væri síst
betur í stakk búin til að koma til
móts við tugi prósenta launa-
hækkun en fiskvinnsla annars
staðar á landinu. Þar kynnu ein-
hvetjir að standa frammi fyrir því
að knýja á um kaupmátt í störfum
sem ekki yrðu til, því auðvitað
væri hægt að drepa fýrirtæki og
byggðarlög með verkföllum ef að
það væri áhugamál manna. Hins-
vegar sagðist hann telja að Aust-
firðingar eins og aðrir væm raun-
sæir og fáir þekktu það betur
heimamenn hvemig ástandið væri
í raun og vem.
Þórarinn sagði síðan að Jón
Kjartansson hefði staðið að samn-
ingagerðinni og því kæmi það sér
spánskt fyrir sjónir að hann hefði
ekki samþykkt þá. Amar Sigur-
mundsson formaður Vinnuveit-
endafélags Vestmannaeyja sagði
á fimmtudagsnótt að sér væri
ekki kunnugt um að Snót hefði
boðað til verkfalls og það kæmi
sér raunar mjög á óvart þar sem
aðeins hefði verið haldinn einn
samningafundur, á fimmtudag.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Loðnuskipið Erling KE kemur drekkhlaðið að landi.
Loðnuveiðin jöfn og góð
Heilfrysting
að byrja
LOÐNAN heldur sig nú í ná-
grenni við Ingólfshöfða og hefur
aflinn verið nokkuð jafn og góð-
ur. Á þriðjudag veiddust samtals
8.680 tonn, 15.690 á miðvikudag
og 11.590 á fimmtudag. Heil-
frysting á loðnu er að hefjast,
en nú eru eftir um 170.000 tonn
óveidd samkvæmt kvóta.
Þau skip sem tilkynntu um afla
á þriðjudag' em, auk þeirra sem
áður hefur verið getið: Hilmir II
SU 580 og Magnús NK 520 til
Raufarhafnar, Huginn VE 580 og
Gígja VE 430 til Vestmannaeyja
og Gullberg VE 620, löndunarstað-
ur óákveðinn.
Eftirtalin skip tilkynntu um afla
á miðvikudag, samtals 15.690 tonn:
Húnaröst AR 610, til Færeyja,
Þórshamar GK 380, til Grindavík-
ur, Guðmundur VE 900, til Seyðis-
Qarðar, Svanur RE 660 og Helga
II RE 530, til NeskaupSstaðar, Kap
II 700 og Sigurður RE 1.400, til
Vestmannaeyja, Harpa RE 600,
Helga III RE 430 og Bjarni Ólafs-
son AK 1.000, löndunarstaður óá-
kveðinn, Galti ÞH 560 og Fífill GK
650 til Hornafjarðar, Eldborg HF
1.200 til Noregs, Júpíter RE 1.350
til Reykjavíkur, Börkur NK 1.160
til Siglufjarðar, Bergur VE 530 og
Dagfari ÞH 520 til Reyðarfjarðar,
Om KE 750 og Þórður Jónasson
EA 680 í Krossanes, Keflvíkingur
KE 530 til Raufarhafnar og Víkur-
berg GK 550 til Bolungarvíkur.
A fimmtudag voru eftirtalin skip
með afla, samtals 11.590 tonn: Al-
bert GK 730 til Bolungarvíkur,
Rauðsey AK 620 til Akraness, Sig-
hvatur Bjarnason VE 700 til Hjalt-
landseyja, Huginn VE 580 og Guð-
mundur VE 900 til Vestmannaeyja,
Súlan EA 800 í Krossanes,
Grindvíkingur GK 940 og Beitir
NK 1.250 til Siglufjarðar, Gígja
VE 750 til Reyðarfjarðar, Helga II
RE 530 og Helga II RE 440 til
Neskaupstaðar, Pétur Jónsson RE
1.000 til Noregs, Höfrungur AK
920 óákveðinn, ísleifur VE 730 til
Færeyja og Svanur RE 700 til
Reyðarfjarðar og Eskiíjarðar.
Síðdegis á föstudag höfðu eftir-
talin skip tilkynnt um afla: Galti
ÞH 550 til Hornafjarðar, Dagfari
ÞH til Sandgerðis, Hilmir II SU
540, Hákon ÞH 980, Sjávarborg
GK 800, Magnús NK 500 og Gull-
berg VE óákveðnir og Fífill GK 640
til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 26. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. I Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal-
verð
47,00
41,00
66,00
62,00
verð
37,00
40,00
35,00
61,00
Þorskur
Þorskur(ósL)
Ýsa(ósL)
Samtals
Selt var úr
FAXAMARKAÐUR hf í Reykjavík
Þorskur(ósL) 43,00 43,00 43,00
verð
38,06
40,55
52,87
61,62
38,33
Magn
(lestir)
93,2
14,5
6.6
5,2
134,0
2,0
Heildar-
verð (kr.)
3.548.804
586.960
350.871
318.676
5.150.618
86.000
Selt var úr Sæljóni og Bæjarfelli. I dag verður fjarskiptauppboð
klukkan 13. Nk. mánudag verður selt úr Álftafelli.
FISKMARKAÐUR NORÐURLANDS á Akureyri
Þorskur(ósL) 36,10 36,10 36,10 7,0 252.700
Selt var úr Frosta ÞH.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA
Þorskur(ósL) 47,50 38,50 44,45 43,9 1.951.355
Ýsa(ósl.j 61,00 43,00 53,42 7,2 384.624
Ufsi(ósL) 25,00 15,00 23,95 33,1 792.745
Keila(ósL) 19,00 15,50 17,38 4,5 78.210
Samtals 35,65 94,9 3.383.576
Selt var úr ýmsum bátum. I dag verður selt úr dagróðrabátum
og hefst uppboðið klukkan 14.30.
FISKMARKAÐUR VESTMANNAEVJA hf.
Þorskur(ósL) 40,50 38,50 39,30 2,5 98.300
Ufsi 26,50 26,50 26,50 4,0 10.000
Ufsi(ósL) 20,50 20,00 20,38 13,0 265.000
Samtals 71,33 21,0 521.900
Selt var úr Glófaxa, Suðurey og Drífu. í dag verður selt úr neta-
bátum og hefst uppboðiö klukkan 14.
GENGISSKRÁNIIMG
Nr. 39. 26.febrúar 1988
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengl
Dollari 37,04000 37,16000 36,89000
Sterlp. 65,62200 65,83500 65,71000
Kan. dollari 29,26800 29.36300 28,87600
Dönsk kr. 5,74310 5,76170 5,77620
Norsk kr. 5,80250 5.82130 5,80990
Sænsk kr. 6,18880 6,20890 6,15040
Fi. mark 9,06950 9,09890 9,09970
Fr. franki 6,48260 6,50360 6,56810
Belg. franki 1,04940 1,0528 1,05930
Sv. franki 26,66670 26,75310 27,20500
Holl. gyllini 19,54050 19,60380 19.71090
V-þ. mark 21,93860 22,00970 22,14150
ít. líra 0,02977 0,02987 0,03004
Austurr. sch. 3,12110 3,13120 3,14960
Port. escudo 0,26770 0,26860 0,27060
Sp. peseti 0,32530 0,32630 0,32650
Jap. yen 0,28847 0,28941 0,29020
írskt pund 58,40300 58,59200 58,83000
SDR (Sérst.) 50,41110 50,57440 50,60310
ECU, evr. m. 45,31290 45,45970 45,73440
Tollgengi fyrir janúar er sölugengi 28.jan.
Sjálfvirkur 62 32 70. símsvari gengisskráningar er