Morgunblaðið - 05.03.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
Undan skiln-
ingstrénu
Um fóðrun anda
eða — hvernig staða manna í litrófi stjórnmál-
anna hefur áhrif á þá sem undir þá eru settir
ina, en enginn nóg til að skrimta.
Með þessu móti lifír enginn af.
Þá kemur að kunnur íhaldsþing-
maður. Hann er með vænan poka
brauðs, leitar uppi feitasta anda-
stegginn, og gefur honum einum,
hættir meira að segja að deila út
brauði, þegar steggurinn getur ekki
torgað meiru.
Eg hugsa með mér: Hér er
Survival of the fíttest orðið Surviv-
al of the fattest. Með þessu móti
lifír stofninn ekki af heldur. Eftir
verður einn ofalinn, sem getur ekki
aukið kyn sitt. Þá fer hjá laumuleg-
ur framsóknarþingmaður með poka
falinn undir hendinni, líkt og hann
haldi að aðrir haldi að hann hafi
stolið brauðinu. Það hefur hann þó
áreiðanlega ekki gert. Hann gengur
út að bakkanum alllangt til hliðar
við hina tvo og gáir í kringum sig.
Þegar hann telur að enginn sjái til
sín, sest hann á bakkann, og borðar
brauðið sjálfur.
Næst kemur að þekktur krata-
eftirEgil
Egilsson
Á góðviðrisdögum má alltaf fara
erindisleysu niður að Reykjavíkur-
tjöm. Og þó. Hver fer erindisleysu?
Alltaf má læra, hafi menn augun
opin og sé sest og horft með opnum
huga á það sem ber fyrir augu.
Jafnvel í önnum Alþingis er hægt
að hitta á þinghlé, en einhveijir
þingmanna úti við, í stað þess að
stinga saman nefjum, eins og vant
er á milli funda.
Hjá mér fer kommaþingmaður
með poka. Hann gengur að tjamar-
bakkanum og útbýtir úr honum
brauði, vel og vandlega, og gætir
þess að allir fuglar Tjamarinnar fái
jafnt. Mér er nær að halda að hann
viti hvorttveggja, magn brauðs og
fugla, en allir, jafnt álft sem urtönd
fái það fyrra deilt með því seinna.
Fari það bölvað, hugsa ég. Með
þessu móti fá allir sömu hungurlús-
þingmaður. Á móti honum kemur
stór hópur anda vonsvikinn eftir
reynsluna hjá honum. En þingmað-
urinn tekur pokann, vefur honum
vandlega saman, stingur brauðinu
inn á sig og gengur leiðar sinnar.
Áreiðanlega var þó meira í pokan-
um en hann gat torgað.
Þá bar að kvennalistaþingmann.
Eða kannski ætti að segja kvenna-
listaþingkonu. Hún er þekkt að
mörgu góðu og einnig að öðru. Hún
hefur vænan pokaskjatta brauðs.
Hún nostrar lengi við fuglagreyin,
sem flykkjast að henni, og gætir
þess vandlega að kvenfuglar einir
fái brauð, en steggir ekki neitt.
Loks kemur Borgaraflokksþing-
maður með ofurlítinn pokaskjatta,
og ætlar greinilega að fara að deila
út brauði réttlátlega.
En þá kemur aðvífandi maður
sem hann þekkir auðsæilega náið.
Hann sér pokann, gáir í hann, og
að endingu gefur þingmaðurinn
honum pokann með brauði í. Endur
fá ekki neitt.
Ekki vildi ég vera endur undir
ykkar yfírstjóm, hugsa ég.
Mórall
Undir íhaldsþingmanninum far-
ast allir nema steggurinn feiti.
Hann einn hlýtur hægan leiðinlegan
dauða eftir einveru einnar and-
arævi. En með aðferð allaballans
hljóta allir sætan snöggan dauð-
daga. En einna snyrtilegust er að-
ferð kratans og framsóknarmanns-
ins. Algert svelti gerir jafnt út af
við alla í einu. Rétt eins og banda-
ríski stærðfræðingurinn Tom Lehr-
er syngur um: We shall all go to-
gether when we go. Og borgara-
flokksstefnan jafnast næstum á við
þessar tvær að mannúð.
Kvennalistastefnan gerir hvoru
kjmi fyrir sig jafn hátt undir höfði.
Allt karlkyns færi fyrst, en kven-
kynið verður síðan ellidautt eftir
langt hamingjuríkt einlífí.
Hvað er til ráða, endur?
Komið ykkur upp í Kjós, endur.
Höfundur er rithöfundur og eðlis-
fræðingur ogstarfar við Háskóla
íslands og Menntaskólann við
Hamrahlíð.
r
Otrúlegt
verð.
« af fallegum Drekatnám og *££**£££%
Drekatre
50% afsláttur
Stærri J2&
Minni j39€C- ^95’-
Gullpálmar
(Areka)
40% afsláttur ^200" 1.920,-
35%'afsláttur 1.430" 942,-
Keramik
pottahlífar
Ótrúlegamikið úrval
20-50% afsláttur
Btómum
.tóavcrdd
ir L,¥ ■
mfnglunni
Fagleg þekking, - fág'eg Þiánusta
DfOCWC
eS^^S4».SW6S9(.70.K*SU»t»689770