Morgunblaðið - 05.03.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
45
Steinbítur
Islendingar eru ekki mjög duglegir að borða steinbít, sem er þó mjög góður
fiskur. Hjá nágrannaþjóðum okkar er hann mikils metinn og þeir hafa líka
skemmtileg nöfn á honum, sem eru til að kitla bragðlauka fólks. Þjóðveijar
kalla hann Karbonadenfish, Bretar Rock Salmon og Danir Kóteletfisk. Þó
heitir hann havkat á dönsku. Ekki er ólíklegt að íslendingar færu að borða
meiri steinbít ef hann heti til dæmis Klettalax (Rock Salmon). Steinbítur er ýmist
seldur í flökum eða þá með beini eins og kótelettur. Hann er aldrei seldur heill enda
er hann mjög ljótur fiskur og ekki líklegur til að auka matarlyst okkar. Steinbít-
urinn hefur mjög sterkar tennur og ber að líkindum nafn af því, en hann bryður
og mylur kuðungakrabba, trjónukrabba, sæsnigla, ígulker og alls kyns skéldýr. Tenn-
urnar slitna við þessa hörðu fæðu, en náttúran sér við því. Hann fær bara nýjar tennur
á undan hverri hrygningu. Það eru ekki tannlæknavandamál á þeim bæ.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Steinbítur er bæði veiddur á línu
og í botnvörpu og allt í kringum
land en þó er hann mest veiddur við
Vestfirði. Hann hrygnir hér við land
um hávetur og eru eggin 3—24 þús-
und eftir stærð fisksins, gul og fal-
leg. Steinbítur verður kynþroska
6—7 ára gamall og er þá orðinn
50—60 sm langur og 1—3 kg. En
hann getur orðið miklu lengri, 120
sm eða jafnvel enn lengri. Eg held
að steinbítur sé miklu minna borðað-
ur hérlendis en áður var. Þá var
honum velt upp úr hveiti og hann
steiktur með miklum lauk, og þann-
ig er hann mjög góður en enn betra
er að láta hann liggja um stund í
sítrónusafa og kryddi og þá er hægt
að matreiða mjög gómsæta rétti úr
honum. Við ættum að nota okkur
hann meira, þar sem verðið á honum
er mjög hagstætt og mun lægra en
á öðrum gæðafíski.
Steiktur steinbítur
með lauk og karrý
5 sneiðar steinbítur með beini
safi úr '/2 sítrónu
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
IV2 dl hveiti
1 tsk. karrý
2 meðalstórir laukar
4 msk. matarolía + 2 msk. smjör
1. Skolið steinbítssneiðarnar, þerrið
með eldhúspappír. Stráið á þær salti og
pipar, hellið sítrónusafa yfir. Látið
standa í 10—15 mínútur.
2. Setjið karrý saman við hveitið.
3. Saxið laukinn.
4. Setjið helming olíu og smjörs á
pönnu, hafið miðlungshita. Steikið lauk-
inn úr feitinni. Látið hann brúnast örlí-
tið. Takið hann þá úr feitinni og setjið
á disk.
5. Setjið hinn hluta feitarinnar á
pönnuna. Sami hiti.
6. Veltið fiskbitunum upp úr hveit-
inu/karrýinu. Steikið síðan fyrst á ann-
arri hliðinni í 5—7 mínútur en síðan á
hinni í aðrar 5—7 mínútur.
7. Setjið laukinn ofan á fiskinn. Lok
sett á pönnuna og látið standa í 5 mínút-
ur.
Meðlæti: Soðnar kartöflur oggúrkur.
Næsta uppskrift er úr bók minni 220
gómsætir sjávarréttir.
Steinbítsbollur
750 g beinlaus steinbítur eða flök
1 tsk. salt
V4 tsk. pipar
V2 tsk. paprikuduft
V2 tsk. sinnepsduft, má sleppa
2 msk. kartöflumjöl
1 dl mjólk
V2 dós jógúrt án bragðefna
20 ólífur í sneiðum
4 msk. matarolía + 2 msk. smjör eða
smjörlíki til að steikja úr.
1. Skerið fiskinn úr himnunni sem
er á roðhlið hans. Skafið hann helst úr
himnunni.
2. Setjið fiskinn í hrærivélarskál, salt,
pipar, paprikuduft og sinnepsduft sett
út í. Hrært þar til fiskurinn er kominn
í mauk.
3. Setjið kartöflumjöl saman við.
4. Hrærið mjólkina og jógúrtina
smám saman út í og hrærið vel á milli.
5. Skerið ólífurnar í sneiðar og bland-
ið saman við farsið.
6. Steikið bollur úr farsinu.
Meðlæti: Brætt smjör og ristað heil-
hveitibrauð.
Steinbítur með beikoni o.fl.
6 sneiðar steinbítur með beini
1 tsk. salt
’/8 tsk. pipar
safi úr V2 sítrónu
3 langar sneiðar beikon
tannstönglar
1 grænt epli
50 g rifinn ostur
1. Hellið sítrónusafa yfir steinbítinn.
Stráið á hann salti og pipar og látið bíða
í 10—15 mínútur.
2. Skerið beikonsneiðarnar í tvennt,
langsum. Setjið eina beikonræmu í
kringum hveija steinbítssneið. Festið
með tannstöngli. Athugið að beikon-
sneiðin þarf að vera laus, þar sem beiko-
nið skreppur saman við hita.
3. Raðið steinbítssneiðunum í smurt
eldfast fat.
4. Afhýðið eplið, stingið úr því kjam-
ann, skerið síðan í sneiðar og setjið ofan
á fiskinn.
5. Rífið ostinn og stráið yfir epla-
sneiðamar.
6. Hitið bakaraofn f 190oC, blásturs-
ofn í 170°C. Setjið fatið í miðjan ofninn
og bakið í 25 mínútur.
Meðlæti: Soðnar kartöflur eða ristað
brauð.
Djúpsteiktur steinbítur með
rækjum o.fl.
750 g steinbítsflak
safí úr V2 sítrónu
1 tsk. salt
l/8 tsk. pipar
100 g rækjur
1 msk. tómatmauk (puré)
2 msk. ijómaostur án bragðefna
1 lítill laukur
1 hvítlauksgeiri
'/8 tsk. kanill
V8 tsk. engifer
1 egg
1 msk. mjólk
V2 msk. hveiti
1 dl rasp
feiti til að djúpsteikja í
tannstönglar
1. Takið himnuna af flakinu. Hún
liggur við roðhliðina.
2. Kljúfíð flakið. Skerið í 12 sm bita.
3. Hellið sítrónusafa yfir flakið, stráið
á það salti og pipar og látið bíða í 10—15
mínútur.
4. Saxið rækjur fínt eða setjið í kvörn
(mixara). Setjið í skál ásamt tómat-
majjki, ijómaosti, kanil og engifer.
5. Meijið hvítlauksgeirann, afhýðið
og saxið laukinn fínt. Sett saman við
rækjumaukið.
6. Smyijið maukinu jafnt á steinbíts-
flökin. Leggið þau saman. Festið saman
með tannstöngli.
7. Þeytið eggið með mjólk og hveiti.
Veltið fiskbitunum upp úr því, veltið
síðan upp úr raspi.
8. Hitið olíu eða aðra feiti til djúp-
steikingar. Ekki er nauðsynlegt að nota
djúpsteikingarpott. Hægt er að nota
lítinn pott og litla feiti.
9. Steikið fískbitana á hvorri hlið í
3—4 mínútur.
10. Leggið á eldhúspappír að steikingu
lokinni.
Salat með djúpsteiktum
steinbítnum
3 bananar
1 appelsína
1 grænt epli
safi úr V2 sítrónu
V4 dl matarolía
1 tsk. hunang
1. Þeytið saman mataroiíu, hunang
og sítrónusafa.
2. Afhýðið bananana og appelsínuna,
stingið kjamann úr eplinu. Skerið þetta
allt í bita. Sett í skál og sósunni hellt yfír.
3. Setjið salatið á fat. Raðið steinbíts-
bitunum ofan á.
Meðlæti: Soðin hrísgijón.
Steinbítur með möndlum,
sinnepi og sýrðum rjóma
1 steinbítsflak, u.þ.b. IV2 kg
safi úr 1 sítrónu
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
50 möndlur
1 dós sýrður ijómi
1 msk. milt sinnep
væn grein steinselja eða 2 msk. þurrkuð
1. Skolið flakið vel, himnan skorin
úr sem er á roðhliðinni.
2. Kreistið safann úr sítrónunni, hellt
yfir flakið, stráið á það salti og pipar
og látið bíða í 10—15 mínútur.
3. Setjið flakið á langt eldfast fat,
smyijið fyrst.
4. Hellið sjóðandi vatni yfir möndl-
umar, látið þær standa í vatninu í nokkr-
ar mínútur, afhýddar. Skerið síðan í
tvennt, langsum.
5. Stingið möndlunum ofan í flakið
þannig að það verði eins og broddgöltur.
6. Hrærið saman sýrðan ijóma, sin-
nep og fínt klippta steinselju. Smyijið
yfír flakið.
7. Hitið bakaraofn í 200°C. Setjið
fatið í ofninn og bakið í 20—30 mínútur.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og hrásalat.