Morgunblaðið - 05.03.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
PYLSUR aðeins 256.- kg
Lambahryggur kr. 456.- kg
Svínahamborgarlæri kr. 599.- kg
Kjúklingaraðeins kr. 419.- kg
Hangikjötslæri 1/1 537.- kg
Hangikjötsframpartur kr. 410.- kg
Ungkálfakjötfrá kr. 245.- kg
Bacon bitar kr. 421.- kg
Bacon sneiðar kr. 620.- kg
Svínakótelettur kr. 869.- kg
Nauta T-bone kr. 475.- kg
Nautasnitchel kr. 765.- kg
Nautagullasch kr. 670.-kg
Nautafillet kr. 970.-kg
Nautalundir kr. 1.290.- kg
Svínalundir kr. 1.020.- kg
Nautalærisneiðar kr. 360.- kg
Laugalæk, sími686511
Opiðtilkl. 16ídag
Garðabæ, sími656400
Opiðtilkl. 18ídag
Stofuaskur — Radermachera
Undirritaður vill byrja á því,
að biðja lesendur alúðlegra vel-
virðingar á því að honum varð
heldur betur á í messunni hér í
pistlinum sl. laugardag. Hann
notaði þá nafnið geislablaðka á
ættkvíslina Schefflera. Ólafur B.
Guðmundsson hefur nú bent á,
að nafnið geislablaðka hafi þeg-
ar fyrir nokkru verið gefið fjöl-
æru jurtinni Lewisia columb-
iana, sem þegar er að verða al-
geng feguriðardís hér í görðum.
Schefflera mætti því nefna geisla-
við. Hins vegar standa tegunda-
heitin óbreytt, þ.e. geislatré,
geislabrúskur.
í síðasta þætti var vakin at-
hygli á nýlegum tegundum inni-
gróðurs, sem vegna lauffegurðar
og vaxtarlags hafa eignast vissan
hóp aðdáenda. í daglegu tali
nefna flestir þánnig gróður ýmist
grænar plöntur eða blaðplönt-
ur, til aðgreiningar frá þeim hópi
sem fengist er við að rækta vegna
blómfegurðar og vilja til að
blómgast. Nafngiftin er auðvitað
hálfgert ónefni, sem við garð-
yrkjumenn eigum ekki síður sök
á að hafa haldið á loft en almenn-
ingur. En hnitmiðað heiti verður
kannski erfitt að fínna. Ein allra
nýlegasta tegundin í hópi blað-
gróðurs til upplífgunar í hýbýlum
er stofuaskur. Mjög stutt er síðan
hann skaut upp kolli og þess
vegna er vart farið að geta hans
enn sem komið er í blómabókum.
Stofuaskur er stundum nefndur
Sterospermum, en heitir í reynd
Radermachera sinica. íslenska
heitið er bein þýðing á danska
nafninu stueask. En það heiti er
að því leyti villandi, að plantan
er ekkert skyld askinum eða eski-
trénu, sem á stöku stað prýðir
hér í görðum. Askurinn tilheyrir
smjörviðarætt, en það gera einnig
hinar blómfögru sírenur ásamt
hinum ævagamla smjörvið —
ólífutré. Stofuaskur á aftur
heima í Kalabasætt-Bignoniace-
ae, sem stundum er einnig nefnd
palísanderætt þvf til hennar telst
palísandertréð, sem gefur af sér
hinn blæbrigðaríka rósavið. Ann-
ar ættingi er hinn blómfagri fjöl-
æringur kínaglóð sem sumir
leggja sig fram við að rækta utan
dyra. Heimahagar stofuasksins
eru í Kantonhéraði í Kína, en
hann er sígræn tijátegund sem
nær þar nokkuð álitlegri hæð, en
heyrir samt til hóps lágvaxnari
trjáa. Blöð hans eru krossgagn-
stæð og standa allþétt. Yfir þeim
er samt mikill léttleiki, því þau
eru löng, niðursveigð og tvífjöðruð
með flölda yddra smáblaða sem
eru glansandi fagurgræn til dökk-
græn á litinn líði trénu vel. En í
þannig ástandi er ekki þörf fyrir
neinn blaðgljáa til að punta upp
á laufíð. Þegar stofuaskur hefiir
náð ákveðnu aldursskeiði þá kem-
ur hann með allstóra blómskipun
með stórum daufgulum blómum.
Mun þó hæpið að gera ráð fyrir
að hann geti náð að blómgast
inni í hýbýlum. Samt er aldrei að
vita hvað gæti gerst ef vel tekst
til með ræktun.
Meðferð. Stofuaski líður best
við 18—19° næturhita og 22—23°
Stofuaskur
daghita. Honum þarf helst að
ætla allbjartan stað, en samt verð-
ur að hlífa honum fyrir sterkri
sól. Þetta þýðir að hann má ekki
standa í of mikilli nálægð suður-
glugga þegar sól tekur verulega
að hækka á lofti og sólbjart er.
Vökva þarf með umhyggju.
Stofuaskur þarf að jafnaði mikið
vatn yfír vaxtartímann, en það
verður þó ætíð að hafa hliðsjón
af því hvar plantan stendur (hiti,
birta), í hvemig jarðvegi hún er,
ásamt stærð á fláti. Forðast skal,
ef ríflega er vökvað, að vatn
standi lengi á undirskálinni, því
þá skemmast rætur fljótlega
vegna súrefnisskorts og blöð
gulna. Moldin má hins vegar aldr-
ei verða skraufþurr því þá fellir
stofuaskur blöðin. Hvað þetta
snertir, þarf að hafa sérstaka gát
á svarðmosamoldinni sem er nú
mikið í notkun. Hún þarf ætíð að
haldast nokkuð rök en samt aldr-
ei forblaut. Vandasömust er vökv-
un að vetri, því þá þarf að hægja
mjög á henni á meðan vöxtur er
í kyrrstöðu. Hendir þá stundum
að kökkurinn verði full þurr og
að blöð byiji að hiynja. Mikil og
tíð vökvun stofuasks á vaxtartím-
anum kallar á allmikla og reglu-
bundna næringu. Hana má gefa
í hvert skipti og vökvað er, en þá
gæta þess að hafa upplausnina
daufa eða þá nokkuð sterkari
lausn á 7—8 daga fresti. Notið
ávallt volgt vatn við vökvun og
gætið þess að mold sé þokkalega
rök þegar næring er aðeins gefín
vikulega. Hægja ber á áburðar-
gjöf þegar kemur fram undir
haust, en ekkert sakar þó að gefa
ögn á 4—5 vikna fresti yfír vetr-
artímann þótt vöxtur sé í hfld.
Slfld viðheldur svolitlu jafnvægi í
moldinni. Úðun blaða með vatni
við og við, er ætíð vel metin af
stofuaski þótt hann geti sætt sig
furðu vel við þurrt umhverfí.
Varðandi umpottun þá ætti al-
mennt að nægja að framkvæma
hana á 2—3 ára fresti, en tími
þess starfs fer einmitt f hönd nú.
Stofuask er oftast hægt að fá í
ýmsum stærðum og ýmist eina
plöntu í potti eða fleiri saman í
þyrpingu. Þannig pottaplöntu-
þyrpingar ýmissa tegunda lauf-
prúðra plantna eru nú mikið í
tísku. Algengt er einnig við upp-
eldi á stofuaski í gróðrarstöðvum,
að vökva hann eða úða með vaxt-
artregðuefni, til þess að halda
vexti hans í skeíjum. Laufkrónan
verður þá töluvert þéttari en ella,
vegna þess að stöngulliðir stytt-
ast. Vaxtartregðuefnið gagnar þó
ekki óendanlega. Smám saman
dvína áhrif þess og vöxtur fer þá
að spretta úr spori. Er þá ekkert
því til fyrirstöðu að afkvista
sprota, fari svo að plantan verði
of há. Hún myndar þá hliðargrein-
ar sem geta tekið við um stund.
Þannig má stífa stofuaskinn koll
af kolli eins og svo margar aðrar
plöntur. Eins má reyna að koma
afklippum til og þannig endumýja
plöntuna. Best henta toppgræð-
lingar. Garðyrkjumenn nota samt
yfírleitt ekki þessa aðferð til fjölg-
unar, heldur kjósa þeir að sá fræi.
Óli Valur Hansson
Heilsugetraun Tóró
DREGIÐ hefur verið í heilsuget-
raun Tóró hf. Fyrstu verðlaun,
10.000 krónur, hlaut Ögmundur
Jónsson, Reykjavík.
Onnur til þriðju verðlaun, 10 teg-
undir vítamína og hollefna, komu í
hlut Sigríðar Jónsdóttur, Reykjavík
og Þórðar Sigurðssonar, Hafnar-
fírði.
Mjög góð þátttaka var í heilsu-
getrauninni sem haldin var í tengsl-
um við heilsumánuð Kringlunnar í
janúar. Getraunin var byggð upp á
10 krossaspurningum um vítamín
og hollefni.
Tóró hf. er íslenskt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í framleiðslu lyfja og
vítamína.
(Fréttatilkynning)
Ögmundur Jónsson sem hlaut
fyrstu verðlaun í Heilsugetraun
Tóró hf.