Morgunblaðið - 05.03.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR B. MARZ 1988
Leiðtogafundur NATO-ríkja:
Lokayfii’lýsiiigimni
misjafnlega tekið
London, Reuter.
VIÐBRÖGÐ fjölmiðla i Evrópu við nýafstöðnum leiðtogafundi Atl-
antshafsbandalagsríkja voru misjöfn eins og vænta mátti. Breska
blaðið The Times lofaði niðurstöðu fundarins en spænsk dagblöð
eyddu vart orðum á hann.
Leiðtogamir 16 sýndu merki
mikillar einingar I lokayfirlýsingu
fundarins. Þeir lögðu línumar fyrir
frekari afvopnunarviðræður við
Varsjárbandalagið en lögðu áherslu
á að kjamorkuvopn væru nú sem
fyrr homsteinn vama Vestur-Evr-
ópu. „Tæpum fjörtíu árum eftir
stofnun bandalagsins í heimi sem
tekið hefur miklum breytingum var
ekki hægt að vænta meira af leið-
togum aðildarríkjanna," segir í The
Times. Ennfremur segir blaðið að
sú staðreynd að Francois Mitterand
Frakklandsforseti tók þátt í fundin-
um, 22 árum eftir að de Gaulle sleit
hemaðarsamstarfí við NATO, sé
8
einn af merkari áföngum þessa ára-
tugar.
E1 Pais var eina dagblað Spánar
sem lagði dóm á fundinn. Þar sagði
meðal annars að ekkert áþreifan-
legt samkomulag hefði náðst á
fundinum og hann hefði verið lítið
meira en „uppstilling fyrir §öl-
skyldumynd."
Dagblaðið Diario de Noticias í
Lissabon hafði þetta um fundinn
að segja: „Toppfundurinn gegndi
sínu mikilvægasta hlutverki - að
styrkja böndin milli Bandaríkjanna
og Evrópu - til þess að koma í veg
fyrir ágreining sem Sovétmenn
gætu notfært sér í afvopnunarvið-
ræðum risaveldanna.
Pravda, málgagn Sovétstjómar-
innar, sakaði leiðtogana um að vera
úr takt við tímann. I lokayfirlýsing-
unni væri talað um yfirburði Var-
sjárbandalagsins á sviði hefðbund-
inna vopna en margir færir sérfræð-
ingar hefðu fyrir löngu dregið þessa
yfírburði í efa. „Ekki eru heldur
sannfærandi tilburðimir í lokayfir-
lýsingunni til að tengja áþreifanleg-
an vanda í sambandi við hefð-
bundin vopn muninum á hugsjónum
og þjóðfélagskerfum.
Fréttastofan PAP í Póllandi sak-
aði leiðtoga NATO-ríkja um að „líta
á sjálfa sig sem dómara í mannrétt-
indamálum sósíalískra ríkja".
Hverjir kjósa á
..þriöjudaginn mikla"
Hér má sjá ríkin 20, sem halda forkosningar eöa flokksþing hinn 8.mars. Aldrei
fyrr hafa jafnmargar kosningar vegna forsetaframboðsútnefningar veriö haldnar
á sama degi.
KOSNINGARNAR
• Helmingur ríkjanna, sem kosió veröur I á þriöjudag-
inn, leyfa kjósendum að kjósa I hvorum kosningunum
sem er. burtséó frá því hvar þeir eru flokksbundnir.
• Flest flokksþing og forkosningar demókrata deila
kjörfulltrúum hlutfallslega milli trambjóðenda. I sjö
forkosningum repúblikana verður sá hátturinn á, aö
sigurvegarinn híytur alla fulltrúana -- þar á meðal í
hinum fjölmennu ríkjum Flórídu og Texas.
• Suðurrlkin eru droifbýlasta svæði Bandaríkjanna
(37% Suöurrikjabúa býr í dreifbýli).
• I Suðurríkjunum eru lægstu meóattekjur I
Bandaríkjunum, og eru sex riki þar fyrir neðan
meðaltal Bandaríkjanna allra. Fátækt er miklum
mun algengari f Suöurríkjunun en annars staðar.
• Louisiana, Mississippi, Kentucky, Texas og
Arkansas eru meöal þeirra 10 ríkja innan Banda-
rikjanna þar sem atvmnuleysi var mest áriö 1987.
KRGN / AM / MorgunbU&ó
„Þriðjudagurinn mikli“ nálgast óðum:
Bush og Jackson efst-
ir í skoðanakönnunum
Svíþjóð:
Unglingum
gefnir
smokkar
Stokkhólmi, Reuter.
UNGU fólki í Stokkhólmi
verða á næatu aex vikum
gefnir smokkar eftir þvi sem
þeir telja sig þurfa. Er þetta
liður í herferð gegn alnæmi
sem nú er að hefjast i
Svíþjóð.
Að sögn yfirvalda í Stokk-
hólmi mun smokkadreifingin
næstu vikumar gefa hugmynd
um þörfina fyrir slíkt framlag
og verða yfirvöld ef til vill í
framhaldi af herferðinni beðin
um að hafa smokka ókeypis í
sjálfsölum í landinu. Smokkun-
um verður dreift næsu vikur
til ungs fólks á aldrinum 15 til
25 ára.
Washington, Reuter.
SAMKVÆMT tveimur nýjum
skoðanakönnunum um fylgi
frambjóðenda til forsetafram-
boðsútnefningar i Bandaríkjun-
um er staða repúblikanans Ge-
orges Bushs mun betri en
keppinautar hans, Roberts Do-
les. í herbúðum demókrata
stendur baráttan á milli ne-
grans Jesse Jacksons og ríkis-
stjórans Michael Dukakis. A
þriðjudag fara fram forkosn-
ingar í 20 ríkjum Banda-
ríkjanna — flestar í Suðurríkj-
unum — og hefur dagurinn af
þeim sökum verið nefndur „Su-
per Tuesday" eða „þriðjudag-
nrinn mikli“.
George Bush varaforseti er tal-
inn sigurstranglegur í Suðurríkj-
unum, enda er hann sjálfur frá
Texas. Á fimmtudag fékk Dole
þó óvæntan stuðning Jeane Kirk-
patrick, fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðun-
um, en hún er mikið eftirlæti
íhaldsmanna í Repúblikanaflokkn-
þingið. Það er ekki talið spilla fyr-
ir Bush að í helmingi ríkjanna, sem
1' iillírúiirnir, scm
t‘1'11 í liúl i
um.
Eigi að síður er Bush talinn
munu sigra í 17 ríkjum af 20 og
þarmeð fengi hann 803 fulltrúa á
fyrirhuguðu flokksþingi repúblik-
ana, en alls sitja 2.277 fulltrúar
Dem. Rep.
Texas 183 111
Flórlda 136 82
Massachusetts 98 52
Noröur-Karóllna 82 54
Georgia 77 48
Virginla 75 50
Missouri 77 47
Maryland 67 41
Tennessee 70 45
Washington 65 41
Louisiana 63 41
Alabama 56 38
Kentucky Óklahóma 55 46 38 36
Mississippl 40 31
Arkansas 38 27
Rhode Island 22 21
Hawaii 20 •
Idaho 18 *
Nevada 16 •
Alls 1,304 803
Til útnofningar á flokksþlngi parf: 2,082 1,139
ATH: Repúblikanar halda ekki öll flokksþina sln og forkosningar á
þessum dögum.
KRGN / MorgunblaAiA / AM
Nicaragua:
Reagan vill að þingið
samþykki aðra tillögu
kosið verður í á þriðjudag mega
menn kjósa í hvorum forkosning-
unum sem er, burtséð frá því hvar
þeir eru flokksbundnir. Úrslit for-
kosninga í Suður-Karólínu, sem
fóru fram í gær, geta þó ráðið
nokkru þar um. Sigri síra Pat
Robertson þar mun það að líkind-
um veikja Bush, en fari eins og
skoðanakannanir benda til — að
Bush sigri — mun það styrkja
stöðu hans verulega.
Samkvæmt skoðanakönnun,
sem sjónvarpsstöðin CBS og dag-
blaðið New York Times gerðu í
sameiningu, munu 47% repúblik-
ana kjósa Bush, 18% Dole og 14%
síra Robertson. Samkvæmt skoð-
anakönnun sjónvarpsstöðvarinnar
CNN og dagblaðsins USA Today
fær Bush 48% atkvæða, en Dole
27%.
Meiri óvissa ríkir um úrslit for-
kosninga demókrata, en sam-
kvæmt könnun CBS qg New York
Times fær Jesse Jackson 20%, en
þeir Dukakis og Albert Gore 14%
hvor. Samkvæmt könnun CNN og
USA Today er staða Dukakis mun
betri og hefur hann forystu með
22%, Jackson 14%, Richard Gep-
hart 13% og Gore 5%.
Eins og sjá má er allnokkur
munur á skoðanakönnununum og
um þessa helgi mun vafalítið sker-
ast í odda með frambjóðendunum,
því nú eru síðustu forvöð hjá flest-
um þeirra, til þess að láta að sér
kveða. Minnugir úrslitana í New
Hampshire, þar sem Bush vann
mikinn sigur þrátt fyrir óhagstæð-
ar skoðanakannanir, má ljóst vera
. að engu er hægt að slá föstu fyrr
en endanleg úrsli eru kunn.
* I
t
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkjafor-
seti hvatti Bandaríkjaþing til að
samþykkja málamiðlunartillögu
um aðstoð við kontra-skæruliða,
eftir að fulltrúadeildin hafði
hafnað tillögu demókrata á
fimmtudag. Sandinistastjórnin í
Nicaragua fagnaði hins vegar
úrslitum atkvæðagreiðslunnar og
lýsti yfir að þau muni stuðla að
friði í Nicaragua. Leiðtogar
kontra-skæruliða samþykktu til-
lögu Daniels Ortega, forseta Nic-
aragua, um að leiðtogar sandin-
ista og kontra-liða hæfu milliliða-
lausar viðræður, en settu þó nokk-
ur skilyrði.
Tillaga demókrata var felld í ann-
ari umferð atkvæðagreiðslunnar og
í henni er aðeins gert ráð fyrir að
Bandaríkjamenn sjái kontra-skæru-
liðum fyrir hjálpargögnum. Leið-
togar demókrata höfðu lofað að
reyna að ná samkomulagi um aðstoð
sem ekki næði til hergagna eftir að
fulltrúadeildin hafði hafnað tillögu
Reagans, þar sem gert var ráð fyrir
einhverri hemaðaraðstoð. Reagan-
sagðist á fímmtudag, á leiðinni til
Washington af leiðtogafundinum í
Briissel, vera ánægður með að full-
trúadeildin skyldi hafa fellt tillögu
demókrata. Seinna gaf hann yfirlýs-
ingu þar sem Bandaríkjaþing er
hvatt til að samþykja aðra tillögu
sem gerði kontra-liðum kleift að
halda frelsisbaráttunni gangandi.
„Ef það verður ekki gert eru engar
horfur á að friður og lýðræði komist
á í Nicaragua," segir meðal annars
í yfirlýsingunni.
Alejandro Bendana, utanríkisráð-
herra Nicaragua, sagði á fímmtudag
að nú gæfíst „tækifæri til að binda
enda á hverskonar aðstoð við mála-
liðanna," eftir að fulltrúadeild
Bandaríkjaþings hafði hafnað tillög-
unni um aðstoð við kontra-liða. Hann
sagði einnig að nú sé kominn tími
til að Reagan Bandaríkjaforseti ræði
við Daniel Ortega, forseta Nic-
aragua, til að semja um öryggismál
og koma samskiptum ríkjanna í eðli-
legt horf. Þá hvatti hann Banda-
ríkjastjóm til að styðja milliliða-
lausar viðræður sandínista og
kontra-liða, sem ættu sér stað 9. til
11. mars.
Leiðtogar kontra-skæruliða til-
kynntu á fimmtudag að þeir sam-
þykktu tillögu Ortega um viðræður
leiðtoga sandínista og kontra-liða
að því tilskildu að Miguel Obando y
Bravo, sem Ortega setti af sem
sáttasemjara á miðvikudag, fengi
að vera viðstaddur. Þeir kreflast
einnig að ákveðið verði fyrirfram um
hvað verði rætt og að í viðræðunum
verði reynt að koma á almennri sak-
amppgjöf, lýðræði og vopnahléi.
Ortega hefur hins vegar krafíst þess
að viðræðumar verði þrengri og
snúist einungis um skilyrði fyrir
vopnahléi.
Bangladesh:
Forsetinn
styrkist í sessi
Dhaka, Reuter.
HOSSAIN Mohammad Ershad
forseti Bangladesh styrkti enn
stöðu sína í gær er flokkur hans,
Jatiya, vann yfirburðasignr f
kosningum sem annars einkennd-
ust af ofbeldi og óróleika.
Að sögn talsmanna kosninga-
stjómarinnar hlaut Jatiya-flokkurinn
176 þingsæti af 218 sem vitað var
hvemig hefðu skipst af þeim 300
þingsætum sem kosið var um á
fimmtudag. Að sögn vestrænna
sendimanna í Bangladesh er Htið að
marka úrslit kosninganna enda hafi
þátttaka stjómarandstæðinga verið
lítil en þeir höfðu í frammi ólæti og
réðust að þeim sem hugðust neyta
atkvæðisréttár síns. Loka þurfti 170
kjörstöðum vegna óeirða.