Morgunblaðið - 05.03.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
29
Eldflaugaárásir íraka og írana:
Iranir sprengdu
íraskan skotpall
Baghdad, Nicosia, Reuter.
ÍRANIR segjast hafa eyðilagt
íraskan eldflaugaskotpall í gær,
en áður höfðu íranir skotið
tveimur eldflaugnm á Baghdad.
Vilja björgun-
arlaun vegna
sovésks kafbáts
BÆJARYFIRVÖLD í Karlshamn
í Svíþjóð krefjast björgunarlauna
vegna sovéska kafbátsins, sem
strandaði i skeijagarðinum fyrir
utan bæinn Karlskrona 1981.
Dráttarbátur frá Karlshamn dró
kafbátinn á flot.
Hæstiréttur Svíþjóðar hefur úr-
skurðað að bæjarfélagið eigi rétt á
björgunarlaunum en það greinir á
um upphæð þeirra við sænsk stjóm-
völd.
Samkvæmt sænskum lögum skulu
björgunarlaun fara eftir verðmæti
þess skips, sem bjargað er. Enginn
hefur getað svarað hvað sovézki
kafbáturinn kostar með vissu, en
kafbátaframleiðandi í V-Þýskalandi
telur verðmæti hans um 10 milljónir
þýskra marka (um 230 millj. ísl. kr.).
Upphaflega fóru bæjaryfirvöld í
Karlshamn fram á 1,5 milljónir sæn-
skra króna (um 9,5 millj. ísl. kr.) í
björgunarlaun, en sænska stjómin
vill halda sig við nokkur hundmð
þúsund s. krónur. Málið verður því
enn á ný að fara til úrskurðar fyrir
dómstólunum.
írakar skutu þremur eldflaugum
á Teheran á átta klukkustundum,
og olli sú fyrsta mikilli spreng-
ingu i einu af íbúðahverfum
borgarinnar, að sögn írönsku
fréttastofunnar IRNA.
Útvarpsstöð í Teheran skýrði frá
því að íranir hefðu skotið eldflaugt-
il að eyðileggja eldflaugaskotpall í
írak. Þá hefði tveimur eldflaugum
verið skotið á tvær herstöðvar í
Baghdad, en önnur þeirra er sögð
hafa lent í einu íbúahverfa borgar-
innar.
írakar hófu árásimar í gær eftir
sólarhringshlé. íranska útvarps-
stöðin greindi frá þvi að 17 manns
hefðu fallið í fyrstu árás íraka og
fleiri hefðu særst í annari árásinni.
Þá hefðu hús, verslanir og bifreiðar
eyðilagst.
Talsmaður íraska hersins sagði
að fyrri árás íraka hefði verið gerð
til að „hefna árása írana og vemda
írösku þjóðina." Hann sagði enn-
fremur að tilgangur árása íraka
væri að þröngva Irani til að sam-
þykkja tilmæli Öiyggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna um að þjóðimar
leggi niður vopn eftir sjö og hálfs
árs styijöld.
Sovétmenn segjast hvorki hafa
útvegað írönum né írökum eld-
flaugar sem beitt sé gegn óbreytt-
um borgurum. íbúar Teheran söfn-
uðust þó saman við sovéska sendi-
ráðið í borginni í gær til að mót-
mæla sölu sovéskra eldflauga til
íraks. s
Reuter
Lögregla og björgunarmenn leita í braki flugvélarinnar að „svarta kassanum", hlutar úr skrokk henn-
ar festust í háspennulinunum.
Frakkland:
Flugvél hrapar í að-
flugi á Orly-flugvelli
Machault, Reuter.
TUTTUGU og tveir menn fór- hrapaði og flaug á háspenn- flugvallar í París. Vélin sem
ust er frönsk farþegaflugvél ulinur í aðflugi inn til Orly- var í innanlandsflugi var að
koma frá Nancy í Austur-
Frakklandi.
Sovétríkin:
TASS segir 31
ið í óeirðunum
Moskvu, Reuter.
hafa fall-
í Súmgajt
TASS, hin opinbera fréttastofa
Sovétríkjanna, skýrði frá því í
gær að alls hefði 31 maður fallið
í óeirðunum í borginni Súmgajt
í Azerbajdzhan um siðustu helgi.
Þessar tölur eru hinar fyrstu,
sem Sovétmenn láta uppi um
þjóðemisróstumar við rætur
Kákasus. Þær má rekja til deilna
um hémð, sem tilheyra Az-
erbajdzhan, en Armenar vilja að
verði sameinuð Armeniu á ný.
Þau vom hluti Armeniu áður en
kommúnistastjórnin í Moskvu
braut sjálfstæð lýðveldi í Arm-
eníu og Georgíu á bak aftur á
þriðja áratugnum.
„Eins og frá hefur verið skýrt
kom ótíndur skríll af stað óeirðum
í Súmgajt hinn 28. febrúar," sagði
í frétt TASS. „Glæpalýður framdi
ofbeldisverk og stundaði rán og
gripdeildir. Hann drap og 31 mann,
þar á meðal fólk af ólíku þjóðerni,
gamalmenni og konur.“
TASS sagði að gripið hefði verið
til „viðeigandi ráðstafana" í
Súmgajt, sem er iðnaðarborg
skammt norður af Bakú, höfuðborg
Azerbajdzhan.
„Hinir seku voru handteknir og
er hafln málsókn gegn þeim í fullu
samræmi við sovésk lög.“
Að sögn fréttastofunnar hófust
óeirðimar þegar „hikandi og þó-
þroskað fólk, sem lét blekkjast af
fölskum sögusögnum um þróun
mála í Nagomo-Karabakh og Arm-
eníu, dróst óafvitandi inn í ólögleg-
ar aðgerðir."
Nagomo-Karabakh er sjálf-
stjómarhérað í Azerbajdzhan, þar
sem þorri manna er armenskur.
Héraðið hefur verið undir stórn
Azerbajdzhana frá árinu 1923, en
undanfamar tvær vikur hafa verið
þjóðemisróstur við rætur Kákasus,
sem snúast aðallega um framtíð
héraðsins.
í síðasta mánuði var endursam-
eining við Armeníu samþykkt á
héraðsþingi Nagomo-Karabakh.
Um 700 þúsund manns flykktust
þá út á götur Jerevan, höfuðborgar
Armeníu, til stuðnings hugmynd-
inni. í Nagomo-Karabakh stöðvuðu
Armenar allar lestarsamgöngu og
hægagangs gætti í flestum fram-
leiðslugreinum.
Vélin var af gerðinni Fokker-27
og um borð vom 19 farþegar auk
þriggja manna áhafnar. Allir sem
um borð vom em taldir af. Gígur
myndaðist þar sem vélin kom nið-
ur en brak úr henni dreifðist yfir
stórt svæði og hlutar úr skrokk
hennar festust i háspennulínunni.
Vélin hvarf af ratsjám flugum-
ferðarstjómar skömmu áður en
hún skall til jarðar, flugmaður
hafði ekki tilkynnt að hann ætti í
erfíðleikum. Ekki er ljóst hvað olli
slysinu, en veður var slæmt þegar
það varð, skafrenningur og úr-
koma og afar slæmt skyggni.
„Svarti kassinn" úr vélinni hefur
ekki fundist en þar til hann finnst
er ekki hægt að segja til um hvað
olli því að vélin lækkaði flugið svo
mikið að hún lenti í háspennulín-
unum.
■ ■■
\?/
ERLENT
Öðruvísi UTSALA í gömlu Mjólkurstöðinni v/Laugaveg
laugardag, sunnudag og mánudag kl. 10.00 til 17.00.
Komið og gerið tilboð í notaða hluti s.s.:
Skrifstofuhúsgögn, skrifborð, stóla, afgreiðsluborð, hillur, lagerhillur, skólaborð, skólastóla, reiknivélar,
peningakassa, skjalaskápa og margt fleira.
Á stórlækkuðu verði:
Bækur, leikföng, föndurvörur, spil, landakort, barnahús-
gögn, stílabækur, karton (bleikt), litir, ýmis kennslutæki og
margt fleira.
NÁMSGAGNASTOFNUN