Morgunblaðið - 05.03.1988, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
61
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / UNGLINGAMEISTARAMÓTIÐ í JÚDÓ
Sigurður Örn og Magnús:
Gerum okkar besta í kumite
„ÞÓRSHAMAR erfélag á upp-
leið og við erum ungir menn á
uppleið," sögðu Sigurður Örn
Sigurðsson 16 ára og Magnús
F. Guðlaugsson 14 ára þegar
þeir voru teknir tali á unglinga-
meistaramótinu íkarate. Þegar
viðtalið fór f ram voru félagarn-
ir búnir að keppa í kata og lenti
Magnús þar í 2. sæti. „Við ger-
um okkar besta í kumite meira
getur maður ekki og svo er það
bara spurning hvað það skilar
manni,“ sögðu strákarnir mjög
raunsæir á svip.
agnús hefur æft karate í
þijú ár og byijaði iðkunin á
því að frændi hans plataði hann á
æfingu. Sennilega sér Magnús ekki
eftir því að hafa látið glepjast af
brögðum frænda síns. Sigurður er
aftur á móti tiltölulega nýbyrjaður
að æfa karate. „Eg hef æft
kimewaza, kyokosunhæ og svo
shotokan," sagði Sigurður og blaða-
maður sá eftir að hafa ekki tekið
með sér japansk-íslenska orðabók.
Slgurður Öm og Magnús Flnnur.
„Kimewaza er meiri sjálfsvöm en
karate og er líkari judo. Hinsvegar
er kimewaza ekki keppnisíþrótt og
þess vegna hætti ég að æfa hana
og snéri mér að karate. Mig var
farið að langa rosalega að keppa.
Þessar íþróttir sem ég hef æft á
undan karate nýtast mérr allar vel
í þeirri íþrótt," hélt Sigurður áfram.
Strákamir vom næst spurðir að því
hvort þeir hefðu einhvem tímann
þurft að grípa til karatekunnát-
tunnar í hinum harða heimi. „Ég
Morgunblaði/Vilmar
hef einu sinni þurft að nota karate
í skólanum. Ég var að rífast við
strák og endaði rifrildið með slags-
málum. Hann var að vinna mig og
þá kýldi ég hann og þá var hann
fljótur að gefast upp. Annars er
yfírleitt hægt að komast hjá slags-
málum og það reyni ég alltaf. Við
megum ekki misnota karatekunn-
áttuna því þá fáum við áminningu
eða erum jafnvel reknir hinsvegar
getur það komið sér mjög vel að
kunna karate," svaraði Magnús.
MorgunblaðiöA/ilmar
Þessar stelpur eru sko alsengar gungur. Þær heita Valgerður, Odd-
björg, María og Guðbjörg og hafa æft karate I 4 mánuði.
Mættu vera fleiri
stelpur í karate
- segja vaskar stelpur úr UBK og Gerplu
„ÞAÐ MÆTTU vera fleirl ið að árangrinum á mótinu og var
stelpur fkarate. Margar árangurinn í flestum tilfelium vel
stelpur þora ekki aö æfa kar- viðunandi. Allar voru stelpumar
ate því þær halda aft þetta að keppa á sinu fyrsta móti og
sé svo mikil slagsmál og sum- því ekki hægt að búast við mörg-
ar eru hræddar um að karate um kílóum af verðlaunaiæningum.
hafi vond áhrif á línurnar," María datt út úr keppni í kata en
sögðu Valgerður Helgadóttir Valgerður gekk betur en hún
UBK, Oddbjörg Jónsdóttir hafði búist við fyrir mótið. Guð-
UBK, María Guðmundsdóttir björgu gekk vel að eigin sögn en
Gerplu og Guðbjörg Ketils- hún komst klakklaust í gegnum
dóttir Gerplu þegar spjallað kataæfingamar. Stöllumar voru
var við þær ó unglingameist- sammála um að þetta mót væri
aramótinu. þeim dýrmæt reynsla og maður
Stelpumar em úr sitthvom lærir jú yfirleitt af reynslunni.
Kópavogsfélaginu en þær Valgeiður, Oddbjörg, María og
sögðu að það væri ekki rígur milli Guðbjörg vora að lokum spurðar
félaganna allavega ekki hjá stelp- hvað þyrfti til að verða góður
unum- Þrátt fyrir karatemaður. „Maður þarf að
Vilmar það vom þær ekki vera ákveðinn og jákvæður,“ svör-
Pétursson sammála um hvort uðu þær. „Svo má maður ekki
skrifar félagið væri betra. vera mikil gunga,“ bættuþærvið.
Fljótlega barst tal-
Hátt í hundrað keppendur frá sjö félögum
UNGLINGAMEISTARAMÓT í
hinum ýmsu inniíþróttagrein-
um reka nú hvert annað enda
keppnistímabilið í hápunkti hjá
þeim sem stunda þessar grein-
ar. Föstudaginn 6. febrúarfór
eitt slíkt fram og var það í hinni
öguðu íþrótt karate. Mótið var
vel skipulagt og greinilega lögð
áhersla á að hafa dómara,
starfsmenn og annað sem til
þarf fyrsta flokks.
EiríkurSteinsson:
Hættulegt ef það
er kýlt uppi
Eiríkur Steinsson tíu ára karate-
kappi úr Stjömunni var að
sjálfsögðu mættur á unglingameist-
aramótið og gerði það gott þar því
hann vann silfurverðlaun í kata.
Þetta kom þó ekki á óvart því Eirík-
ur hefur áður unnið fimm sinnum
til verðlauna á karatemótum og þar
af einu sinni gullverðlaun.
Upphafíð að karateiðkun Eiríks var
sú að hann fór með vini sínum á
æfingu sem hafði þá æft í dálftinn
tíma. Þetta var þegar Eiríkur var
7 ára og síðan hefur hann varla
sleppt úr æfíngu þó svo að vinur
hans sé hættur.
„Ég æfi þrisvar í viku en hef ekk-
ert meitt mig, samt er karate sold-
ið hættulegt. Það er hættulegt ef
að það er kýlt uppi og hnefínn fer
í tennumar," sagði kappinn. Þrátt
fyrir þessar hættur var Eiríkur
ákveðinn í að halda áfram í karate
þangað til hann verður orðinn eld-
gamall.
Eiríkur æfir ekki aðrar íþróttir en
karate á vetuma en á sumrin fer
hann oft í golf.
Keppendur á mótinu vom um
eitt hundrað og komu þeir frá
sjö félögum. Þessi félög em Baldur
Hvolfsvelli, Breiðablik, Gerpla, Kar-
atefélag Reykjavfk-
Vilmar ur, Karatefélagið
Pétursson Þórshamar, Stjarn-
skrifar an 0g þ6r Þorláks-
höfíi. Karatefélag
Reykjavíkur fékk mest uppúr krafs-
inu á mótinu eða 5 gullverðlaun, 2
silfur og 2 brons. Kópavogsfélögin
Breiðablik og Gerpla sýndu mikla
samstöðu á mótinu því félögin
fengu nákvæmlega jafn mörg verð-
laun, 1 gull, 2 silfur og 2 brons
hvort félag og komu þau næst á
eftir KFR. í verðlaunauppskem.
Stjaman og Baldur uppskám 1
gull, 1 silfur og 1 brons. Karatefé-
laginu Þórshamari hlotnaðist ekk-
ert gull að þessu sinni en fékk 1
silfur og 1 brons.
Úrslit á mðtinu urðu sem hér segir:
Kata bama fœdd 1977 og- siðar:
1. Sigurður A. Jónsson KFR
2. Eiríkur Steinsson Stjömunni
3. Benedikt Arason UBK
Kata barna fœdd 1975 og 1976:
1. Unnar S Bjamason KFR
2. Gylfi S. Gylfason KFR
3. Ágúst Magnússon Gerplu
Morgunblaðiö/Einar Falur
ÞaAer nú ekki mikð mál að veijast þessu högg ég hlæ nú bara að þessu,
gæti þessi ungi kappi verið að hugsa með sér þegar hann verst höggi andstæð-
ingsins og brýst um leið innfyrir allar hans vamir. Svona á að beijast f kumite.
Kata unglinga fæddir 1973 og 1974:
1. Amar 0. Bjamason KFR
2. Magnús F. Guðlaugsson KFÞ
3. Gfsli Helgason Stjömunni
Kata unglinga fæddir 1971 og 1972:
1. Magnús Eyjólfsson Gerplu
2. Sigmundur Rafnsson Baldri
3. Ragnar De Santos Gerplu
Hópkata:
1. Karatefélag Reykjavíkur. Liðið skipuðu
Amar O. Bjamason, Gylfi S. Gylfason og
Unnar S. Bjamason.
2. Gerpla. Liðið skipuðu Magnús Eyjólfs-
son, Ragnar De Santos og Birgir Jónsson.
3. Karatefélag Reykjavfkur. Liðið skipuðu
Þórður Halldórsson, Harpa Svansdóttir og
Amar Sigurðsson.
Elrlkur Stalnsson.
Kumite drengja fæddir 1975, 1976 og
1977:
1. Bjarki Friðriksson UBK
2. Unnar S. Bjaraason KFR
3. Gylfi S. Gylfason KFR
Kumite drengja fæddir 1973 og 1974:
1. Davíð Kristjánsson Stjömunni
2. Ámi Þ. Jónsson UBK
3. Magnús Guðlaugsson KFÞ
Kumite drengja fæddir 1971 og 1972:
1. Sigmundur Rafnsson Baldri
2. Magnús Eyjólfsson Gerplu
3. Snæbjöra Rafnsson Baldri
Kumite stúlkna:
1. Sólveig Halldórsdóttir KFR
2. Valgerður Helgadóttir UBK
3. Oddbjörg Jónsdóttir UBK
Morgunblaöiö/Einar Falur
Það er eins gott að miða vel þegar keppt er f kumite því vel útfært högg
getur fært manni mörg dýrmæt stig.