Morgunblaðið - 12.03.1988, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MARZ 1988
POTT-
ÞETTAR
AGOÐU
®' :i
Allar RING bílaperur
bera merkid (§)
sem þýðir að þær
uppfylla ýtrustu
gæðakröfur E.B.E.
Koraca
U-BIX
UÓSRITUNARVÉLAR
Síðustu sýning-
ar á Degi vonar
LEIKRITIÐ Dagur vonar eftir
Birgi Sigurðsson hefur nú verið
sýnt í Iðnó tæplega niutiu sinn-
um. Verkið var frumsýnt í Iðnó
á 90 ára afmæli Leikfélagsins
11. janúar 1987 og hefur því
verið á fjölum Iðnó í rúmt ár.
Degi vonar var strax í byijun vel
tekið jafnt af áhorfendum sem
gagnrýnendum.
Guðrún S. Gísladóttir og Sigurð-
ur Karlsson í hlutverkum sínum
í Degi vonar en sýningum á verk-
inu fer nú senn að ljúka hérlend-
is.
Leikfélagi Reykjavíkur hefur ver-
ið boðið að fara með sýninguna á
mikla leiklistarnátíð í Finnlandi nú
í vor og fyrir skömmu var leikritið
valið til leiklestrar í mjög virtu leik-
húsi í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Þar fer verkið á fjalimar nú í mars-
mánuði og hefur þeim Birgi Sig-
urðssyni höfundi og Stefáni Bald-
urssyni leikstjóra verið boðið með.
Mun Stefán leikstýra leiklestrinum
þar vestra og hafa yfirumsjón með
allri uppsetningu.
Dagur vonar er sýnt í Iðnó og
hefjast sýningar kl. 20. Nú em
aðeins örfáar sýningar eftir á leik-
ritinu hérlendis.
Leikendur í Degi vonar eru þau
Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sig-
urður Karlsson, Þröstur Leó Gunn-
arsson, Valdimar Öm Flygenring,
Guðrún S. Gísladóttir og Sigríður
Hagalín.
Leikstjóri er Stefán Baldursson,
leikmynd hannaði Þómnn S. Þor-
grímsdóttir, lýsingu Daníel Will-
iamsson og tónlistin í sýningunni
er eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
GIAIMT
■size mm
duraflame
6 LB FIRELOG-BURNS 3 HOURSIN COLORS
MESTSELDI
ARINKUBBURINN
í BANDARÍKJUNUM
Einkaumboð og söluaðili:
BRIMBORG,
Ármúla 23, simar 685870 og 681733
Júlíus
Listamennirnir Anna Þóra Karlsdóttir og Sigurlaug Jóhannesdóttir
við verk Sigurlaugar Stiklur.
Saarilla
Norræn textílsýning
á Kjarvalsstöðum
STNING 10 norænna textíl-
listamanna opnar í Austursal
Kjarvalsstaða í dag, laugardag
12. mars. Yfirskrift sýningarinn-
ar er Saarilla sem er finnska og
þýðir: A eyjunum. Tveir lista-
menn frá hveiju Norðurland-
anna eiga verk á sýningunni og
af íslands hálfu taka þær Anna
Þóra Karlsdóttir og Sigurlaug
Jóhannesdóttir (Silla) þátt í sýn-
ingunni A eyjunum.
í samtali við Morgunblaðið sögðu
þær Anna Þóra og Sigurlaug að
undirbúningur að þessari sýningu
hefði staðið yfir í tvö ár. Þessi 10
manna hópur hefði kynnst í gegnum
aðrar sýningar og þannig hefði ver-
ið ákveðið að mynda vinnuhóp sem
starfaði að verkum undir þessu
sameiginlega heiti. Myndrænt við-
fangsefni allra listamannanna er
eyjar. Á sýningunni era verk unnin
með alls konar tækni, allt frá hefð-
bundnum myndvefnaði yfir í verk
unnin með blandaðri og frjálsri
tækni þar sem skil milli skúlptúrs
og vefnaðar em óljósari. Þátttak-
endur auk Sigurlaugar og Önnu
Þóm em Margrethe Agger og
Nanna Hertoft frá Danmörku, Gun
Dahlquist og Kajsa af Petersens frá
Svíþjóð, Marith Ann Hope og Sids-
el C. Karlsen frá Noregi og Anna-
Liisa Troberg og Agneta Hobin frá
Finnlandi.
Sýningin A eyjunum er farand-
sýning og fer héðan til Færeyja,
þaðan til Borgundarhólms og
Álandseyja. Sýningin er styrkt af
Norræna menningarmálasjóðnum,
Reykjavíkurbórg, menntamála-
ráðuneytinu og öðmm opinbemm
aðilum á Norðurlöndum. Sýningin
stendur yfir til 28. mars og er opin
kl. 14 -22 daglega.
92 til 160 ha. vélar
4 dyra, 5 gíra.
• Rúmgóður fjölskyldubíll
• Vönduð innrétting
• Sparneytinn en kraft-
mikill og lipur í akstri
• 70 Iftra eldsneytis-
geymir
• Lítil loftmótstaða (Cx
aðeins 0,29-0,31 eftir
útfœrslum)
• Elektrónísk kveikja
• Framhjóladrif.
• Innbyggðar rúðu-
sprautur f þurrkum
• Rúmgóð 470 lítra
farangursgeymsla
• Fjarstýrðir móðufrfir
útispeglar.
• Hemlar með lœsivörn
(ABS)
• Bein innspýting (Fuel
injectlon)
• Rafmagnsupphalarar
fyrir rúður
• Allœsing (Central lock)
• Upphituð sœti
• „Low-profile“ dekk
• Álfelgur
• Veltistýri
• Litað gler
OPIÐ VIRKA DAGA
9-6,
LAUGARDAGA
1-5
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 ■ Sími 42600
Peugeot 405 var kosinn bíll ársins 1988 f Evrópu með mestu
yfirburðum sem þekkst hafa f sögunni.
Ástœðurnar eru frábœr hönnun, aksturseiginleikar,
þœgindi, öryggi og síðast en ekki síst það, hversu mikið
fœst fyrir peningana. Að auki var Peugeot 405 kosinn bíll
ársins 1988 f Danmörku og Noregi. Til þess að kóróna þetta
allt saman var Peugeot 405 sá bíll sem Pjóðverjum fannst
við hœfi að sœma „Gullna stýrinu“ árið 1988. Hœgt er að
spyrja: Getur einn bíll unnið mikið fleiri verðlaun?
Tölvutœknin var nýtt til hins ýtrasta við hönnun Peugeot 405
enda er það samdóma álít allra að þessi bíll sé á undan
sinni samtíð og að PEUGEOT/Pininfarina hafi tekist hönnunín
frábœrlega.
Komdu og reynsluaktu Peugeot 405 - Petta er bíll fyrir þig.
405, verð trö 639
Bílar fil afarelðslu sfrax.