Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 3

Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 3 Reyklaus dagur á morgun: Haldin námskeið í tóbaksbindindi AÐ TILMÆLUM Alþjóðaheilbrigöisstofnunarinnarvcrður fimmtu- dagurinn 7. apríl alþjóðlegur „tóbakslaus" dagur. í tilefni dagsins verður Krabbameinsfélag Reykjavíkur með ýmsa- þjónustu við al- menning og meðal annars verður boðið upp á aðstoð við að hætta að reykja í veitingahúsinu Lækjarbrekku milli klukkan 12.00 og 18.00. Fyrirlestrar um þetta efni verða fluttir klukkan 15.00 og 17.15 auk þess sem sýndar verða fræðslumyndir. Fulltrúar frá Krabbameinsfé- laginu verða einnig í Kringlunni á morgun frá klukkan 13.00 til 18.00 og veita upplýsingar og dreifa fræðsluritum. A báðum stöðunum verður hægt að skrá sig á biðlista fyrir reykbindindisnám- skeið félagsins. Þetta er fjórði reyklausi dagur- inn sem haldinn er á Islandi og að honum standa að opinberri hálfu Heilbrigðisráðuneytið, Land- læknisembættið og Tóbaksvamar- nefnd. Þessir aðilar hafa sent forr- áðamönnum vinnustaða bréf þar sem hvatt er til virkra aðgerða gegn tóbaksreykingum á vinnu- stöðum og jafnframt hafa verið gefín út veggspjöld og sérstæðar veggskreytingar með áminningum um gildi herins lofst. í áðurnefndu bréfí segir meðal annars að til- gangurinn með reyklausum degi sé fyrst og fremst sá að gefa mönnum sameiginlegt tilefni og tækifæri til að hvíla sjálfa sig og aðra frá tóbaki og tóbaksreyk, þó ekki sé nema þennan dag. „Hann er haldinn í þeirri vissu að reyking- Fóstrur stofna nýtt stéttarfélag FÓSTRUR hafa í almennri at- kvæðagreiðslu innan Fóstrufé- lags íslands lýst vilja sínum til að stofna sérstakt stéttarfélag, en Fóstrufélag íslands hefur fram til þessa verið fyrst og fremst fagfélag. í atkvæða- greiðslunni voru 77,6% fylgjandi því að stofna stéttarfélag en 18,3% voru á móti. I fréttatilkynningu frá stjórn Fóstrufélagins segir að stjórnin líti svo á, að kosningaúrslitin séu ótví- ræð og vilji fóstra til að stofna stétt- arfélag sé skýr. Ákveðið hefur ver- ið að stofnfundur hins nýja stéttar- félags verði haldinn þann 7. maí næstkomandi klukkan 15.00. ar stríði gegn hagsmunum allra, jafnt reykingamanna og hinna, sem reykja óbeint með því að anda að sér reyk frá öðrum,“ eins og segir í bréfínu. Heilbrigðisráð Reykjavíkur hef- ur sent frá sér yfírlýsingu vegna reyklausa dagsins og segir þar meðal annars að tóbaksreykingar séu trúlega sú neysluvenja sem „steli" flestum vinnustundum, spilli mest almennu heilsufari og hafí geigvænlegan mannskaða í för með sér. Því er hvatt til að gera fimmtudaginn 7. apríl að eft- irminnilegum reyklausum degi. Sjá viðtöl á bls. 26 Bíllinn i björtu báli skammt vestan við Kerið. Grímsnes: Morgunblaðið/Sigurður Jónsson. Bifreið gjöreyðilagðist í eldi Selfossi. BIFREIÐ gjöreyðilagðist í eldi á veginum skammt vestan við Kerið í Grímsnesi um ellefu- leytið á mánudagskvöld. Fjórir menn voru í bílnum og sluppu allir ómeiddir. Mennimir urðu varir við eldinn þegar vélin hætti að ganga og rétt seinna gaus eldur upp með vélarhlífinni. Þeir reyndu að slökkva eldinn en réðu ekki við neitt. Þeim tókst að forða far- angri úr bflnum og náðu síðan sambandi við lögregluna á Sel- fossi um bílasíma í bfl sem kom að. Bfllinn varð fljótlega alelda og brann til ösku þar sem hann stóð á veginum. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var bfllinn nánast brunn- mn. Sig. Jóns. Norrænt samstarf um rann— sóknír á Suðurlandsskjálfta Undirbúningsvinna er nú hafin við samstarfsverkefni norrænna skjálftafræðinga um rannsóknir á jarðskjálftasvæðinu á Suður- landi. Sjáifvirkum mælistöðvum verður komið fyrir á svæðinu og þær tengdar við tölvubúnað í Reykjavík, sem á að vinna úr upplýsingum frá mælingunum. Þær upplýsingar geta síðan hugsanlega komið að gagni til að spá fyrir um jarðskjálfta. Að sögn Ragnars Stefánssonar, jarð- skjálftafræðings, er hér um fimm ára verkefni að ræða, sem kosta mun um 50 milljónir íslenskra króna. Upphaf þessa máls má rekja til ályktunar Evrópuráðsins frá árinu 1982 um mikilvægi jarðskjálfta- rannsókna en þar var lagt til að rannsóknum yrði beint að fimm svæðum í Evrópu; fjórum svæðum í Suður-Evrópu og Suðurlandsund- irlendinu á íslandi. Ragnar Stefáns- son sagði að hönnunarvinna væri nú komin í fullan gang eftir að endanlega var gengið frá fjárveit- ingu til verkefnisins í febrúar sl. Skipuð hefur verið átta manna nefnd til að stýra rannsóknunum og er Ragnar formaður hennar, en auk hans á Páll Einarsson þar sæti af íslands hálfu og sex vísindamenn frá hinum Norðurlöndunum. Ragnar sagði að hægt væri að koma upp sjálfvirku úrvinnslukerfi í tengslum við mælitækin með því að nota tiltölulega ódýran og staðl- aðan tölvubúnað, en mikill hluti vinnunnar við kerfíð færi í að búa til hugbúnað til að vinna úr niður- stöðum mælinga. i sumar verða valdir staðir fyrir mælistöðvamar og uppsetning þeirra undirbúin. „Þýðing rannsóknanna felst í því að við söfnum upplýsingum til að geta spáð fyrir um jarðskjálfta og þar af leiðandi að draga úr tjóni Svínabú í sóttkví vegna svínapestar Kaupfélag Þingeyinga: Starfsfólki sagt upp í tveimur verslunum Húsavik. KAUPFÉLAG Þingeyinga hefur sagt upp starfsfólki tveggja verslana, Hrunabúðar á Húsavík og útibús félagsins í Múvatns- sveit. Að sögn Ragnars Jóhanns Jónssonar, fulltrúa kaupfélags- stjóra, verða gerðar skipulags- breytingar á rekstri útibúsins í Reykjahlíð í Mývatnssveit, en rekstri verslunarinnar á Húsavík í núverandi mynd verður hætt. Ragnar sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvers konar rekstur yrði í húsnæðinu í fram- tíðinni, hugsanlega yrði þar um að ræða verslunarrekstur, en þó með öðru sniði en nú er. Ragnar sagði að báðar þessar verslanir hefðu verið reknar með halla undanfarin ár. Hrunabúð er matvöruverslun að Garðarsbraut 26 á Húsavík en félagið rekur sína aðalmatvöruverslun að Garðars- braut 5. Rekstur útibús félagsins í Múvatnsssveit hefur ávallt verið erfíður, mjög kostnaðarsamur og starfsfólksfrekur á aðalverslunar- tímanum sem er yfir sumarið og hefur ekki borið sig. í Hrunabúð eru sex starfsmenn sem væntanlega geta fengið störf við sumarafleys- ingar þegar búðinni verður lokað og óvíst er að það fólk missi atvinn- una því mikil hreyfíng er á starfs- fólki í svo stórri verslun sem KÞ er. SVÍNABÚ í Kjósarsýslu hefur verið sett í sóttkví vegna sjúk- dóms sem orðið hefur vart i svinum í einu húsi á búinu. Páll Agnar Pálsson yfirdýralæknir segir að sjúkdómurinn sé áþekk- ur svínapest en fullvissa fáist ekki fyrir því að svo sé fyrr en niðurstöður fást úr rannsókn á sýnum sem send voru til rann- sóknar erlendis. Páll Agnar sagði að svínapest hefði verið landlæg hér eftir stríðsárin. Hún hefði borist hingað árið 1942 og verið viðloðandi til ársins 1954, en ekki orðið vart við hana síðan. Hann sagði að svínin hefðu verið bólusett gegn veikinni á þessum tíma. Sagði Páll að ekki væri vitað hvemig sjúkdómurinn hefði borist í svínin í Kjósarsýslunni nú og ekki væri heldur vitað hvort hann væri í fleiri búum. Yfírdýralæknir sagði að svínin fengju hita og yrðu mikið veik. Kjöt af veikum dýrum færi ekki á markað. Hann sagði að sjúkdómur- inn leggðist ekki á önnur dýr og heldur ekki á fólk. Sagði Páll mikil- vægt að svín væru ekki seld á milli búa og að komið yrði í veg fyrir umgang óviðkomandi á búunum. Þá þyrfti að varast smitun með flutningatækjum og öðru sem færi á milli svínabúanna. Tvennt kemur til greina að gera, að sögn Páls Agnars, en engin ákvörðun hefur verið tekin. Annað hvort yrði að slátra öllum svínum á þeim búum sem vart yrði við sjúk- dóminn eða að taka upp bólusetn- ingu. Ef síðar taldi kosturinn yrði valinn yrðu menn að læra að lifa með þessum sjúkdómi hér um ákveðið árabil með tilheyrandi kostnaði við bólusetningu og afföll- um af völdum sjúkdómsins. af þeirra völdum. Við teljum víst að það verði hægt að spá fyrir um jarðskjálfta í framtíðinni, þó að við getum ekki sagt hvenær það verði,“ sagði Ragnar. Hann sagði að þar fyrir utan yrði safnað upplýsingum um eðliseiginleika jarðskorpunnar, sem gætu komið að gagni á ýmsan hátt. Aðstæður á skjálftasvæðinu á Suðurlandi eru að mörgu leyti ein- stakar, að sögn Ragnars, þar sjást sprungur víða á yfírborði og miklar kvikuhreyfingar eru tengdar skjálftunum. Þá yrðu skjálftamir við lárétt misgengi sem tengdi sam- an tvö gliðnunarbelti, sem væru mjög óvenjulegar aðstæður á landi. Á sögulegum tíma hafa ekki færri en 33 skjálftar valdið tjóni á fólki og eigum á Suðurlandi og verulegar líkur eru á að mikil skjálftahrina verði þar innan næstu 20 ára, að því að segir í grein eftir Pál Einarsson og Reyni Böðvarsson í nýútkomnu Skjálftabréfi. Hótel Saga: Uppsagnir matreiðslu- og framreiðslufólks GILDI h.f., sem annast veitinga- rekstur á Hótel Sögu hefur sagt upp öllu faglærðu fólki sem starfar við veitingareksturinn, það er matreiðslu- og fram- reiðslufólki. Fólkinu var sagt upp frá og með 1. apríl, með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Að sögn Wilhelm Wessman, framkvæmdastjóri Gildis h.f., eru uppsagnirnar í tengslum við fyrirhugaðar skipulagsbreyting- ar á veitingarekstrinum, og kvaðst hann eiga von á að flest af þessu fólki yrði endurráðið. „Það virðist margt benda til að samdráttur sé framundan í hótel- og veitingarekstri hér á landi. í ljósi þess höfum við ákveðið að endur- skipurleggja reksturinn og með þessum uppsögnum viljum við hafa ftjálsari hendur við þær skipulags- breytingar," sagði Wilhelm. Hann sagði að aukið framboð á hótelrými og veitingastöðum hefði leitt til þess að samkeppnin væri nú mjög hörð í þessum rekstri. Ofan á það hefði svo bæst að eftirspurn eftir gistirými hefði ekki orðið eins mik- il og búist var við því væri óhjá- kvæmilegt að endurskipuleggja reksturinn. 1.uppboð á Hótel Örk Selfossi. FYRSTA uppboð á Hótel Örk í Hveragerði fór fram í gærmorg- un á skrifstofu sýslumanns Ár- nessýslu. Lögmaður eiganda bað um aðra sölu og varð samkomu- lag um að hún færi fram 13. maí. Uppboðsbeiðendur eru 26 og nafnverð krafna, sem alls eru um 60, nemur 50,7 milljónum. - Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.