Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 48
Almenna auglýsingast./SÍA I sólarplast IVOFALI og ÞREFALT FYRIR GRÓÐURHÓS 06 SÓI.SKÁI.A Góð einangrun. y'TTT Dacryl hefur 50% betri einangrun en einfalt gler og er helmingi léttara. Dacryl er úr acryl píastgleri sem hefur meiri veörunarþol en önnur plastefni. Dacryl er einfalt í uppsetningu með álprófílum. Afmæliskveðja: Valtýr Guðmundsson PLASI í PLÖTUM ER OKKAR SÉRGREIN Valtýr er fæddur í Ólafsvík 6. apríl 1908. Foreldrar hans voru Elínborg Jónsdóttir og Guðmundur Kristmundsson, en hann ólst upp hjá föður sínum og stjúpmóður, Guðríði Davíðsdóttur. Hálfsystkini hans eru Matthías fyrrv. póstmeist- ari í Reykjavík og Jóhanna, sem er nýlátin. Hún var starfsmaður Sundhallar Reykjavíkur frá stofnun og starfaði þar til 70 ára aldurs. 1910 flyst Valtýr með þeim til Reykjavíkur og er þar fram yfir fermingaraldur. 12 ára fór hann sem vikadrengur til Bjarna Ólafs- sonar á Böðmóðsstöðum, sem síðar bjó á Ketilvöllum. Næstu ábúendur á Böðmóðsstöðum voru Guðmundur Njálsson og Karólína Árnadóttir. Valtýr festi rætur við þennan stað og var þar viðloðandi þar til hann fór í íþróttaskóla Sigurðar Hauks- sonar í Haukadal. Valtýr hefur allt- af haft brennandi áhuga á íþróttum, sérstaklega knattspyrnu, hann gekk ungur í Fram og hefur haldið með því liði síðan. Valtýr fór svo í Héraðsskólann á Laugarvatni. Þar kynntist hann konu sinni, Sigríði Böðvarsdóttur frá Laugarvatni, síðar ljósmóðir í Laugardal. Þegar ég renni huganum til baka til þess tíma þegar ég kynntist Valtý fyrst, þá minnist ég orða Böðvars á Laugarvatni. Þá vorum við Inga nýgift 1947 í heimsókn hjá frændfólki hennar í Laugardaln- um. Böðvar sagði: „Svo komið þið ■. að sjálfsögðu við hjá Valtý og Siggu í Miðdalskoti. Það var að vísu kot A BESTA STAÐIBÆNUM Aðeins mínútugangur í helstu banka, verslanir, kvikmyndahús, sundlaug, leikhús, pósthús o.fl. Vistleg og björt gisti- herbergi, vel búin húsgögnum. Sér snyrting, sturta, sjónvarp, útvarp og sími. Veitingasalurinn Lindin er opinn allan daginn. Glæsilegur matseðill í hádeginu og á kvöldin og girnilegar tertur siðdegis. Veislu-, funda- og ráðstefnusalur fyrir allt að 100 manna fermingaveislur, erfis- drykkjur, afmælisveislur, fundakaffi o.s.frv. Salurinn er vel búinn tækjum ;.s. myndvörpum, skuggmynda- élum, töflum, Ijósritunarvél, telexi, eöupúlti, hátalarakerfi, planói o.m.fl. HOTCL UMV RAUÐARARSTlG 18-SlMI 623350 þegar þau komu þangað, en í sam- einingu hafa þau gert þetta að stór- býli.“ Þetta var ekki ofmælt því myndarlegra bú og snyrtilegra hef ég vart séð áður. Þau byijuðu sinn búskap í Mið- dal í sambýli við Magnús bróður Sigríðar og konu hans Aðalbjörgu. Þar bjuggu þau þar til þau fengu Miðdalskot til ábúðar. Þau byggðu þar allt upp frá grunni og var það ærið verkefni. Kom sér vel að Val- týr var duglegur og dverghagur. Þau hættu búskap vorið 1962 og fluttu til Reykjavíkur. Seinna fengu þau smáland úr Miðdalskoti sem þau hafa ræktað og byggðu sér þar sumarhús. Þar er þeirra sælureitur og þangað er gaman að koma í heimsókn til þeirra hjóna. I Reykjavík gerðist Valtýr starfs- maður hjá Raforkumálastofnun og síðar Orkustofnun, en þar var hann húsvörður er hann lét af störfum á síðastliðnu ári. Allir sem kynnst hafa Valtý vita, áð þar fer einstak- ur drengskaparmaður, bjartsýnn og góðviljaður. Það er því ekki að undra að hann var ákaflega vel lið- inn starfskraftur á þessum stöðum. Börn Valtýs og Sigríðar eru: Ingunn íþróttakennari, f. 3.10. ’34, gift Þóri Ólafssyni prófessor við Kennaraháskóla Islands. Guðmundur Rafnar skólastjóri við bamaskólann á Laugarvatni, f. 13.10. ’37, giftur Ásdísi Einars- dóttur húsmæðrakennara. Böðvar rafvirkjameistari, f.13.7. ’39, giftur Hólmfríði Guðjónsdóttur bókara. Gunnar læknir, f.7.11. ’45, giftur Sólveigu Þorsteinsdóttur yfirbóka- verði. Að lokum óskum við Inga ykkur hjónum friðsæls ævikvölds í glöðum hópi bama og bamabama, og þökk- um vináttu frá fyrstu kynnum. Guðmundur Jónsson Fertugasta bókin um ísfólkið ÚT er nú komin 40. bókin í bóka- flokknum um ísfólkið. Hún heitir Fangi tímans. Höfundur bók- anna, Margit Sandemo, hefur samið rúmlega 50 framhaldssög- ur. Sögurnar um ísfólkið skrifar hún samkvæmt beiðni norska útgáfufyrirtækisins Bladkomp- aniet og koma bækurnar samtím- is út á íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Fangi tímans Qallar um afkom- endur Þengils hins illa. Nataniel, Þúfa og Ellen rannsaka drauga- gang um borð í gamalli ferju og lenda í sjávarháska. Þúfa hverfur en tekst að koma hjálparbeiðni til Nataniels sem fer að leita að henni og lendir í ýmsum raunum. (Fréttatilkynning) MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.