Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
43
Margeir Pétursson á skákmótum í New York:
Hálfum vinningi frá verð-
launasæti á öðru mótinu
MARGEIR Pétursson tók þátt í
tveimur sterkum opnum skák-
mótum í New York fyrir og um
páskana. Hann endaði með 4'/2
vinning af 9 í New York Open
en en 5'/2 vinning af 8 í New
York International og var þar
hálfum vinningi frá verðlauna-
sæti. A annað þúsund manns tóku
þátt í mótunum.
Pétur Gunnarsson Þórarinn Eldjárn
Kristján Þórður
Hrafnsson
Besti vinur ljóðsins:
Skáld tveggja kynslóða
á Hótel Borg í kvöld
BESTI vinur ljóðsins heldur
skáldakvöld á Hótel Borg í kvöld
klukkan 21 í samvinnu við
Framtíðina og Listafélag
Menntaskólans í Reykjavík.
Skáldakvöldið er haldið til að
fagna útkomu bókar sem hefur
að geyma ljóð og smásögur
menntaskólanema og munu skáld
tveggja kynslóða lesa úr verkum
sínum.
Fyrir rúmlega tveimur áratugum
kom út í skólanum bókin Mennta-
skólaljóð og áttu þar hlut að ýmsir
sem síðan hafa látið mjög að sér
kveða. Þrír þeirra tólf sem ljóð áttu
í þeirri bók lesa á skáldakvöldinu:
Sigurður Pálsson, Þórarinn Eldjárn
og Pétur Gunnarsson. Þá mun
Hrafn Jökulsson lesa ljóð Vilmund-
ar heitins Gylfasonar.
Það verða sex ungskáld sem lesa
ljóð sín: Kristján Þórður Hrafnsson,
Elsa Valsdóttir, Sindri Freysson,
Baldur A. Kristinsson, Ari Gísli
Bragason og Melkorka Olafsdóttir.
Hin nýja bók menntaskólanema
verður á boðstólum í kvöld á sér-
stöku tilboðsverði. Fólk er hvatt til
að mæta tímanlega, enda er jafnan
góð aðsókn að ljóðakvöldum Besta
vinarins. Veitingasala Hótels Borg-
ar verður opin í kvöld af þessu til-
efni. (Fréttatilkynning)
í New York Open tefldu 60 skák-
menn í efsta styrkleikaflokki, þar
af 36 stórmeistarar. Sovétmaðurinn
Vassilíj Ivantsjuk varð öruggur sig-
urvegari í mótinu og hafði fengið
6V2 vinning úr 7 fyrstu skákunum.
Ivantsjuk varð Evrópumeistari
unglinga fyrir tveimur árum en sig-
ur hans á þessu móti kom samt á
óvart. Ivantsjuk varð 20 þúsund
dölum ríkari á mótinu eða 800 þús-
und krónum.
í öðru sæti varð Garcia frá Kúbu
og Bent Larsen varð í 3. sæti. Garc-
ia er fyrsti Kúbaninn sem teflir í
Bandaríkjunum síðan Fidel Kastro
komst til valda og samkvæmt
bandarískum lögum mátti ekki
greiða honum út verðlaunaféð sem
man 10 þúsund dölum.
Margeir missti af tveimur fyrstu
umferðum mótsins þar sem hann
var að tefla á Akureyri, og fékk
hálfan vinning í hvorri umferð.
Hann vann Júgóslavana Ivkov og
Damljanovic, en tapaði fyrir Garcia
og Júgóslavanum Duric. Hann gerði
síðan jafntefli við Júgóslavann
Drashko, Ungveijann Grosspeter
og Dimitrij Gúrevitsj, sem var að-
stoðarmaður Viktors Kortsjnojs í
St. John.
New York International var
hraðmót þar sem telfdar voru tvær
umferðir á dag, alls 8 umferðir. 170
skákmenn tóku þátt í sterkasta
flokknum og varð Kanadamaðurinn
Ivanov efstur en Bandaríkjamenn-
imir Gúrevitsj og DeFirmian urðu
í 2-3. sæti.
Margeir vann Lenchner og Sto-
yko frá Bandaríkjunum, Krimic og
Milavanovic frá Júgóslavíu og Szal-
anczi fra Ungverjalandi. Hann gerði
jafntefli við Garcia en tapaði fyrir
Bandaríkjamönnunum Alburt og
Dlugy.
NAMSKEK)
Sækið námskeið hjá traust-
um aðila gegn vægu gjaidi
Eftirfarandi námskeið verða haldin á næstunni á vegum
Verzlunarskóla íslands:
Tölvunotkun:
Gagnagrunnur(dBase III +)
Tölvubókhald (Ópus)
Töflureiknir (Multiplan)
9.-10. apríl.
16.-17. apríl.
23.-24. apríl.
Skrifstofu- og verslunarstörf:
Vélritun (byrjendanámskeið)
Bókhald (færslur og uppgjör)
Skjalavarsla (virk skjöl)
Þjónustunámskeið (samskipti við
viðskiptavini)
Sölu- og afgreiðslustörf i verslunum
18., 20., 21., 25.,
27. og 28. apríl.
5., 7., 9., 12., 14.
og 16. apríl.
11.-13. apríl.
26. og 27. apríl.
5., 7., 12.
og 14. apríl.
Stjórnun fyrirtækja og deilda:
Fjárfestingar
Samskipti og hvatning í starfi
Starfsmannaþjónusta/-hald
5.. 7..9..12..14.
og 16. apríl.
10. og 11. maí.
3.. 4. og 5. mai.
- Innritun fer fram á skrifstofu skólans -
VR og BSRB félagar fá styrk sirina stéttarfélaga. Frek-
ari upplýsingar veitir Þorlákur Karlsson í síma 688400.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
o
HAFSPIL HF.
FJÖLNISGATA 2B • R BOX 176 - 602 AKUREYRI
SÍMI (96) 26608 • NNR. 9344-9487
-Framleiðir vökvadrifin tæki fyrir báta og fiskiskip -
Löndunarspil með inn-
byggðri vökvabremsu.
3stærðir,1-5tonn.
Bómusvingarar
2stærðirmeð
innbyggðri vökvabremsu.
Bakstroffuspil
með eða án innbyggðri
vökvabremsu. 3 stærðir, 2-5 tonn.
Einnig framleiðum við
Borðstokksrúllur
• allarstærðir
Splittvindur
• meðvírastýri
• fríhjóiun
• innbyggðri diska-
bremsu í olíubaði
• fjarstýringu á fríhjólun
og bremsu
Hjálparspil
1-2tonn.
Netaspil í allar
stærðirbáta.
2 stærðir af netadrögurum.
Línuspil,
5 gerðir.
0 HAFSPIL HF.