Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
47
Georg Skærings-
son - Kveðjuorð
Fæddur 30. ágúst 1915
Dáinn 16. mars 1988
Laugardaginn 26. mars var bor-
inn til grafar hér í Vestmannaeyjum
Georg Skæringsson húsvörður við
Bamaskólann í Vestmannaeyjum.
Fljótlega eftir að við hófum störf
í haust fór að bera á veikindum hjá
Georg eða Gogga eins og við kölluð-
um hann. Var hann mikið frá og
lét að lokum af störfum um ára-
mót. Þó lét hann sjá sig á kennara-
stofunni og datt okkur síst í hug
að við værum að sjá hann í síðasta
skipti þegar hann kom til að óska
okkur gleðilegs árs.
Oft var gaman á kennarastofunni
þegar hann var nálægt. Hann lét
okkur „heyra það“ ef honum fannst
við eiga og þá hressilega en átti til
að brosa út í annað um leið. Hann
hafði mjög gaman af að stríða okk-
ur og leiddist ekki að fá góð við-
brögð á móti.
Goggi var mikill dýravinur og
uppi í risi skólans hafði hann safn-
að dúfum, enda varð einu barni að
orði er því var sagt að hann væri
dáinn. „Mamma, hver á þá að hugsa
um dúfurnar?“
Mikill sjónarsviptir er að hafa
hann ekki lengur á meðal okkar.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við þakka Georg Skærings-
syni fyrir samfylgdina og votta eig-
inkonu hans og ástvinum okkar
dýpstu samúð.
Unnur, Erna Björk og Helga.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÍÐAR JÓNSDÓTTUR.
Gunnar Pétursson,
Unnur Pótursdóttir,
Pétur Pótursson, Sigriður Skarphéðinsdóttir,
Þórey Ingvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður hald-
inn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, fimmtudag-
inn 14. apríl 1988 og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram til-
laga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða
afhentir á fundarstað.
Ðankaráð Samvinnubanka íslands hf
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÖNNU JÓHANNSDÓTTUR
Syðra-Garðshorni, Svarfaðardal.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dalbæjar.
Steinunn Daníelsdóttir,
Jóhanna M. Danfelsdóttir,
JúlfusJ. Danfelsson,
Jóhann Daníelsson,
Björn Daníelsson,
Halldór Jóhannesson,
Jónas M. Árnason,
Þuríður Árnadóttir,
Gíslína Gísladóttir,
Pjóla Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
MICROSOFT
HUGBÚNAÐUR