Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Styttan af Tómasi Guðmundssyni:
A stall fyrir
mánaðamót
LAGFÆRINGU á styttunni af
Tómasi Guðmundssyni, sem
skemmd var og fjarlægð úr Aust-
urstræti að morgni skírdags,
verður lokið fyrir næstu mánað-
armót. Þá er áætlað að styttunni
verði komið fyrir á sinum fyrri
stað.
Klukkan rúmlega 5 að morgni
skírdags var lögreglunni í
Reykjavík tilkynnt að sést hefði til
tveggja manna í göngugötunni í
Austurstræti þar sem þeir voru að
koma styttu Sigurjóns Ólafssonar
af Tómasi Guðmundssyni fyrir í
farangursgeymslu bifreiðar. Vitni
skráðu hjá sér skráningamúmer
bifreiðarinnar. Ökumaðurinn
reyndist vera 18 ára sonur eigan-
dans og vísaði hann á styttuna á
heimili félaga síns. Þar fannst hún
snemma á skírdag.
Piltamir sögðu við yfirheyrslu
hjá lögreglunni að þeir hefðu komið
að þar sem búið var að brjóta stöp-
ulinn undan styttunni og lá hún í
götunni. Ekki gáfu þeir haldbæra
skýringu á því hvers vegna þeir
hefðu fjarlægt styttuna í stað þess
að gera vart um tjónið. Málið er
enn talið óupplýst.
Steyptur stöpull sem styttan stóð
á er brotinn og talinn ónýtur. Stytt-
an sjálf er hins vegar lítið skemmd,
að sögn Gunnars B. Kvaran list-
fræðings. Hann hefur umsjón með
styttum í eigu Reykjavíkurborgar.
„Styttan af Tómasi verður vonandi
kominn á sinn fyrri stað í lok þessa
mánaðar," sagði Gunnar B. Kvaran.
„Það verður steyptur nýr stöpull
og við ætlum að reyna að ganga
þannig frá að þetta geti ekki ehdur-
tekið sig. Skemmdir á styttunni eru
ekki miklar, rispur í veðmnarhúð-
Borgarstarfsmenn fjarlægja brotinn stöpulinn á skírdag.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
inni. Það verður slípað til þar sem
hún marðist og síðan á þetta að
veðrast til á nokkrum vikum eða
mánuðum. Stöpullinn verður
steyptur á staðnum þegar veður
leyfir. Við eigum eftir að hanna
endanlegu útfærsluna á þessu en
ég á von á að stöpullinn verði hafð-
ur breiðari og verklegri en hann
var svo að minni hætta sé á að
þetta geti endurtekið sig,“ sagði
Gunnar.
„Manni bregður við þegar ráðist
er svona á listaverk, skemmdar-
vargar hafa yfirleitt látið þau í friði
þótt allt hafí verið brotið og braml-
að í kringum þau. Listaverk hafa
fengið að vera í friði í borginni síðan
hafmeyjan í Tjörninni var sprengd
í loft upp,“ sagði Gunnar B. Kvaran
listfræðingur.
Þórir Þorsteinsson lögregluvarðstjóri við styttuna af Tómasi Guð-
mundssyni. Styttan var í vörslu lögreglunnar yfir páskahelgina.
Sigurjón Sigurðsson
í Raítholti látinn
VEÐURHORFUR í DAG, 6.4. 88
YFIRLIT f gær: Yfir Grænlandi er 1.032 mb hæð en 1015 mb að-
gerðarlítil lægð við Snæfellsnes þokast austur. Heldur mun kólna
í veðri.
SPÁ: Norðan- og norðaustangola eða kaldi. Sumstaðar dálítil él
um norðan- og norðaustanvert landið, en víða bjartviðri sunnan-
lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg norðan- og norðaustan-
átt. Víða dólítil él noröan- og austanlands en úrkomulaust um sunn-
an- og suðveatanvert landið. Víða 1—3ja stiga frost.
HORFuR á FOSTUDAG: Suðaustanótt, sumstaðar allhvoss vest-
an- og suðvestanlands, en hægari annars staðar. Snjókoma eða
slydda um sunnan og vestanvert landið en að mestu úrkomulaust
annars staðar. Hiti um frostmark.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hKi veður
Akureyri +1 alskýjað
Reykjavík 3 úrkoma
grennd
Bergen e súld
Helsinki vantar
Jan Mayen +6 skýjað
Kaupmannah. 9 skýjað
Nar&sarssuaq +16 heiðskfrt
Nuuk +8 snjóél
Osló 4 þokumóða
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Þórshöfn 6 skúrir
Algarve 15 mistur
Amsterdam 8 mistur
Aþena vantar
Barcelona vantar
Berlín 12 hálfskýjað
Chicago 12 hálfskýjað
Feneyjar 14 alskýjað
Frankfurt ð rignlng
Glasgow 14 léttskýjað
Hamborg 9 léttskýjað
Las Palmas 18 skýjað
London 7 skýjað
Los Angeles 14 heiðskfrt
Lúxemborg 8 mistur
Madrid 11 skýjað
Malaga 18 alskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal 8 þokumóða
New York vantar
París 10 hálfskýjað
Róm 19 léttskýjað
Vln 10 rigning
Washington 15 heiðskýrt
Winnipeg 1 léttskýjað
SIGURJÓN Gísli Sigurðsson,
bóndi að Raftholti í Holtahreppi
í Rangárvallasýslu, lézt annan
apríl síðastliðinn. Hann var 93
ára að aldri, fæddur 4. marz
1895 í Bjálmholti.
Foreldrar Siguijóns voru Sigurð-
ur Sigurðsson bóndi í Bjálmholti
og eiginkona hans Borghildur Þórð-
ardóttir frá Sumarjiðabæ. Hann
stundaði nám hjá Ófeigi Vigfús-
syni, prófasti á Fellsmúla og við
Hvítárbakkaskóla í Borgarfirði.
Hann stundaði fiskveiðar sem há-
seti 13 vetrarvertíðir á öllum veiði-
skipum öðrum en mótorbátum, en
vann við landbúnað hjá foreldrum
sínum sumur og haust. Siguijón
stundaði búsakp í Kálfholti í Ása-
hreppi 1922 til 1928, en þá íluttist
hann að Raftholti og bjó þar síðan.
Siguijón tók mikinn þátt í félags-
málum. Hann sat í hreppsnefnd frá
1938 til 1970, í sýslunefnd 1942
til 1970, í skólanefnd 1942 til 1974,
formaður hennar 1946 til 1958, í
sóknarnefnd 1938 til 1971 og
skattanefnd frá 1948. Hann átti
einnig sæti í 6 manna nefndinni,
sem ákveður verð landbúnaðarvara
til bænda árin 1943 og 1947 til
1959. Hann sat í stjóm Stéttarsam-
bands bænda og í Framleiðsluráði
landbúnaðarins 1945 til 1953. Var
fulltrúi á aðalfundum Stéttarsam-
bands bænda 1946 til 1956, í stjórn
Búnaðarssambands Suðurlands
1946 til 1976,Búnaðarþingsfulltrúi
1947 til 1954 og 1958 til 1966.
Hann sat í skólanefnd Laugarlands-
skóla þau þijú ár, sem bygging
hanas stóð yfir. Var endurskoðandi
Holta- og Ásahrepps 1937 til 1964.
Varaþingmaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Rangárvallasýslu 1942
til 1959 og sat á Alþingi í október
1955.
Siguijón var í stjóm Ungmenna-
félagsins Ingólfs 1914 til 1922 og
Héraðssambandsins Skarphéðins
1920 til 1942 og heiðursfélagi þess.
Ennfremur sat hann í stjóm Kaup-
félagsins Þórs á Hellu 1946 til
1976, var gerður heiðursfélagi Bún-
aðarsambands Suðurlands 31. maí
1976 og var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðu 1. janúar 1965. Eigin-
kona hans var Guðný Ágústa Ólafs-
dóttir frá Austvarðsholti í Land-
mannahreppi. Hún lést árið 1974.