Morgunblaðið - 06.04.1988, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
FASTEIGNA
J_L
HOLUN
MIÐBÆR - HA ALEITISBRAUT 58 60
35300-35522-35301
Spóahólar - 2ja
Glæsii. 2ja herb. íb. á 2. hæö. Ný teppi
og flísar á gólfum. Eign í mjög góöu
ástandi. Nýstands. sameign.
Álftahólar m. bílsk.
Mjög góö 3ja herb. íb. á 3. hæö (efstu).
Tengt f. þvottav. á baöi. Glæsil. útsýni
yfir bæinn. Nýrfullfrág. bflsk. Ekkert áhv.
Fornhagi - 3ja herb.
Mjög góö íb. á 1. hæö. Tvöf. nýtt gler.
Flísal. baö. Suöursv. Ákv. bein sala.
Grenimelur - 3ja-4ra
Mjög góö íb. á efstu hæö í fjórb. Skipt-
ist m.a. í 2 góöar stofur og 2 svefnherb.
Suöursv. Gott útssýni. Ákv. bein sala.
Benedikt Bjömsson, lögg. fast.
Agnar Agnarsson, viöskfr.,
Agnar Ólafsson,
Amar Sigurösson.
Lúxus keðjuhús: Stórglæsil. 188 fm
keöjuh. v/opiö útivistarsv. Skilast
fullfrág. aö utan m. garöst. en fokh.
aö innan. Lóö grófjöfnuö. Framkv. eru
hafnar. VerÖ 6,7-7,3 millj.
Þingás: Fallegt 230 fm timburh.
m. bílsk. Skilast fullfrág. aö utan og
einangraö aö innan. Afh. í ágúst. Verö
5,3 millj.
Keilufell: Fallegt 140 fm einbhús
á tveimur hæöum. 4 svefnh., stór lóö.
Skipti óskast á 3ja-4ra herb. íb.
Álfhólsvegur: Fallegt 156 fm
raöhús á tveimur hæöum ásamt bílsk.
4 svefnherb. 2 stofur. Fallegur suöur-
garöur. Verö 7 millj.
5 gistiherb.: v/Ránarg. öll m.
snyrtiaöst. Húsnæöiö mikiö endurn.
Verð 5 millj.
Sérhaeðir
Kjartansgata: Falleg 4ra herb.
sérh. 110 fm á 1. hæð í þrib. ásamt
bílsk. Nýl. eldhús. Nýtt gler. Nýtt rafm.
Verð 6,7 millj.
Barmahlíð: Falleg 110 fm ib. á
2. hæð í fjúrb. 2 stofur og 2 svefnherb.
Skipti óskast á 100-120 fm einb. eða
raðhúsi á einni hseð I Qrafarvogi. Má
vera á byggstigl.
4ra-6 herb. íbúðir
Bragagata: Gullfalleg 117 fm íb.
á 1. hæð. 3 stofur, 3 svefnherb. öll
endurn. Góður suðurgarður. Verð 6,2
millj.
Austurberg: Falleg 110 fm
endaíb. á 4. hæð. Bilsk. 3 rúmg. herb.
Fallegt útsýni. Verð 4,7 millj.
Frakkastfgur: 80 fm íb. á 1. hæð
í timburh. 2 stofur, 2 svefnherb. Verð
3,3 millj.
Rauðalækur: Falleg 100fmjarð-
hæð i fjórb. Sérinng. og sérhiti. MJög
góð grkjör. Skiptl mögul. á minni eign.
Ákv. sala. Verð 4,5 millj.
3ja herb. ibúðir
Seilugrandi: Glæsil. 90 fm ib. á
2. hæð ásamt bilskýli. Fallegt útsýni.
Nýtt parket. Verð 4,7 millj.
Hverfisgata: Falleg 100 fm 3ja-
4ra herb. íb. á 1. hæð. Eign í toppstandi.
2ja herb.
Njálsgata: Góð 50 fm risib. I tlmb-
urh.
Tryggvagata
Falleg 40 fm einstaklib. á 2. hæð.
Atvínnuhúsnæð
Söluturnshúsn.: Mjög gott 63
fm húsn. fyrír söluturn í Gbæ. 5 ára
leigusamn. Góðar leigutekjur. Verð 3,4
millj.
29077
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A SÍMI: 29077
VIÐAR FRIÐRIKSSON H.S. 27072
TRY6GVI VIGGÓSSON hdl.
STÆRÐ RÁÐHÚSSINS
eftir Margrétí
Harðardóttur og
Steve Christer
í tilefni greinar Guðrúnar Péturs-
dóttur í Morgunblaðinu 26. mars
sl., þar sem hún rekur hugmyndir
sínar um stærð ráðhússins í
Reykjavík, er vert að eftirfarandi
komi fram:
Guðrún leggur í grein sinni mikla
áherslu á viðmiðunartölur í bygg-
ingarreglugerð um vegghæð húsa.
Skv. eðlilegri túlkun, m.a. bygging-
arfulltrúar á þessum tölum, er við-
miðunarvegghæð ráðhúss
Reykjavíkur 10,6 m frá götu.
Hæsta vegghæð hússins er 10,75 m
frá götu (k:3.7) og verður vart nær
komist viðmiðunartölu.
Guðrún tilgreinir arkitekta ráð-
hússins sem heimildarmenn að tölu
um stærð hússins. Talan er röng,
enda hefur Guðrún Pétursdóttir
hvorki leitað upplýsinga frá arki-
tektum hússins um þetta efni, né
yfírleitt um aðrar forsendur síns
málflutnings. Henni er þó velkomið
að kynna sér húsið betur og allar
gagnlegar upplýsingar standa
henni til boða til að hindra slíkar
rangfærslur.
Síðar í greininni segir Guðrún
að húsið muni þekja u.þ.b. 2.300
m2 af Tjöminni. Þessi niðurstaða
er einkennileg, þar sem ráðhúsið
er ekki nema 1.721 m2 að grunn-
fleti og að hluta til byggt á gam-
alli fyllingu við Ijömina, en ekki í
henni sjálfri. Auk þess er 880 m2
bætt við vatnsflöt Tjamarinnar í
nýrri homtjöm og vatnsrennu milli
húsanna. Skerðing Tjamarinnar er
því enn undir 1% af heildarflatar-
máli hennar.
Aðrar rangfærslur Guðrúnar hef-
ur borgarverkfræðingur þegar leið-
rétt í grein í Morgunblaðinu 31.
mars og er því óþarft að endurtaka
það hér. Til frekari skýringar fylgir
mynd af húsinu í endanlegri stærð,
eins og það hefur verið kynnt.
Það má telja frumforsendu fyrir
eðlilegum skoðanaskiptum að menn
Ieiti sannleikans og raunveruleik-
ans, annars verður umræðan lítils
virði.
Páskaóratorían
Stabat
Mater
dolorosa
Stúlknakór Garðabæjar undir
stjóm Guðfínnu Dóru Ólafsdóttur,
söngkonumar Ágústa Ágústs-
dóttir og Þuríður Baldursdóttir
ásamt Ann Toril Lindstad orgel-
leikara og fjómm strengjaleikur-
um fluttu Stabat Mater dolorosa
eftir Pergolesi á skírdag í Laugar-
neskirkju. Pergolesi varð aðeins
26 ára gamall (1710—1736) en
eftir hann liggur samt mikið af
leikhús- og kirkjutónlist. Sagt er
að hann hafí verið næmt bam en
heilsulítið, auk þess sem hann
átti bágt með gang vegna lömun-
ar í öðrum fætinum. Sextán ára
að aldri hóf hann nám við Konser-
vatoríuna í Napólí og var þá þeg-
ar farinn að semja kirkjutónverk
er vöktu athygli. Fyrstu óperu
sína samdi hann 21 árs að aldri.
Pergolesi varð eins konar þjóð-
sagnapersóna og komst það í
tísku, er hélst lengi vel, að eigna
honum ýmis falleg lög, sem í
reynd voru eftir aðra. Stabat
Mater samdi hann síðasta árið
sem hann lifði og þá genginn í
Capuchin-klaustrið í Pozzuoli, eft-
ir að hafa sagt starfí sínu, sem
hirðorgelleikari í Napólí lausu
vegna heilsuleysis.
Flutningur verksins var að
mörgu leyti fallegur, einkum
söngur stúlknakórsins. Einsöngv-
aramir Ágústa og Þuríður gerðu
einnig ýmislegt þokkalega, þó
söngur þeirra í heild væri helst
til „heitur" fyrir þennan kaþólska
og agaða sorgarsöng. Ann Toril
Lingstad lék af öryggi en kvart-
ettinn, sem að hluta til var skipað-
ur nemendum, galt þess nokkuð,
hvað snertir hreina tónstöðu.
Hvað sem því líður var ýmislegt
fallegt að heyra flutt í þessu
elskulega verki eftir snillinginn
Giovanni Battista Pergolesi.
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Páskaóratorían eftir Þorkel
Sigurbjömsson, sem frumflutt var
á laugardaginn fyrir páska í Hall-
grímskirkju, ber yfírtitilinn Up-
prisan en umfjallan verksins, sem
að efni til er sótt í texta guð-
spjallamannanna, fjallar um að-
draganda og sjálfa upprisuna.
Upphaf og niðurlag verksins er
sálmurinn „Páskalamb vér heilagt
höldum" úr grallara Guðbrandar
Þorlákssonar en þátttaka safnað-
ar er ætluð með sálmi Lúthers „í
dauðans böndum Drottinn lá“.
Það sem að öðru leyti einkenn-
ir þessa Páskaóratoríu er að texti
hennar skal að miklu leyti lesinn
og truflaði það framvindu verks-
ins að sífellt var verið að skipta
um lesara. Tónverkið er mjög
gegnsætt og á köflum var t.d.
hljómsveitin vannýtt og notkun
orgelsins lítil. Vel hefði mátt láta
bassahljóðfærin leika t.d. pedal-
atínana, sem var oft eina hlutverk
orgelsins. Hvað sem segja má um
„einfaldleika" formsins, gat að
heyra ýmislegt fallegt í tónvefn-
aði verksins, svo að ekki ætti að
vera ómaksins vert að tónfylla
textann og heilsteypa form þess
meir en hér var gert.
Flutningur verksins fór mjög
vel fram enda er Mótettukór
Hallgrímskirkju góður söngflokk-
ur og hefur á skipa ágætum
söngvurum sem þegar kunna vel
til verka í söng og vel kom fram
í einstaka söngatriðum. Því miður
er ekki tilgreint í efnisskrá hverj-
ir syngja einsöngsstrófur verksins
og má vel vera að þáð sé við
hæfí að eigna þær kómum í heild.
Eitt atriði skar sig þó úr, sem
hreinn einsöngskafli, en í því söng
Rósa Kristín Baldursdóttir ein-
söng á þokkafullan máta en þessi
kafii er fallegast unnin af tón-
skáldinu.
Flutningur verksins var vel
unninn og útfærður af stjórnand-
anum Herði Áskelssyni en kómum
til aðstoðar var smá hljómsveit
auk þess sem tónskáldið lék með
á orgel.