Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Um áhrif
persónuafsláttar á
ráðstöfunartekjur
eftirKristin
Björnsson
í þeirri umræðu sem verið hefur
um kjaramál að undanfómu, hefur
mikil áhersla verið lögð á launa-
hækkanir og aðgerðir stjómvalda.
Minni áhersla og nánast engin um-
flöllun hefur verið um samspil launa-
hækkana og persónuafsláttar á ráð-
stöfunartekjur. Hækkun persónuaf-
sláttar ásamt hóflegum launakröfum
gætu orðið vænlegri til árangurs og
til meiri hagsbóta fyrir marga laun-
þega en beinar prósentuhækkanir
launatekna. Þetta kann að hljóma
undarlega, en hér að neðan verður
reynt að skýra betur hvað átt er við.
Hér verður að greina skýrt á milli
launatekna og hinna raunverulegu
ráðstöfunartekna (það er að segja
launatekjur að frádregnum opin-
bemm gjöldum), enda skipta ráðstöf-
unartekjur launamanna miklu meira
máli en launatekjur. Það er einnig
vert að hafa það í huga að þegar
samið hefur verið um ákveðnar prós-
entuhækkanir, þá hafa þær alltaf
rokið upp allan launastigann og allir
fengið svipaða prósentuhækkun
launatekna að lokum.
Eftir að nýju skattalögin tóku gildi
nú um áramót hafa margar forsend-
ur launahækkana gjörbreyst. Fyrir
þessar breytingar á skattalögunum
gátu launþegar reynt að lækka hlut-
fall tekjuskatts og útsvars með háum
launakröfum, þó _að það kostaði
aukna verðbólgu. Á þann hátt gátu
þeir náð fram hærri ráðstöfunartekj-
um. Ástæðan fyrir því að þetta var
mögulegt var einfaldlega sú, að um
áramót var í raun búið að ákvarða
tekjuskatt og útsvar ársins og allar
hækkanir launatekna komu því ekki
til gjalda fyrr en á næsta ári. Ekki
er þó hægt að segja að þessar hækk-
anir hafi orðið til þess að jafna af-
komu manna, vegna þess að við sömu
prósentuhækkun allra launatekna
hækkuðu ráðstöfunartekjur hinna
hæst launuðu hlutfallslega mest.
Nú er öldin önnur og allar launa-
tekjur skattleggjast strax. Þetta
veldur því að í núverandi tekjuskatts-
lögum hafa hækkanir launatekna
allt önnur áhrif á ráðstöfunartekjur
en í þeim lögum sem giltu fyrir ára-
mót og verða því beinar kauphækk-
anir ekki eins eftirsóknarverðar og
áður fyrir alla launahópa. Þetta sem
hér að ofan hefur verið lýst, hefur
þau áhrif að þeir sem hafa launatekj-
ur á bilinu frá 40 til t.d. 60 þúsund
(það eru engin skörp efri skil), kunna
að fá aðra prósentuhækkun ráðstöf-
unarlauna en aðrir, þó svo allar
launatekjur hækki jafnt. Hvort það
verður meiri eða minni prósentu-
hækkun en aðrir tekjuhópar fá fer
eftir því hver prósentuhækkun pers-
ónuafsláttar verður. Það má því
segja að þama hafí nýju skattalögin
myndað nokkurs konar millihóp
(vandræðahóp), þar sem ráðstöfun-
artekjumar sveiflast meira en launa-
tekjumar.
Kristinn Björnsson
10
8
6
4
0
30 35 40 45 50 55 60 65 70 75 80 85 90 95 100
-f
i
I
Hækkun rá&stöfunarlauna
í prósentum
Súlurit2.
i]Z| 7\7\ Mzazizaza^
Launafekjur í þús. króna
Launatekjur íþús. króna
Við skulum fyrst líta á þá einstakl-
inga sem eru neðan skattfrelsis-
marka. Hjá þeim hækka ráðstöfunar-
tekjumar til jafns við launatekjur séu
þeir ekki mjög nærri skattfrelsis-
mörkum. fÞað getur reynst nokkuð
snúið að meta það hversu nærri
skattfrelsismörkum þessi regla hætt-
ir að gilda, en það ræðst af því
hversu mikið launatelq'ur og persónu-
„Samskipti
foreldra og bama“
eftir Áslaugu
Brynjólfsdóttur
Nýlega fékk ég að gjöf bók, sem
bar ofangreint heiti, en hún kom út
hjá Almenna bókafélaginu á síðast-
liðnu hausti og er eftir dr. Thomas
Gordon í þýðingu Inga Karls Jóhann-
essonar.
Þar sem ég minnist ekki að hafa
séð mikið skrifað um umrædda bók,
datt mér í hug að stinga niður penna
og vekja athygli á þessari óvenjulegu
bók, ef vera kynni að það yrði til
ábendingar einhveijum foreldrum,
sem áhuga hefðu á þessu mikilvæga
efni.
Það verður að segjast að sáralítið
er gert af því hér á landi að fræða
verðandi foreldra um eitthvert mikil-
verðasta hlutverk, sem nokkur tekur
sér fyrir hendur. Það er að taka að
sér ábyrgð á uppeldi lítillar veru,
persónu, sem er algjörlega ósjálf-
bjarga. Ala hana upp og annast
líkamlega og andlega velferð hennar,
svo að hún megi verða farsæll og
góður þjóðfélagsþegn.
0
„I bókinni „Samskipti
foreldra og barna“ er
að f inna ýmsar g-óðar
vísbendingar, hug-
myndir og ráðlegging-
ar, sem geta opnað aug
un og komið að liði.“
Halda má, að þjóðfélagið geri ráð
fyrir að öllum sé runnið í merg og
bein að geta gegnt foreldrahlutverki
án handleiðslu eða fræðslu þar um.
Engin eða sáralítil fræðsla er í skóla-
kerfínu um þennan þátt, þetta sér-
stæða hlutverk, sem flestir taka þó
að sér. Ekki er heldur mikið gert til
að aðstoða foreldra til þess að verða
hæfari við uppeldi bama sinna. Eins
og Gordon segir í bók sinni Foreldrum
er kennt um, en ekki kennt“.
Ljóst má vera að foreldrar eru
mikilvægasta fólkið í lífí nánast allra
bama. Foreldrar þurfa því að vera
sem allra best færir um að veita böm-
um sínum handleiðslu, sýna þeim
skilning og eiga við þau ánægjuleg
samskipti.
Eins og allir vita, þá eru einstakl-
ingar misjafnir og foreldrum mis?
lagðar hendur, enda þarf oft ekki
mikið að fara úrskeiðis, sem síðan
getur vafíð utan á sig, orðið að víta-
hring og vandræðamálum, ef ekki er
bmgðist við í tæka tíð á viðeigandi
máta.
í bók sinni „Samskipti foreldra og
bama“ lýsir dr. Gordon ýmsum leið-
um og aðferðum, sem hann notaði á
námskeiði til að kenna foreldmm
ýmislegt, sem nauðsynlegt er að
kunna og hugsa út í, til þess að verða
hæfari uppalendur.
Gordon telur að með tiltekinni
þjálfun og kunnáttu geti foreldrar
lært hvemig þeir og böm þeirra geta
þroskað með sér innileg og náin
tengsl, sem byggjast á gagnkvæmri
virðingu og sýnir fram á, að „kyn-
slóðabilið" sé óþarft. Hann kallar
þetta „samskiptaaðferð" og er þar
dregin upp heildarmynd í smáatriðum
með ótal dæmum og ýmsum gmnd-
vallaratriðum, sem- nauðsynlegt er
að kunna skil á til þess að vera fær
um að byggja upp og halda við góðum
og gagnkvæmum tengslum við böm-
in eða unglingana við hinar ólík-
legustu kringumstæður.
Hann bendir á, að óhóflega strang-
ir foreldrar geti oft lent í álíka mikl-
um erfíðleikum og þeir sem em of
eftirlátir. Það er í raun hinn gullni
meðalvegur, samningaaðferðin, sem
notuð hefur verið til að leysa allskyns
deilumál á gagnkvæmisgmndvelli,
sem Gordon mælir með.
í fyrstu köflunum er fjallað um
hvemig hjálpa má bömum að finna
eigin lausnir á vandamálum, sem
verða á vegi þeirra, kenna þeim að