Morgunblaðið - 06.04.1988, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Austurland:
Tenging Vopnafjarðar
og Héraðs næsta stór-
verkefni í vegagerð
Egilsstöðum.
Á RÁÐSTEFNU um vegagerð
um hálendi íslands, sem haldin
var á Egilsstöðum fyrir
skömmu, urðu menn ekki sam-
mála um hve tímabærar slíkar
framkvæmdir væru. Nokkurs
uggs gætti meðal heimamanna
um að ef í slíkar framkvæmdir
yrði ráðist, bitnaði það á öðrum
vegaframkvæmdum í kjördæm-
inu og væri ástand vega hér
þannig að við þvi mætti alls
ekki. Töldu menn brýnna að
koma á heilsársvegum um kjör-
dæmið og tengja Vopnafjörð við
Fljótsdalshérað með akfærum
vegi.
Tilefni þessarar ráðstefnu voru
hugmyndir dr. Trausta Valssonar
skipulagsfræðings um heildar-
skipulag landsins þar sem einn
þéttbýliskjami í hveijum lands-
hluta verði efldur til að gegna for-
ystuhlutverki í byggðamálum, at-
vinnu og þjónustu og þeir síðan
tengdir saman með vegagerð um
hálendið. Þetta mundi stytta allar
vegalengdir milli landshiuta veru-
lega. Þannig mundi vegalengdin
milli Reykjavíkur og Egilsstaða
styttast um nálega 250 km ef af
þessu yrði.
Trausti telur að slík vegalagning
sé ekki óheyrilega dýr og bendir á
að þama sé yfirleitt gott vegagerð-
arland. Fyllingarefnið nærtækt og
úrkoma lítil á Sprengisandsleið og
norðan Vatnajökuls þannig að
slíkur vegur gæti verið fær 7—8
mánuði á ári án mikils kostnaðar.
Helgi Bjamason hjá Landsvirkj-
un benti á að Landsvirkjun hefði
öðlast hvað mesta reynslu hérlend-
is af vegagerð um hálendið sam-
fara virkjunarframkvæmdum
sínum. Helgi taldi að vegagerð
vegna virkjana og fyrir samgöngur
ætti að fara saman til að draga
úr kostnaði og benti á að við vega-
gerð á hálendinu þar sem hægt
væri að ýta upp efninu á staðnum,
kostaði hver km um V2 milljón
króna án bundins slitlags. Helgi
sagði að þegar hafnar yrðu fram-
kvæmdir við Fljótsdalsvirkjun
mundu starfa þar um 900 manns.
Þar af 6—700 frá öðrum. lands-
hlutum. Flutningur þessara manna
ásamt aðföngum væri óleyst
vandamál en þama komi hálendis-
vegurinn sterkt inn í myndina.
mál og tóku undir orð Sigurðar
Símonarsonar, bæjarstjóra, í upp-
hafi ráðstefnunnar að „orð væm
til alls fyrst".
— Björn
Frá ráðstefnunni um vegagerð á
hálendi íslands sem haldin var á
Egilsstöðum.
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Veista? Lactacyd léttsápan styrkir vamir
húóarinnargegn sýklum og sveppum!
Lactacyd léttsápan hefur þann einstaka eiginleika að efla
náttúrulegar varnir húðarinnar. Daglega eyðum við
þessum vörnum með „venjulegum sápuþvotti“.
Lágt pH-gildi
Sýrueiginleikar
Hlutlaust
--------------14
Hátt pH-gildi
Lútareiginleikar
Hilmar Finnsson hjá Vegagerð
ríkisins gerði grein fyrir gífurlega
löngu vegakerfi á Austurlandi en
þjóðvegir hér em um 1.384 km.
Þar af er komið bundið slitlag á
270 km. Malarvegir með 10 tonna
burðarþol eða meira em 380 km
en vegir með minna burðarþol 734
km eða rúmlega helmingur alls
vegakerfis kjördæmisins, þannig
að mikið verk væri hér óunnið.
Hjá Hilmari kom fram að næsta
stórverkefni hjá vegagerðinni á
Austurlandi yrði tenging Vopna-
fjarðar við Hérað. Þar væri vegar-
stæði ekki fullmótað ennþá en
annaðhvort yrði farið um Fagradal
eða Kattardal. Gert væri ráð fyrir
að þessar framkvæmdir gætu haf-
ist eftir tvö ár og kostuðu um 200
milljónir.
Á ráðstefnunni komu einnig
fram sjónarmið náttúmvemdar-
samtaka, ferðamálasamtaka og
Samtaka um jafnrétti á milli lands-
hluta auk mjög margra sem þátt
tóku í almennum umræðum. Krist-
inn Pétursson, varaþingmaður,
setti fram þá hugmynd að stofna
hlutafélag um þessa framkvæmd
og leggja síðan vegatoll á þá um-
ferð sem um veginn færi. Ánnars
vom ráðstefnugestir sammála um
að tímabært væri að ræða þessi
Súr vöm
Sýklar og sveppir þrífast síður í súru umhverfi. Súrir eigin-
leikar húðarinnar eru náttúruleg vörn hennar gegn þessum
vágestum. „Venjulegar sápur“ eru lútarkenndar (basískar) og
lúturinn eyðir sýru húðarinnar. Jafnframt verða lútarleifar til
þess að valda kláða á viðkvæmum stöðum s.s. við kynfæri og
endaþarm. Þannig getur „venjulegur sápuþvottur" orðið til
óþæginda og brotið þessar náttúrulegu varnir okkar niður.
Efnasamsetning
I Lactacyd léttsápunni er Lactoserum, mjólkursýra og fosfór-
sýra sem gerir lágt pH-gildi sápunnar og viðheldur eðlilegu
sýrustigi húðarinnar. Laurylsúlföt sem gera Lactacyd að
virkri sápu og jarðhnetuolía sem kemur í veg fyrir húðþurrk.
Þessi samsetning og hið lága pH-gildi gera samanburð á
„venjulegum sápum“ og Lactacyd hreinlega óþarfan.
Notkun
Það er engin tilviljun að margir læknar mæla með Lactacyd:
til daglegrar umhirðu húðar, hárþvotta, þvotta á kynfærum,
fyrir þurrar og sprungnar vinnuhendur, óhreina húð (bólur og
húðormar), viðkvæma húð (i nára eða öðrum húðfellingum)
svo og fyrir ungbörn (erting á bleiusvæði) enda er Lactacyd
léttsápan ofnæmisprófuð.
pH-gildið
Sýrustig húðarinnar er mælt og gefið upp í pH-einingum.
„Venjulegar sápur“ hafa hátt pH-gildi, hærra en 7 (u.þ.b.
10—11) og eru því lútarkenndar. Lactacyd léttsápan hefur
hins vegar lágt pH-gildi eða 3,5 sem þýðir að hún er súr.
Lactacyd er fljótandi sápa með eða án ilmefna í 350 ml plast-
flöskum með spraututappa. Allar upplýsingar á íslensku.
MUNDU! Húðin heldur uppi sínum eigin.vörnum
gegn sýklum og sveppum. Efvið notum ranga sápu
eyðum við þessum vörnum.
Lactacyd léttsápan fæst í Fjarðarkaupum, Glæsibæ, Hag-
kaupum og Miklagarði. Og að sjálfsögðu í næsta apóteki.