Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 27

Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 27 Morgunblaðið/Björn Blöndal Nú hafa bandarískir herlögreg'lumenn tekið sér stöðu að nýju eftir 8 ár í hliðunum á Keflavikurflugvelli. Keflavíkurflugvöllur: Hert eftirlit við fluffvallarhliðin Keflavík. —* BANDARÍSKIR herlögreglumenn gæta nú hliðanna inn á Keflavikur- flugvöll ásamt íslenskum lögreglumönnum í samræmi við samkomulag milli varnarmálaskrifstofunnar og varnarliðsins. Að sögn Sævars Lýðs- sonar fulltrúa lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli tók þessi breyting gildi þann 14. mars sl. og nú komast menn ekki lengur inn á völlinn án þess að hafa tilskilin skilriki. Sævar sagði að nú væru tveir íslenskir lögreglumenn ásamt einum bandarfskum í hvoru hliði og hefðu menn almennt tekið vel þessari breytingu og hertu eftirliti. Sævar sagði ennfremur að almenn umferð færi um tvö hlið, aðalhliðið sem væri opið allan sólarhringinn og Grænáshliðið sem væri opið virka daga frá kl. 07 á morgnana til kl. 20 á kvöldin, en lokað um helgar. Undanfarin 8 ár hafa íslenskir lögreglumenn eingöngu annast þessa gæslu þar sem farþegar í millilanda- flugi urðu að fara um hliðin á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til og frá gömlu flugstöðinni. En með til- komu nýju flugstövarinnar er þessi umferð flugfarþega um vamarsvæð- ið liðin tíð. - BB Grillstaður brann til kaldra kola Grillstaðurinn Rita í Skipholti, Reykjavík, brann til kaldra kola aðfaranótt föstudagsins langa. Þá komst reykur inn i tvö fyrirtæki i sama húsi, en skemmdir urðu þar ekki miklar. Þegar slökkviliðið í Reykjavík kom á vettvang var mikill eldur í grill- staðnum og voru rúður sprungnar. Mikinn reyk lagði frá staðnum og komst hann inn í tvö fyrirtæki í sama húsi, veitingastaðinn Hrafninn og Henson. Skemmdir urðu þó ekki verulegar í þessum fyrirtækjum. Slökkviliðinu gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins, en til þess þurfti að rifa niður milliloft. Talið er að eldurinn hafi kraumað nokkuð lengi í Ritu, eða allt frá því að staðn- um var lokað kl. 18 daginn fyrir skírdag, 30. mars. Þykir með ólíkind- um að enginn hafi orðið var við eld- inn fyrr en aðfaranótt fostudagsins. Að öðru leyti var rólegt hjá slökkviliðinu í Reykjavík um páskana og fá útköll. Föstudaginn langa fór slökkviliðið að Kópavogshæli, þar sem eldvamarkerfí hafði farið í gang, en enginn var eldurinn. Sama var uppi á teningnum þegar slökkviliðið fór að Borgarspítala í hádeginu í gær, þar reyndist um bilun í eldvam- arkerfi að ræða. —tm— cnBncc vinur. SUNNLENSK SVEITABOLL Arin '59-67 rifjuð upp Þeir sem koma fram eru: Hjördís, Úlla, Arnór, Sídó, Steini Guðmar, Halli, Bjössi rak, Óli Back, Rúnar og Gvendur ásamt hljómsveitinni KARMA, sem annast undirleik og leikur fyrir dansi í anda kvöldsins. tjútt. Halli og Laddi sjá um kynn- ingar og rifja upp atburði frá þessum árum. — Dansarar sýna tvist og rock með ótrúlegum sveiflum. Hljómsveitin LIMBÓ kemur fram í sinni upprunalegu mynd. Almennur dansleikur á eftir með KARMA til kl. 03 Miðapantanir og miðasala er í Hótel Selfoss sími 99-2500 Bjóðum uppá helgarpakka. Önnumst sætaferðir sé þess óskað. Aukasýning laugardaginn 9. apríl vegna fjölda áskorana. Þríréttaður veislumatur hóPe/ SELFOSS Stórbrotin skemmtun sem enainn má missa af! Húsið opnaðkl. 19.00 VEITUM HÓPAFSLÁTT! 60 ára afmæli Kvenstúdenta- félags Íslands Kvenstúdentafélag íslands og Félag íslenskra háskólakvenna minnast 60 ára afmælis á Hótel Borg annað kvöld, 7. aprfl, og hefst hátíðin klukkan 19.,30. Miðasala verður í dag, miðviku- dag, frá klukkan 16-19, á Hótel Borg, anddyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.