Morgunblaðið - 06.04.1988, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Bretland:
Einmuna blíða um páskahelgina
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
VEÐUR var með afbrigðum
gott í Bretlandi um páskahelg-
ina. Umferð gekk greiðlega
fyrir sig að mestu. Verkfall sjó-
manna á feijum P&O-fyrirtæk-
isins í Dover truflaði umferð
til meginlandsins. Kjarnorku-
andstæðingar söfnuðust saman
við Aldermaston til þess að
minnast þess, að 30 ár eru lið-
in, síðan þeir gengu mótmæla-
göngu í fyrsta sinn.
Veðurfræðingar höfðu spáð
slæmu veðri á Bretlandseyjum um
páskahelgina, en raunin varð sú,
að veðrið var sérlega gott, sólfar
með hita á daginn upp í 10-15
gráður.
Ferjufyrirtækin vöruðu ferða-
menn við að leggja í ferð til megin-
landsins án þess að hafa öruggt
far vegna verkfalls sjómanna hjá
P&O-fyrirtækinu í Dover. Ferða-
langar virðast hafa tekið þessa
viðvörun alvarlega, en þó þurftu
sumir að bíða ríflega sólarhring á
fostudag og laugardag. Eftir að
verkfall leystist meðal franskra
sjómanna, komst umferð yfir
Ermarsund í eðlilegt horf.
Tíu þúsund manns söfnuðust
saman við Aldermaston til að
mótmæla kjamorkuvopnum og þá
sérstaklega Trident-flaugunum,
sem stjóm Bretlands hefur ákveð-
ið að skuli verða um borð í kaf-
bátum hennar hátignar. Búist
hafði verið við mun fleira fólki.
Samkvæmt nýútkominni skoðana-
könnun styðja 69% Breta þá
ákvörðun að kaupa Trident-flaug-
ar frá Bandaríkjunum í kafbát-
ana. Fjórir voru teknir fastir í
mótmælunum.
MULTIPLAN 11.4.
INNRITUN TIL
8.APRÍL
SÍMI:
621066
ÁÆTLANAGERÐ, TÖLULEG
ÚRVINNSLA OG SAMANBURÐUR
ÓLÍKRA VALKOSTA ERU D/EMIGERÐ
VERKEFNI MULTIPLAN.
Multiplan er mest notaði töflureiknir á Islandi
og þótt víðar væri leitað.
LEIÐBEINANDI: Ólafur H. Einarsson, kerfisfræðingur.
TÍMI OG STAÐUR: 11.-14. apríl kl. 13.30-17.30 að Ánanaustum 15.
RITVINNSLUKERFIÐ WORD 11.4.
INNRITUN TIL
Q.APRÍL
SÍMI:
621066
SÉ RITVINNSLA EITTHVAÐ FYRIR ÞIG,
ÁTTÞÚ ERINDI VIÐ WORD KERFIÐ,
eitt hið öflugasta og mest notaða hérlendis.
Word kerfið inniheldur m.a. sjálfvirkt efnisyfirlit
og atriðaskrá. I því má vinna samtímis
á 7 mismunandi skrár.
EFNI:
• Skipanir kerfisins • Uppsetning skjala og bréfa.
• ísienskir staðlar • Æfingar.
LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari.
TÍMI OG STAÐUR: 11.-14. aoríl kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
TOLVUGRUNNUR 13.4.
INNRITUNTIL
12.APRÍL
SÍMI:
621066
Á 40 TÍMUM ÖÐLAST ÞÚ GRUNDVALLAR-
ÞEKKINGU Á EINKATÖLVUM OG H/EFNI
TIL AÐ NOTA ÞÆR AF ÖRYGGI
Jafnframt er þetta nárriskeið hið fyrsta í röð námskeiða sem mynda
annaðhvort Forritunar- og kerfisnám eða þjáifunarbraut, eftirþví hvora
leiðina þú kýst, hyggirþú á framhaldsnám í tölvufræðum. Hið fyrra er 200
klst. nám og hið síðarnefnda 40 klst. nám, að grundvallarnámi loknu.
NÁMSEFNI: Kynning á einkatölvum • Helstu skipanir stýrikerfisins
MS-DOS og öll helstu hjálparforrit þess • Ritvinnslukerfið WORD,
töflureiknirinn MULTIPLAN og gagnasafr.skerfið dBASE 111+.
Við bjóðum dagnámskeið kl. 8.30 - 12.30 og kvöidnámskeið
kl. 19.30 - 22.30, tvo og þrjá daga í viku, um 4ra til 5 vikna skeið.
Kennt er að Ánanaustum 15. Bæði námskeiðin hefjast 13. apríl.
Þetta er lengsta og besta byrjendanámskeið fyrir notendur
einkatölva sem völ er á.
VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SINA
TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSUM NÁMSKEIÐUM.
Stjómunarfélag Islands
TÖLVUSKOLI
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Reuter
Elgurinn hjólaður
Ár hafa flætt yfir bakka sína undanfarið í Queensland-fylki í
Ástralíu. Þessi glaðhlakkalegi piltur lætur það ekki aftra sér
heldur hjólar ótrauður sinn veg.
Kolumbía:
Fjöldamorð framin
á páskadagshátíð
Bogota, Reuter.
GRÍMUKLÆDDIR menn skutu á
fólk, sem var að halda hátíð á
páskadag í smábæ í norðurhluta
Kolumbíu. 28 manns létu lífið og
niu særðust alvarlega. TaUð er
Uklegt að mennimir hafi verið að
leita að utanaðkomandi manni
sem hafi falið sig meðal hátíð-
argestanna, að sögn sveitarsljór-
ans í Cordoba-héraði á mánudag.
Sveitarstjórinn, Jose Gabriel Am-
in, sagði að eitt af því sem lögregla
rannsakaði væri hvort hugsanlega
hefði utanaðkomandi maður reynt
að fela sig meðal þorpsbúa á páska-
dagshátíðinni í smábænum Mejor
Esquina sem er 400 kílómetra norður
af höfuðborginni Bogota. Amin sagði
að ekkert benti til þess að morðin
hefðu verið framin af pólitískum
ástæðum, en bætti við að mennimir
sem þau frömdu gætu verið tengdir
eiturlyfjasmyglurum. Sagði hann það
te§a rannsókn að óttaslegnir íbúar
þorpsins neituðu að greina lögreglu
frá þvi sem gerðist af hræðslu við
hefndaraðgerðir.
Að sögn lögreglu komu árásar-
mennimir í bifreið til bæjarins um
klukkan ellefu fyrir hádegi og skutu
á þorpsbúa sem voru að fagna páska-
hátíðinni með dansi í samkomuhúsi.
Skutu þeir á mannfjöldann án þess
að miða að einhveijum sérstökum.
Eftir skothríðina skipuðu þeir fólkinu
að leggjast niður og skutu nokkra
menn liggjandi. Þeir leyfðu hljóð-
færaleikurum að fara úr húsinu þar
sem hátíðarhöldin fóru fram.
Þetta er í þriðja sinn á þessu ári
sem fjöldamorð em framin í Kol-
umbíu. Hreyfing ný-nasista hefur
lýst sig ábyrga á fyrri tveimur at-
burðunum þegar yfir 30 manns vom
skotnir að tilefnislausu, en enginn
hefur verið handtekinn vegna morð-
anna. Enginn hefur iýst ábyrgð á
hendur sér vegna morðanna í Mejor
Esquina á páskadag.
Borgastríð Irana og
Iraka heldur áfram
Hlé varð á loftárásum um páskana
Bagdið, Reuter.
ÍRAKAR segjast hafa skotið
tveimur flugskeytum á Teheran,
höfuðborg Trans, í gær. Einnig
skutu þeir eldflaugum á borgfina
helgu Qom og gömlu höfuðborg-
ina Esfahan. A mánudag gerðu
tranir flugskeytaárás á irösku
oUuvinnslustöðina Kirkuk.
Talsmaður íraska hersins segir að
íranskt flugskeyti hafí lent í íbúa-
hverfí í Kirkuk og valdið talsverðu
manntjóni. íranir segjast hafa skotið
eldflauginni til að hefna fyrir loftár-
ásir íraka á Esfahan og Tabriz. Árás-
imar bám vott um að borgastríðið
væri hafíð að nýju eftir þriggja daga
hlé um páskana á meðan Turgut
Ozal, forsætisráðherra Tyrklands,
var i heimsókn í Bagdað.
írakar hafa skotið 128 flugskeyt-
um á byggð ból í íran síðan borga-
stríðið hófst seint í febrúar. íranir
hafa skotið rúmlega 50 flugskeytum
á íraskar borgir.