Morgunblaðið - 06.04.1988, Side 39
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
39
Ptorgp Útgefandi snMftMfe Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 60 kr. eintakið.
Fjöllin taka
sinn toll
Apáskum jafnt sem á öðr-
um frídögum sækja menn
í vaxandi mæli út í óbyggðir.
Dag er tekið að lengja og tæki
og búnaður eru með þeim
hætti, að auðvelt er að komast
leiðar sinnar yfir snævi þakta
jörðina, jafnvel auðveldara á
þessum árstíma en endranær.
Óbyggðimar heilla en á hinn
bóginn eru veður válynd á ís-
landi um mánaðamótin mars
og apríl, hættumar leynast
víða og geta reynst mannskæð-
ar eins og sannaðist um hátíð-
ardagana. Sendir Morgunblað-
ið þeim samúðarkveðjur, sem
eiga um sárt að binda eftir
sorgleg slys á hálendinu. A
hveiju ári taka fjöllin sinn toll
á íslandi ekki síður en hafið.
Fyrir helgina birtist áskorun
frá Umferðarráði til ferðalanga
í óbyggðum eða annars staðar
þess eftiis að þeir veittu ná-
kvæmar upplýsingar um
ferðaáætlun sína. Landssam-
band hjálparsveita skáta og
Landssamband flugbjörgunar-
sveita tóku við upplýsingum
um ferðir manna í samvinnu
við Securitas. Þá hvatti Um-
ferðarráð fólk einnig á að búa
sig í samræmi við aðstæður.
Upplýsingum um færi á alfara-
leiðum var miðlað í Ríkisút-
varpinu um alla helgina og
veðurfréttir vom að sjálfsögðu
á sínum stað. Þegar hættu bar
að höndum eða slys varð á
mönnum bmgðust björgunar-
sveitir skáta, flugbjörgunar-
sveita, Slysavamafélagsins,
starfsmenn Landhelgisgæslu,
þyrla hennar og fleiri skjótt
við. Ef tekin er líking úr hem-
aði mætti segja, að um hátíð
eins og páskana sé fjöldi
manna viðbúinn útkalli og til
taks ef hættuástand skapast
og undirbúningi undir helgina
hjá fjölmennum hópi fólks er
hagað í samræmi við það.
Fómfýsi af því tagi verður
seint þökkuð og raunar aldrei
fullþökkuð af þeim, sem njóta
langþráðrar hjálpar á örlaga-
stundu.
Þær varúðarráðstafanir sem
gerðar hafa verið í því skyni
að minnka slysahættu í vetrar-
og óbyggðaferðum hafa þegar
skilað miklum árangri. Eftirlit,
skráning ferðaáætlana og bætt
flarskiptatækni auðveldar við-
brögð, ef eitthvað fer úrskeið-
is. Er ekki vafí á að haldið
verður áfram á sömu braut af
áhugamönnum og björgunar-
sveitum. Þránni eftir að kynn-
ast landinu í allri sinni hrika-
fegurð verða ekki settar neinar
skorður. Menn munu leggja í
þær ferðir sem þá fýsir að fara
þegar þeir sjálfír ákveða. Slys
verða jafnt í byggð sem
óbyggðum en allir viðurkenna
auðvitað að hættan er önnur
og oftast meiri í öræfum en
alfaraleið og það er einkum
vegna harðinda og veðravíta
sem fjöllin taka sinn toll.
ísland er ekkert leikfang,
allra síst að vetrarlagi.
Skemmdar-
verk í Aust-
urstæti
Aðfaranótt skírdags var
fjöldi fólks í miðborg
Reykjavíkur eins og oft endra-
nær, þegar frí gengur í garð.
Gengu einhverjir í hópnum
lengra í skemmdarstarfsemi en
áður og brutu niður stallinn
undir styttunni af Tómasi Guð-
mundssyni þjóðskáldi í Austur-
stræti. Var styttan sjálf skilin
eftir á götunni en síðan sást
farið með hana í bifreið og
fann lögreglan hana þar. Virð-
ist svo sem hlutur umráða-
manna bifreiðarinnar hafi verið
sá, að þeir vildu bjarga stytt-
unni frá því að verða eyðilögð
af skemmdarvörgunum.
Umræður um framferði
þeirra sem fylla miðborg
Reykjavíkur á síðkvöldum hafa
verið miklar og því miður ekki
alltaf af ástæðulausu, stundum
lítur Austurstræti út eins og
eftir götubardaga á morgnana.
Kaupmenn við strætið hafa
vart undan að fá nýjar glugga-
rúður. Aðfaranótt skírdags var
þó í fyrsta sinn ráðist til atlögu
við styttuna af Tómasi Guð-
mundssyni. Var það gert af
þvílíkri heift að með ólíkindum
er. Hljóta einhverjir að hafa
séð hverjir þar voru að verki,
enda ekkert áhlaupaverk að
brjóta niður styttuna. Nú er
að hafa hendur í hári þeirra
sem það gerðu. Þeir þurfa aug-
sýnilega að læra sína lexíu,
áður en þeir fremja ódæði sín
á lifandi fólki, en ekki mynda-
styttum.
Drengur lést og tveir menn
slösuðust er jeppi valt ofan í gil
ferðin seint. Einnig lögðu félagar
úr slysavamadeildinni Jökli á Jök-
uldal upp frá Aðalbóli í Hrafnkels-
dal um klukkan 22 á sex snjósleðum
búnum Lórantækjum. Tóku þeir
læknana úr snjóbílnum með sér í
Snæfellsskála og komu þangað
skömmu á eftir Tanna. Læknamir
sáu eftir það um sjúklingana.
NÍU ára gamall drengur lést þeg-
ar jeppabifreið sem hann var
farþegi í valt ofan í gil á hálend-
inu norðaustan Vatnajökuls laug-
ardaginn fyrir páska. Ökumann-
inum og öðrum farþega var
bjargað mikið slösuðum og liggja
þeir á gjörgæsludeild Borgarspít-
alans. Þeir voru í gær taldir úr
lífshættu. Drengurinn sem lést
hét Vilhjálmur Birgisson, fæddur
29. ágúst 1978, til heimilis að
Astúni 14 í Kópavogi. Mennirnir
sem slösuðust eru Birgir Brynj-
ólfsson, faðir Vilhjálms, og Ivar
Magnússon.
Bronco-jeppinn sem þeir voru í
var fremstur í fimm jeppa lest sem
var að koma ofan af Vatnajökli eft-
ir ferð yfír endilangt hálendið. Sly-
sið varð klukkan 18.40 á laugardag.
Þá var veður ekki slæmt, en lága-
renningur með köflum þannig að
skafrenningurinn huldi gilið. Ekið
var eftir leiðsögn Lórantækja. Fólk-
ið í næsta bíl sem ekið var fast á
eftir varð ekki vart við neitt fyrr
en fremsti bíllinn var skyndilega
horfinn og mátti litlu muna að hann
færi einnig fram af gilbarminum.
Bronco-jeppinn stakkst á framend-
ann 6—8 metra ofan í gilið og á
toppinn og lagðist við það saman.
Tveir mannanna urðu undir bílnum
og þurftu ferðafélagamir að tjakka
bílinn upp til að ná þeim undan.
Fólkið í jeppunum sendi strax út
neyðarkall og náði sambandi við
Gufunesradíó og komið þannig boð-
um til Landhelgisgæslunnar. Sveinn
Sigurbjamarson á Eskifírði var á
ferð í snjóbíl sínum Tanna í Þjófad-
al, um 10 km frá slysstaðnum, þeg-
ar slysið varð. Var hann í talsam-
bandi við ökumann jeppans þegar
slysið varð. „Við vorum að spjalla
saman um staðsetninguna. Hann
var að lýsa því hvar hann væri
staddur en datt svo út og svaraði
mér ekki aftur," sagði Sveinn í sam-
tali við Morgunblaðið. „Eg vissi
ekki hvað hafði gerst fyrr en neyðar-
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, frá hægri: Benóný Ásgrímsson
flugstjóri, Jakob Ólafsson flugmaður, Sigurður Steinar Ketilsson
stýrimaður og Friðrik Sigurbergsson læknir.
ferðamenn og að flestu leyti vel
útbúnir. Bíll þeirra var ekki með
veltigrind.
Slösuðu mennimir voru fluttir í
Tanna og einum jeppanum í skálann
við Snæfell um nóttina. Sveinn sagði
að ferðin hefði gengið seint. Glóru-
laus skafrenningur hefði skollið á
þegar þeir voru að leggja af stað
auk þess sem mennimir hefðu verið
kvaldir og ekki þolað neinn hristing
í bílunum. Þeir voru komnir í Snæ-
fellsskála rétt fyrir klukkan 3 um
nóttina og vom þá búnir að vera 5
tíma á leiðinni frá slysstaðnum.
Slysavamadeildin Gró á Egils-
stöðum var kölluð út skömmu eftir
að neyðarkall barst frá jökulfömn-
um og fór snjóbíll frá þeim með tvo
lækna áleiðis á slysstaðinn, en sök-
um veðurs og ófærðar sóttist þeim
Þyrla Landhelgisgæslunnar hélt
af stað austur á laugardagskvöldið
en vegna veðurs og ísingar komst
hún ekki stytstu leið yfir hálendið
og varð að taka meira eldsneyti í
Keflavík og þræða ströndina austur
í Homafjörð. Kom hún til Hafnar
um klukkan 23 og þá var veður á
slysstað orðið það slæmt að þyrlan
gat ekki athafnað sig. Þegar veðrið
gekk niður á páskadagsmorgun hélt
þyrlan á slysstað um klukkan 6 og
flutti þá slösuðu til Egilsstaða. Það-
an vom þeir fluttir í tvéimur sjúkra-
flugvélum ásamt lækni og lagðir inn
á gjörgæsludeild Borgarspítalans.
Mennimir brákuðust eða brotn-
uðu illa, til dæmis á bijósti, og áttu
báðir í öndunarerfíðleikum. Þeir
vom enn á gjörgæsludeild í gær en
úr lífshættu og heilsaðist vel eftir
atvikum.
kallið kom stuttu síðar.“ Sveinn
sagðist hafa snúið Tanna og komið
fyrstur á slysstaðinn. Snjóbíllinn er
búinn Lórantækjum.
Sveinn sagði að ferðafélagarnir
hefðu verið búnir að losa mennina
undan bílnum þegar hann kom að
og flytja þann sem virtist minna
slasaður upp í einn jeppann. Þau
hefðu ekki talið þorandi að flytja
hinn og hlúð að honum í gilinu. Fór
Sveinn á snjóbílnum niður í gilið og
var þá ákveðið að lyfta manninum
upp í bílinn. Með Sveini í Tanna var
hjúkmnarfræðingur og sagði Sveinn
að það hefði komið sér vel.
Sveinn taldi að jeppamir hefðu
verið á nokkum veginn réttri leið
en þetta slys sýndi að hættumar
leyndust víðar en fólk almennt gerði
sér grein fyrir. Hann sagði að þetta
gil væri sérstaklega hættulegt þar
sem það sæist illa við svona aðstæð-
ur. A ýmsum öðmm stöðum er gilið
mun dýpra en þama þó var. Menn-
imir sem slösuðust vom þaulvanir
Annar maðurinn sem slasaðist færður úr flugvél í sjúkrabQ á Reykjavikurflugvelli á páskadag.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tanni.
Ljósmynd: Oddur Sigurðsson
Snjósleðafólkid var á ferð eftir öxlinni við botn Gijótárdals sem sést fremst á myndinni. Maðurinn sem
lést ók fram af öxlinni hinum megin og féll niður eftir um 300 metra hamravegg og skriðum. Á mynd-
inni sem tekin var úr flugvél í norðurátt sést yfir Gtjótárdal, sem er hinum megin við öxlina og niður
í Hjaltadal, sem er fjærst.
Banaslys á Tröllaskaga
UNGUR Skagfirðingur lést í vélsleðaslysi í Gijótárdal á Trölla-
skaga á föstudaginn langa. Hann hét Ásgeir Þröstur Bengtson,
22ja ára, fæddur 22. maí 1965, til heimilis að Skógargötu 18 á
Sauðárkróki. Ásgeir Þröstur starfaði sem vélamaður og bílstjóri
hjá Króksverki hf. og lætur eftir sig unnustu, Helgu Jónsdóttur.
Sjö menn, aðallega af bæjum í
Hjaltadal, voru á ferð á sex vél-
sleðum. Slysið varð um klukkan
15 er þau voru á ferð uppi á öxl
við botn Gtjótárdals, er gengur
suður úr Hjaltadal, um klukkutíma
sleðaferð frá innsta bæ í vestan-
verðum Hjaltadal. Ásgeir Þröstur
fór einn frá hópnum þegar verið
var að losa einn vélsleðann úr
snjóskafli. Þegar farið var að leita
hans lágu förin eftir vélsleða hans
beint út af snarbröttu um 300
metra háu klettabelti og var hann
látinn er að var komið. Að sögn
yfírlögregluþjónsins á Sauðár-
króki var veður ekki slæmt þegar
slysið varð og ekki vitað nánar
hvað olli því að maðurinn ók út
af klettabrúninni.
Snjósleðafólkið hélt þegar til
byggða og gerði lögreglunni við-
vart. Um kvöldið var gerður út
leiðangur til að ná í hinn látna.
SAUÐÁRr
m
Reykholt:
Framkvæmdir við kirjkju og
Snorrastofu hefjast í vor
Kleppjárnsreykjum.
Aðalsafnaðarfundur í Reyk-
holtsskókn nú í marslok sam-
þykkti að hefjast handa við bygg-
ingu á fyrsta áfanga Snorrastofu
og nýrrar kirkju i Reykholti á
vori komanda.
Var samþykkt að steypa upp
grunn og plötu beggja húsanna.
Nú er verið að ljúka við endanlegar
teikningar og eru þær að mestu
leyti í samræmi við tillögur sem
áður hafa verið kynntar í bæklingi.
Kirkjan mun taka um 160 manns
í sæti, kór verður rúmgóður og inn
af honum verða skímarkapella og
líkhús til hvorrar handar. Að því
er stefnt að hljómburður verði góð-
ur og að kirkjan henti sem best til
tónlistarflutnings.
Snorrastofa skiptist í þrennt; í
fræðimannaíbúð, bókhlöðu og sýn-
ingarsal. Helstu breytingar em þær
að íbúð fræðimanns fær meira pláss
en upphaflega var ráð fyrir gert.
Jafnframt er rými bókhlöðunnar
sjálft aukið. Bókhlaðan hefur auk
þess mikið pláss í kjallara kirkjunn-
ar. Eftir sem áður er gert ráð fyrir
salemum fyrir ferðafólk.
Mikill stuðningur er við kirkju-
bygginguna innanlands og í Nor-
egi. Ýmsir hafa lagt peninga til
byggingarinnar og heitið stuðningi
bæði innan sóknar og utan.
í tilefni af 30 ára afmæli Se-
mentsverksmiðjunnar ákvað stjórn
hennar að gefa allt sement í bygg-
inguna en í hana munu fara um
200 tonn. Ásgeir Pétursson stjóm-
arformaður Sementsverksmiðjunn-
ar sagði að íslenska þjóðin ætti
skuld að gjalda við Reykholtsstað.
í tilefni af afmæli verksmiðjunnar
og velgengni hennar fannst stjórn-
inni rétt að syna það í verki að
standa við bakið á Reykholtsskókn
að byggja upp eitt mesta sögu- og
menningarsetur í landinu.
Norska ríkið mun hafa heitið
myndarlegum stuðningi við Snorra-
stofu og er talað um allt að eina
milljón norskra króna.
Áratugum saman hafa forystu-
menn í menningamálum í Héraði
rætt um nauðsyn þess að koma upp
í Reykholti aðstöðu til að halda upp
á minningu Snorra Sturlusonar og
kynna þann arf sem honum tengist
í fortíð og nútíð. Á síðustu ámm
hefur þetta verið sífellt brýnna
vegna vaxandi fyjölda ferðamanna
bæði innlendra og erlendra í Reyk-
holti. Svo sem áður hefur komið
fram í Morgunblaðinu beitti söfnuð-
urinn sér fyrir því að á þessu yrði
ráðin bót í tengslum við kirkjubygg-
inguna. „Ekki er seinna vænna en
láta talinu lokið og heíja fram-
kvæmdir," sagði séra Geir Waage
sóknarprestur í Reykholti.
Nú er mikilvægt að heimamenn
leggist á eitt með fíáröflunamefnd
kirkjunnar að gera áformin að veru-
leika.
- Bernhard
Grænmetisuppboð:
Jafnara verð á gúrkum
MEÐALVERÐ á gúrkum hækk-
aði um tæpar 10 krónur á öðru
grænmetisuppboði Sölufélags
garðyrkjumanna sem haldið var
í gærmorgun. Þá var minni mun-
ur á hæsta og lægsta verði en á
fyrsta uppboðinu.
Kristján Benediktsson uppboðs-
haldari sagði að á uppboðið hefðu
komið 3,2 tonn af gúrkum og selst
upp. Verðið hefði verið á bilinu
97-114 kr. kílóið, 101,43 kr. að
meðaltali. Meðalverðið var um 92
krónur á fyrsta uppboðinu, en áður
var sambærilegt verð hjá Sölufélag-
inu yfir 200 krónur.
Meðalverð á sveppum lækkaði
heldur frá fyrra uppboði, meðal-
verðið var 445—477 krónur eftir
tegundum, en var um 500 kr. á
fyrsta uppboðinu. Þá var selt nokk-
uð öðrum tegundum, svo sem stein-
selju, salati og graslauk.
Næsta uppboð verður í dag
klukkan 7.30 að morgni.