Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
41
Metumferð á hálendinu um páskana:
Bj örgnnarsveitir
leituðu í fjórgang
Þörf á meiri fræðslu um vetrarferðir
segir Hálfdán Henrysson hjá SVFÍ.
MJÖG margt fólk var á ferðalögnm í óbyggðum og á hálendi landsins
um páskahelgina. Algengt var, að fólk væri á illa búnum bflum og
sjálft vanbúið til vetrarferða, að sögn fulltrúa björgunarsveita og
SVFÍ, sem Morgunblaðið hafði samband við í gær. Leitað var tveggja
manna á Botnsheiði á laugardag og beðið var um aðstoð vegna jeppa,
sem festist f sprungu á Langjökli. Þá var fólk á bílum norðan Hofs-
jökuls í vandræðum, hafði villst, og var því hjálpað á leið. Annan dag
páska fóru menn frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu til aðstoðar við
fólk, sem fest hafði bíla sína norðan Tindafjallajökuls. Hálfdan Henrys-
son hjá SVFÍ sagði, að þessa páskahelgi hefði verið áberandi, hve
margt fólk var á ferð um hálendið og jökla á bílum, sumt illa búið til
slíkra ferða. Hann sagði nauðsyn á meiri fræðslu og áróðri um að
fólk fari varlega f fjallaferðum á þessum árstíma.
Hálfdan Henrysson sagði það breyt- kyrru fyrir í gili á meðan veðrið gekk
ingu frá fyrri tíð, hve miklum fjölda
jeppa væri nú ekið um hálendið og
sagði hann að fjöldinn nú hefði sleg-
ið öll fyrri met. Að jafnaði væru
margir á ferð um helgar, en aldrei
sem nú um páskana. Ekki sagði
Hálfdan að þessi jeppafjöldi hefði
haft nein teljandi áhrif á starfsemi
björgunarsveita SVFÍ. Hann taldi
ekki ástæðu til að hafa afskipti af
þessum ferðum. „Hins vegar mætti
vera meiri áróður við fólk að fara
varlega þegar það er í svona fjalla-
ferðum. Það er aldrei nógu varlega
farið þegar menn eru komnir upp á
hálendið að vetrarlegi. það geta allt-
af skollið á veður. Nú leggja menn
svo mikið upp úr loran, en við vitum
það, að loran er nú bara rafeinda-
tæki og hann á það tii að skekkjast
þegar él og snjókoma er. Hann getur
skekkst um nokkur hundruð metra
og það getur munað því að menn
lenda í vandræðum," sagði Háfdan
Henrysson. Kostnaður við leitarstörf
var ekki mikill að þessu sinni að
sögn Hálfdanar, enda kom ekki til
mjög víðtækra leita.
Biðu af sér veðrið
Um miðnætti aðfaramótt páska-
dags hófst leit að tveimur vélsleða-
mönnum á Botnsheiði. Þeir höfðu
farið síðdegis á laugardag upp í Graf-
ardal á bílum og þaðan á vélsleðum
upp á heiðina. Eftir nokkurn tíma
skall á illviðri á þeim slóðum og um
kvöldið var farið að óttast um þá.
Björgunarsveitir frá Reykholti, Borg-
amesi og Akranesi fóru til leitar,
alls 30 til 40 manns. Um kl. 04:30
um morguninn kom beiðni til Slysa-
vamafélagsins um allt tiltækt lið til
leitar. Þá voru ræstar út björgunar-
sveitir í Reykjavík og nágrenni og
landsstjóm hjalpar- og björgunar-
sveita kölluð saman. Um það bil sem
leggja átti af stað frá Reykjavík
fundust mennimir. Höfðu þeir haldið
yfir og gáfu sig fram þegar er þeir
urðu mannaferða varir. Það var kl.
06:15 um morguninn. Ekkert amaði
að mönnunum, enda voru þeir vel
búnir og höfðu brugðist rétt við að-
stæðum, að sögn Hálfdanar Henrys-
sonar.
Mildi að ekki fór verr
Jeppi festist í spmngu á Lang-
jökli á föstudaginn langa. Tvennt var
í bílnum og sakaði ekki. Leitað var
til SVFÍ um aðstoð og var haft sam-
band við félaga í björgunarsveitinni
í Mosfellssveit, sem voru staddir við
Hagavatn á snjóbíl. Voru þeir á leið
inn á jökulinn. Ekki kom þó til þeirra
kasta, þar sem menn á fjórum jepp-
um komu frá Hveravöllum og náðu
bílnum upp. Fólkið í jeppanum var á
ferð um jökulinn ásamt fleirum. Það
varð viðskila við lestina í slæmu
skyggni og fór út á viðsjárvert
sprungusvæði. Telja björgunar-
sveitamenn það vera mestu mildi að
ekki fór verr í þessu tilviki.
Villtust við Hofsjökul
Fólk á fjórum jeppum villtist á
leið frá Hveravöllum norður fyrir
Hofsjökul. Á páskadag var haft sam-
band við SVFÍ og beðið um aðstoð.
Þá hafði fólkið verið villt í tvo daga.
Haft var samband við menn á
Blönduósi og í Skagafirði, sem kunn-
ugir eru á þessum slóðum. Þeir gátu
ráðið af lýsingum fólksins hvar það
var statt og fóru þá menn á jeppum
frá Hveravöllum til aðstoðar. Það
voru sömu menn og náðu upp jeppan-
um á Langjökli. Greiðilega gekk að
finna bflana og koma þeim áleiðis.
Bílarnir illa búnir
Fólk á þremur jeppabflum Ienti í
erfíðleikum norðan Tindafjallajökuls
um helgina. Að sögn Gylfa Garðars-
sonar formanns Flugbjörgunarsveit-
arinnar á Hellu var fólkið vanbúið
til slíkra ferða og tveir bílanna urðu
Jeppi festíst í sprungu á Langjökli. Á innfelldu myndinni sést
hvemig jeppinn skorðaðist yfir spmngunni, sem er hyldjúp.
Tvennt var í jeppanum.
Morgunblaðið/Bjarni
Hálfdan Henrysson í vaktherbergi Slysavaraafélags íslands.
ógangfærir þegar á laugardag. Ekk-
ert amaði þó að fólkinu framan af
og fór m.a. sá bflanna sem gangfær
var til byggða eftir varahlutum og
vistum. Þegar veður versnaði á
mánudag óskaði fólkið eftir aðstoð
við að komast til byggða. Fóru þá
Ijórir björgunarsveitarmenn frá
Hellu á tveimur jeppum til aðstoðar.
Þeim tókst að koma öðrum biluðu
bílanna í gang, en hinn varð að draga
alla leið til byggða. Bílar fólksins
voru ekki búnir til aksturs í miklum
snjó og þurfti að draga þá alla þar
sem þyngsta færðin var. Ekki var
fólkið heldur þannig búið, að það
gæti gengið til byggða, að sögn
Morgunblaðið/Magnús H. Bjömsson
Gylfa. Björgunarsveitarmenn lögðu
upp frá Hellu um kl. tvö á mánudag
og til baka var komið aftur um mið-
nætti.
Skíðamenn ferjaðir
Björgunarsveit Slysavarnafélags-
ins í Vik var í æfingaferð yfir Myrdal-
sjökul um páskana. Var verið að
prófa nýjan snjóbfl sveitarinnar. Þeg-
ar fólkið var komið að skýli í Hvann-
gili norðan við jökulinn á föstudag,
komu þangað franskir ferðalangar á
gönguskíðum. Hafði þeim varið beint
þangað til gistingar. Kofinn, sem er
í einkaeign, var hins vegar yfírfullur
og voru ferðamennimir feijaðir á
vélsleðum í annan kofa.
Tilkynningaskylda
ferðamanna
Tilkynningaskylda Securitas og
björgunarsveita var mun meira notuð
um þessa páskahelgi en í fyrra, að
sögn Hannesar Guðmundssonar hjá
Securitas. Það eru Landssamband
hjálparsveita skáta og Landssam-
band flugbjörgunarsveita sem standa
að tilkynningaskyldunni í samvinnu
við Securitas, sem sér um að hafa
samband við ferðalanga. Hannes
sagði að það væru helst þeir varkár-
ustu sem notuðu sér tilkynninga-
skylduna. „Það eru þeir sem kunna
þetta best sem nota tilkynninga-
skylduna," sagði Hannes. Hann vissi
ekki til, að þeir sem höfðu skráð sig
í tilkynningar hefðu þurft á aðstoð
að halda um helgina. Tilkynninga-
skyldan er starfrækt allt árið.
Aðstoðað á heiðum
Auk þeirra leitar- og hjálparstarfa
sem getið er um hér að framan, fóru
björgunarsveitir til hjálpar við fólk
vegna ófærðar á vegum. Björgunar-
svéit SVFÍ á Egilsstöðum fór með
snjóbíla upp á Fróðárheiði á mánu-
dag til aðstoðar ferðafólki. Þar hafði
skollið á bylur og voru margir í vand-
ræðum á litlum bílum. Sama var á
Fróðárheiði á föstudag, þar komu
björgunarsveitir úr Ólafsvlk og af
Akranesi að hjálpa fólki niður af
heiðinni í hríðarbyl sem þar gerði
fyrirvaralaust.
Mosfellssveit:
Hollensk barna og
unglingahljómsveit
í æfingabúðum
HOLLENSK sinfóníuhljómsveit,
Haags instmmental jeugends-
amble, skipuð 50 bömum og
unglingum á aidrinum 9 til 19
ára hefur dvalið í æfingabúðum
í Varmárskóla í Mosfellssveit
undanfarna viku.
Ferðin til íslands er farin í tilefni
30 ára afmælis hljómsveitarinnar
og þótti við hæfí að minnast þeirra
tímamóta sérstaklega. Meðlimir
hljómsveitarinnar, sem eru víða að
úr Hollandi koma saman einu Sinni
í viku til æfínga. Árlega er haldið
í æfingabúðir sem standa í eina
viku og eru þær haldnar utan Hol-
lands á tveggja ára fresti. Stjóm
hljómsveitarinnar er skipuð úr röð-
um unglinganna og bera þeir
ábyrgð á starfseminni.
I dag, miðvikudag mun hljóm-
sveitin halda þrenna tónleika í
íþróttahúsi Varmárskóla, kl. 9, kl.
10:30 og kl. 12:10 árdegis. Á efnis-
skrá eru auk þekktra verka, tón-
verk eftir hollensk og íslensk tón-
skáld. Tónleikamir eru opnir öllum
sem áhuga hafa.
Á morgun, fimmtudag mun
hljómsveitin halda tvenna tónleika
í Reykjavík. Þeir fyrri verða í Öldu-
selsskóla kl. 10:00 en þeir síðari í
Hólabrekkuskóla kl. 14:00. Á föstu-
dag verða tónleikar í Keflavík.
Morgunblaðið/Emilía
Frá æfingn Haags instrumental jugendsamble í Varmárskóla.
Spástefna
Skýrslutækni-
félagsins
í tilefni 20 ára afmælis skýrslu-
tæknifélags Islands boðar félagið
til spástefnu í dag, miðvikudag,
um framtiðarsýn og þróun i upp-
lýsingatækni og stöðu íslands i
þeim efnum.
Spástefnan verður sett kl. 13.15 í
ráðstefnusalnum Borgartúni 6 með
ræðu Páls Jenssonar, fonnanns
Skýrslutæknifélagsins. Birgir ísleifur
Gunnarsson, menntamálaráðherra,
mun einnig flytja ávarp við setning-
una. Fyrirlesarar á spástefnunni eru
16. Fyrri hluti spástefnunnar mun
fjalla um þróun upplýsingatækninn-
ar, vélbúnað og hugbúnað, en síðari
hlutinn um þróun tölvunotkunar og
áhrif hennar á störf og þjóðlíf.
Spástefnunni lýkur kl. 17.00. Að
henni lokinni verða bomar fram veit-
ingar í boði menntamálaráðherra, að
því er segir í fréttatilkynningu frá
Skýrslutæknifélaginu. Þar verða
nokkrir félagsmenn heiðraðir og vel-
unnurum félagsins þakkað.