Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 58
65
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Kveðjuorð:
Sveinn Guðmunds
son forstjóri
Minning:
Hilmar Norðfjörð
loftskeytamaður
Fæddur 2. september 1906
Dáinn 24. mars 1988
Fæddur 27. ágúst 1912
Dáinn 21. mars 1988
Kveðja frá starfsmannafé-
lagi Vélsmiðjunnar Héðins
Sveinn Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóri Vélsmiðjunnar Héð-
ins, lést í Landakotsspítala á 76.
aldursári. Hann lauk námi í renni-
smíði í Héðni 20 ára gamall og hlaut
einkunnina 10 fyrir sveinsstykkið
sitt sem var „fræsari". Þar fór sam-
an fádæma verkhraði og hög hönd.
Verksvið þessa skarpa manns var
ávallt stórt og var hann oft með 2
vélar í gangi auk rennibekksins á
renniverkstæði Héðins sem þá var
í Aðalstræti 6, Reykjavík. Næstu 3
ár að loknu sveinsprófi stundaði
Sveinn tækninám í Svíþjóð og var
með fyrstu véltæknifræðingum á
íslandi, hans verkkunnáttu og
framsýni hefur íslenskt atvinnulíf
og iðnaður notið í ríkum mæli. For-
eldrar Sveins voru þau Snjólaug
Sveinsdóttir, ljósmóðir, frá Bjama-
staðahlíð í Skagafirði, og Guðmund-
ur Guðmundsson, bóksali og bók-
ari, er bjuggu á Eyrarbakka. Þar
var Sveinn fæddur og uppalinn þar
til leiðin lá til náms í Reykjavík
eins og fyrr segir. Sveinn var yngst-
ur af 8 systkinum. Albróðir hans
var Ástmundur og hálfsystkini böm
Guðmundar af fyrra hjónabandi
voru: Ásta, Guðmundur, Sigurður,
Halldóra og Hans og Ásmundur
Geir sem dóu ungir.
Þegar Vélsmiðjan Héðinn hf. var
20 ára 1942 fluttist fyrirtækið úr
Aðalstræti vestur á Seljaveg 2 þar
sem það er enn í dag með útibúi í
Garðabæ fyrir stálgrindarhús og
klæðningar o.fl.
Árið 1943 varð Sveinn Guð-
mundsson forstjóri Héðins hf. og
var það í nær 30 ár eða þar til
hann hætti vegna heilsubrests. Það
mun vera einsdæmi hversu hinn
ungi forstjóri lagði mikla alúð við
að skapa starfsmönnum smiðjunnar
góða aðstöðu til skemmtanahalds
og félagsstarfsemi. Má þar til nefna
svonefnt Héðinsnaust sem var
hringlaga salur, notaður m.a. fyrir
alhliða skemmtanir Héðinsmanna.
Þorrablót og árshátíðir Iléðins-
manna voru vinsælar skemmtanir
í nær 40 ár þar sem vinnufélagar
hristu af sér hverdagsleikann með
söng og dansi. Sá Sveinn forstjóri
þá stundum fyrir blómum á borðin
úr sínu eigin gróðurhúsi við slík
tækifæri: Ennfremur sendi hann
stundum jólatré á barnaskemmtanir
sem vaxið höfðu í hans sumarbú-
staðalandi.
íþróttaáhugi Héðinsmanna hefur
notið sín á fjölmörgum sviðum og
eru til ýmsir verðlaunagripir sem
forstjórinn lét smíða skáp utan um.
Þannig var hans hlýhugur í hví-
vetna þar sem starfsmannafélagið
átti hlut að máli og fyrir þann hug
og öll þau góðu kynni sem starfs-
mannafélagið hefur haft af þessum
höfðingja smiðjunnar eru hér með
færðar alúðarþakkir.
Árið 1937 kvæntist Sveinn Helgu
Markúsdóttur, auglýsingateiknara,
sem látin er fyrir 17 árum. Blessuð
sé minning þessarar sæmdarkonu
sem samhent var sínum manni í
uppbyggingu fyrirtækisins. Böm
þeirra eru Sverrir, sem nú er for-
stjóri Héðins, Markús og Guðmund-
ur sem stýra einnig störfum og
málum í Héðni. Dætur Sveins og
Helgu eru Kristín og Snjólaug.
Samúðarkveðjur sendum við
bömum Sveins og fjölskyldum
þeirra svo og eftirlifandi síðari konu
hans, Önnu Erlendsdóttur og fjöl-
skyldu.
F.h. starfsmannafélagsins
Héðins,
Sveinn S. Pálmason.
Nýliðnir helgidagar minna á að,
að samkvæmt kenningum kristinna
manna þá em páskamir hátíð í
tvennum skilningi í senn, hátíð
þjáningarinnar og hátíð lausnarinn-
ar. Það þykir því tæplega mikill
héraðsbrestur þegar aldnir og sjúk-
ir fá lausn frá veraldlegum þjáning-
um sínum.
í dag kveðjum við hinztu kveðju
Hilmar Norfjörð fv. loftskeyta-
mann, en hann lézt í Landakots-
spítala að kvöldi 24. mars síðastlið-
inn eftir um 2ja mánaða þungbær
veikindi. Hann var fæddur 2. dag
septembermánaðar árið 1906 á
Sauðárkróki, elztur 6 bama hjón-
anna Ásu Jónsdóttur Ámasonar
smiðs á Ásmundastöðum á Mel-
rakkasléttu og Jóhannesar úrsmiðs
og kaupmanns Norðíjörð þar, Jó-
hannessonar trésmiðs í Reykjavík
og Kristínar Norðfjörð, konu hans.
Árið 1912 fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur. Þar opnaði Jóhannes
Norðíjörð samnefnda úrsmíðastofu
og verzlun, fyrst í Bankastræti 12,
en hús það hafði verið hans
bemskuheimili. Átta ára gamall fór
Hilmar úr föðurhúsum í vist til
móðurfólks síns á Sléttunni, þar
sem hann undi sér vel í glöðum og
ættstórum frændgarði fram yfir
fermingaraldur. Minntist hann oft
þessara æskuára sinna hjá afa
sínum og ömmu, þeim Jóni Áma-
syni og Hildi Jónsdóttur, með kær-
leiksþeli.
Hilmar var eins og áður sagði
elztur systkina sinna en hin em í
aldursröð þessi: Agnar, hagfræð-
ingur, látinn, Ámi, dó úr berklum
23ja ára, látinn og yngstur Wilhelm,
sem tók við verzlun föður síns, hann
er einnig látinn.
Við heimkomuna frá Ásmundar-
stöðum fór Hilmar að vinna við
verzlunarstörf um sinn, en sextán
ára gamall fór hann til sjós, þá sem
matsveinn á póstbátinn „Tý“, sem
sigldi milli hafna á Austfjörðum.
Eftir einn vetur í Verzlunarskólan-
um „smitaðist" Hilmar af „loft-
skeytabakteríunni" eins og hann
nefndi það, en sú grein var þá ný
hér á landi, Nú var teningnum kast-
að — í Loftskeytaskólann skyldi
farið og um haustið 1924, þá rétt
átján ára, útskrifaðist hann. Frétti
Hilmar að loftskeytamann vantaði
á togarann Egil Skallagrímsson
sem Snæbjöm Stefánsson stýrði.
Hann munstraði sig hjá Snæbirni
og var upp frá því öll sín sjómanns-
ár á Kveldúlfstogurum eða til
haustsins 1944, að hann réð sig á
Veðurstofu íslands, sem þá var til
húsa í Landsímastöðinni gömlu.
Skip þeirra sigldi ekki alltaf sléttan
sjó og fyrsta veturinn lentu þeir
tvívegis í mikilli hættu — annað
skiptið var „Halaveðrið mikla" sem
svo er nefnt og mikið hefur verið
skrifað um og ekki endurtekið hér,
en þeir komust þá við illan leik að
landi eftir 30 stunda baráttu upp á
líf og dauða. Á seinni stríðsámnum
var siglt með aflann, fyrst til Cux-
haven, til að jafna viðskiptaskuldir
við Þjóðveija, en síðan til hafna á
Englandi. Frásögn Hilmars frá at-
burðum þessa tíma, þar sem hildar-
leikir vom háðir m.a. á siglingaleið-
um íslenzkra skipa, em sterk og
áhrifamikil.
Á Veðurstofunni starfaði Hilmar
samfellt í 33 ár, síðast sem deildar-
stjóri. Á þessum ámm gafst tóm
til að huga að félagsstörfum og
öðm því tengdu. Hilmar var félags-
lyndur að eðlisfari og lagði gjörva
hönd á margt í þeim efnum. Hann
var virkur í ýmsum félagasamtök-
um í áratugi, s.s. dýravemdarsam-
tökum og náttúmlækningafélögun-
um. Fyrir Almenna bókafélagið
starfaði hann einnig um árabil og
í pólitík fylgdi hann jafnan Sjálf-
stæðisflokknum að málum. Hann
var og félagi í frímúrarareglunni.
Hilmar var tvíkvæntur, með fyrri
konu sinni, Ástu Kjartansdóttur,
eignaðist hann dótturina Ingveldi.
Seinni konu sinni, Vilborgu Stellu
Grönvold, giftist Hilmar árið 1942.
Hún var fædd árið 1917, dóttir
hjónanna Margrétar Magnúsdóttur
Vigfússonar, en Margrét lézt á
síðasta ári í hárri elli, og Gústavs
Grönvold, danskættaðs manns, sem
dó ungur.
Þeim Stellu varð einnar dóttur
auðið, Steinunnar Margrétar, hús-
móður og ritara hjá Borgardómi
Reykjavíkur, hún á tvö böm, Stellu
Maríu og Hilmar Þór. Stella bjó
Hilmari hlýlegt og myndarlegt
heimili. Hún var manni sínum
traustur lífsfömnautur meðan
hennar naut við og deildi með hon-
um þeim kjömm sem lífið gaf. Hún
lézt fyrir rúmum tíu ámm, rétt sex-
tug að aldri. Eftir andlát konu
sinnar átti Hilmar góðu að mæta
hjá Steinunni dóttur sinni, sem sá
að miklu leyti um hann. Þótt tíminn
hafí sett mark sitt á þrek hans og
minni, átti hann á langri ævi góðri
heilsu að fagna. Til að viðhalda
heilsunni fór Hilmar oft í göngu-
ferðir á seinni ámm og haustdag
einn árið 1985 datt hann illa og
lærbrotnaði. Frá þeim tíma var
hann á ýmsum sjúkrastofnunum og
fast skjól hafði hann fengið á
Hrafnistu er hann veiktist fyrr á
þessu ári.
Ég varð þeirrar ánægju aðnjót-
andi að fá að kynnast Hilmari, þess-
listinn ókeypis
meðan birgðir endast.
Afhentur í verslun KAYS listans Hafnarfirði, Bóka-
búðinni Eddu Akureyri, Bókabúð Brynjars Sauðár-
króki, Bókabúðinni Vestmannaeyjum, Bókabúð
Vesturbæjar Reykjavík.
Útsalan i fullum gangi.
B.MAGNUSSONHF.
HÓLSHRAUNI2 ■ SÍMI 52866 • P.H.410 • HAFNARFIROI
BALLETT KLASSÍSKUR BALLETT
Vornámskeið 6 vikur.
Hefst mánudaginn 11. apríl.
Byijendur (yngst 5 ára) og
framhaldsnemendur.
Innritun i sima: 7 2154
Félag íslenskra listdansara.
BflLLETSKÓL! SIGRÍÐflR .J
[•j i fi I ■ 1111 Wm
I i r 1 I swmfeí
t
Hjartkær faðir minn og afi okkar,
HILMAR NORÐFJÖRÐ
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag miðvikudaginn 6. apríl
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeir sem vilja minnast
hans láti líknarfélög njóta þess.
Steinunn Norðfjörð,
Stella María Guðmundsdóttir, Hilmar Þór Guðmundsson.
HITACHI HUÓMTÆKI
HITACHI FERÐATÆK!
//•RONNING
•//f// heimilistæki
KRINGLUNNI - SÍMI 91-685868