Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
Halldór Jörgensson
Akranesi — Minning
Fæddur 24.júní 1911
Dáinn 25. mars 1988
Ég kynntist Halldóri Jörgenssyni
er hann kvæntist móðursystur
minni, Ragnheiði Guðbjartsdóttur
frá Hjarðarfelli, árið 1964. Hún
hafði þá verið ekkja um nokkurra
ára skeið og bjó á Akranesi ásamt
tveimur yngstu börnum sínum. A
meðan Heiða bjó á Hjarðarfelli átti
ég mitt annað heimili hjá henni og
fyrri manni hennar. Ég heid að mér
sé óhætt að segja að Halldór tók
hina stóru fjölskyldu konu sinnar
” að sér eins og hún væri hans eigin.
Hann reyndist ekki aðeins stjúp-
bömum sínum sem besti faðir held-
ur var hann sem bróðir og vinur
öllum öðrum ættingjum Heiðu.
Þessi rólegi og dagfarsprúði maður
vann fljótt hugi okkar og hjörtu.
Ætíð hafði verið mjög kært með
þeim systrum, móður minni og
Heiðu, og mikill samgangur á milli
heimila þeirra. Það breyttist ekki
þótt Halldór bættist í hópinn. Heim-
ili þeirra Heiðu stóð okkur alltaf
opið. Á fyrstu hjónabandsárum
þeirra dvaldi ég langdvölum erlend-
is og heimsóknir urðu því ekki eins
tíðar og við hefðum óskað. En ég
á samt minningar um margar
ánægjulegar samverustundir. Ég
minnist sérstaklega einnar fyrstu
heimsóknar minnar til þeirra er ég
var unglingur. Halldór brá þá á
glens og hélt því statt og stöðugt
fram að ég væri svo sem hálfum
sentimetra hærri en ég sagðist vera.
Ég er ekki há í loftinu svo að mig
munar um hvem sentimetrann.
Hann tók síðan fram tommustokk-
inn og sannaði mál sitt. Segi ég
þessa sögu hér þar sem hún lýsir
vel gamansemi Halldórs og einnig
nákvæmni. Síðastliðið sumar vom
ferðir okkar upp á Akranes tíðari
en oft áður. Einkum minnist ég
þess er við áttum með þeim ánægju-
legan Sjómannadag. Halldór leiddi
okkur um byggðasafnið að Görðum
árdegis. Þar var hann á heimavelli
og fræddi okkur um margt sem þar
var að sjá. Síðdegis nutum við há-
tíðahaldanna af svölum húss þeirra,
Sólbakka, þaðan sem útsýnið er svo
skemmtilegt yfir höfnina.
Ég veit að Heiða og Halldór og
foreldrar mínir áttu saman margar
ánægjustundir, í Reykjavík, á Akra-
nesi og á ferðalögum um landið.
Síðasta minning mín um Halldór
er frá síðastliðnu hausti. Hann og
Heiða komu suður til þess að vera
með okkur er faðir minn lést. Heiða
lék á orgelið við kistulagninguna
og Halldór söng með sinni styrku
rödd þótt árin væru orðin 76.
Skömmu seinna veiktist hann sjálf-
ur af þeim sjúkdómi er varð bana-
mein hans.
Við sem eftir erum geymum
minninguna um góðan dreng sem
ætíð vildi láta gott af sér leiða. Ég
er þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast Halldóri og eiga með hon-
um margar ánægjulegar stundir.
Ég vil einnig þakka alla elskusemi
hans við fjölskyldu mína, foreldra
mína og systur og mín eigin böm.
Heiða mín, við sendum þeir öll okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Pabbi hefði einnig viljað að við ósk-
uðum þér til hamingju með að hafa
átt slíkan lífsförunaut.
Sigrún Helgadóttir
Það kom mér nokkuð á óvart,
að frétta lát Halldórs, því þótt hann
hefði kennt sjúkdóms um nokkurt
skeið virtust batahorfur góðar á
tímabili, þó breyttist það fyrir
skömmu til þess að læknar hans
fengu ekki að gert, og lést hann
um miðjan dag, föstudaginn 25.
mars, í Borgarspítalanum í
Reykjavík.
Með Ilalldóri er fallinn einn af
traustustu og virtustu borgurum
Akranesbæjar. Hann var fæddur
og uppalinn á Akranesi og allt
lífsstarf hans var bundið við þann
stað, þó að hann sækti atvinnu
bæði til sjós og lands utan bæjar-
ins, svo sem algengt var á þeirri
tíð, þegar hann var ungur og fram
eftir hans æviámm.
Halldór var mjög félagssinnaður
maður og tók mikinn þátt í fjöl-
mörgum málum fyrir almenning í
bæjarfélagi sínu, sem ég tel að
hann hafí leyst af hendi með góðum
árangri, enda kom hann mér fyrir
sjónir sem framúrskarandi heiðar-
legur og traustur maður. Um störf
hans í þágu samfélagsins á Akra-
nesi frá fyrri tíð skortir mig nægj-
anlega þekkingu til að geta skýrt
frá svo sem ég vildi og vert væri,
þar sem ég kynntist honum ekki
fyrr en hann var kominn yfír miðjan
aldur, en ég veit að aðrir sem eru
þessum málum kunnugir munu
gera þeim skil.
Þó var það eftir að ég kynntist
Halldóri að hann tók að sér að vera
kirkjugarðsvörður og útfararstjóri
við Akraneskirkju, auk þess sem
hann var langan tíma í sóknamefnd
og gjaldkeri kirkjunnar og kirkju-
garðsins.
Einnig hafði hann með höndum
fjárreiður Safnaðarheimilisins á
meðan það var í byggingu og var
mér kunnugt um að það var mikið
starf, sem hann innti af hendi við
þá framkvæmd. Ég veit að Halldóri
var það hjartans mál að safnaðar-
heimilinu yrði komið upp, söfnuðin-
um til ávinnings fyrir starfsemi
sína, sem þegar hefur sannað gildi
sitt.
Öll þessi störf vann Halldór af
sinni kunnu vandvirkni og alúð og
við almennar vinsældir þeirra, sem
nutu þjónustu hans.
Ég vil aðeins þakka Halldóri fyr-
ir góða“ vinsemd og margar ánægju-
stundir, sem ég átti með honum,
bæði á heimili hans, á ferðalögum,
í kirkjukórunum og hvar annars
staðar sem við áttum samleið þau
TOPPTTU
listinn*
.sOa.
1. Hvað heldurðu?
61% jp.
2. Á tali hjá 3. Fréttir
Hemma Gunn 60% 53%
0 4. Fyrirmyndarfaðir 44%
H 5. Derrick 37%
H 6.-8. Lottó 36%
H 6.-8. Matlock 36%
§ 6.-8.19:19 36%
0 9. í skuggsjá 35%
H 10. Landið þitt ísland 33%
* Könnun Félagsvlsindastofnunar á sjónvarpshorfun
dagana 3.-5. mars, gerð fyrir báðar stöðvarnar.
Sjónvarpið lét kanna fyrir sig sérstaklega dagana
6.-9. mars, einnar viku horfun í allt. Könnunin náði
til alls landsins, fólks á aldrinum 15 til 70 ára.
TOPP-lið fréttastofu Sjónvarpsins. Alltaf í viðbragðsstöðu.
Fremsta röð, f.v.: Regína Óskarsdóttir,
safnvörður; Gunnþóra Halldórsdóttir,
klippari; Vilhjálmur Þór Guðmundsson,
kvikmyndatökumaður; Friðþjófur
Helgason, kvikmyndatökumaður; Bima
Ósk Björnsdóttir, dagskrárgerðarmaður.
Miðröð f.v.: Ómar Ragnarsson,
fréttamaður; Halldór Bragasori,
hljóðmaður; Helgi E. Helgason,
fréttamaður; Brynhildur Þorgeirsdóttir,
aðst.dagskrárgerðarmaður; Margrét
Einarsdóttir, aðst.dagskrárgerðarmaður.
Aftasta röð f.v.: Arnþrúður Karlsdóttir,
fréttamaður; Ámi Snævarr, fréttamaður
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri; Árni
Þórður Jónsson, fréttamaður; Helgi H.
Jónsson, varafréttastjóri; Jón Stefánsson
tæknistjóri.