Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 71

Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR G. APRÍL 1988 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL.10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Fegurð næturhiminsins og áhrifin frá stjörnunum Til Velvakanda. Dagur dvín og rökkur sígur jrfír lög og láð. Litir umhverfísins dofna. Fjöllin standa sem dimmar þústir og ber við himin. Sólin er sigin til viðar. Ljósrauður bjarmi sést enn við sævarbrún, og við hann miðjan ber jökulinn dökkbláan, og myndar mótsögn við fjöllitan sólarbjarmann í fjarska. Hátt á lofti birtast stjömuljósin. Þeim fjölgar eftir því sem dimman eykst, uns himinninn allur er þakinn orðinn dýrðarbirtu meiri, en nokkr- ir flugeldar á nýársnótt geta jafn- ast á við. Hugfangin horfum við á þessa fegurð og undmmst mikilleik þess- arar furðusmíðar, himinhvelfing- una, uppljómaða þúsundum ljósa. Því lengur sem við horfum, því meiri verður undrun okkar og hrifn- ing. Við sjáum, að stjömumar em mjög misbjartar. Sumar getum við rétt aðeins greint, en aðrar em mjög bjartar. Því tökum við líka eftir, að allar blika þær fagurlega, þannig, að líkast er því, að þær breyti litum í sífellu, hraðar en fest verði auga á. Auk þessa, tökum við eftir, að mjög er litur stjamanna misjafn: Sumar björtustu stjömumar em rauðleitar að sjá, aðrar em gular, og enn aðrar hvítar. Þá sýnast okk- ur sumar vera bláhvítar og jafnvel bláar sumar. Þá tökum við einnig eftir því, að margar af þeim stjömum, sem bjartastar em, raða sér upp í eins- konar hópa eða myndræn tákn með ýmislegri lögun. Slíkt köllum við stjömumerki, og em þau hentug til viðmiðunar og sem leiðarmerki um alla þessa víðáttu himinsins, sem sýnist standa eins og hús eða hvelf- ing yfír allri jörðinni. Enga sérstaka þekkingu í stjömufræði þarf til þess að njóta fegurðar himinsins og mikilleika stjömugrúans. Og eitt er það enn, sem allir aðdáendur þessarar fegurðar ættu og þyrftu að geta fundið: Frá stjöm- unum stafa einskonar áhrif, heill- andi og sterk. Þau gagntaka sálir þeirra sem næmir em. Hugurinn Undarleg sýnist hugmynd stjóm- málamanns, sem telur sig til þess kjörinn að bjarga heimsfriðnum, og ráðherra, sem á þann draum stærst- an að hitta sjálfan hryðjuverka- manninn Arafat að máli, — milli þess sem hann ræðir um Rómar- elda; vill sem sagt gegna einhvers konar Messfasarhlutverki? Sá virð- ist hins vegar þakka sjálfum sér nokkurra ára góðæri, en sýnist ekki fyllist unaðskennd. Það er eins og lifandi orkustraumar, magnandi, styrkjandi og læknandi, fylli alla tilvemna. Og sú hugsun gerir ósjálfrátt vart við sig, á slíkum stundum, að þessir styrkjandi straumar, sem okkur fínnst koma frá stjömunum, séu lífgeislar, send- ir okkur mannanna bömum, frá lengra komnum kærleiksvemm, lif- endum, sem stjömumr byggja. Og spumingar vakna: Er ekki þessi sérkennilega tilfinning, merki þess, að við komumst í nokkurt samband við máttugar viskuvemr himnanna, einmitt þegar við heillaðir horfum á dýrðlegar sólir geimsins, sem lýsa upp jarðstjömur þær, sem fóstra allt líf um allan alheim. Ingvar Agnarsson hafa veitt því eftirtekt hvað skrifað var á vegginn strax í fyrra að því er efnahagsástandið varðar. Mætti þar um segja svipað og í gömlum kviðlingi: Þótt margir kalli mig máluga, mælti kerling orðskvið þann: þagað gat ég þá með sann, þegar hún Skálholtskirkja brann. Sigurður Sigurðsson Þegar gat égþá með sann Þessir hringdu . . Dónalegur strætóbíl- stjóri Maður í Breiðholti hringdu og sagði farir sínar ósléttar: „Eg átti leið um Breiðholt með leið 12 og hringdi bjöllunni tímaniéga. til þess að fara úr vagninum á bið- stöð. Bílstjórinn var hins vegar upptekinn í samræðum við ein- hvem mann og tók ekki eftir neinu. Gleymdi sér algerlega og stoppaði ekki. Ég fór þá frammí til hans og kvartaði og sagði hann þá að hann myndi bara stoppa fyrir mig á næstu biðstöð, sem er við biðskýlið Staldrið. Ég varð að una við þetta, en varð að ganga miklu lengri leið en efni stóðu tii fyrir vikið.“ Þakkir til Þorsteins KE hringdi: „Ég vil koma á framfæri bestu þökkum til Þor- steins Pálssonar forsætisráðherra fyrir afstöðu hans til viðræðna Steingríms Hermannssonar við PLO. Fagna ég orðum Þorsteins að ríkisstjóm Islands muni ekki taka þátt f slfkum viðræðum og vildi óska að sem flestir fylgdu Þorsteini að máli í þessu efni.“ Tapaði úri Ósk Davíðsdóttir hringdi og sagðist hafa tapað kvenmannsúri með svartri ól annaðhvort fyrir utan Kaupstað eða Breiðholtskjör 23. febrúar síðastliðinn. Bað hún finnanda að hringja í símá 73399. Kæri Velvakandi. Hér kemur svar til hinnar for- vitnu Reykjavíkurmeyjar sem varpaði fram þeirri spumingu hvaða erlendu hljómsveitir myndu spila á Listahátíðinni í sumar. Því er til að svara, að hingað koma hljómsveitimar „The Christians" og „The Blow Monkeys". Sú fyrr- nefnda spilar 16. júní, en sú síðar- nefnda 17. júní, báðar í Laugar- dalshöll. Það standa yfir þreifíng- ar við fleiri sveitir, en ekki er tíma- bært að hafa fleiri orð um það að sinni. Markaðsstjóri Skifunnar Börn flosna upp frá námi Reið móðir hringdi og sagðist ekki botna í kennurum að ætla „eina ferðina enn að ganga út frá bömunum til þess að fara í verk- fall,“ eins og hún komst að orði. Kona þessi sagðist eiga þrjár dætur, eina f menntaskóla og tvær í grunnskóla og hefði séð það með eigin augum hvemig þessi óvissa hefur leikið krakkana. „Bömin flosna upp frá námi og þess em mörg dæmi, sérstaklega í mennta- skólunum, að nemendur skili sér ekki aftur eftir verkföllin. Þetta er skiljanlegt, hvað eftir annað er dembt yfir þau óvissu og tmfl- andi aðgerðum og þetta fólk er á viðkvæmu þroskastigi. Það þyrm- ir yfír þau og þau sjá ekki fram á neitt. Nú ætla kennarar að leika sama leikinn aftur. Em þeir til- búnir að taka á samvisku sína afleiðingamar eina ferðina enn?“ Ekið utan í bíl... Húsfreyjan á Kiðafelli í Kjós hringdi og sagðist ekkert skilja í fólki sem keyrði utan í bíla og forðuðu sér sfðan án þess að gera viðvart. Hún brá sér í bæinn ný- verið á grárri Charade-bifreið sinni, G-7421, og stoppaði skamma stund fyrir utan Húsa- smiðjuna og svo við BYKO. Hún tók ekki eftir neinu fyrr en heim var komið, en þá var henni bent á að bíllinn var bæði beyglaður og rispaður. Hún vill koma því á framfæri að ef einhver vildi gefa sig fram vegna þessa, væri síminn á Kiðafelli 666096. Um vélfryst skauta- svell Kæri Velvakandi. Ég vil taka undir það sem skrif- að var í Velvakanda sunnudaginn 27. mars um vélfryst skautasvell. í öllum borgum er aðstaða til skautaiðkunar og er kominn tími til að upp á slíkt verði einnig boð- ið í Reykjavík. Ætti að koma upp vélfrystu skautasvelli sem fyrst, því áhuginn er sannarlega fyrir hendi. Þórunn Ósk Ánægður Þröstur Þröstur hringdi og vildi hæla í hástert þjónustunni í Reykjavíkur apóteki. Sagðist hann hafa hælt apótekinu undir þessu nafni fyrir 20 áram og þegar hann fór þang- að aftur nýverið var ljóst að starfsfólkið hafði engu gleymt. Sagðist Þröstur hafa séð fjölda manns afgreiddan á einungis hálfri klukkustund ... Ófijálst í fjallasal? Þorvaldur Thoroddsen hafði samband og hafði verið á skíðum í Bláfjöllum helgina fyrir páska, nánar tiltekið innarlega á svæðinu á gönguskíðum. Gefum honum orðið: „Ég veit ekki hvaða rás það var, en það glumdi þama í fjöllun- um diskó og annað tónlistarlétt- meti úr hátalarakerfí og er óhætt að segja að þetta hafí gengið fram af mér. Maður getur ekki einu sinni notið fyallafriðarins fyrir þessu glamri. Ég náði taii af ein- hveijum sem tilheyrði Bláfjalla- nefnd og sagði hann eitthvað á þá leið, að það yrði að virða rétt þeirra sem vildu hlusta á þetta.“ Zi Kaffiterían býður / kaffiteríunni, sem er opin frá kl. 5-20 alla daga, er boðið uppá Ijúffenga hraðrétti auk sérrétta dagsins, sem valdir eru miðað við hráefnisgæði hverju sinni. Frá kl. 5 á morgnana er boðið uppá morgunverðarhlaðborð. Komduviðí kaffiteríunni - hún svíkur engan m QTEL LQFTLEIÐIR 1 MMiimB ttdPini FLUGLEIÐA HÓTEL „Heimur út af fyrir sig“ Þekking Reynsla Þjónusta M, FÁLKINN* 5'Jf>UR! ANDSBP'M'T B »<‘70 borðviftur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.