Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 1
88 SIÐUR B/C
79. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ísrael:
Féll stúlkan fyrir
ísraelskri kúlu?
Reuter
Vel fór á með þeim Najibullah og Gorbatsjov í Tashkent, en í framhaldi fundarins virðist styttast í það
að sovéski innrásarherinn fari á brott frá Afganistan.
Karnei Shomron, Reuter.
ÍSRAELSKA stúlkan, sem upp-
haflega var talið að hefði látist
eftir að palestínskir ungiingar
grýttu hana og samferðalanga
hennar i útilegu á Vesturbakkan-
um á miðvikudag, kann að hafa
fallið fyrir kúlu úr byssu farar-
stjóra hópsins. Mun það vera nið-
urstaða skýrslu hersins um atvik-
ið, sem lekið var út i gærkvöldi.
Hin 15 ára gamla skólatelpa,
Tirza Porat, lést eftir að flokkur
Palestínuaraba gerði aðsúg að
hópnum.
Að sögn ónafngreindra heimild-
armanna innan hersins fannst
byssukúla í höfði stúlkunnar og
mun hún vera úr sömu byssu og
tveir árásarmannanna féllu fyrir.
Afganistan:
Flestum hindrunum sam-
komulags rutt úr vegi
Gagnkvæmt samkomulag risaveldanna um áframhaldandi hernaðaraðstoð
Genf, Reuter.
HELSTU hindrunum samkomu-
lags um brottflutning sovéska
innrásarhersins úr Afganistan
virðist nú hafa verið rutt úr vegi,
en enn er eftir að ganga frá
ýmsum lausum endum þar að
lútandi. Var þetta haft eftir
áreiðanlegum heimildum í Genf
í gær. Leiðtogar Sovétríkjanna,
Pakistans og leppstj órnarinnar í
Afganistan létu i gær í ljós mikla
bjartsýni um að samkomulagið
væri innan seilingar, en það mun
fela í sér að um 115.000 manna
innrásarlið Rauða hersins fari
úr landinu og standa vonir til að
sá brottflutningur hefjist hinn
Flugræningjarnir í Iran:
Frestuðu fyrir-
hugaðri brottför
Nikósfu, Reuter.
FLUGRÆNINGJAR farþegaþot-
unnar frá Kuwait ákváðu seint i
gærkvöldi að fresta fyrirhugaðri
brottför sinni frá borginni Mas-
had í norðausturhluta írans, að
þvi er íranska fréttastofan IRNA
hermdi. Að sögn fréttastofunnar
féllust ræningjarnir á að fresta
brottförinni um að minnsta kosti
sex klukkustundir, en i vélinni
eru enn 50 gíslar. 57 gislum hef-
ur þegar verið sleppt, en þeir
fóru frá íran í gærkvöldi áleiðis
til Kuwaits.
Eftir nokkuð samningaþóf í gær
skutu flugræningjamir að írönskum
öryggisvörðum umhverfís vélina og
féllust íranir þá á að setja eldsneyti
í vélina og fluttu einnig vistir um
borð í hana. Flugræningjamir
krö'fðust þess að flugbrautin yrði
rýmd, svo að hægt væri að leggja
af stað hvenær sem væri og var
það gert.
Helst er talið að ræningjamir
hyggist skipa flugstjóranum að
fljúga vélinni til Beirút, en yfírvöld
þar segja ekki koma til greina að
leyfa lendingu vélarinnar. Hefur
tálmum þegar verið komið fyrir á
flugbrautum þar, en sýrlensk her-
yfírvöld vilja ekkert láta uppi um
til hvaða ráðstafana verði gripið
komi vélin þrátt fyrir allt.
Ræningjamir krefjast þess að
yfírvöld í Kuwait sleppi 17 mönnum
úr haldi, sem þeir segja pólitíska
fanga. Ekki er vitað hveijir rænin-
gjamir eru, að öðru leyti en því að
þeir tala arabisku. Flestir þeirra
gísla, sem enn eru í vélinni, eru frá
Kuwait — þar af þrír fjarskyldir
ættingjar furstans í Kuwait.
Sjá einnig frétt á síðu 26.
15. maí. Athygli vekur að risa-
veldin hafa orðið ásátt um að þau
megi áfram veita hinum
striðandi fylkingum í Afganistan
hernaðaraðstoð — Sovétmenn
leppstjórninni í Kabúl og Banda-
ríkjamenn skæruliðum.
Bandaríkjastjóm fagnaði þessari
þróun mála og sagði George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
að augljóst væri að samkomulag
væri brátt í höfn. Talsmaður Reag-
ans Bandaríkjaforseta sagði þó að
rýna þyrfti í „smáa letrið" áður en
hægt væri að fjölyrða frekar um
samkomulagið.
Míkhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi
og Najibullah, leiðtogi leppstjómar
Sovétmanna í Afganistan, hittust á
miðvikudag í Tashkent, höfuðborg
Úzbekístan, og vom þeir hinir bjart-
sýnustu eftir fundarlok í gær. „Það
er fullvíst að pólitískt samkomulag
mun nást,“ sagði Gorbatsjov meðal
annars. „Ég held að Pakistan og
Afganistan muni ná samningum og
við ásamt Bandaríkjamönnum mun-
um ábyrgjast þann samning
___Held ég,“ bætti Gorbatsjov við.
Zia-ul-Haq, forseti Pakistans,
sagði að Pakistanar væru reiðubún-
ir til þess að undirrita samninginn
„hvenær sem væri“ þar sem Sov-
étríkin og Bandaríkin virtust hafa
leyst ágreining sinn um málið.
Samkvæmt samkomulagi því,
sem risaveldin virðast hafa orðið
ásátt um, munu Bandaríkjamenn
styðja skæruliða í réttu hlutfalli við
stuðning Sovétmanna við lepp-
stjómina, en skuldbinda sig jafn-
framt til þess að draga úr aðstoð-
inni gangi Sovétmenn á undan með
góðu fordæmi.
Þrátt fyrir þessar jákvæðu yfír-
lýsingar frá Sovétríkjunum og Pak-
istan héldu viðræður í Genf áfram
í gær sem ekkert hefði í skorist og
ekki er útlit fyrir að samningar
verði undirritaðir fyrr en í fyrsta
lagi eftir helgi, þar sem ýmis tækni-
leg atriði tefja framvindu mála.
Fram kom að þegar árásarmennim-
ir gripu byssumar úr höndum farar-
stjóranna tveggja hefðu engar kúlur
verið eftir í þeim.
Þegar talsmaður hersins var
inntur eftir fregnum þessum kvaðst
hann ekkert um skýrsluna vita og
eftir því sem hann vissi best hefði
stúlkan látist af völdum áverka,
sem hún hlaut af gijótkasti árásar-
mannanna.
Japan:
Refsiað-
gerðirnar
harmaðar
Tókió, Reuter.
STJÓRNVÖLD í Japan kváðust
í gær harma þá ákvörðun Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta
að neita Japönum um aðgang að
bandarískum fiskimiðum á næsta
ári. Ástæða ákvörðunarinnar eru
hvalveiðar Japana í Suðurhöfum.
Ónefndur útgerðarmaður í Japan
sagði að ákvörðunin skaðaði hag
japanskra útgerðarmanna vissu-
lega, en bætti við að hún hefði ekki
komið mönnum mikið á óvart.
A siðasta ári fengu Japanir
104.000 tonna fiskveiðikvóta innan
bandarískrar lögsögu saman borið
við 1,1 milljón tonna kvóta árið
1984.
J. \jr J~% MA, XU 1 1
Reuter
Reyklaus dagur um heim allan
Fyrsti alþjóðlegi reyklausi dagurinn var haldinn i gær og að sögn
embættismanna Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) virtist
hann hafa tekist prýðilega. WHO varð fertug í gær og þótti við
hæfi að láta þann dag vera reyklausan. Talið er að árlega látist
að minnsta kosti 2,5 mil\jónir manna af völdum reykinga, þar af
500.000 í Evrópu einni. Á myndinni að ofan má sjá afgreiðsludömu
f stórverslun f Tókfó fjarlægja allt tóbak úr hillum, en þar f landi,
sem vfðar, verður öll næsta vika reyklaus og fyrsta daginn var
tóbak ekki haft til sölu.