Morgunblaðið - 08.04.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
41
Guðfræðistofnun hefur útgáfu Ritraðar:
V onandi lyfti-
stöng fyrir alla
guðfi’æðiumræðu
- segir Jónas Gíslason ritstjóri
Fyrsta heftið í Ritröð Guðfræðistofnunar Háskóla íslands er ný-
lega komið út. Hefúr það að geyma ritgerðir eftir kennara guð-
fræðideUdar. Ráðgert er að gefa út eitt eða fleiri hefti árlega eftir
því sem efhi og aðstæður leyfa með efhi eftir kennara guðfræði-
deildar og aðra guðfræðinga. Jónas Gíslason dósent er ritstjóri Rit-
raðarinnar og hann er spurður um tilgang þessarar útgáfu:
Með ritinu rætist gamall draum-
ur kennara guðfræðideildar, að
Guðfræðistofnun, sem komið var á
fót árið 1975, standi fyrir útgáfu
sem þessari. Þarna er kominn vett-
vangur fyrir guðfræðilega umræðu
sem okkur hefur fundist vanta.
Hugmyndin er að bæði kennarar
guðfræðideildar og aðrir guðfræð-
ingar fái þarna inni með efni, rit-
gerðir um rannsóknir sínar eða
önnur fræðistörf sem þeir vinna að
og við höfum reyndar nú þegar lagt
drög að næstu þremur heftum.
Fyrir alla
— Er ritið þá eingöngu fyrir
guðfræðinga?
Efni þess verður náttúrlega eink-
um fyrir guðfræðinga en þó er það
skrifað þannig að þeir sem áhuga
hafa á guðfræði geta lesið sér það
til ánægju. Ritröð sem þessi verður
alltaf fræðirit en innan ramma þess
eru vissulega áhugaverð málefni
sem höfða til hins almenna lesanda.
Við getum sem dæmi nefnt efni
næstu hefta. Það eru erindi frá
námsstefnu um sálmafræði og nið-
urstöður könnunar á trúarlífi og
trúarviðhorfi Islendinga sem dr.
Bjöm Bjömsson og dr. Pétur Pét-
ursson önnuðust.
Sem fyrr segir er það Guðfræði-
stofnun sem stendur að útgáfu Ritr-
aðarinnar. Sú stefna hefur verið
mörkuð í Háskóla íslands að sér-
stakar stofnanir starfí í tengslum
við hveija deild. Jónas Gíslason er
beðinn að lýsa nánar starfi Guð-
fræðistofnunar:
Með tilkomu hennar gefst betra
tækifæri til að efla fræðistörf innan
guðfræðideildar og um leið og
þama er kominn vísir að rannsókna-
stofnun vonumst við til að auka
tengsl deildarinnar við presta og
aðra guðfræðinga. Við getum hugs-
að okkur að guðfræðingar sem
hyggjast leggja stund á ákveðnar
athuganir eða fræðistörf geti leitað
til kcnnara deildarinnar eftir aðstoð
og ráðleggingum og við vonum að
Ritröðin verði mönnum hvatning til
þess enda mætti birta þar niður-
stöður slíkra rannsókna.
Dr. Björn Björnsson skrifar kafla
um Guðfræðistofnun í fyrsta hefti
Ritraðarinnar og dr. Þórir Kr. Þórð-
arson skrifar þakkarorð og kemur
fram hjá þeim báðum að þáttaskil
verða í sögu stofnunarinnar árið
1982. Þá gaf Gísli Sigurbjörnsson
forstjóri Elli- og hjúkmnarheimilis-
ins Gmndar eitt hundrað þúsund
króna minningargjöf um stofnendur
Gmndar og stofnaður var um leið
Starfssjóður Guðfræðistofnunar.
Hefur Gísli haldið áfram að efla
Starfssjóðinn með minningargjöf-
um. Dr. Þórir Kr. skrifar:
„Frá upphafi samræðna okkar
Æ. t t \ * r c é 1§ i IL __ , g Wmw
Hk linm •
Jónas Gíslason dósent er hér að kenna nokkrum nemendum guðfræðideildar.
UUIM I MbULUOILA IbLANUILA
HÁSKÓLi ÍSLANDS 1988
Forsíða fyrsta heftis Ritraðar-
innar. Myndina teiknaði Ernst
Backman.
Gísla Sigurbjörnssonar var rætt um
nauðsyn þess að hefja útgáfustarf-
semi. Var rætt um útgáfu fræði-
legra rita, enda brýnt að gefa út
efni í guðfræði á íslensku, og þyrftu
fleiri en guðfræðingar einir að geta
haft not af. Á nýhafin útgáfustarf-
semi stofnunarinnar því að vemlegu
leyti rætur að rekja til hvetjandi
umræðna og stuðnings í verki, sem
skylt er að þakka Gísla Sigurbjörns-
syni, um leið og árnað er heilla og
blessunar mannúðarstarfi Elli- og
hjúkmnarheimilisins Gmndar."
Lyftistöng
Efni fyrsta heftis Ritraðarinnar
em þessar ritgerðir: Bjarni Sigurðs-
son: Jólasálmar Lúters. Björn
Bjömsson: Hjónabandið og fjöl-
skyldan. Einar Sigurbjörnsson: Um
kristna trúfræði. Jón Sveinbjörns-
son: Lestur og ritskýring. Jónas
Gíslason: Er þörf á endurskoðun
íslenskrar kirkjusögu? Kristján
Búason: Nýjatestamentisfræði -
áfangar og viðfangsefni. Þórir Kr.
Þórðarson: Spuming um hefð og
frelsi. Má sjá af þessari upptalningu
að hér er um forvitnilegt og fjöl-
breytt efni að ræða. En hvað álítur
Jónas Gíslason ritstjóri um við-
tökumar:
Þær em framar vonum og em
áskrifendur þegar orðnir á þriðja
hundrað. Eg vona vissulega að hér
sé hafin útgáfa sem megi eflast og
verða lyftistöng fyrir alla guðfræði-
lega umræðu á íslandi. Framhald
útgáfunnar ræðst að sjálfsögðu af
viðtökunum sem hún fær hjá guð-
fræðingum og áhugafólki um guð-
fræði. Við höfum reynt að vanda
til útgáfunnar en jafnframt reynt
að hafa hana eins ódýra og kostur
er. Efnið er tölvuunnið hjá okkur í
deildinni og síðan offsetijölritað,
segir Jónas Gíslason að lokum. Rit-
ið fæst í lausasölu m.a. hjá Bóksölu
stúdenta og Sögufélagi og einnig
geta menn ennþá gerst áskrifendur
að Ritröðinni.
GOTT VERÐ!
Ennþá bjóðum við frábært verð á úrvalsgóðu kjöti
Til dæmis:
Bajoneskinka 595.- kr/kg
frí úrbeining
London lamb 640 kr/kg
engin fita
Hamborgara reyktur
svínahnakki 695.- kr/kg
Úrb. hangilæri 895.- kr/kg
Úrb. nangiframpartur 588.- kr/kg
Lambalæri 495,- kr/kg
Lambahryggur 475.- kr/kg
Nautabógsteikur 395.- kr/kg
Nautagrillsteikur 395.- kr/kg
Nautahamborgari
m/brauði 40.- kr/stk.
Opið til
Laugalæk 2, s. 686511
INIýtt grænmeti
- gott verð
íslenskar agúrkur aðeins 149.- kr/kg
Úrvals gulrófur 68.- kr/kg
Úrvals sveppir 455.- kr/kg
Úrvalstómatar 390.- kr/kg
Salathausar 93.- kr/kg
kl. 20 í kvöld
Garðabæ, s. 656400