Morgunblaðið - 08.04.1988, Síða 12

Morgunblaðið - 08.04.1988, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988 Nú sjá menn myndina af framtíð Norðurhafa eftir EyjólfKonráð Jónsson Þegar menn sjá þá mynd af norð- urslóðum, sem hér er dregin upp, þarf áreiðanlega ekki að rita neina áróðursgrein. Baráttan siðasta ára- tuginn er líka komin á lokastig. Hér er því aðeins hugmyndin að skýra lauslega hvað er að gerast. Varla er hægt að segja það í færri orðum en þeim að verið er að „loka“ nyrstu höfum frá Noregs- og Skot- landsströndum vestur til Kanada. Það geta þjóðir norðursins gert að réttum alþjóðalögum og eru að gera. Síðustu mánuðina hefur ötullega verið að því unnið að kynna norsk- um og dönskum yfírvöldum sjónar- mið íslendinga i þessu efni. Dagana 25. og 26. janúar var í boði utanrík- isráðuneytisins haldinn í Reykjavik embættismannafundur íslendinga, Norðmanna og Dana vegna Græn- lendinga (og hugsanlega líka Fær- eyinga, sem greinarhöfundur vildi helst að unnt yrði að koma inn í mjmdina. Og það er að sjálfsögðu hægt með samningum ef ríkis- stjómimar þtjár, sem um málið flalla, hafa nægilegan vilja til þess.). Á þessum fundi lagði dr. Manik Talwani, sem um langt skeið hefur verið helsti sérfræðingur ís- lendinga í hafsbotnsmálum, fram kort það sem hér birtist ásamt skýr- ingarmjmdum þeim sem birtast hér á opnunni til glöggvunar áhuga- mönnum um þetta mál, og væntan- lega eru allir íslendingar það. í fréttatilkynningu af fundi þess- um segir: „Fulltrúamir voru sammála um að kanna nánar þær upplýsingar sem lagðar voru fram á fundinum, ásamt niðurstöðum annarra rann- um eru sýnd með óbrotinni linu, en önnur mörk efnahagslögsögu með punktalínu. Kortið sýnir hina miklu víðáttu sem friða má á norðurslóðum. sókna á svæðinu og ræða á gmnd- velli þeirra möguleikana á frekari samvinnu. Ákveðið var að hittast aftur síðar að höfðu samráði milli aðila". Af íslendinga hálfu var lögð rík áhersla á að leitast yrði við að koma á einhvers konar sameign eða sam- nýtingu á svæðinu öllu líkt og gert var með tveim merkum samningum um Jan Mayen svæðið 1980 og 1981. Að mati höfundar er það raunar nauðsynlegt ef „loka“ á svæðinu öllu, því að rétturinn til þess byggist að hluta til á því að notast við framlengingu frá Jan Mayen-svæðinu eftir svonefndum Mohns-hrygg yfir til Noregs, en íslendingar eiga réttindi á svæðinu samkvæmt framangreindum samn- ingum, bæði til hafsbotns og vissrar hagnýtingar efnahagslögsögu um- hverfís Jan Mayen. Réttindi þau sem nú er verið að tryggja eru eignarréttindi á hafs- botninum og öllum lífverum, sem á honum eru eða í. í 77. gr. hafréttar- sáttmála Sameinuðu þjóðanna, 1. tölulið, segir. „Strandríkið beitir fullveldisréttindum yfír landgrunn- inu, að því er varðar rannsóknir á því og hagnýtingu náttúruauðlinda þess.“ Og 4. töluliður 77. greinar hljóð- ar svo: „Til náttúruauðlindanna, sem getir er í þessum hluta, teljast jarð- efnaauðlindir og aðrar ólífrænar auðlindir hafsbotnsins og botnlag- anna ásamt lífverum í flokki botn- setutegunda, þ.e.a.s. verum sem á nýtingarstigi eru annaðhvort hreyf- ingarlausar á eða undir hafsbotnin- um eða geta ekki hreyft sig nema í stöðugri snertingu við hafsbotninn eða botnlögin." Kröfur þær, sem ríkin þijú eru nú að skoða og lýsa vonandi form- lega við Sameinuðu þjóðimar áður en langt líður, eru hins vegar byggðar á 76. gr. sáttmálans og er þar stuðst við 4. tölulið a) II, sem er tiltölulega einfalt ákvæði þótt greinin í heild sé geysiflókin og vart í öllum atriðum skiljanleg öðr- um en hæfustu fræðimönnum — og deilir þá raunar á um skilning sumra ákvæða. Óumdeilt hygg ég þó vera að ákvæðið, sem áður er vitnað til og við styðjumst við, Lausn verður að fínna á Hatton- Rockall-deilunni Eins og kunnugt er hefur nú um langt skeið verið mjög náið samstarf milli íslendinga, Færey- inga og Dana um réttargæslu þjóðanna á Hatton-Rockall-svæð- inu. Þetta samstarf hefur m.a. borið þann árangur að þjóðimar gerðu á sl. hausti út mikinn leið- angur til að rannsaka jarðlög á svæðinu og em menn nú önnum kafnir bæði í Orkustofnun og er- lendis að vinna úr tölvugögnum. Engin vandamál eru í samskiptum þessara þjóða varðandi málið enda hafa íslendingar frá upphafi stutt málstað Færeyinga. Hinu er ekki að leyna að erfíð- lega hefur gengið að fá Breta til að setjast niður við samningaborð. Er þó alveg ljóst að hvort sem lit- ið er til almenns réttar eða ákvæða 83. greinar hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna er þeim skylt að alþjóðalögum að ræða við aðra þá sem kröfur gera til réttinda á svæðinu. Þótt málið sé flókið er eitt ljóst, Bretar geta aldrei öðlast nein réttindi á svæðinu gegn mót- mælum Dana og íslendinga. Það vita þeir auðvitað þótt sumir þeirra neiti því. En setjum okkur í spor Breta. Þeim tókst mótmælalítið að leggja Rokkinn (klettinn Rockall) undir sig. Út frá honum drógu þeir 200 sjómflna fískveiðilandhelgi og „helguðu" sér síðan hafsbotnsrétt- indi á svæðinu, sem er þó þannig að lögun að ógjörlegt er fyrir und- irritaðan að skilja rökin fyrir þeirri aðgerð. Klettinn eiga þeir og ís- lendingar hafa aldrei gert neitt tilkall til hans, gagnstætt því sem nokkrir fáfróðir menn hérlendis hafa haldið fram. Hins vegar barð- ist íslenska sendinefndin á hafrétt- arráðstefnunni harkalega gegn margítrekuðum kröfum Breta og annarra um að sker eða nibbur á borð við Rokkinn fengju 200 mflna efnahagslögsögu. Grein sú sem um þetta ijallar, 121. grein haf- réttarsáttmálans, stóð því óhögg- uð. Auðvitað gremst Bretum þessi niðurstaða. Var þetta allt þó sæmi- lega bærilegt þar til menn fóru að fá glýju í augun út af hugsan- legum olíuauðlindum á svæðinu. Breta skortir orku og fyrstur skyldi ég til að viðurkenna sann- gimi þess að þeir hlytu mest rétt- indi til olíuleitar og hagnýtingar slíkra auðæva ef fínnast kynnu, á öllu svæðinu, þegar samningar tælgust um sameign og samnýt- ingu þess. Margar leiðir eru til að leysa mál á borð við þetta í vin- semd. Fyrst er auðvitað að ræða saman. Síðan mætti skipa sátta- nefnd líkt og í Jan Mayen-málinu. Þá kæmi til greina að setja málið í gerð eða vísa því til dómsmeð- ferðar í heild eða hluta þess. Fyrir mér hefur aldrei verið mikill áhugi á því að íslendingar færu að gerast einhveijir olíufurst- ar suður í höfum enda aldrei haft mikla trú á að um slík auðævi væri að ræða á svæðinu fyrr en þá kannski nú vegna ásóknarinnar í heimildir til olíuleitar sífellt vest- ar frá Bretlandseyjum. Sú ein- kennilega afstaða Breta sl. vor

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.