Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 39

Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988 39 Afinæliskveðja: Garðar Jakobsson bóndi — Lautum Ég verð að segja eins og er, að mér hálfbrá þegar ég frétti það að hann Garðar í Hóluni, eins og hann var kallaður heima í sveit hans, Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, væri hálfáttræður í dag, 8. apríl. En ástæðan fyrir því að mér brá er sú að mér fannst svo stutt síðan að við Garðar vorum leikbræður á Beinateigseyrinni. Við Reykjadals- ána, þar sem eyrarrósin óx, og sandlóan átti sér hreiður. Og fyrst örlögin spunnu vef sinn á þann veg, að við Garðar urðum nágrann- ar í tuttugu og fimm ár, er mér skylt að senda honum kveðju í til- efni dagsins, frá mér og mínum. Garðar Jakobsson fæddist í apríl- mánuði, sem fyrr getur. Hann var því vorsins bam foreldra sinna, þeirra Jakobs Siguijónssonar og Hólmfríðar Helgadóttur í Holum í Reykjadal. Ekki ætla ég að ættfæra þau að öðru leyti en því, að í ættum beggja var listrænt fólk. Það er því kannski engin furða að yngsta bamið þeirra, yngsti sonurinn með þennan svip heiðríkjunnar, yrði einn af bestu sjálflærðu fiðlungum sýsl- unnar. Enda þótt hann gæti aldrei iðkað fiðluleik, nema í tómstundum. Enda var það svo á þessum ámm, að lífsbaráttan var hörð. Holtið og móinn, plógurinn og herfíð, kallaði á vinnandi hendur. Og Garðar vann á heimili foreldra sinna um skeið. En samt var það svo að hugurinn Ieitaði frá matarstritinu til hugðar- mála. Vart tvítugur að aldri fór Garðar tvo vetur til mennta í Laugaskóla, sem var orðlagður fyrir góða kennslu, á þess tíma mælikvarða. Og ekki minnkaði félagshyggja Garðars við það. Hann var að eðlis- fari mjög sannur félagsmaður, í Samtök móð- urmálskenn- ara 10 ára AÐALFUNDUR Samtaka móð- urmálskennara 1988 var haldinn 27. febrúar sl. í húsakynnum BHM við Lágmúla í Reykjavík. Fundurinn var Qölsóttur, enda eru samtökin tíu ára um þessar mundir og margt á döfinni. Starfsemi félagsins hefur eflzt með hverju ári og hafa samtökin til dæmis tekið að sér ýmis verk- efni fyrir framhaldsskóladeild menntamálaráðuneytisins. Árlega reynir félagið að standa fyrir endur- menntunamámskeiði fyrir fram- haldsskólakennara, en Kennarahá- skóli íslands annast slíkt fyrir grunnskólakennara. Næsta nám- skeið verður haldið á Akranesi í ágúst næstkomandi og verður þar kynnt nýtt námsefni í tjáningu. Félagið tekur þátt í samstarfí móðurmálskennara á Norðurlönd- um, sem árlega halda námskeið um tiltekið efni. Næsta námskeið verð- ur f Danmörku í júnílok og þar verður fjallað um ritun. Ýmsar ályktanir voru samþykkt- ar á fundinum. Ákveðið var að setja á laggimar útgáfunefndir fyrir framhaldsskóla og grunnskóla, marka þar ákveðna stefnu varðandi útgáfu Skímu o.fl. Úr stjóm gengu að þessu sinni Ingibjörg Axelsdóttir, Baldur Haf- stað og Guðbjörg Þórisdóttir. Stjóm skipa nú Þórdís Mósesdóttir, Víði- staðaskóla, formaður, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Varmárskóla, eldri deild, ritari, Margrét Friðriksdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi, gjald- keri, Þuríður Jóhannsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð, fulltrúi í stjóm Nordsprák, og Ásta Svavarsdóttir, Háskóla íslands, meðstjómandi. þeim félögum sem hann taldi til menningarauka og framfara fyrir land og lýð. Garðar var ekki kjörinn í hrepps- nefnd, enda ekki kært sig um slíkt. Hann hafði nóg á sinni könnu. Hann starfaði í ungmennafélagi sveitarinnar í mörg ár, af mikilli fómfysi. Ég mun lengi minnast samvinnu okkar í nefndum, eins og í íþróttanefnd og leiklistarstjóm þau örfáu ár sem við gátum unnið sam- an áður en ég fór úr sveitinni. Ég held sannast að segja, að Garðar sé einn besti og farsælasti maður sem ég hef unnið með í félagsmál- um. Ekki iná gleyma því, að Garðar var vel glíminn á ungdómsárum og afburða sundmaður á þess tíma mælikvarða. Hann tók mikinn þátt í söngmálum í sveit og sýslu og söng í Karlakór Reykdæla í yfír fjörutíu ár undir söngstjóm Páls H. Jónssonar á Laugum og þess munu fá dæmi, að Garðar hafí vant- að á söngæfingu, enda einn af stofnendum kórsins. Það er raunar með ólíkindum hvað Garðar gat komist yfir ásamt bústörfum, því nú gerðist Garðar einyrkjabóndi í lok fjórða áratugarins. Garðar kvæntist einni af bestu stúlkunum í Reykjadal, Þorgerði Glúmsdóttur í Vallakoti. Þau þjuggu í farsælu hjónabandi um fjörutíu ára skeið. Þau byggðu sér nýbýli í landi Hóla er þau nefndu Lautir, og vom síðan kennd við þann stað. Þau eignuðust fjögur börn. Um tölu bamabama veit ég ekki, en þau em allmörg. Konu sína missti Garðar árið 1979 og hefur hann rekið búið með yngstu dóttur sinni síðan. En þessum tímamótum míns gamla sveitunga, bóndans og fíðlar- ans í Lautum, sem á þessum degi getur horft með stolti jrfír farinn veg, ætti að gera miklu betri skil en hér er gert. Garðar minn! Þessi fáu orð sem hér em skrifuð eiga að vera heilla- óskir með daginn, en um leið þakk- læti fyrir gömul kynni, og þá ekki síst á kvöldum skammdegisins, er við bundum á okkur skautana og bmnuðum eftir svellgljánni í mána- skini kvöldsins. Gísli T. Guðmundsson BANDARIKIN VV/”.' pnrou Ameríku! Við fljúgum alls 17 sinnum í viku vestur um haf í sumar, til fimm heillandi áfangastaða: BaltimoreAVashington (3), Boston (2), Chicago (3), Orlando (2) og New York (7). Hvern dreymir ekki um að sjá Ameríku a.m.k. einu sinni? Komdu því í verk í sumar. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofurnar. FLUGLEIÐIR -fyrír þíg- Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100. (F réttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.